NT - 30.04.1984, Blaðsíða 24
Irrfíl
Mánudagur 30. apríl 1984 24
Knattspyrnu-
punktar...
Austurríki:
Austria Vín og Rapid
Vín berjast enn um
Austurríkistitilinn í
knattspyrnu og eru jöfn
og efst aö loknum 24
umferöum, þremur
stigum á undan Lask.
Austria sigraði Eisen-
stadt með fimm
mörkum gegn einu á
laugardag og Rapid
sigraði Austria Salz-
burg.
Kýpur:
Nicosía, varð Kýp-
urmcistari í knatt-
spyrnu, sigraði með þó
nokkrum yfirburðum.
Liðið varð fimm stigum
á undan helstu keppi-
nautunum, Apollon. í
þriðja sæti varð Pzopor-
ikos. Til gamans má
geta þess að Ethnikos
og Ermis féllu í aðra
deild.
Rúmenía:
Úr rúmensku knatt-
spyrnunni er það helst
að frétta að Steaua
Bukarest leiðir enn í
fyrstu deildarkeppn-
inni, er þremur stigum
á undan Dinamo Buka-
rest. í þriðja sæti er
síðan Universitatea
Craiova.
Pólland:
Widzew Lodz er nú
efst í 1. deild í knatt-
spyrnu í Púllandi Lodz
vann um helgina Gorn-
ik Walbrzych 4-1 á úti-
velli. Pocon Szczecin,
sem er í öðru sæti vann
einnig útisigur, vann
GKS Katowice 2-1.
Lech Poznan, liðið í
þriðja sæti vann Zagle-
bie Sosnowiec 1-0
heima.
Staða efstu liða í Pól-
landi:
Lodz... 21 10 9 2 29-15 29
Szczecin .. 21 13 2 6 34-14 28
Poznan ... 21 12 3 6 32-15 27
Walbrzych. 21 10 5 6 33-21 25
Zabrze .... 21 8 8 5 24-17 24
Halía:
Juventus heldur enn
forystu sinni í ítölsku
knattspyrnunni eftir
sigur gegn Inter Milanó
um helgina á útivelli.
Lauk leiknum, 1-2.
Næsta lið á eftir er
Roma sem sigraði Fior-
entina með tveimur
mörkum gegn einu. Ju-
ventus er með 42 stig en
Roma með 38 stig. í
þriðja sæti er svo Fior-
entina með 34 stig.
Holland:
Feyenoord fer nú að
verða öruggt með að
verða hollenskur meist-
ari í knattspyrnu, eftir
stórsigur gegn Utrecht
um helgina, 3-0. Að
vísu vann helsti keppi-
nauturinn líka, Ajax
vann Excelsior með
fjórum mörkum gegn
engu. PSV Eindhoven
steinlá aftur á móti á
útivelli gegn AZ ’67,
tapaði 3-0. Feyenoord
hefur 53 stig, Ajax er
með 49 og Eindhoven
hefur 48 stig.
Grikkland:
■ Olympiakos er nú
efst í Grikklandi með
41 stig eftir 29 leiki. í
'öðru sæti er Aris með
38 stig eftir jafnmarga
leiki, og Paok Saloniki
er í þriðja sæti með 34
stig eftir 29 leiki.
EM í körfuknattleik í Osló:
Naumt tap gegn Dönum
■ íslenska landsliðið í körfu-
knattleik tapaði þriðja leik sín-
um í röð í C-keppni Evrópu-
mótsins í körfuknattleik á laug-
ardag. Að þessu sinni voru það
erkifjendurnir Danir sem lögðu
landann að velli í hörkuspenn-
andi og góðum leik, 80-76. í
hálfleik voru Danir yfir 36-31.
Þegar 30 sekúndur voru eftir
af leiknum voru Danir einu stigi
yfir 77-76 og meö boltann. ís-
lendingarnir pressuðu þá stíft
en einn Daninn slapp í gegn um
vörnina og skoraði og fékk að
auki vítakast sem hann hitti úr,
þannig að Danir sigruðu 80-76.
„Þetta var mjög góður leikur
hjá okkur en hittnin var samt
ekki nógu góð,“ sagði Hilmar
Hafsteinsson, landsliðsþjálfari,
í samtali við NT eftir leikinn.
„Það sem okkur vantar er meiri
samæfing. Ef viðhefðum fengið
2-3 landsleiki áður en við fórum
út þá hefði þetta farið öðru vísi,
■ Jón Sigurðsson var hetja íslands í gær.
því liðin eru mjög jöfn. En leikurinn hefur ekki verið nógu
okkar lið finnur sig betur og góður en vörnin hefur verið
betur í hverjum leik þrátt fyrir stórgóð", sagði Hilmar.
að við séum að tapa, sóknar- Jón Sigurðsson átti stórleik í
íslenska liðinu, skoraði 9 stig,
en átti frábærar sendingar á
félaga sína sem skoruðu. Átti
alls 14 „assist“ í leiknum. Torfi
Magnússon átti mjög góðan leik
og skoraði 18 stig, Kristján
Ágústsson hitti vel og var stiga-
hæstur með 21 stig. StUrla Or-
lygsson átti stórleik í vörninni
og hélt besta manni Dana al-
gjörlega niðri. Þegar Sturla fór
út af með 5 villur í upphafi
síðari hálfleiks hafði Daninn
ekki skorað stig, en eftir að
Sturla fór út af skoraði hann 14
stig. Sturla skoraði einnig 2 stig
í leiknum. Garðar Jóhannsson
skoraði 2 stig, Jón Steingríms-
son 2, Flosi Sigurðsson skoraði
13 stig og átti þokkalegan leik,
Jón Kr. Gíslason 2, og Valur
Ingimundarson 7.
Þá léku einnig Norðmenn og
Portúgalir á laugardag og Norð-
menn mörðu tveggja stiga sigur,
78-76.
Belgíska knattspyrnan:
Beveren nær öruggt
gerðu jafntefli við Lárus og félaga
■ Beveren eru nú nær öruggir
um belgíska meistaratitilinn í
knattspyrnu eftir góðan sigur á
Lokercn 2-0 á útivelli um helg-
ina. Helsti keppinautur þeirra
um titilinn, Anderlect, lið Arn-
órs Guðjóhnsens, tapaði hins
vegar fyrir Lierse á útivelli 2-1.
Beveren þarf nú aðeins tvö stig
úr þcim tveim leikjum sem eftir
eru til þess að tryggja sér titil-
inn. Arnór Guðjohnsen gat ekki
leikið með Anderlecht frek-
ar en uppá síðkastið vegna
meiðsla.
Lárus Guðmundsson og fé-
lagar og Waterschei gerðu jafn-
tefli við Seraing 11-1 á heima-
velli. „Ég er nokkuð ánægður
með að ná jafntefli í þessum
leik því níu fastamenn vantar
nú í liðið“ sagði Lárus í samtali
við NT í gær. Lárusi tókst ekki
að skora í leiknum.
Sævar Jónsson og og félagar
í CS Brugge máttu þola stóran
skell hjá nágrönnum sínum í FC
Brugge. Sævar og félagar máttu
sækja boltann 5 sinnum í netið
áður en yfir lauk, og án þess að
geta svarað fyrir sig.
Önnur úrslit í Belgíu voru
þessi:
FC Liege-Courtrai..................2-0
Waregem-Beringen ..................0-0
Molenbeek-Malines..............1-3
Standard Liege-Antverpen .... 2-1
Beerschot-Ghent....................0-0
Staða efstu iiðanna í Belgíu
er nú þessi:
Beveren....... 32 20 5 7 55-32 47
Anderlecht..... 32 18 7 7 74-37 43
FC Brugge...... 32 16 6 10 68-35 42
Standard Liege .. 32 16 10 6 5441 38
Seraing ....... 32 15 11 6 58-47 36
FC Malines..... 32 11 8 13 4441 35
■ Lárus Guðmundsson og fé-
lagar gerðu jafntefli við Bever-
en
Unglingalandsliðið í körfu stóð sig vel á EM:
Tveir íslenskir
verðlaunamenn!
■ „Þetta var einu orði sagt
alveg einstaklega skemmtileg og
góð ferð“, sagði Einar Bolla-
son, þjálfari Islenska unglinga-
landsliðins í körfubolta, í sam-
tali við NT, en eins og kunnugt
er þá tók liðið þátt í Evrópu-
keppni unglinga í körfubolta í
V-Þýskalandi um páskana. ís-
lenska liðið var í mjög sterkum
riðli, þeir léku við V:Þýskaland,
Tékkóslóvakíu, ísrael og
Skotland, en karlalið þessara
þjóða eru með þeim sterkustu í
Evrópu. íslenska liðið stóð sig
frábærlega vel í keppninni og
lenti í fjórða sæti.
ísland - V-Þýskaland
íslenska liðið náði stórgóðum
leik á móti V-Þýskalandi og
hafði yfir í hálfleik, 45-43, og
þegar tæpar 3 mínútur voru til
leiksloka var ísland yfir, 75-74.
Á síðustu tveimur mínútum
leiksins náðu Þjóðverjarnir síð-
an að gera út um leikinn, sigr-
uðu með 10 stiga mun, 89-79.
Birgir Mikaelsson var stigahæst-
ur með 24 stig, Guðni Guðna-
son skoraði 19 og þeir Jóhannes
Kristbjörnsson og Hennig
Henningsson skoruðu 13 stig
hvor.
ísland - Tékkóslóvakía
íslenska liðið átti aldrei
möguleika gegn Tékkunum,
sem voru mjög hávaxnir og
sterkir. Þrír stórir miðherjar
voru í byrjunarliði þeirra og
þeir brutu íslenska liðið niður
strax í byrjun með stærð sinni
og styrkleika. Tékkarnir voru
13 stig yfir í hálfleik og lokatöl-
urnar 86-61. Stigahæstir íslend-
inganna voru þeir Birgir Mika-
elsson og Henning Henningsson
með 14 stig hvor, Jóhannes
Kristbjörnsson skoraði 11 stig
og Guðni Guðnason 10.
Island - ísrael
íslenska liðið náði mjög góð-
um fyrri hálfleik og voru yfir í
hálfleik, 34-33. í síðari hálfleik
sprungu íslensku strákarnir á
limminu, og ísraelsmennirnir
gerðu út um leikinn og sigruðu
89-62. Birgir Mikelsson var enn
stigahæstur með 20 stig.
ísland - Skotland
í þessum síðasta leik íslend-
inganna á mótinu gjörsamlega
rústuðu þeir Skotum, 80-59, og
áttu Skotarnir aldrei möguleika
í íslenska liðið í leiknum. Guðni
Guðnason var stigahæstur ís-
lendinganna í leiknum með 24
stig, Birgir Mikaelsson skoraði
18 og þeir Jóhannes Krist-
björnsson og Henning Henn-
ingsson skoruðu 10 stig hvor.
V - Þýskaland vann
Til úrslita í mótinu léku síðan
V-Þjóðverjar og Tékkar og í
hörkuleik náðu Þjóðverjarnir
að sigra, 89-81. V-Þjóðverjar
urðu sem sé efstir á mótinu með
8 stig, Tékkar í öðru sæti með 6
stig, ísraelsmenn í þriðja sæti
með 4 stig, ísland varð í fjórða
sæti með 2 stig, en Skotar ráku
lestina með ekkert stig.
Jóhannes valinn bestur
í hófi eftir mótið var síðan
Jóhannes Kristbjörnsson, aðal-
bakvörður íslenska liðsins, val-
inn besti leikmaður mótsins.
Jóhannes, sem dvalið hefur í
Bandaríkjunum í vetur, hefur
tekið gífurlegum framförum í
körfubolta og að hann skyldi
vera valinn besti maður þessa
móts, þar sem bestu körfubolta-
þjóðir Evrópu voru mættar til
leiks, er mikil viðurkenning fyr-
ir íslenskan körfubolta.
Birgir skoraði mest
Birgir Mikaelsson var stiga-
hæsti maður mótsins, skoraði
alls 76 stig. Birgir dvelur eins og
Jóhannes í Bandaríkjunum þar
sem þeir stunda nám í High
School og leika körfubolta með
skólaliðinu. Birgir mun koma
heim í vor- og leika með sínu
gamla félagi KR næsta vetur.
Jóhannes mun hinsvegar ætla
að dvelja lengur í Ameríkunni.
Töpuðu síðast með
87 stiga mun
Til gamans má rifja það upp
að síðast þegar íslendingar og
Vestur-Þjoðverjar léku ung-
lingalandsleik, fyrir nokkrum
árum sigruðú Þjóðverjarnir
með 87 stiga mun, þannig að
árangurinn er góður nú.
„Aldrei séð aðrar
eins framfarir“
Ég hef aldrei á ævinni séð
aðrar eins framfarir í körfubolta
hjá nokkurri þjóð“, sagði júgó-
slavenski eftirlistsmaðurinn frá
FIBA, Stefanovich, eftir mótið
qg miðaði hann þá við leik
fslands og V-Þýskalands í Lud-
vighaven fyrir nokkrum árum,
þar sem ísland tapaði með 87
stiga mun. Stefanovich er einn
af varaforsetum Alþjóða Körfu-
knattleikssambandsins, FIBA.
6 bakverðir, 1 fram-
herji og 3 íukkupollar
Þýsku blöðin skrifuðu mikið
um mótið og vakti frammistaða
íslenska liðsins mikla athygli. í
einu blaðinu var talað um að í
íslenska liðinu væru 6 bakverð-
ir, 1 framherji og 3 lukkupollar.
Var þá verið að miða stærð
íslenska liðsins við hin liðin sem
öll voru með 2-3 menn yfir tvo
metra.
Frakkland:
Laval
tapaði
■ Laval, lið Karls
Þórðarsonar, reið ekki
feitum hesti frá viður-
eign sinni við Toulon er
liðin léku um helgina í
frönsku fyrstudeildar-
keppninni í knatt-
spyrnu. Toulon sigraði,
2-0. Var þó leikið á
heimavelli Laval. Laval
er nú í níunda sæti með
36 stig.
Barátta Bordeaux og
Monaco er enn í al-
gleymingi og eru liðin
nú efst og jöfn í deild-
inni með 52 stig hvort.
Bordeaux vann Bastia
um helgina en Monaco
varð að sætta sig við
jafntefli á útivelli gegn
Toulouse.
Spánn:
Bilbæingar
meistarar
■ Atletico Bilbao
tryggði sér spánska
meistaratitilinn í knatt-
spyrnu í gær með sigri á
Real Sociedad, 2-1 á
heimavelli. Þetta er
annað árið í röð sem
Bilbao sigrar. Það var
varnarmaðurinn Inigo
Liceranzu sem var hetja
dagsins, því hann skor-
aði bæði mörk liðsins.
Sigurmarkið gerði hann
10 mínútum fyrir leiks-
lok og var það 3000.
mark Bilbao í spönsku
knattspyrnusögunni.
Liðin sem féllu eru
Cadiz, Real Mallorca
og Salamanca.
Portúgal:
■ Benfica, steinlá
gegn Tuimares um helg-
ina er liðin mættust í
portúgölsku knatt-
spyrnunni um helgina.
Guimares setti fjögur
mörk en Benfica aðeins
eitt. Benfica heldur þó
forystu sinni, hefur 49
stig, en Porto er í öðru
sæti með 47 stig. Porto
gerði jafntefli gegn Rio
Ave án þess að mark
væri skorað.
Sviss:
Engispretturnar
halda tveggja stiga for-
ystu sinni í svissnesku
knattspyrnunni eftir
sigur gegn Ungu piltun-
um frá Bern. Ef við
hættum öllum þýðing-
um þá hljóðar þetta
svona: Grashoppers -
Young Boys Berne 3-2.
Næstu lið á eftir eru
Servette og St. Gallen.
Ítalía:
Platini og Zico
markahæstir
■ Platini er iðinn við
að skora mörk fyrir lið
sitt Juventus í ítölsku
knattspyrnunni. Þessi
franski knattspyrnu-
snillingur gerði annað
mark Juventus í sigri
liðsins yfir Inter Mflano
um helgina.Hefur Plat-
ini nú gert 20 mörk í
ítölsku fyrstudefldinni
og er markahæstur,
einu marki á undan
Brasilíumanninum Zico
sem gerði tvö mörk fyrir
lið sitt Udinese um helg-
ina. Luther Blisset náði
að gera mark um helg-
ina fyrir AC Milanó.
Blisset gerði sigurmark
liðsins gegn Torínó og
var þetta fyrsti sigur AC
Milanó í 12 leikjum.