NT - 03.05.1984, Síða 3
tl'
Fimmtudagur 3. maí 1984
Verður þorskaf linn
meiri en í fyrra?
- Þrátt fyrir kvóta og góðan ásetning
■ Verður veitt jafnmikið af þorski í ár og
í fyrra, eða kannski meira? Sú spurning
er kannski alls ekki jafn fjarstæðukennd
og manni kynni að virðast.
Danskennarar
ganga í félag
■ Stofnað hefur verið
Félag íslenskra dans-
kennara. Stofnendur eru
danskennarar sem ekki
eru í öðrum félagsskap
danskennara hérlendis.
Formaður hins nýstofnaða
félags er Sigurður Hákon-
arson. Stofnmeðlimir eru
þegar orðir 23.
Skrifleg ósk um inn-
göngu skal sendast for-
manni félgasins; Sigurði
Hákonarsyni, Astúni 8,
Kópavogi.
■ Heildarþorskaflinn var
í fyrra um 292 þús. tonn. í
ár var upphaflega gert ráö
fyrir að takmarka aflann
við 220 þús. tonn, en sem
kunnugt er hafa vissar
breytingar orðið á því.
Eftir ýmsar breytingar á
kvótum og aukningu heild-
arkvótans um 10% fyrir
skemmstu er áætlaður
heildarþorskafli nú kominn
upp í rétt tæpar 260 þús.
lestir. Hér við bætist svo,
að samkvæmt reglugerðinni
hafa skipin heimild til að
færa 10% milli fisktegunda.
Ef öll skip nýttu þessa hei-
mild til að auka þorskveiði
sína á kostnað annarra teg-
unda er heildaraflinn kom-
inn upp í 286 þús. tonn eða
rétt undir aflanum í fyrra.
Því má svo að lokum
bæta við að sögusagnir eru
á kreiki um það, að hent sé
fiski sem fyrirsjáanlegt er
að ekki komist í fyrsta
flokk. Sé þetta rétt virðist
ekki fráleitt að álykta að
heildarþroskveiðin geti
jafnvel orðið meiri en í
fyrra^ þrátt fyrir góðan
ásetning.
■ „Vitum ekki hve stór hluti
þetta er af öllum þeim fálka-
eggjum sem stolið er“, sagði
Ævar Petersen fuglafræðingur í
samtali við NT.
NT-mynd GE
Fálkaeggin í Dimmuborgum:
Þjófarnir úrskurðaðir
í viku gæsluvarðhald
■ í gær voru þýsku eggjaþjóf-
arnir, sem stálu fálkaeggjum úr
að minnsta kosti tveimur hreiðr-
um í Dimmuborgum í Mývatns-
sveit, dæmd í gæsluvarðhalds-
vist til 9. maí. Samkvæmt upp-
lýsingum frá þýskum tollyfir-
völdum eru þjófarnir hjón, hér
á vegum Þjóðverjans Chiselsky
sem hér var á ferð árið 1978 og
stal fálkaeggjum víðs vegar um
landið. Þá er talið að þrír fálkar
sem þýska lögreglan tók í sína
vörslu fyrir skemmstu séu úr
eggjum sem hér var stolið í
fyrra, en þá hafði lögreglan hér á
landi ekki hendur í hári neinna
fálkaeggjaþjófa. Þýsku hjónin
sem handtekin voru nú voru hér
einnig á ferð í fyrravor og
dvöldu á svipuðum slóðum og
nú.
„Þessi egg voru orðin nokkuð
setin og því tel ég ólíklegt að
þessir fálkar verpi aftur“, sagði
Ævar Petersen fuglafræðingur
þegar NT sneri sér til hans og
innti hann eftir því hvaða af-
leiðingar þessi stuldur hefur fyr-
ir fuglana í Dimmuborgum og
fálkastofninn í heild sinni.
„Þetta er kannski ekki stór hluti
af fálkastofninum sem þarna er
steypt undan en við vitum held-
ur ekki hversu stór hluti þetta er
af þeim eggjum sem stolið er“,
sagði Ævar ennfremur.
Fullvíst er talið að þýsku
hjónin hafi tekið egg úr tveimur
fálkahreiðrum og vitað að þau
komu að fimm hreiðurstöðum
en ekki víst að egg hafi verið í
þeim öllum. Yfirleitt eru um
fjögur egg í fálkahreiðrum en
Þjóðverjarnir höfðu aðeins átta
egg í fórum sínum þegar lög-
reglan náði þeim. Ævar Peters-
en taldi ekki loku fyrir það
skotið að fleiri tengdust máli
þessu og að einhverjum
eggjum hafi verið komið undan
en Þjóðverjarnir höfðu verið að
verki í Mývatnssveit í um viku
tíma þegar lögreglunni var fyrst
gert aðvart.
Það var Ólafur Nílssen fugla-
- eru á vegum Þióð-
vwjans Chiselsky
t978hérWaráferð
- ólíklegt að þess/r
ralkar verpi aftur.
SÆV?.rPeter*en
■uglafræðingur
fræðingur, sem nú vinnur að
rannsóknum á fálkastofninum,
sem gerði lögreglunni aðvart
eftir að hafa séð egg hverfa og
greinileg ummerki eftir manna-
ferðir við hreiðrin. Þá hafði fólk
í nágrenninu merkt ferðir Þjóð-
verjanna nærri hreiðrunum og
því beindist grunurinn strax að
þeim. Þau yfirgáfu Þingeyjar-
sýslur um svipað leyti og lög-
reglan hóf leit að þjófunum, en
náðust skömmu síðar í botni
Gilsfjarðar og höfðu þá skipt
um bíl á bílaleigu Akureyrar.
Sunnlenskir bændur
eru byrjaðir að sá
■ „Menn eru farnir að huga
að garðlöndum sínum og þeir
áhugasömustu hafa notað hlý-
viðrið um páskana og nú síðustu
dagana til að sá gulrótafræi,
sem hefði nú þótt saga til næsta
bæjar á sumardaginn fyrsta þeg-
ar hér var norðankólga og élja-
veður“, sagði Stefán Jasonar-
son í Vorsabæ, spurður hvort
farið væri að vora austanfjalls.
„Vorið leggst fremur vel í
fólk að þessu sinni, enda er
jarðklaki með minna móti mið-
að við hin síðari árin og jafnvel
með öllu horfinn úr sandblend-
inni jörð hér niður við sjóinn.
Uppskeruhorfur garðávaxta eru
öruggari þegar snemma er sáð
og eftir að hin nýju yfirbreiðslu-
efni komu á markaðinn sem
virðast gefa góða raun. Vetur
og sumar frusu saman og það
var mál manna fyrrum að slíkt
boðaði kjarnmikil grös síðsum-
ars. Flestir bændur eru byrgir af
heyjum og jafnvel aflögufærir",
sagði Stefán.
BjörnsJakobssonar
minnst í Bæjarkirkju
■ Á sunnudaginnó.maí verður
dagskrá í Bæjarkirkju, kl. 14.00
til minningar um Björn Jakobs-
son frá Varmalæk, organista og
tónskáld. Dagskráin er í tilefni
af 90 ára afmæli Björns heitins
sem var organisti Bæjarkirkju
um 65 ára skeið. Flutt verður
tónlist eftir Björn, Gísli Þor-
steinsson syngur einsöng, kór-
söng annast blandaður kór úr
sveitum Borgarfjarðarhéraðs,
píanóundirleik annast Sverrir
Guðmundsson. Auk þess mun
sr. Jón Einarsson, prófastur í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
flytja erindi um Björn Jakobs-
sons.
Dýrt spa
auglýsa ó
eypis
■ Kostnaðurinn við að hreinsa
burt Samhygðarplakötin getur
sem best numið tugum þúsunda
og Samhygð kemur til með að
fá sendan reikning fyrir kostn-
aðinum.
Plaköt sem félagsskapurinn
Samhygð hafði límt upp á veggi.
á allmörgum sföðum, blöstu við
fólki sem tók þátt í kröfu-
göngum eða átti leið um
Reykjavík af öðrum ástæðum
hinn 1. maí.
NT hafði samband við Pétur
Hannesson hjá Hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar og sagði
hann þetta athæfi með öllu ólög-
legt. „Lögreglan hefur þegar
safnað skýrslum um þetta mál,
en það mun koma í okkar hlut
að hreinsa þetta burt og við
munum að sjálfsögðu senda
Samhygð reikning fyrir þeirri
vinnu.
Pétur sagðist í sjálfu sér ekki
hafa neitt að segja um efni
plakatanna, en kvaðst halda að
fólk hlyti að geta komið boð-
skap sínum á framfæri með
einhverjum öðrum hætti.
NT-mynd: Róbert
m
nþeg'-
.díngvrl