NT - 03.05.1984, Side 5
Fimmtudagur 3. maí 1984
nga fólkinu
áraraðir. Hvert prósent í
vöxtum, umfram verðtrygg-
ingu, skiptir hins vegar hreint
ekki svo litlu þegar nánar er að
gætt.
Vaxtahækkun úr 3% upp í
5% eykur t.d. greiðslubyrði af
25 ára láni um 28,6%. Fyrir
íbúðakaupandann með einnar
millj. króna skuld þýðir þessi
2% vaxtahækkun t.d. að mán-
aðarlaun hans þyrftu að hækka
úr 23.330 kr. upp í 30.000 kr.
miðað við að fjórðungur tekna
hans ætti að standa undir
greiðslum af lánunum.
50
Vextir: Mánaftarr
4.167
5.000
5.834
6.666
7.500
8.333
Laun:
13.333
16.666
20.000
23.333
26.666
30.000
33.333
■ee'stss lí.Kd?? ,a,raf
25% af launum. Sést t d að S ef gre'&lubyriM á að vera
þyrfti tvöfalt ^niSun en sá Hdti 6% vex«
I verðbætur er Sftj? ^1% VÖX‘Um-
Húsnæðisvandinn í Reykjavík:
Leysa
óleyfis-
íbúðir
vandann?
■ „Ég hef trú á því, að óleyfísíbúðir sem búið er
að innrétta, verið er að innrétta, eða á eftir að
innrétta á næstunni muni leysa stærri hluta af
húsnæðisvandanum í Reykjavík á næstu árum
heldur er nýbyggingar“, sagði Stefán Ingólfsson,
hjá Fasteignamati ríkisins m.a. í samtali við NT. I
skoðunum FR á íbúðum að undanförnu sagði Stefán
m.a.s. hafa komið fram dæmi um að þriggja hæða
stór raðhús í Breiðholti hafí veríð seld í þrennu lagi,
þ.e. að búið sé að skipta þeim upp í 3 litlar íbúöir.
Hin gífurlega eftirspurn eftir litlum íbúðum
kemur m.a. fram í þvf að verð á hvern fermetra
þeirra var á s.l. ári um 12% hærra að meðaltali en í
t.d. 4ra herb. íbúðum. Komst sá munur jafnvel upp
í 16%. Þetta gerist þrátt fyrir það að a.m.k.
fjórðungur af þessum litlu íbúðum er ósamþykktar
íbúðir, sem jafnaðarlega hafa selst á hlutfallslega
lægra verði en aðrar.
Það að mikið er nú byggt í Reykjavík af stórum
2ja og 3ja hæða húsum, jafnframt hinni miklu
eftirspurn eftir litlum íbúðum telur Stefán meðal
ástæðna þess að innréttingar ósamþykktra íbúða
hafi aftur verið að færast í vöxt að undanförnu, eftir
að tiltölulega lítið hafi verið um byggingu slíkra
íbúða áratuginn 1900-70.
Auk hins hlutfallslega háa verðs á litlum íbúðum
ýti það enn frekar undir þessa þróun að tiltölulega
lágt verð fáist fyrir hvern fermetra í sérbýli þegar
íbúðir eru komnar yfir ákveðnar stærð. Hægt er að
gefa sér sem dæmi raðhús á þrem hæðum samtals
180 fermetra, sem seljast mundi á um 3-3,2 millj.
króna. Ef hins vegar 120 ferm. íbúð á tveim hæðum
væri seld sér fengjust fyrir hana um 2,2-2,3 millj. og
! fyrir 60 fermetra íbúð á jarðhæð um 1,3-1,4 milj. kr.
ISamtals fengist því um hálfrar milljónar króna
hærra verð fyrir húsið í tvennu lagi.
Mikill munur á tilboðum:
8 milljón-
ir eða 22
- þegar tilboð voru opnuð hjá Lands-
virkjun í gær
■ Hæsta tilboðið reyndist vera meira en 150% hærra
en það lægsta, þegar tilboð í undirbúning stíflugrunna
við Þórisvatn og 4. áfanga Kvíslaveitu voru opnuð hjá
Landsvirkjun í gær.
í stíflugrunnana bárust 6 tilboð, hið lægsta frá
Hagvirki hf. upp á rúmlega átta og hálfa milljón.
Hæsta boðið átti Páll Sigurjónsson á Galtalæk og
hljóðaði það upp á rúmar 22 milljónir króna.
Tilboð í 4. áfanga Kvíslaveitu bárust frá 5 aðilum.
Hagvirki hf. rcyndist einnig eiga lægsta boðið hér. Það
var upp á rífar 123 milljónir en Völur hf. og
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða áttu saman hæsta
tilboðið, tæpar 217 milljónir.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen gerði
kostnaðaráætlun fyrír hönd Landsvirkjunar og hljóð-
aði hún upp á tæpar 11 milljónir fyrir stíflugrunnana
og tæpar 196 milljónir fyrir 4. áfanga Kvíslaveitu.
Öll tilboð verða skoðuð nákvæmlega á næstu vikum
og ákvörðuo síðan tekin á grundvelli þeirra athugana.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík:
Kölluð út 14 sinnum árið 1983
"VV'.
■ Nýlega var haldinn aðal-
fundur Hjálparsveitar skáta í
Reykjavík. Á fundinum kom
fram að sveitin var kölluð 14
sinnum út á síðasta ári, þar af
þrisvar vegna ófærðar á götum
borgarinnar. Nýr fimmtán
manna bíll mun brátt verða
tekinn í notkun hjá sveitinni.
Sveitarforingi var kjörinn Jón
Baldursson.
■ Nýr Mercedcs Hnimog-bfll
Hjálparsveitarinnar.
y'a%
f-r
ORÐSENDING TIL
FORELDRA I REYKJAVÍK
í þessari viku fá nemendur grunnskóla
í hendur bæklinginn:
Sumarstarf
börn og unglinga 1984
með upplýsingum um framboð á sumarstarfi
borgarstofnana og félaga í Reykjavík.
Foreldrar eru hvattir til að skoða
bæklinginn vandlega með börnum sínum
Gleðilegt m
sumar. III
ÆSKULÝÐSRÁÐ
REYKJAVIKUR
Fríkirkjuvegi 11
HANDLYFTIVAGNAR
FYRIR 1500 OG 2500 KG
FYRIRLIGGJANDI
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
simar 81722 og 38125
Hlífdorfatnaöur
frá Sjáklœdagerdinnj:
l>róaður til að mæta kröfum íslenskra
sjómanna við erftðustu aðstæður.
VINYL GLÓFINN
__________I»rælsterkir vinyihúðaðir vinnuvettlingar
SEXTIUOGSEX NOROUR með sérstökum gripfleti sem
Skulagötu 51 Sími 11520