NT - 03.05.1984, Page 6
Lestunar-
áætlun
Fimmtudagur 3. maí 1084
H6KLA HF
HFKiAHF
H
Skip Sambandsins munu
erma til íslands á næstunni
>em hér segir:
Hull/Goole:
Jan...................14/5
Dísarfell ............28/5
Dísarfell ........... 11/6
Rotterdam:
Dísarfell ........... 15/5
Dísarfell ............29/5
Dísarfell ........... 12/6
Antwerpen:
Dísarfell ............14/5
Dísarfell ............30/5
Dísarfell ........... 13/6
Hamborg:
Jan .................. 4/5
Dísarfell ............17/5
Dísarfell ............ 1/6
Dísarfell ........... 14/6
Helsinki/Turku:
Hvassafell............25/5
Larvik:
Francop .............. 7/5
Jan ..................21/5
Jan ...................4/6
Jan ................. 18/6
Gautaborg:
Francop .............. 8/5
Jan...................22/5
Jan....................5/6
Jan.................. 19/6
Kaupmannahöfn:
Francop .............. 9/5
Jan ................. 23/5
Jan ...................6/6
Jan ..................20/6
Svendborg:
Francop ..............10/5
Jan...................24/5
Jan....................7/6
Jan...................21/6
Árhus:
■ Francop ............. 11/5
; Jan...................25/5
i Jan....................8/6
Jan ..................22/6
I Falkenberg:
! Mælifell...............4/5
Helgafell.............11/5
Gloucester, Mass.:
Skaftafell 24/5
Skaftafell............24/6
Halifax, Canada:
Skaftafell............25/5
Skaftafell............25/6
oKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavik
Simi 28200 Telex 2101
I ______
■ „Manni þykir það nú helvíti
skrítiö að vera hættur á vetrar-
vertíð fyrir marslok, því venju-
lega hefur nú mesta fjörið verið
í mars og apríl. En við höfum
legið hér bundnir við bryggjuna
síðan í endaðann mars, þegar
við kláruðum kvótann, og
sjáum ekkert annað framundan
en 9 mánaða frí“, sagði Þráinn
Sigtryggsson, skipstjóri sem við
hittum á bryggjunni í Ólafsvík.
Útlitið sagði hann svipað hjá
mörgum öðrum í Ólafsvík.
Hann var spurður hvernig
þeir ætluðu að bregðast við -
hvort þeir gætu ekki farið á
einhverjar aðrar veiðar.
„Það er einmitt stóra spurn-
ingin - hvað geta menn gert? -
Það væri nú frekar hægt að
sætta sig við þetta ef hægt væri
að snúa sér að einhverju öðru
þegar þorskkvótinn er búinn.
En það virðist allt bannað. Við
Ólafsvíkingar erum settir út af
sakramentinu með að fiska bæði
rækju og skel - vissir aðilar
virðst eiga það allt þinglesið.
Nú svo er búið að setja kvóta-
kerfi á humarinn líka og hann
fá ekki bátar sem stundað hafa
nær eingöngu þorskveiðar, eins
og flestir hafa gert hér. Það er
að vísu verið að benda mönnum
á kolann, en með honum er
alltaf eitthvað af öðrum fiski og
eiga menn þá að henda honum?
Menn geta því lítið gert - það
væri þá helst að flytja í Hvera-
gerði og rækta þar hass - það
virðist vera það eina sem ekki er
búið að koma kvóta á ennþá",
sagði Þráinn kaldhæðnislega.
„Já, það er þungt hljóð í
mönnum. Sterkustu rækjumiðin
hafa nú líklega verið hérna
núna undanfarna dagasvo okkur
þykir það auðvitað andskoti
blóðugt að horfa á það út um
eldhúsgluggann að menn eru að
veiða rækju á 1000 tonna togur-
um hér uppundir fjöruborði hér
við Nesið. En svo eru ráðamenn
svo helvíti góðir að hér má ekki
setja niður rækjuverksmiðju
nema kannski eina pillingarvél
einhversstaðar úti í horni -
handa öllum flotanum hérna“,
sagði Þráinn.
„Já, mér sýnist fullt útlit fyrir
að menn leiti héðan burtu í
stórum stíl, ef þeir fá ekki að
byggja upp einn eða neinn fisk-
iðnað hérna heima, rækju-
vinnslu eða annað. Einn 70
tonna bátur var t.d. að fara
héðan á rækju norður í
Dumbshaf".
■ Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra, við opnun sýningarinnar að Hallveigarstíg.
NT-mynd: Sverrir.
Sýning Byggingarþjónustunnar
Orkusparandi
byggingarefni
■ Nýlega var opnuð sýning á
orkusparandi byggingarefnum, í
húsnæði Byggingarþjónustunnar
að Hallveigarstíg 1. Að sögn Ólafs
Jenssonar, frkv. stjóra Byggingar-
þjónustunnar, mun tilgangurinn
með sýningunni m.a. hafa verið
sá, að safna saman á einum stað
sýnishornum af þeim byggingar-
efnum sem tiltæk eru og nýtast við
orkusparandi aðgerðir, jafnt á
eldra húsnæði sem nýbyggingum.
Þá mun sýningin jafnfram ná yfir
ýmiskonar vöruflokka sem nýtast
til að breyta þeim orkugjöfum sem
fyrir eru, til aukins sparnaðar.
Nefndi Ólafur t.a.m. katla sem
brenna jafnt olíu sem rekavið.
Sýning þessi er að sögn Ólafs,
liður í því orkusparnaðarátaki sem
Sverrir Hermannssonar og Alex-
ander Stefánsson hafa átt frum-
kvæði að.
Sýningin er opin daglega og
stendur til 15.maí. Þá mun ætlunin
vera að fara með hana út á land,
fyrst á Snæfellsnes og Vestfirði, en
síðan til annarra landshluta.
VIPPU-
bílskúrshurðin
Lagerstærðir 210 x 270 cm,
aðrar stærðir eru smíöaðar eftir beiðni
Gluggasmiðjan Síðumúla 20
Reykjavík - Símar 38220 og 81080
Hekla fimmtug
■ Hekla hf. heldur upp á fimm-
tugsafmælið sitt nú um helgina. Á
föstudaginn verður mikil síðdegis-
móttaka fyrir erlenda og innlenda
boðsgesti. Munu um 600 manns
vera boðnir í þá veislu. Á laugar-
dag og sunnudag verður svo opið
hús fyrir almenning. Mun þá starfs-
fólk Heklu sýna fyrirtækið og
kynna starfsemi þess. Jafnframt
því sem söluvörur fyrirtækisins
verða sýndar, er ætlunin að koma
upp vísi að einskonar sögusýn-
ingu. Verða þar sýndir ýmsir gaml-
ir gripir sem Hekla hefur flutt inn
á liðnum árum.
Þess má geta að vinna sú sem
starfsfólk innir af höndum nú um
helgina er afmælisgjöf til fyrir-
tækisins.
■ Eitt þeirra tækja sem fólki gefst kostur á að skoða um helgina.
NT-mynd: Róbert
Helvíti hart, segir Þráinn Sigtryggsson í Ólafsvík
■ „Maður er svona að reyna að dunda eitthvað í bátnum til að annað og kann jafnvel ekkert annað“, sagði Þráinn Sigtryggsson
drepa tímann - búinn að stunda þetta alla sína ævi og þekkir ekki skipstjóri á Sveinbirni Jakobssyni í Ólafsvík.
NT-mynd Ragnheiður.
Eftir aflahrotuna í Breiðafirði:
i mu