NT - 03.05.1984, Blaðsíða 8
Fimmtudagur 3. maí 1984
ndur tasvffi
m
Notið reynslu atvinnubifreiðarstjóranna!
Leigubifreiðarstjóri skrifar:
■ „Það er altalað að margt
þurfi að bæta í umferðar-
menningunni í Reykjavík og ég
ætla ekki að fara að telja það
upp hérna, svo margt er það
sem við bílstjórar sjáum á akstri
ókkaf um borgina, sumt oft
sama daginn.
Hverig væri að Umferðarráð
kallaði saman nokkra áhuga-
menn úr okkar hópi og safnaði
saman ábendingum okkar um
það sem við teljum vera athuga-
vert? Ég og fjöldi leigubílstjóra
værum tilbúnir að mæta á fund
um þetta efni hvenær sem er.
Ég held að sú reynsla sem
notunTen'^einhverjar tölögur " ”Við tel-'um að reynsla atvinnubí,s‘j«ra sé ólygnust“, segir leigubifreiðastjórinn
frá hinum og þessum embættis- drögum ekki í efa að þeir menn atvinnubílstjóra sé ólygnust. Áhugamenn í okkar hópi eru
og skrifstofumönnum, þótt við vilji vel. Við teljum að reynsla Hví ekki að nota hana? tilbúnir, það er engin vafi.“
Brjótið ekki
flöskuráum-
ferðargötum
Björn Jóhannesson, skrifar:
■ Sunnudaginn 29. apríl gekk
ég að heiman klukkan sjö að
morgni í góðu veðri. Leiðin lá
frá Barónsstíg, gegnum Norður-
mýrina, upp Skipholt og niður í
Túnin. Pvílíka hauga af brotn-
um flöskum á götum og gang-
stéttum hef ég aldrei áður séð.
Þetta þekkist hvorki í Evrópu
né Ameríku, enda liggja sektir
við slfkri umgengni.
En hvað með þá sem gera
þetta? Þeirra siðgæði er ekki
upp á marga fiska. Það er engin
afsökun að koma svona fram
þó hlutaðeigendur hafi verið
undir áhrifum áfengis, og hugsið
ykkur hættuna sem börnum
stafar af þessum glerbrotum. Ég
verð að segja eins og er að ég
undrast að bifreiðastjórar skuli
ekki bíða stórtjón vegna þessa í
sambandi við dekkin. Síðast en
ekki síst kostar stórfé að þrífa
þennan ófögnuð upp, sem kem-
ur fram í auknum álögum hins
opinbera.
í sumar má búast við því að
margir útlendingar verði hér á
ferð og verði vitni að þessum
ósóma, og beri söguna 'heim.
Eða hvernig getum við ætlast til
þess að útlendingar gangi vel og
snyrtilega um landið, ef við
gerum það ekki sjálf?
■ Breiðholtsbúinn segir að það taki sig á aðra klukkustund að komast til vinnu sinnar í strætisvögnum úr Seljahverfi í miðbæ Kópavogs. „Við búum nú í Reykjavík
en ekki Tokýó.“
■ „Besta leikrit sem við
höfum séð lengi“, segja tvær
vondar um sjónvarpsleikritið
„IV1atreiðslunámskeiðið.“
Fyrirspurn til forráðamanna S.V.R. og S.V.K:
Hvers vegna eru engar
samgöngur milli Kópa-
vogs og Breiðholts?
■ Lengi hefur mig langað að
spyrja forráðamenn þeirra hjá
SVR og SVK að dálitlum hlut.
Satt að segja er ég furðu lostin
Vantar dagskrá
skemmtistadanna
og íslendingaþætti
Hallgrímur Pctursson hringdi:
■ Hann sagði að sér fyndist
vanta dagskrá skemmtistaðanna
í Reykjavík í blaðið, hvað væri
um að vera á hverjum stað um
helgar, hver hljómsveitin væri
og svo framvegis. Hann taldi að
ef blaðið ætti að ná tilgangi
stnum ætti það að geta notast
fólki algerlega og það þyrfti
ekki annað blað til að fletta upp
á svona atriðum.
Hann sagðist einnig vera
óhress með það fyrirkomulag
að selja íslendingaþættina í
sérstakri ákrift.
Hallgríniur sagðist að lokum
hafa keypt Tímann í 20 ár og
alltaf talið hann vera besta blað-
ið vegna þess að það sinnti
landsbyggðarfréttum vel, og
sagðist vona að svo yrði áfram
með NT.
vegna þess að þetta skuli ekki
hafa verið rætt meira, þar sem
ég trúi ekki að þetta snerti ekki
fleiri en mig. Það er a.m.k.
mjög ótrúlegt. Spurningin er
þessi: Hvernig stendur á því að
það eru engar samgöngur á milli
Breiðholtsins og Kópavogs?
Ég vinn sjálf í verslun í
miðbænum í Kópavogi, en bý
við Seljabraut í Breiðholti II.
Ég flutti í Breiðholtið fyrir
tveimur árum og tann i Dyrjun
ekki svo mikið fyrir þessu sam-
gönguleysi, þar sem ég átti þá
minn eigin bíl. Mínir hagir hafa
aftur á móti breyst síðan og nú
hef ég ekki bíl til umráða. Ég á
því ekki annars úrkosta en taka
leið 11 niður á Hlemm og fara í
Kópavogs-strætó þar. Það er
nú ansi hart, því þannig er ég á
aðra klukkustund í vinnuna.
Við búum nú í Reykjavík en
ekki Tokýó, þar sem þetta þætti
kannske sjálfsagt. Þetta hefur
annars orðið til þess að ég tek
stundum leigubíl, en það er
nokkuð dýr ferðamáti fyrir mig.
Nú á víst að fara að breyta
leiðakerfinu. Má ég eiga von á
lagfæringu?
Forráðamenn SVR og SVK.
í guðs bænum svarið þessu.
Örugglega vilja fleiri vita þetta.
Breiðholtsbúi
Til_________
lesenda
Þeir sem vilja koma skoðunum og fyrir-
spurnum sínum á framfæri í þættinum
„Lesendur hafa orðið“, eru beðnir um að
hringja á ritstjórn NT milli kl. 14-15 á
virkum dögum, eða senda bréf merkt:
Ritstjórn NT, lesendabréf, Síðumúla 15,
Reykjavík.
góð páskaupplyfting
■ Okkur þykja undarleg öll
þessi neikvæðu skrif, sem les-
endur hafa verið að krota fyrir
lesendadálka undanfarið um
leikritið Matreiðslunámskeiðið.
Þetta er það besta íslenska
leikrit, sem við höfum séð lengi
í íslenska sjónvarpinu. Það voru
gestir hjá okkur þetta kvöld og
við getum sagt alveg eins og er
að allir hreinlega grenjuðu af
hlátri.
Þetta var góð páskaupplyfting
hjá Kjartani og við vonum að
sjónvarpið haldi áfram að sýna
leikrit svipuð þessu. Það er
annað en þessi leikrit sem eiga
að vera hrein list eins og Ólafur
liljurós og Blóðrautt sólarlag,
sem sýnd hafa verið í sjónvarp-
inu og var varla horfandi á.
Að lokum vil ég þakka fyrir
Nikulás Nickleby, en það er
það besta, sem hefur verið sýnt
í sjónvarpinu lengi.
Tvær vondar