NT - 03.05.1984, Page 17
Kínversk stúlka slær
í gegn í bandarískum
sjónvarpsþáttum
- ekki þó í hlutverki gleðikonu, eins og " ' ' !M 11 ‘ P '
■ Rosalind Chao heitir undurfögur
stúlka, sem nú vekur athygli í banda-
rískum sjónvarpsþáttum, sem ganga
undir nafninu AfterMASH og eru
trúlega arftakar Mash-þáttanna
gömlu, en Alan Alda hefur loks gefist
upp á að halda þeim úti, þó að lítið lát
virðist vera orðið á vinsældum þeirra.
Fegurð Rosalind er þó ekki í sama
dúr og við eigum að venjast með
kvenhetjur í slíkum þáttum. Hún er
nefnilega af kínversku bergi brotin,
þó að hún eigi að heita bandarísk í húð
og hár, og gerir ekki hina minnstu
tilraun til að leyna uppruna sínum. Fó
var sú tíð að hún hefði fús selt sál sína
til að líta öðru vísi út.
- Ég hef alltaf verið mjög meðvit-
andi um kynþáttamisrétti, segir hún. -
F>egar ég var lítil, hefði ég allt viljað til
vinna að vera ljóshærð og ég var búin
að velja mér nafnið Sandy Miller. En
pabbi og mamma töldu mér hughvarf
og smám saman lærðist mér að vera
stolt af því að vera kínversk.
Rosalind skilur þó til fulls þá landa
sína, sem láta verða af því að lita hár
sitt og gera aðgerðir á andlitinu til að
skásvipur augnanna verði hverfandi.
Hún rak sig nefnilega fljótlega á það,
þegar hún hóf að starfa í skemmt-
anaiðnaðinum, að það var henni síður
en svo til framdráttar að hafa lagt sig
eftir að læra kínversku og ganga til
fara í kínverskum fatnaði, sem hæfði
útliti hennar svo vel. - í bandarískum
kvikmyndum sést ekki kínversk
stúlka, nema þá í hlutverki gleðikonu
eða í einhvers konar Kung fu-mynd,
segir hún. En Rosalind átti ekki einu
sinni því láni að fagna að hreppa
hlutverk götustúlkunnar sem selur
blíðu sína. Einhverra hluta vegna
þótti þeim, sem með völdin fara í þeim
viðskiptum, hún ekki passa í slík
hlutverk, hún væri alltof sakleysisleg
til þess. Það varð því stór sigur fyrir
hana, þegar hún fékk umrætt hlutverk
í AfterMASH, en þar leikur hún
ósköp venjulega kóreanska stúlku.
Og hún hefur nú sýnt og sannað ágæti
sitt sem leikkona.
■ Rosalind Chao er bráðfalleg
stúlka, eins og sjá má. En sú var
tíðin, að hún hefði allt viljað
vinna til að vera Ijóshærð og
falla betur inn í fjöldann. Nú er
hún stolt af kínverskum upp-
runa sínum og hefur m.a. lært
kínversku.
ur rithöfundur finnst
sinni á Torremolinos
Munni hans og öndunarfærum
var vandlega lokað með þessu
sama límbandi og reyndist þar
dánarorsökin fundin, Benny
Aaholm hafði kafnað. Staðfest
var að líkið hafði legið þarna
síðan á aðfaranótt skírdags.
Fleira reyndist öðru vísi en
vænta mátti í húsinu. T.d. hafði
bútur af svörtu flaueli verið
lagður ofan á líkið og sams
konar efnisbútur fannst í körfu
Pussy. Margit van der Recke
gat staðfest, að þetta ætti ekki
heima í húsinu. Spænska lög-
reglan lætur sér því detta í
hug, að einhvers konar helgi-
athöfn hafi farið fram í sam-
bandið við morðið. Benny Aa-
holm var kynhverfur og er nú
lögreglan að velta því fyrir sér,
hvort þar sé að leita skýringar á
morðinu.
Benny Aaholm skrifaði að
staðaldri sögur fyrir vikublöð
þau, sem Aller-samsteypan gef-
ur út, einkum þó Familie Journ-
al, og Ude og Hjemme og Aller
í Noregi. Auk þess hafa komið
út eftir hann fjölmargar bækur
og nýlega tók hann upp gamlan
þráð, þegar hann hóf að gefa út
Mánedens Roman að nýju. Hér
áður fyrr skrifaði hann talsvert
fyrir Hjemmet.
■ Nú nýlega hóf Benny aftur
að gefa út Mánedens Roman. í
bókunum eru frásagnir af
kcttinum Pussy, sem nú er orð-
inn húsbóndalaus og verður
vafalaust lógað.
Fimmtudagur 3. maí 1984 17
■ Þó að Bette Midler þyki gaman að spranga um
berbrjósta á sviðinu,segist hún þó verða ragari við það
■neð aldrinum, af augljósum ástæðum!
„Það skemmtileg-
asta sem ég geri
er að hátta mig
að ofan á sviðinu“
- segir Bette Midler,
sem enn kemur á óvart!
■ Söngkonan Bette Mi-
dler er síður en svo ókunn-
ug nautnum ýmiss konar,
og stundum heíur hún far-
ið flatt á því að leita þcirra
á miður hollan hátt. En
nú þykist hún hafa fundið
hina cinu og sönnu nautn
og það sem betra er, það,
sem vekur henni siíkan
unað hefur ekki í för með
sér miður heilnæm áhrif á
líkama eða sál. Bette þyk-
ir ekkert ánægjulegra um
þessar mundir en að bcr-
hátta sig að ofan, þegar
hún kemst í verulcga góð-
an ham á sviðinu.
- En ég verð að vera
komin í rétt skap áður cn
ég fcr að fækka fötum. Ég
verð að vera búin að fá
þaðá tilfinningunaaðþetta
sé í raun og vcru það, sem
áheyrendur vilja að ég
geri, segir hún.
Bette segir upphafið að
þessari sviðsframkomu
megi rekja til þess, þegar
hún hélt tónleika á Pall-
adium í London fyrir
nokkrum árum. - Þá sátu
nokkrir gæjar á fyrsta
bekk og héldu upp skilti,
sem þeir höfðu skrifað á
stórum stöfum: Sýndu
okkur bollurnar þínar,
Bette. Og ég gat ekki
svikið þá, finnst ykkur
það, segir hún í viðtali við
breskt blað nýlega og bæt-
ir því, að það hefði verið
greinilegt að allir í salnum
voru á sama máli. Sá, sem
ekki var á sama máli hins
vegar, var stjórnandi
hennar. Hann löðrungaði
Bettc, þegar hún kom' út
af sviðinu eftir þess uppá-
komu!
Samt sem áður segist
Bette hafa cndurtekið
þetta vinsæla atriði sitt
nokkrum sinnum sfðan.
Hins vegar verði hún rag-
ari viö það eftir því sem
árin færast yfir hana og
segir það auðskiiið mál.
Þessar fatafellusýnignar
eru ekki einu atriðin. sem
söngkonan hefur kornið
aðdáendum sínum í Bret-
landi á óvart með. Einu
sinni, þcgar átti að hafa við
hana sjónvarpsviðtal,
gerði hún sér lítið fyrir,
hringaði sig á gólfinu og
þóttist sofna um það leyti,
sem viðmælandi hennar
ætlaði að fara að ræða við
hana.
Og oft hefur hún þótt
óþarflega hispurslaus í
blaðaviðtölum. Henni
vcrður t.d. tíðrætt um
kynlíf og það á heldur
annan hátt en öðrum fræg-
um konum. Hún hefur
t.d. lýst yfir því, að þó að
hún sé ákafur dýrkandi
kynlífs nú, hafi það ekki
alltaf vcrið svo. - Ég missti
ekki meydóminn fyrr en
ég var 19 ára, því að
siðprúðar stúlkur þá á
dögum gerðu ekki svoleið-
is. En ég man enn þann
dag í dag, hvað ég varð
fyrir miklurn vonbrigðum.
Ég gat hreinlega ekki
skilið, hversvegna vargert
svona mikið veður út af
svona ómerkilegum hlut,
segir hún.