NT - 03.05.1984, Qupperneq 19
ftalska Ijóðskáldið Giacomo Leopardi
vissi um eldfjallið Heklu á íslandi
■ Halldór Þorsteinsson og Andrea Oddsteinsdóttir kona hans
koma bæði fram í þættinum „Samtal náttúrunnar og íslendings“.
■ Samtal náttúrunnar og ís-
lendings nefnist þáttur í útvarp-
inu kl. 21.20. Þar segir Halldór
Þorsteinsson tungumálakennari
frá ítalska Ijóðskáldinu Gia-
como Leopardi og les þýðingu
sína á þætti eftir hann í óbundnu
máli. Lesari með Halldóri er
kona hans, Andrea Oddsteins-
dóttir.
Halldór sagði blaðmann.NT,
er hann forvitnaðist um þennan
þátt, að Leopardi, sem fæddist
1798, hefði verið lærður maður
og vitað um ísland og m.a. að
þar væri Hekla hin eldspúandi.
- Leopardi er mjög frægt skáld,
sagði Halldór og talinn eitt besta
skáld ítala síðan Dante leið.
Fyrst flytur Halldór smáer-
indi um skáldið og kynnir það,
en síðan kemur þáttur eftir
Leopardi sem heitir „Samtal
náttúrunnar og íslendings“.
Hann er úr Operetti Morali eða
„Siðspekiritum“ skáldsins, en
þar í eru 25 þættir og þykir þessi
þeirra merkastur og koma þar
fram lífsskoðanir skáldsins.
- Skáldið velur einhvern mjög
fjarrænan mann - og því íslend-
ing , segir Halldór. Þessi Islend-
ingur er alltaf á flótta undan
náttúrunni, en Leópardi heldur
því fram að náttúran sé
mönnum óvinveitt, svo sem sjá
megi á öllum náttúruhamför-
unum, svo sem eldgosum,
flóðum, fellibyljum og slíku.
„Þetta er dálítið furðulegt allt
saman, en þó er endirinn sér-
staklega furðulegur", sagði
Halldór.
Halldór tekur það fram að
Leópardi hafi verið lærður mað-
ur á þeirra tíma mælikvarða,
og því vitað að ísland var iii, en
hann hefur ekki verið vel heima
í veðurfræðinni, því að hann
lætur íslendinginn segja, - að
það hafi ekki verið neitt vanda-
mál að leita einverunnar á
íslandi, - en að vetrarhörkurnar
og þá ekki síður steikjandi
sumarhitarnir hafi verið að gera
út af við sig.
í lokaorðum þáttarins segir
Halldór Þorsteinsson frá því
hvernig hann kynntist þessum
þætti, en það var á mjög sér-
stæðan hátt, sem hlustendur fá
að kynnast í lok erindis
Halldórs.
Útvarp kl. 20.30:
Unnur Sveinbjarnardóttir, einleikari á lágfiðlu:
„Áskell Másson skrifaði Kon-
sertinn sérstaklega fyrir mig“
■ Unnur Sveinbjarnardóttir kom hingað til lands gagngert til að
frumflytja Konsert eftir Áskel Másson. (NT-mynd Róbert)
■ A dagskrá útvarpsins fimm-
tudaginn 3. maí kl. 20.30 eru
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói - fyrri
hluti. Stjórnandi er Jean-Pierre
Jacquillat. Fyrsta verk á tón-
leikunum er Svíta nr. 5 eftir
Johann Sebastian Bach, en síð-
an kemur Konsert fyrir lágfiðlu
og hljómsveit eftir Áskel
Másson, og er það frumflutning-
ur þess verks. Einleikari er
Unnur Sveinbjarnardóttir.
Kynnir á tónleikunum er Sig-
urður Einarsson.
Unnur Sveinbjarnardóttir er
■ Áskell Másson er höfundur
Konserts fyrir lágfiðlu og hljóm-
sveit sem frumfluttur er á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands á flmmtudagskvöid.
nýkomin heim til Islands til að
taka þátt í þessum tónleikum. í
viðtali við hana kom fram að
Áskell Másson hafði samið
þennan konsert sérstaklega fyrir
hana.
Blaðamaður spurði Unni
hvort ekki fylgdi því mikill
spenningur að frumflytja verk.
Hún svaraði:
„Mér finnst verkið fallegt og
líst mjög vel á þetta. Þetta er
Konsert fyrir lágfiðlu og hljóm-
sveit, sem höfundurinn skrifaði
sérstaklega fyrir mig, og ég er
mjög spennt að fá að frumflytja
hann hér.
Konsertinn er ekki mjög
langur, svona 15-20 mínútur á
að giska. Hann er tvær langar
kadensur, en þó er verkið flutt
samfleytt í einu lagi“.
Að undanförnu hefur Unnur
verið í sextett sem hefur verið í
hljómleikaferð á Norður-Ítalíu.
Sextettinn spilaði þar í nokkrum
borgum. Fiðlarinn varSalvatore
Accardo, og sagði Unnur að
hann væri mjög þekktur og
góður fiðluleikari.
í maí sagðist Unnur far aftur
til Ítalíu og ferðast þá um með
fólki sem leikur kammermúsík.
- Það verður fleira fólk í
tónleikaferðinni nú en þegar
sextettinn var á ferð, og leikur
það bæði í kvartettum kvintett-
um og tríói. Svo verður upptaka
á Árstíðunum eftir Vivaldi - og
ég er með í þeirri upptöku sagði
Unnur. Það er Salvatore Accar-
do sem er aðalmaðurinn við þær
framkvæmdir.
Unnur Sveinbjarnardóttir er
búsett í Bamberg í Þýskalandi.
Hún er gift þar og tveggja barna
móðir. Maður hennar er li'ka
tónlistarmaður. Hann spilar á
fagott í Bamberger Synfonica.
Unnur hefur líka spilað í Bam-
berg og víðar í Þýskalandi og
öðrum löndum. T.d. kom hún
hingað til íslands í mars, og hún
spilaði í London um sama leyti,
- og þá verk eftir sama höfund
og nú - Áskel Másson. Með
henni spiluðu bæði íslendingar
og Bretar. Unnur sagði að
lokum:
„Eg stoppa aðeins hér heima
á fslandi nú í eina viku. Kom
gagngert til að spila á tónleikun-
um. Það er alltaf dásamlegt að
koma heim til Islands og ég
vonast til að koma aftur í
júnímánuði og þá á listahátíð".
■ Á þessari mynd frá upptöku í stúdíó Rásar 2 sjáum við tvo af
„morgunhönunum“, þá Jón Ólafsson (t.v.) og Pál Þorsteinsson
(t.h.) en Ásgeir Tómasson sem er sá þriðji var ekki með á þessari
mynd.
Arnþrúður Karlsdóttir situr á milli þeirra Jóns og Páls, en bak
við situr Guðlaugur Guðjónsson hljóðmeistari.
Glatt á hjalla á
Rás 2 á morgnana
í dagskrá Rásar 2 á fimmtu-
dag byrja morgunmennirnir Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson
og Jón Ólafsson. Þeir eru þekkt-
ir fyrir létt spjall og hressa
músík, svo áreiðanlega eru
mörg eyru sperrt þegar þeir
korna með sinn „Morgunþátt".
Á mörgum vinnustöðum er
„svissað yfir á" Rás 2 þegar hún
er inni. Við spurðumst fyrir á
einum fjölmennum vinnustað,
þar sem talsverður hávaði er að
öllu jöfnu, hvort fólk gæti notið
þess að hluta á tal og tóna við
þær aðstæður. Svarið var: „Sei,
sei, já já, við heyrum lögin
alveg í gegnum hávaðann, - og
þó maður missi af eins og einum
brandara, - þá kemur fljóílega
annar hjá strákunum.þeir eru
svo bráðhressir!"
Útvarp kl. 11.
Ég man þá tíð
vinsæll þáttur
■ Þáttur Hermanns Ragnars
Stefánssonar „Ég man þá tíð“
var upphaflega einkum ætlaður
eldra fólki. Því var boðið að
skrifa eða hringja og panta sér
óskalög.
Það fyrirkomulag er enn á
þættinum, - en við höfum sann-
frétt að það sé ekki einungis
eldra fólkið sem hlustar á þáttinn
„Eg man þá tíð“, heldur sé
hann mjög vinsæll hjá fólki á
öllum aldri. Yfirleitt eru það
ekki nema fallegustu og bestu
lögin frá fyrri tíma sem fólk
biður um sem sín uppáhaldslög,
og þau eru svo sannarlega gjald-
geng enn í dag.
■ Hermann Ragnar Stefánsson fær mörg bréf þessa dagana, því
að margir vilja heyra lög frá liðnum árum.
Fimmtudagur
3. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi
S.OOFréttir. 8.15 Veðurfregnir
Morgunorð - Magnús Guðjónsson
talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hnifaparadansinn“ eftir Jón frá
Pálmholti Höfundur les (6)
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tón-
leikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustuar. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
11.00 „Eg man þá tíð“ Lög frá liðnum
árum. Umsjón: Hermann Ragnar
Stefánsson.
11.30 Blandað geði við Borgfirðinga
Umsjón: Bragi Þórðarson.
12.00 Dagskrá. Tónieikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45'Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar
Egilssonar; seinni hluti Þorsteinn
Hannesson les (16).
14.30 Á frívaktinni Sigrún Sigurðar-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Barry Tuck-
well og Vladimir Ashkenazy leika
Adagio og allegro i As-dúr fyrir horn
og píanó op. 70 eftir Robert Schu-
mann / Yehudi Menuhin, Robert
Masters, Ernst Wallfisch, Cecil Aro-
novitsj, Maurice Gendron og Derek
Simpson leika Sextett nr. 2 i G-dúr
op. 36 eftir Johannes Brahms.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Af stað með Tryggva Ja-
kobssyni
18.10 Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurlregnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Dag-
legt mál. Siguröur Jónsson talar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Mar-
grét Ólafsdóttir og Jórunn Sigurðar-
dóttir.
20.00 Halló krakkar! Stjórnandi:
Gunnvör Braga Aðstoðarmaður:
Irpa Sjöfn Gestsdóttir
20.30 Frá tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveltar íslands í Háskólabíói;
fyrri hluti Stiómandi: Jean-Pierre
Jacquillat. Einleikari Unnur Svein-
bjarnardóttir. a. Svíta nr. 5 eftir
Johann Sebastian Bach. b. Konsert
fyrir lágfiðlu og hljómsveit eftir Áskel
Másson. (Frumflutningur). - Kynnir:
Sigurður Einarsson
21.20 Samtal náttúrunnar og íslend-
ings Halldór Þorsteinsson segir frá
ítalska Ijóðskáldinu Giacomo Leo-
pardi og les þýðingu sina á þætti
eftir hann í óbundnu máli. Lesari
ásamt Halldóri: Andrea Oddsteins-
dóttir
21.50 „Kiss me Kate“ eftir Cole Port-
er Kathryn Grayson, Howard Keel
o.fl. syngja lög úr söngleiknum með
kór og hljómsveit; André Previn stj.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Reikistjarnan Marz Gerður
Steinþórsdóttir les erindi eftir Stein-
þór Sigurðsson stjörnufræðing.
23.05 Síðkvöld meö Gylfa Baldurs-
syni
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
3. maí
10.00-12.00 MorgunþátturStjórnend-
ur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tóm-
asson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Eftir tvö Stjórnendur: Jón
Axel Ólafsson og Pétur Steinn
Guðmundsson.
16.00-17.00 Jóreykur að vestan",
umsjónarmaður Einar Gunnar Ein-
arsson kemur í stað „Rokkrásar-
innar", sem auglýst var á þeim
tíma.
Föstudagur
4. maí
19.35 Tónlistarskólinn bresk teikni-
mynd.
19.45 Fréttir á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Á döfinni Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson. Kynnir Bima Hrólfs-
dóttir.
20.55 Dire Straits Stuttur dægurlaga-
þáttur með hljómsveitinni „Dire
Straifs" sem leikur tvö lög.
21.15 Paradís samkvæmt tllskipun
Þýsk heimildamynd frá Norður-
Kóreu sem lýsir landi og þjóð og þá
skki sist þjóðskipulaginu en það er
reist á kennisetningum kommúnis-
mans. Þýðandi Veturliði Guðnason.
Þulur Bogi Arnar Finnbogason.
22.00 Besti maðurinn (The Best
Man) Bandarísk bíómynd frá 1964.
Leikstjóri Franklin Schaffner. Aðal-
hlutverk: Henry Fonda, Cliff Robert-
son, Lee Tracy, Shelley Berman og
Mahalia Jachson.
Tveir stjórnmálamenn kepþa um
útnefningu til framboðs í forseta-
kosningum i Bandaríkjunum.
Stuðningur ríkjandi forseta er þeim
mikið keppikefli og gripur annar
frambjóðandinn til örþrifaráða til að
öðlast hann. Þýðandi Guðbrandur
Gíslason.
23.40Fréttir i dagskrárlok