NT - 03.05.1984, Qupperneq 23
Skæruhern*
aður og
mannfall
Lima-Reuter
■ { aprílmánuði féllu 130
manns í átökum skæruliða og
hers og lögregiu í Perú. Skæru-
liðarnir sem telja sig vera
maóista og kalla samtök sín
„lýsandi veg“ felldu 38 bændur
á mánuðinum sem leið, sjö
hermenn og tvo opinbera
starfsmenn.
Síðan samtökin um hinn lýs-
andi veg voru stofnuð fyrir þrem
árum og tóku upp skæruhernað
gegn ríkisstjórninni hafa um
2500 manns fallið, ýmist úr
röðum óbreyttra borgara,
hermanna, lögreglu eða skæru-
liðanna sjálfra.
Tívolí opnar í
Kaupmannahöfn
■ Margir íslendingar eiga sér
ánægjuiegar minningar úr
Tívolí í Kaupmannahöfn. Á 1.
maí hóf Tívoh' 142. starfsár
sitt.| Fastagestir létu ekki bíða
eftir sér heldur flýttu sér inn til
að njóta unaðssemda leiktækj-
anna. Símamynd - POLFOTO
Fimmtudagur 3. maí 1984 23
Nýmeð-
færileg
öndun-
arvél
fundin
■ 1. maí skipulagði Samstaða mótmælaaðgerðir í sjö borgum í Póllandi. Þessi mynd var tekin skömmu eftir að lögreglan sprautaði vatni
á mótmælendur í Varsjá til að dreifa þeim. sím.m,i.d-POLFOTO
Pólland:
Samstaða hvetur til
nýrra mótmæla í dag
Pólland-Reuter
■ Mótmæli Samstöðu, hinna
bönnuðu verkalýðsfélaga í Pól-
landi, þann 1. maí voru að sögn
sjónarvotta fjölmenn og vel
heppnuð.
Mótmælin náðu til sjö borga
þar sem þúsundir manna mót-
mæltu stefnu stjórnvalda og
kröfðust þess að pólitískir fang-
ar yrðu látnir lausir. Fréttaritari
Reuter-fréttastofunnar segist
hafa séð 10.000 manns taka þátt
í mótmælaaðgerðum í pólsku
borginni Szczecin en pólskir
embættismenn neita þessum
fréttum og segja að aðeins
nokkur hundruð manns hafi
mótmælt þar.
Sjónarvottar segja að lög-
regla hafi notað táragas og
vatnsbyssur til að sundra
mótmælendum.
Pólska sjónvarpið kallaði
frásögn Reuter af mótmælun-
um áróður og lygar sem væru
ákaflega móðgandi fyrir pólsku
þjóðina. Það lagði áherslu á
mikla þátttöku í hinum opin-
beru hátíðahöldum á 1. maí og
sagði hana merki um mikinn og
aukinn stuðning almennings við
stefnu stjórnvalda.
Forystumenn Samstöðu eru
hins vegar mjög ánægðir með
mótmælaaðgerðirnar sem þeir
skipulögðu. Peir segja að mikil
þáttaka í þeim sé hvatning til
frekari aðgerða og hafa boðað
til mótmæla í dag í tilefni hinnar
lýðræðislegu stjórnarskrár, sem
Pólverjar fengu árið 1791. Þeir
hvetjafólk m.a. til aðfjölmenna
í kirkjur í dag og í kvöld og
vonast til að almenningur sýni
hug sinn með mótmælum eftir
messur í kirkjunum.
■ Bandarískur læknir sem er
sérfræðingur í brjóstholssjúk-
dómum hefur fundið upp önd-
unartæki sem sjúklingargeta bor-
ið með sér hvert sem þeir fara
og horfur eru á að fjöldi lungna-
sjúklinga sem nú eru rúmfastir
og þurfa sérstaka öndunar-
grímu, geti lifað allt að því
eðlilegu lífi. Með hjálp nýja
öndunartækisins geta þeir farið
til vinnu og yfirleitt hvert sem
þeim sýnist og eru ekki háðir
þunglamalegum tækjum.
Dr. Henry Heimlich fann upp
fyrir áratug síðan, tæki til að
hjálpa lungnasjúklingum til að
hósta og gjörbreytti það tæki lífi
fjölda fólks sem ófært var að
hreinsa lungu sín og öndunar-
færi með því að hósta frá sér slími
sem þar safnaðist fyrir.
Hið nýja öndunartæki dr.
Heimlich er einfalt í meðferð.
Komið er fyrir sérstakri plast-
leiðslu niður í gegnum barka
sjúklingsins. Um hana streymir
súrefni úr þriggja kílóa þungum
súrefnisgeymi, sem sjúklingur-
inn ber með sér. Geymirinn
tekur nægar súrefnisbirgðir til 8
klukkustunda öndunar, en að
þeim tíma liðnum þarf að skipta
um geymi.
Talið er að með hjálp þessa
nýja tækis muni allt að 600
þúsund Bandaríkjamenn, sem
nú eru rúmliggjandi vegna
öndunarörðugleika, geta farið
að vinna og hagað sér að mestu
eins og fullfrískt fólk.
Eistland
Dýrt að krefjast
mannréttinda
■ Rokksöngvarínn Joe Cocker í fylgd lögregluþjóna í Vín þar
sem hann var handtekinn vegna gruns um aö hann hafí ætlað að
stela aðgangseyri á tónleikum sem hann kom ekki fram á.
Símamynd-POLFOTO
Rokksöngvarinn
Joe Cocker
handtekinn í Vín
■ KGB er á góðrí leið með að
gera óstarfhæfan hóp Eistlend-
inga sem barist hafa fyrir mann-
réttindum í heimalandi sínu og
krafíð stjórnvöld um að þau
virði Helsinkisáttmálann sem
undirritaður var 1975.
Hæstiréttur Eistlands dæmdi
nýlega hinn síðasta úr níu manna
mannréttindahópi í 10 ára
þrælkunarvinnu og 5 ára útlegð,
sem afplánuð verður innan
landamæra Sovétríkjanna.
Fréttastofan Tass skýrir frá
dómnum og segir að Enn Tartu
sem er 45 ára að aldri, hafi
starfað fyrir erlendar útvarps-
stöðvar, sem afvegaleiddi sann-
ieikann um hið sovéska þjóðfé-
lag og Ijúgi upp sögum um
verkföll sem aldrei hafa verið
háð. Hér vitnarTasstil verkfalls
eitt þúsund verkamanna í drátt-
arvélaverksmiðju í Tartu sem
gert var á sama tíma og Sam-
staða var að verða til í Póllandi
1980. Verkfallið í Tartu var
mikið umrætt á Vesturlöndum.
Enn Tartu hefur starfað sem
kyndari, en hann varð að hætta
háskólanámi í heimspeki af
pólitískum ástæðum. Allt síðan
hann var 18 ára hefur Tartu
setið 9 ár í fangelsi. Hann er
einn hinna 45 andófsmanna í
Eystrasaltsríkjunum sem skrif-
aði undir mótmæli 1979, þar
sem Sovétríkin voru ásökuð um
að brjóta gróflega gegn mann-
réttindum.
Dómurinn yfir Tartu er álíka
strangur og nýlega var felldur
yfir Mart Niklus, sem er einn af
þekktústu andófsmönnum í
Eistlandi. Niklus hefur nú verið
í mánaðar hungurverkfalli til að
mótmæla því að hann fékk ekki
að tala einslega við móður sína
þegar hún fékk að heimsækja
hann í fangelsið.
Eistneskir flóttamenn stað-
hæfa að nú sitji milli 40 og 50
landarþeirra sem samviskufang-
ar í sovéskum fangelsum og
brátt muni fleiri verða dæmdir.
En samt sem áður verður haldið
áfram að knýja á um að mann-
réttindaákvæði Helsinkisátt-
málans verði í heiðri höfð, en
það verður að gera laumulega
því allir vita hvað bíður þeirra
sem krefja Sovétstjórnina um
mannréttindi.
Vín-Reuter
■ Lögreglan í Vín handtók í
gær rokksöngvarann, Joe
Cocker vegna samningsrofs.
Joe Cocker átti að koma
fram á tónleikum að kvöldi 1.
maí en hann lét ekki sjá sig og
það er sagt að hann hafi verið
drukkinn. Um 2500 höfðu
keypt miða á tónieikana.
Rokkstjarnan virðist hafa
talið sig eiga skilið að fá greitt
fyrir tónleikana þótt ekkert
yrðiúrþeim. Pegar JoeCocker
var handtekinn var hann með
12.500 bandaríkjadali sem
voru afrakstur miðasölu á tón-
leikana.
Þrír aðrir meðlimir hinnar
11 manna hljómsveitar Cock-
ers voru einnig handteknir en
samkvæmt austurrískum
lögum má halda þeim í allt að
48 tíma án þess að leggja fram
ákæru.
Páfinn hittir Reagan
Þeir vilja útrýma hungri
Alaska-Reuter.
■ Páfínn stoppaði í gær í klukkustund í Alaska
á leið sinni til Asíu. Þar hitti hann Reagan sem
var á heimleið eftir heimsókn sína til Kína.
Páfinn ræddi við Reagan í
hálfa klukkustund. Þeir lýstu
báðir yfir áhyggjum sínum
vegna hungurs og ófriðar í
heiminum og samþykktu að
hafa samvinnu við gerð áætlun-
ar sem beindist gegn hungri og
sjúkdómum ogstuðlaðiað friði.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
stjórn Bandaríkjanna hefur
samvinnu við páfastól en
Bandaríkin tóku að nýju upp
stjórnmálasamband við Vati-
kanið eftir meira en hundrað
ára hlé.
Samtal Reagans við páfann
hefur mikilvæga pólitíska þýð-
ingu fyrir hann því að hann
byggir mikið á stuðningi krist-
inna íhaldsmanna. Sjálfsagt
kann hann líka vel að meta þá
ákvörðun páfans að fljúga sömu
leið til Asíu og kóreska farþega-
flugvélin fór, sem Rússar skutu
niður á síðasta ári. Páfinn ákvað
að fljúga þessa leið til að minn-
ast farþeganna sem fórust með
vélinni en Suður-Kórea er ein-
mitt fyrsti viðkomustaður hans
í Asíuförinni.
Umsjón: Oddur Ólafsson og Ragnar Baldursson