NT - 03.05.1984, Qupperneq 27
Fimmtudagur 3. maí 1984 27
Halldór
vann í
Bláfjalla-
göngunni
■ Halldór Matthías-
son varð hinn öruggi
sigurvegari í Bláfjalla-
göngunni sem fór fram
s.l. laugardag, 28. apríl.
Gengið var frá Blá-
fjöllum og í Hveradaii.
Göngubrautin var afar
vel lögð og keppendur,
sem voru tuttugu voru
ákaflega ánægðir með
allar aðstæður, nema
veðrið sem var ekkert
sérstakt. Leiðin var
rúmir 20 km. í öðru til
fjórða sæti voru þrír
bræður, þeir Stefán,
Guðmundur og Einar
Stefánssynir. Engar
stúlkur tóku þátt í göng-
unni að þessu sinni en
það er víst í fyrsta sinn í
þessari ágætu göngu.
Bordeaux
meistarar
■ Bordeaux urðu í
gærkvöld franskir
meistarar í knattspyrnu
er þeir sigruðu botnlið
Rennes 2-0. Fyrirliði
liðsins Bernard La-
combe skoraði fyrra
markið, en Dieter
Múller innsiglaði sigur-
inn á 83. mínútu. Er
þetta í fyrsta skipti í 34
ár sem Bordeaux vinnur
meistaratitilinn.
Skotland:
■ Aberdeen tryggði
sér í gærkvöld skoskí:
meistaratitilinn í knatt-
spyrnu, er liðið vann
Hearts 1-0 í Edenborg.
Það var varnarleikmað-
urinn Stewart Mc-
Kimmey sem skoraði
markið.
_______íþröttir_____
„Tel mjög líklegt að
ég fari til Uerdingen"
- segir Lárus Guðmundsson
■ „Ef félögin ná samkomu-
lagi sín á milli, sem ég tei
líklegt, þá fer ég örugglega til
þýska Bundesliguliðsins Bay-
ern Uerdingen“, sagði Lárus
ennfremur í spjalli við NT í
gærdag. Sem kunnugt er leikur
Lárus nú með belgíska fyrstu-
Víðavangshlaup Kópavogs:
Öruggt hjá
Sigurði P.
■ Sigurður P. Sigmundsson
■ Sigurður P. Sigmundsson
FH-ingur sigraði örugglega í
Víðavangshlaupi Kópavogs
sem fram fór í Kópavogi, 1.
maí í blíðskaparveðri. Annar
í hlaupinu varð ÍR-ingurinn
Hafsteinn Óskarsson sem hlot-
ið hefur flest stig í víðavangs-
hlaupunum ellefu í vetur. í
kvennaflokki sigraði Rakel
Gylfadóttir FH eftir harða
keppni við Súsönnu Helga-
dóttur FH. Rakel hefur flest
stig kvenna í víðavangs-
hlaupum í vetur. í sveinaflokki
sigraði Steinar Jóhannsson ÍR
og í telpnaflokki varð Guðrún
Eysteinsdóttir FH hlutskörp-
ust. Hér koma tímarnir:
Karlar 5.5 km:
1. Sigurður P Sigmundss.
2. HafsteinnÓskarsson
3. Sighv.DýriGuðmundss.
Konur3.5km:
1. RakelGylfadóttir
2. SúsannaHelgadóttir
3. AnnaValdimarsson
Sveinar3.5 km:
1. SteinarJóhannsson
Telpur 1500 m:
1. Guðrún Eysteinsdóttir
FH 16.48 mín.
|R 17.08 mín.
IR 17.19mín.
FH 15.26 mín.
FH 16.28 mín:
FH 16.50mín.
ÍR 13.22 mín.
FH 4.58 mín.
deildarliðinu Waterschei og
gerir það gott.
„Það ber víst ekki"mikið á
milli hjá liðunum en eitthvað
þó. Ég á von á fréttum af
viðræðunum á hverri stundu.
Jafnvel strax í dag", sagði
Lárus ennfremur.
Það kemur ekki á óvart að
Uerdingen skuli vera æst í að
fá Lárus til sín. Pað eru fleiri
lið á eftir honum og m.a er
ítalskt fyrstudeildarlið einnig
á höttunum eftir þessum
skemmtilega leikmanni.
1. maí
punktar...
...Valur sigraði Fram í
Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu, 1-0 á 1.
maí...
...Notts Couníy sigraði
Wolves sama dag með
fjórum mörkum gegn
engu í 1. deild ensku
knattsþyrnunnar...
... I annarri deild sigraði
SheRield Wednesday
Huddersfíeld með einu
marki gegn engu á úti-
velli. Það var auðvitað
1. maí...
...Norsarar sigruðu
Luxemborgara í vin-
áttulandsleik í knatt-
spyrnu þennan sama
dag. 2-0 urðu úrslitin...
...Porto varð portú-
galskur bikarmeistari í
knattspyrnu á 1. maí.
Liðíð sigraði Rio Ave í
úrslitaleik, 4-0...
...Vinir okkar Grikkir
sigruðu Belga í vináttu-
landsleik í körfuknatt-
leik þennan fræga dag,
92-87...
■ Lárus Guðmundsson
Goethals
til
Portúgal
■ Raymond Goethals
fyrrum þjáltari belgíska
knattspyrnuliðsins
Standard Liege, hefur
verið ráðinn þjálfari
portúgalska 1. deildar-
liðsins Guimaraes. Go-
ethals, sem í síðasta
mánuði var dæmdur í
ævilangt bann sem
þjálfari í Belgíu vegna
mútumáls Standard
Liege og Waterschei,
skrifaði undir tveggja
ára samning við Guim-
areas á laugardag og
mun hefja störf hjá fé-
laginu í júlí.
Knattspyrna:
Samkomulag
bandarískra
■ Bandaríska knattspyrnu-
sambandið og samtök leik-
manna komust um helgina að
samkomulagi um launakjör
næstu þrjú árin. Samkomulag
þetta gerir knattspyrnufé-
lögum kleift að skera niður
kostnað og flytja inn 18 nýja
erlenda leikemnn næstu þrjú
ár.
Bandarísk knattspyrnufélög
hafa barist fyrir tilveru sinni
eftir að stórir samningar við
sjónvarpsstöðvar fóru fyrir bí.
Samningar tókust rétt áður en
frestur sem eigendur knatt-
spyrnufélaganna gáfu leik-
mönnum, rann út annars yrði
bandaríska knattspyrnudeildin
lögð niður. Nýja samkomuIag:
ið á að gera rekstur félaganna
mögulegan í frámtíðinni.
Aðalbreytingarnar sem
samningarnir fela í sér er lækk-
aður launakostnaður félag-
anna. Hann mun lækka um
10% á ársgrundvelli hjá hverju
félagi. Þá gerir samningurinn
félögunum kleift að reka leik-
menn, vilji þau halda sér innan
hins ákveðna kostnaðar-
ramma. Hámarksfjöldi leik-
manna hjá hverju félagi verður
lækkaður í 19 úr 23, og hverju
félagi leyfilegt að flytja inn 2
leikmenn á næstu þremur
árum.
Sökum rekstrarörðugleika
hefur liðum í bandarísku deild-
inni fækkað úr 24 í 9 síðan árið
1980.
Búlgarir unnu stiga-
keppnina örugglega
■ Búlgarir urðu stigahæstir á Evr
ópumeistaramótinu í lyftingum á
Spáni. Búlgarir hlutu 301 stig, fengu
13 gullverðlaun, 10 silfurverðlaun og
6 bronsverðlaun. í öðru sæti urðu svo
Sovétmenn með 276 stig. Sovétmenn
hlutu 16 gullverðlaun, 5 silfurverð-
laun og 4 bronsverðlaun. í þriðja sæti
urðu svo Pólverjar með 182 stig.
Fengu eitt gull, þrjú silfur og 8 brons
íslendingar urðu í 25.-26. sæti ásamt
Hollendingum með ekkert stig og
hana nú.
Níu mörk hjá Glad-
bach og Bremen!
■ Borussia Mönchen Gladbach sigr-
aði Werder Bremen í einum mest
spennandi leik sem fram hefur farið í
V-Þýskalandi í áraraðir.
Leiknum lauk 5-4 fyrir Gladbach
og var þetta undanúrslitaleikur í
bikarkeppninni. Mörkin komu á færi-
bandi í leiknum oftlega með mínútu
millibili og leikmenn gengu berserks-
gang fyrir framan mark mótherjans í
leiknum. Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 4-4 en það var Criens
sem gerði sigurmark leiksins.
Stöðva þurfti leikinn um tíma því
áhorfendur köstuðu táragasi inn á
leikvöllinn. Dómarinn lét síðan leik-
inn halda áfram.
Eftir leikinn sagði framkvæmda-
stjóri Bremen að lið hans myndi kæra
úrslitin vegna.ákvörðunar dómarans
að láta leikmenn leika áfram eftir að
táragasinu hafði verið varpað inn á
leikvöllinn.
SEX-SEX
■ Schalke og Bayern Múnchen
gerðu sex-sex, jafntefli, er liðin mætt-
ust í undanúrslitum þýsku
bikarkeppninnar í gærkvöld. Eftir
venjulegan leiktíma var 4-4 og var
því framlengt. Eftir að framlenging-
unni lauk var enn jafnt 6-6. Liðin
verða því að leika að nýju.
- —
Armann náði
jöfnu 1-1
■ í gærkvöld léku Ármann og
Víkingur á Reykjavíkurniótinu
i knattspyrnu. Leiknum lauk
með jafntefli, bæði liðin
skoruðu einu sinni í raark and-
stæðinganna.
Heynckes Star
Litur: blátt rúskinn
frá nr. 4 1/2-12
Verð kr. 952,-
Vlado Stenzel Universal
Litur: hvítt/svart
frá nr. 31/2
Verðkr ‘v “
* «»* - V
auðvita
vm
nn ^
Cw)
Smásýnishorn af okkar
mikla úrvali.
Bómullar jogginggallar, verd frá kr. 980,
Easy Rider,
stærðir
■ 5-11 1/2,
kr. 1.347,
Fitness,
stærðir
5-11 1/2,
kr. 1.170,
Sportvöruverslun
Ingólfs
Óskarssonar
Klapparstíg 44, Laugavegi 69,
sími 10330. sími 11783.