NT - 24.05.1984, Qupperneq 1
Fimmtudagur 24. maí 1984-124. tbl. 68. árg.
——
Kvikmyndahátíðin í Cannes:
Gullpálminn til Wenders
■ Þýski kvikmynda-
leikstjórinn Wim Wend-
ers stóð með Gullpálm-
ann í höndunum eftir
lokaathöfn kvikmynd-
ahátíðarinnar í Cannes í
gærkvöldi, þar sem mynd
hans París, Texas var
kjörin besta myndin.
Wenders er vel að sigr-
inum kominn og fagnað-
arlætin eftir frumsýningu
myndar hans á laugar-
daginn gáfu sterklega til
kynna hvert stefna
myndi.
Nánar er sagt frá verð-
launamyndinni á bls. 6
°g 7.
Verðlaun fyrir besta
ieikstjórn fékk franski
leikstjórinn Bertrand Ta-
vernier fyrir mynd sína
Sunnudagur í sveitinni.
Sérstök heiðursverðlaun
dómnefndarinnar fékk
ungverski leikstjórinn
Marta Meszaros fyrir
myndina Dagbókarbrot.
Verðlaun fyrir bestan
leik í karlhlutverki fengu
Fancisco Rabal og Alfre-
do Landa vegna spænsku
myndarinnar Saklausu
dýrlingarnir. Helen Mirr-
en fékk verðlaun fyrir
bestan leik í kvenhlut-
verki vegna írsku rnynd-
arinnar Cal. Theo Angel-
opoulos, Tonino Guerra
og Th. Valtinos fengu
verðlaun fyrir besta
handrit og var það að
mynd Angelopoulosar
Ferðalag til Kýtera.
Verðlaun fyrir tækni-
vinnu komu í hlut danska
leikstjórans Lars von Tri-
er fyrir mynd hans The
EÍement of Crime, og
verður NT-viðtal við
leikstjórann birt á
morgun.
Wim Wenders.
Afurðalánamál fiskvinnslunnar í hnút:
„Greiðsluþrot blasir
við ef lánin lækka"
- en boðað hefur verið að þau fari úr 73% í 66,5%
Alhöfnin
sekkur
■ Þil milli tveggja stein-
steypukerja í hafnargarðin-
um í Straumsvíkurhöfn brást
og uppfyllingaefni skolaðist
út. Alitið er að þetta hafi
gerst á nokkuð löngum tíma.
Nú standa yfir samningar við
verktaka og fer viðgerð fram
í sumar. Ekki mun umferð
um höfnina trudast neitt,
enda skemmdin fremst á
bryggjuhausnum.
NT-mynd: Ámi Bjarna.
■ „Það vita allir að staða fiskvinnslunnar er alls ekki góð um
þessar mundir. En lækki afurðalánin úr 72,8% í 66,5, eins og nú er
verið að tala um, blasir ekkert annað en greiðsluþrot við tjölda
fyrirtækja,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur Vinnuveit-
endasambandsins, í samtali við NT eftir langan fund með fiskverk-
endum í gær.
Á fundinum var fjallað um
ný viðhorf í afurðalánamálum.
Sem kunnugt er hefur Seðla-
bankinn þegar lækkað endur-
kaupahlutfall afurðalána úr
52% í 51% og tilkynnt að enn
muni hlutfallið lækka, eða allt
niður í 47,5% í áföngum. í
kjölfarið reiknuðu fiskverkend-
ur með að hlutur viðskiptabank-
anna í afurðalánum yrði stærri,
en sú hefur ekki orðið raunin
heldur hefur hann minnkað í
krónutölu, en bankarnir hafa
tekið þá ákvörðun að lána eftir
sem áður 40% ofan á það sem
Seðlabankinn endurkaupir, sem
þýðir í raun að lánin lækka úr
72,8% í 66,5% þegar endur-
kaupahlutfallið verður komið í
47,5%.
Bankarnir tilgreina þá á-
stæðu, að til þess að bera stærri
hlut í afurðalánakerfinu þurfi
að lækka bindiskyldu þeirra í
Seðlabankanum, sem ekki hef-
ur verið gert. Þvert á móti var í
„bandormslögunum“ heimild-
arákvæði um að hækka bindi-
skylduna um 1/10, úr 28% í
30,8%. Sú heimild hefur að vísu
enn sem komið er ekki verið nýtt.
„Það trúir því enginn að þetta
haldi svona áfram. Mönnum
þykir líklegra að viðskiptabank-
arnir séu viljandi að setja málið
í hnút í þeim tilgangi að beita
atvinnulífinu fyrir á móti Seðla-
bankanum. Bankamenn vita
það nefnilega manna best að
það er ekki hægt að lækka
afurðalánin sem þessu nemur,“
sagði Vilhjálmur Egilsson við
blaðið.
Vilhjálmur sagði að eftir
fundinn í gær hefði bæði við-
skiptaráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra verið skrifað bréf þar
sem farið væri fram á úrbætur í
þessum málum, en þau snerta
alla þætti fiskvinnslunnar nema
skreiðarverkun og koma verst
niður á þeim sem sitja uppi með
miklar birgðir.
Popp í kreppu
aði hvað helstu poppsér-
fræðingar bæjarins hafa
um málið að segja.
Sjá bls. 14-15.
■ Popptónlistin er eins
og rjúpnastofninn, gengur
í bylgjum. Nú síðast leið
nýbylgjan útaf og er senni-
lega endanlega dauð hér á
landi. í heildina er lægð
yfir íslensku tónlistarlífi
sem kemur sér jafn illa
fyrir poppið eins og aðrar
stefnur. Ein ástæða þessa
er vídeóið sem fullnægir
tómstundaþörf almenn-
ings.
Poppið á íslandi er rúm-
lega 20 ára gamalt og því
forvitnilegt að kynnast
því sem þar er á-döfinni.
NT fór á stúfana og kann-
Portúgalir reisa toll-
múr gegn saltfiski
íslendingar mótmæla og fara fram á frest
■ Mario Soares forsætisráð-
herra Portúgal og Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
herra deildu fyrir opnum tjöld-
um á blaðamannafundi sem
haldinn var í lok forsætisráð-
herrafundar EFTA í gær. So-
ares hélt því fram að 12%
tollur á saltfiskinnflutning sem
ákvéðið hefur verið að setja í
Portúgal bryti ekki í bága við
lög EFTA. Þessu andmælti
Steingrímur og benti meðal
annars á svonefnda Visby-yfir-
lýsingu, þar sem segir að’ lönd-
in muni berjast gegn verndar-
stefnu í viðskiptum. Stein-
grímur sagði í gærkvöldi að
ekki kæmi til greina að veita
Portúgölum veiðiheimildir við
ísland, en Portúgalar hafa til-
kynnt að þeir muni leggja að-
eins 3% toll á saltfisk sem
togarar þeirra keyptu af er-
lendum þjóðum sem veittu
þeim fiskveiðiréttindi á móti.
I lok EFTA fundarins áttu
þeir Steingrímur Hermanns-
son og Matthías Á Mathiesen
fund með Soares forsætisráð-
herra Portúgal og Barreto við-
skiptaráðherra. Á þessum
fundi fóru íslensku ráðherrarn-
ir fram á að horfið yrði
frá tollinum eða gildistöku
hans frestað. Ákveðið hefur
verið að viðskiptaráðherra
Portúgai komi hingað til lands
í opinbera heimsókn í júlí.
Þess má geta að saltfiskútflutn-
ingur íslendinga til Portúgal,
nemur um 1200 milljónum
króna í ár, eða um 8% af
heildarútflutningi okkar.
Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra sagði í gær-
kvöldi að ef þessi tollur tæki
gildi yrði að grípa til nýrra
ráða. Meðal annars kærni til
greina að minnka saltfiskverk-
un.
- Þessi ákvörðun Portúgala
kemur okkur í opna skjöldu,
sagði Matthías Á Mathiesen,
því viðskiptaráðherrar land-
anna eru nýbúnir að sam-
þykkja verkefnaskrá þar sem-
ákveðið er að halda áfram að
auka frjálsa verslun með fisk-
afurðir á EFTA svæðinu. Við
hljótum að mótmæla þessu,
sagði Matthías.