NT - 24.05.1984, Page 3
Hæstiréttur þyngir dóm í morðmáli:
Fjórtán ára
fangelsisvist
■ Hæstiréttur hefur dæmt Þórð Jóhann ummæli ákærða í eldhúsi íbúðarinnar að
Eyþórsson til 14 ára fangelsisvistar fyrir Kleppsvegi 42, í áheyrn vitna, unt að
að hafa orðið Óskari Árna Blomsterberg hann ætlaði að drepa Oskar Arna, taka
að bana þann 1. janúar 1983; gæsluvarð- hans á eldhúshnífnum og sú sérstaka
haldsvist hans frá þeim tíma dregst frá. launung sem ákærði hefur játað að hafa
Þórður Jóhann var í fyrrasumar dæmdur viðhaft til að dylja handhöfn sína á
í 13 ára fangelsi í Sakadómi Reykjavíkur, honum þegar hann fór út úr eldhúsinu inn
en ríkissaksóknari gerði kröfu um refsi- í stofuna, veita eindregna vísbendingu
þyngingu fyrir Hæstarétti. um að þá hafi sú fyrirætlun búið með
I dómi Hæstaréttar segir m.a. að ákærða að vega Óskar Árna.
Nýtt Dísarfell
■ Skipadeild Sambandsins hefur geng-
ist fyrir kaupum á nýju skipi, m.s.
Dísarfelli. Kaupverð skipsins er um 78
milljónir.
Dísarfellið, sem er keypt frá Þýska-
landi, er átta ára gamalt, smíðað í
Hamborg. Þetta mun vera fyrsta íslenska
kaupskipið sem útbúið er sérstökum
gámagrindum í lestum til að auðvelda
sjóbúnað og auka öryggi í vörumeðferð.
Auk þess er skipið útbúið til flutninga á
verulegum fjölda frystigáma.
Skipið hefur verið í siglingum vítt og
breitt, síðast við Miðjarðarhaf, að sögn
Sigvalda Jósafatssonar, sölustjóra skipa-
deildar. Sigvaldi veitti jafnframt þær
upplýsingar að þegar væri búið að selja
eldra Dísarfell. Nýja skipið mun þó
leysa af hólmi erlent leiguskip sem hatt
var til reynslu á sömu leið.
Burðargeta Dísarfellsins er tæp fjögur
þúsund tonn og er gert ráð fyrir þrettán
manna áhöfn. Fyrirhugað er að skipið
verði í ferðum á milli íslands og hafna á
meginlandi Evrópu og Bretlandi.
Heimahöfn Dísarfellsins er Þorláks-
höfn, og skipstjóri þess er Jörundur
Kristinsson.
Góð matarkaup
1 Háls 11 Skanki 17. Slag
2. Herðakambur 12. Síða 18. Skanki
3. Hryggur 13. Klumpur 19. Lundir
6 Þrihyrningur 15. Kviðstykki 20. Bringa
7. Hali 16. Kviðstykki 21. Innanlærisvöðvi
Nautahakk 10 kg. pk....................... kr. 145.- pr. kg.
Nauta-Tbone .............................. kr. 235.- pr. kg.
Nauta-Snitchel .......................... kr. 375.- pr. kg.
Nauta-Gullash ............................ kr. 327.- pr. kg.
Nauta-Roastbeef........................... kr. 348.- pr. kg.
Nauta-Hamborgarar .........................kr. 14.- pr. st.
Kindahakk ................................ kr. -99,- pr. kg.
Lambahakk ................................ kr. 107.- pr. kg.
Ath. kjötverðið hjá okkur er um
40% lœgra en almennt verð.
KJÓTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2. s. 86SII
*-~0,0a%W‘ H..................
Sætid þitt í veislufagnaði á fyrsta farrými—^
1200 ódýrar ferðir með risaþotu til sólarlanda
Mallorka
Perla Miðjarðarhafsins. Brottför aila laug-
ardagsmorgna, 2, 3 eða 4 vikur. Verð frá
kr. 18.900 (2 vikur á hóteli og þrjár
máltíðir á dag)
Þér getið valið um dvöl á hótelum og
íbúðum á eftirsóttustu stöðunum, Maga-
luf, Palma Nova, Santa Ponsa, Arenal og
Palma. Þar er sjórinn, sólskinið og
skemmtanalífið eins og fólk vill hafa það.
Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir
með íslenskum fararstjóra.
íbúðahótel. Trianon, Portanova, Hafria
hótelin, Coral Playa El Paso, Leo Saga,
Sunna, Cala Vinas, Valpariso.
Tenerife
Fögur sólskinsparadís
Brottför alla þriðjudagsmorgna 2, 3 eða 4 vikur. Verð frá
kr. 19.800 (Tveir í íbúð í tvær vikur)
Frjálst val um dvöl á eftirsóttum fjögurra stjörnu hótelum
og íbúðum í Puerto de la Cruz og á Amerísku ströndinni.
Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarfefðir.
Aðrar ferðir okkar:
2ja, 3ja eöa 4ra vikna feröir meö tækifæri til þess aö eyða nokkrum dögum
í London í ferðalok. Brottför í hverri viku. Eftirsóttir gististaðir.
Grikkland, eyjar Korfu og Aþenustranda.
Malta, sólskinseyjar Jóhannesar riddaranna.
Mallorka, allt þaö besta sem þar er til.
Tenerife hin undurfagra eyja hins eilífa vors.
Landið helga og Egyptaland, 21 dagur, brottför 5. okt. (Fararstjóri Guöni
Þórðarson)
Ferðatilhögun:
Þér njótið frábærrar þjónustu í áætlunar-
flugi Flugleiða í stuttu morgunflugi til
Glasgow, þar sem rétt gefst tími til að
Ijúka við góðan morgunverð. Á laugar-
dögum til Mallorka og þriðjudögum til
Tenerife. Haldið síðan áfram með breið-
þotu beint í sólina. Njótið veislufagnaðar
alla leiðina á fyrsta farrými. Allt frítt,
steikurnar, borðvínin, koníakið og
kampavínið og allir heimsins hressingar-
drykkir á barnum á annari hæð risaþot-
unnar. Heimleiðin úr sólinni á einni stuttri
dagstund sömu leið.
Flugferðir - Sólarflug
Vesturgötu 17, Rvk. símar 10661, 22100 og 15331