NT - 24.05.1984, Qupperneq 5
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Á HEIMASLÓÐUM
Kennarar og tœkjabúnaður TÖLVUFRÆÐSLUNNAR sem fer út á lands-
byggðina ísumar. Taliðfrá vinstri: Kristín Steinarsdóttir kennari, Jóhann
Fannberg verkfrœðingur, Gylfi Gunnarsson kennari, Grímur Friðgeirs-
son tœknifrœðingur.
Aðstöðumunur milli landsbyggðarmanna og þeirra
sem búa í þéttbýlinu við Faxaflóa er afar mikill hvað
varðar tækifæri til tölvunáms. Tölvuskólarnir eru nær
allir í Reykjavík og landsbyggðarmenn verða að
leggja í tímafrekt og kostnaðarsamt ferðalag þangað,
til þess að tileinka sér hina nýju tækni.
Til þess að gefa landsbyggðarfólki kost á að kynnast
tölvum og tölvunotkun mun TÖLVUFRÆÐSLAN
gera út í sumar tvo námskeiðahópa hringinn í kringum
landið.
Námskeið verða haldin á rúmlega 50 stöðum og tekur
hvert þeirra 18 kennslustundir.
Til þess að tryggja fyrsta flokks kennslu munu 2 vanir
kennarar annast hvert námskeið og veita þeir tilsögn
á úrvals tölvur: ÍBM-PC, Eagle, Atlantis, Apple Ile
og Commodore.
Boðið er upp á tvö byrjendanámskeið - Grunnnám-
skeið á tölvur sem veitir undirstöðuþekkingu á tölvum
og tölvunotkun og BASIC þar sem forritunarmálið
BASIC er kennt.
Einnig mun gefast kostur á sérstökum námskeiðum í
ritvinnsluforritinu Apple Writer og áætlanaforritunum
Visicalc og Multiplan.
Tölvurnar verða sífellt mikilvægari þáttur í frumat-
vinnuvegum þjóðarinnar og því verður á námskeiðun-
um lögð sérstök áhesla á notkun tölvutækninnar í
atvinnulífi íslendinga.
Námskeiðagjald er aðeins kr. 2.500.-.
Til þess að efla hag fatlaðra hefur TÖLVUFRÆÐSLAN
ákveðið að bjóða fötluðu fólki ókeypis aðgang að
öllum þessum námskeiðum.
Mennt er máttur C5"§ tölvufræðslan s/f
Ármúla 36, Reykjavík S. 86790 og 687590