NT - 24.05.1984, Side 7
Fimmtudagur 24. maí 1984 7
_______
' ; -v
■ Harry Dean Stanton í hlutverki Travisar í upphafsatriðum myndarinnar París, Texas, sem hlaut
Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi.
■ Leikstjóri og leikarar verðlaunamyndarinnar á fundi með fréttamönnum eftir frumsýningu París, Texas.
Frá vinstri: Harry Dean Stanton, Nastassia Kinski, Wim Wenders, Aurore Clément og Dean Stockwell.
NT-mynd G.B.
Travis og Jane undir lok myndarinnar er
eitthvert sterkasta atriði í nokkurri kvik-
mynd í langan tíma. Travis hefur haft
upp á Jane, þar sem hún starfar í
gægjusýningu (peep-show). Hann not-
færir sér þá staðreynd, að hún getur ekki
séð hann og segir sögu þeirra, eins og
hann væri að tala um állt aðrar mann-
eskjur. Smám saman rennur sannleikur-
inn upp fyrir henni og þá er komið að
henni að segja sína hlið 'sögu þeirra. Þó
að persónurnar séu ekki að tala saman í
hefðbundinni merkingu þeirra orða,
'heldur séu á löngu eintali, hafa þær
kannski aldrei náð jafn vel saman og
einmitt þá. Og fyrir þetta atriði eitt
verður myndin lengi í minnum höfð.
Veðjað á rétta hesta
Handritið að París, Texas erskrifað af
bandaríska rithöfundinum og leikaran-
um Sam Shepard og segir Wenders að
hann hafi aldrei haft jafn mikla ánægju
af því að vinna með handritshöfundi.
Kunningsskapur þeirra hófst, þegar
Wenders var að byrja að vinna að
Hammett árið 1978, sem hann gerði á
vegum Francis Coppola. Wenders vildi.
að Shepard skrifaði handritið. en hann
vildi ekki vinna verk sem gert var innan
stúdíókerfisins og eftir pöntun. Því varð
ekkert úr samvinnu þeirra í það skiptið.
Kveikjan að París, Texas var svo bókin
„Motel Chronicles" eftir Shepard,
réyndar ein setning í þeirri bók: maður
nokkur yfirgefur þjóðveginn og gengur
af stað út í eyðimörkina. Út frá þessari
mynd þróuðu þeir síðan söguna af
Travis.
En það þarf meira en góðan leikstjóra
og gott handrit til að gera góða mynd.
Leikararnir skipta ekki litlu máli, og þar
hefur Wenders veðjað á rétta hesta.
Aðalhlutverkið, sjálfurTravis.er í hönd-
um bandaríska leikarans Harry Dean
Stanton. Stantón hefur leikið í mvndum
margra fremstu leikstjóra samtímans.
manna eins og Coppola, Huston. Ridley
Scott og Bertrand Tavernicr, en Paris,
Texas er fyrsta kvikmyndin, þar scm
hann leikur aðalhlutverkið. Og honum
tekst meistaralega upp. Nastassia Kinski
lcikur Jane af mikilli sannfæringu og cr
þetta áreiðanlega bcsti leikur hcnnar til
þessa. Aðrir leikarar eru Deán
Stockwell, Aurore Clcmcnt og hinn 8
ára gamli Hunter Carson í hlutverki
sonarins.
Ekki má gleyma stórkostlcgri kvik-
myndatöku Robby Múller, scm vann
með Wenders hér á árum áður, og Ry
Cooder scm samdi tónlistina. tónlist,
sem fellur óvenjulega vel að myndefn-
inu.
París, Texas er þriðja myndin, sem
Wenders gerir í Bandaríkjunum og sú
síðasta að sinni: „Með þessari kvikmynd
hef ég uppfyllt allar óskir mínar um að
gera kvikmynd um og í Bandaríkjunum.
Ég tcl, að upp frá þessu geti ég aðeins
endurtckið mig. Mig langar til að snúa
aftur til heimalands míns cftir sjö ára
fjarveru og næsta mynd mín verður
örugglega tekin í Berlín," segir Wim
Wenders.
möðír á Eiftsgrandanum sem gteymdi að slökkva á ótvarpmu;
(ærir lögregluna fyrir að
irjótast inn í íbúð sínal
■ Frétt NT föstudaginn 18. maí um
„innbrot“ lögreglunnar.
vitandi vits.“
Eins og fram kemur í yfirlýsingu
íbúanna er ósætti meðal íbúa hússins.
Þykir hópnum sem blaðamaður talaði
við sem allt -að því óíbúðarhæft sé í
húsinu vegna hávaða frá þeirri íbúð
sem lögreglan fór inn í.
■ „Það var ekki verandi í húsinu allan
laugardaginn vegna hávaða.“ „Við flúð-
um burt.“ Nokkrir íbúar Öldugranda 3.
Frá vinstri: Ólafur Unnsteinsson, Jódís
Ólafsdóttir, Aðalheiður Hauksdóttir,
Sigurlína Skaftadóttir og Sævar Gunn-
laugsson.
VERÐLÆKKUN
VERKSMIÐJUAFSLÁTTUR
4 hjóla drifnir
INTERNA TIONAL
TRAKTORAR
Getum nú.boðið INTERNATIONAL dráttavélar til afgreiðslu strax
á mjög hagstœðu verði. Verðið sem við bjóðum er eftirfarandi og
miðast við standard búnað og lúxus búnað. ílúxusgerð er sléttgólf'o.fl.
Standard
Lúxus
IH 485 54hömeðhúsi frá kr. 270.000,-
IH 585XL 62hömeðhúsi frá kr. 332.000,- 372.000,-
IH 585XL4WD 62hömeðhúsi frá kr. 428.000,- 468.000,-
IH 685XL 72hömeðhúsi frá kr. 345.000,- 387.000,-
IH 685 4WD 72hömeðhúsi frá kr. 452.000,- 493.000,-
Hafið samband við
sölumenn okkar í Ar-
múla og kaupfélögin
um allt land
VÉIADEILD SAMBANDSINS
BÚVtLAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900