NT - 24.05.1984, Síða 18

NT - 24.05.1984, Síða 18
Fimmtudagur 24. maí 1984 1 8 ■ Hljómsveitin Led Zeppelin átti sér langan og litríkan frægðarferil og kom m.a.s. hingað til lands. Hún nýtur enn mikilla vinsælda, þó að nokkuð sé um liðið síðan hún leystist upp, sem sjá má á því, að lag hennar Stairway to Heaven, sem út kom 1971, var kosiö vinsælasta lagið á Vinsældalista aldarinnar á Rokkrásinni. Mvndin er tekin á hljómleikum hljómsveitarinnar í Laugardalshöll- inni 24. júní 1970. Vinsældalisti aldarinnar Vinsælustu listamenn og hljómsveitir á Rokkrásinni ■ Á Rokkrásinni á Rás 2 kl. 16 í dag halda þeir Snorri Skúlason og Skúli Helgason áfram að gera grein fyrir úr- slitum í kosningunum um Vinsældalista aldarinnar. í þetta sinn fjalla þeir aðallega um þær hljómsveitir og lista- rnenn, sem flest atkvæði fengu. Áður hafa verið kynnt þau lög, sem mestrar hylli njóta frá þessu tímabili, en Vinsældalisti aldarinnar nær til bcstu popp- laganna allt frá tímum Bítl- anna. Skúli Helgason sagði marga hafa beðiö um að aftur yrði lesinn upp listinn yfir vinsæl- ustu lögin, og ætla þeir félagar að gera það í þættinum í dag. Þá nafngreina þeir 30 efstu lögin og leika einhver þeirra, sem neðarlega eru á þeim lista. Gömlu login langvinsælust! Okkur lék hugur á að vita, hvernig atkvæði hefðu fallið í atkvæðagreiðslunni og skýröi Skúli okkur svo frá, að lagið. scm besta útkomu fékk, hefði fengið langsamlega flest at- kvæði. Það er lagið Stairway to Heaven mcð Led Zeppelin, sem koni út 1971! Sagði Skúli það reyndar sláandi að af 20 vinsælustu lögunum, væruekki ncma 1-2 frá þeirn áratug, sem nú er að líða þ.c.a.s. hefðu komið út eftir 1980. „Við átt- um ekki von á þessu, héldum að það yrði meira um að menn veldu lög, sem þeir myndu meira eftir, sem væru ferskust í huganum. En það virðast vera þessi gömlu lög, sem lifa lengst. Bítlarnir sem komu t.d. sterkir út eru frá 7. áratugn- um“ sagði hann. Þá kvað Skúli það hafa verið mjög ánægjulegt í sambandi við þcssa kosningu, að ekki hefði orðið vart við neina smölun, þ.e. að vissir hópar hefðu tekið sig saman um að velja ákveðin lög, en slíkt hefði stundum viljað brenna við í kosningu sem þessari. Þá væri hætt við að þeir veldu lög, sem e.t.v. væru ný af nálinni, cn myndu aldrei komast inn á listann í almennum kosning- um. í kosningunni ufn Vinsælda- lis.ta aldarinnar tóku 430 manns þátt, sem ýmist sendu þættinum bréf eöa svöruðu upphringingum stjórnenda þáttarins. Útvarp kl. 22.35: 6 alþingismenn svara spurningum hlustenda í Fimmtudagsumræðunni ■ í kvöldkl. 22.35 erfimmtu- dagsumræöan á dagskrá út- varps í umsjón Kára Jónasson- ar og Helga Péturssonar. Að þessu sinni fá þeir til liðs við sig 6 alþingismenn, sem eru reiðu- búnir að svara spurningum hlustenda, en þeir geta hringt í síma 22260 á meðan á útsend- ingu stendur og boriö upp þær spurningar, sem þeim liggur á hjarta og búast má við aö alþingismennirnir geti svarað. Alþingismenn þeir, sem sitja fyrir svörum í kvöld eru, Jón Baldvin Hannibalsson, Al- þýöutlokki, Guðmundur Bjarnason, Framsóknarflokki, Friðrik Sóphusson Sjálfstæðis- flokki, Guðrún Helgadóttir Alþýðubandalagi, Stefán Benediktsson Bandaiagi jafn- aðarmanna og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir frá Kvenna- lista. „Þátturinn núna er í tilefni af þinglokunum og að stjórnin verður einsárs urn næstu helgi. Hlustendum gefst þá kostur á að tala við alþingismennina, en þeir hafa verið að tala dálítið við okkur að undan- förnu og nú er þinginu nýlok- ið," segir Kári Jónasson. Þetta er síðasta fimmtudags- umræða þeirra Kára og Helga. Fimmtudagsleikritið eftir austur-þýskan höfund: Brauð ogsalt ■ I kvöld kl. 20.30 verður flutt leikritið Brauð og salt eftir austur-þýska rithöfund- inn Joachim Novotny í þýð- ingu Hallgríms Helgasonar. Efni leiksins er í stuttu máli þetta: Brúnó Klauke lifir heldur tilbreytingarlausu lífi sem varðmaður í brunavarðar- turni þar sem hann á að fylgjast með skógarbrunum. Dag nokkurn kemur flokks- ritarinn á síaðnum í óvænta heimsókn ásamt dóttur sinni. Von er á sendinefnd fyrrverandi sovéthermanna ásamt háttsettum sovéskum majór. Mikill undirbúningur er í gangi vegna heimsóknar- inrtar og allir liðir nákvæmt tímasettir. Til þess að móttaka gest- anna fari fram samkvæmt áætlun á flokksritarinn að fylgjast með bílum þeirra frá turninum og tilkynna kornu þeirra símleiðis til nefndarinnar. Óvænt uppá- koma setur þó strik í reikn- inginn. Leikendur eru: Árni Tryggvason, Erlingur Gísla- son og Sigurjóna Sverris- dóttir. Tæknimaður er Þorbjörn Sigurðsson og leikstjóri er Benedikt Árnasop. B ■ Hallgrímur Helgason þýddi leikritið Brauð og salt. ■ Leikarar í fimmtudagsleikritinu eru Sigurjóna Sverrisdóttir, Erlingur Gíslason og Árni Tryggvason. Leikstjóri er Benedikt Árnason. Myndin er tekin, þegar upptaka á leikritinu fór fram. (Tímamynd Sverrir) Fimmtudagur 24. maí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Baen. Á virkum degi. 7.25 Leiktimi. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Ragna Jónsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Afastrákur" eftir Ármann Kr. Einarsson Flöfundur les (4). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Eg man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 Kristófer Kolumbus Jón R. Hjálmarsson flytur þriðja og sið- asta erindi sitt. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn- ar Egilssonar; seinni hluti Þor- steinn Hannesson les (31). 14.30 Á frívaktinni Margrét Guð- mundsdóttir kynnir óskalög sjó- manna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Adrian Ruiz leikur Píanósvítu i d-moll op. 91 eftir Joachim Raff. 17.00 Fréttir á ensku 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Af stað með Ragnheiði Dav- íðsdóttur. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál. Mörður Árnason talar. 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig- urðardóttir. 20.00 Leikrit: „Brauð og salt“ eftir Joachim Novotny Þýðandi: Hall- grímur Helgason. Leikstjóri: Bene- dikt Árnason. Leikendur: Árni Tiyggvason, Erlingur Gislason og Sigurjóna Sverrisdóttir. 21.25 Gestur í útvarpssal Pólski pianóleikarinn Zygmunt Krauze leikur pólska samtímatónlist. 21.55 „Feðgarnir“, smásaga eftir Gunnar Gunnarsson Klemenz Jónsson les. 22.12 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Fimmtudagsumræðan Umsjón: Kári Jónasson og Helgi Pétursson. 23.45 Fréttir. Dagskrálok. Fimmtudagur 24,maí 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-. endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00-16.00 Eftir tvö Stjórnendur: Jón Axel Ólafsson og Pétur Steinn Guðmundsson. 17.00-18.00 Lög frá 7. áratugnum Stjórnendur: Bogi Águstsson og Guömundur Ingi Kristjánsson. 16.00-17.00 Rokkrásin Stjórnendur: Snorri Skúlason og Skúli Helga- son. sjónvarp Föstudagur 25. maí 19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu dögum Þriöji þáttur. Þýskur brúðu- myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 19.45 Frédaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 21.05 Læknir á lausum kili (Doctor at Large) Bresk gamanmynd frá 1957, gerð eftir einni af lækna- sögum Richards Gordons. Leik- stjóri Ralph Thomas. Aðalhlutverk: Dirk Bogarde, Muriel Pavlow, Don- ald Sinden og James Robertsson Justice. Símon Sparrow læknir er kominn til starfa á St. Swithins sjúkrahúsinu þar sem hann var áður léttúðugur kandídat. Hann gerir sér vonir um að komást á skurðstofuna en leiðin þangað reynist vandrötuð og vorðuð spaugilegum atvikum. Þýöandi Kristmann Eiðsson. 22.40 Setið fyrir svörum í Washing- ton I tilefni af 35 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins svarar George Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna spurningum frétta- manna frá aðildarrikjum Atlants- hafsbandalagsins, e.t.v. ásamt einhverjum ráðherra Evrópuríkis. Af hálfu íslenska Sjónvarpsins tekur Bogi Ágústsson fréttamaður þátt í fyrirspurnunum. Auk þess verður skotið á umræðufundi kunnra stjórnmálamanna og stjórnmálafréttamanna vestan hafs og austan. Dagskrárlok óákveðin

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.