NT - 24.05.1984, Blaðsíða 25
Páfinn biður fyrir Ólafi Ragnari og félögum hans
JiU|_______Útlftnd
Víðtækur stuðningur
við friðarfrumkvæði
Fimmtudagur 24. maí 1984 25
■ Eins og frá hefur verið
greint í fjölmiðium hafa æðstu
þjóðarleiðtogar á Indlandi, í
Mexikó, Svíþjóð, Grikklandi,
Tanzaníu og Argentínu hvatt til
friðarviðræðna og afvopnunar
stórveldanna. Allir þessir þjóð-
arleiðtogar fylgja hlutleysis-
stefnu í alþjóðamálum.
Pjóðarleiðtogarnir ræddu við
fjölmiðla og sendu yfirlýsingu
til sendinefnda Bandaríkjanna,
Sovétríkjanna, Frakklands,
Bretlands og Kína hjá Samein-
uðu þjóðunum.
Petta frumkvæði þjóðarleið-
toga frá fjórum heimsálfum er
til komið vegna starfs þing-
manna og annarra stjórnmála-
manna frá fjölda landa sem
berjast fyrir friði í heiminum.
Þeir hafa stofnað með sér sam-
tök í þágu alþjóðlegs friðar og
þróunar. Formaður stjórnar
þessara samtaka er íslenski
stjórnmálamaðurinn Ólafur
Ragnar Grímsson og mun hann
vera einn af aðalhvatamönnum
þessa friðarátaks nú.
Fjöídi friðarsamtaka hafa lýst
yfir stuðningi við friðarfrum-
kvæði þjóðarleiðtoganna og
þegar þetta er skrifað höfðu
þjóðarleiðtogar í Kanada og á
Spáni lýst því yfir að þeir styddu
eindregið þær hugmyndir sem
felast í friðarfrumkvæðinu. Það
hefur meira að segja verið um
það rætt í kanadíska þinginu
hvort flokkar þar geti ekki allir
sameinast um stuðning við þess-
ar friðartillögur.
Alkirkjuráðið hefur einnig
lýst yfir stuðningi sínum og
Jóhannes Páll páfi annar hefur
sagst biðja fyrir öllum þeim sem
tengdust þessu verðuga fram-
taki í friðarmálum.
Mikilvægi friðarframtaks
þjóðarleiðtoganna sex er fyrst
og fremst fólgið í því að lýsa því
yfir að viðræður kjarnorkuveld-
anna voldugu koma þeim ekki
einum við heldur eru þær mikil-
vægar fyrir allt mannkynið og
framtíð þess. Hinn víðtæki
stuðningur sem þetta framtak
þeirra hefur fengið í fjölmörg-
um löndum sýnir að margir eru
þeim sammála.
Flóð í
Asíu og
Ameríku
Dhaka, Nýja Delhi og Rio de Janeiro-
Reuter.
■ Mikil flóð hafa geisað
að undanförnu bæði á
Indlandsskaga og í Brasi-
líu í Suður-Ameríku.
Fjöldi manns hefur látist í
þessum flóðum og mörg
þúsund manns hefur misst
heimili sín.
í flóðunum á Indlands-
skaga er áætlað að um 100
manns hafi látið lífið í
Bangladesh og að minnsta
kosti 45 manns á Indlandi.
Uppskera á að minnsta
kosti 37 þúsund hekturum
lands hefur gjöreyðilagst í
Bangladesh. Á um helm-
ing þess lands voru ræktuð
hrísgrjón þannig að mikill
uppskerubrestur er fyrir-
sjáanlegur þar nú í ár.
Indversk stjórnvöld
segja að í þessum flóðum
hafi um 550 þúsund manns
misst heimili sín og nú búa
um 200.000 manns þar í
neyðarbúðum sem Ind-
verjar hafa sett upp.
Flóðin í Brasilíu eru
einnig mannskæð. Þar
höfðu a.m.k. 16 manns
látið lífið í gær og á þriðja
þúsund manns höfðu misst
heimili sín.
■ Hér óska leiðtogar stærstu stjómmálaflokkanna í V-Þýskalandi Richard von Weizsacker til
hamingju með kosningu sína til forseta. Helmut Kohl er fyrir miðju en Willy Brandt er hægra megin
Nýr forseti í V-Þýskalandi
Bonn-Reuter.
■ Þýska þingið kaus í gær með
yfirgnæfandi meirihluta Ric-
hard von Weizsacker sem forseta
sambandslýðveldisins.
Þetta mun vera í fyrsta skiptið
sem Þjóðverjar kjósa aðals-
mann til að gegna þessu emb-
ætti. Richard von Weizsacker er
64 ára gamall. Hann er félagi í
Kristileg demókrataflokknum
og hann hefur um nokkurt skeið
verði borgarstjóri í Vestur-Berlín.
Hann er m.a. þekktur fyrir
stuðning sinn við bætt samskipti
Austur- og Vestur-Evrópu.
Faðir hans ar háttsettur diplo-
mat á tíma nasista en sjálfur var
Richard á sínum tíma bendlað-
ur við misheppnað sprengjutil-
ræði við Hitler í júlí 1944.
■ Elísabet Englandsdrottning kom í heimsókn til Vestur-
Þýskalands í fyrradag. Þar leit hún við í hermannabúðum í
Dortmund þar sem breskt stórskotalið tók á móti henni með
pompi og pragt.
Símamynd-POLFOTO
Nýjasta tækni og vísindi:
Meyfæðingin
ekkert máí
London-Reuter.
■ Tveir breskir vísindamenn
halda því fram að meyfæðing sé
ekki aðeins möguleg heldur hafi
hún líklega komið oft fyrir.
Þeir halda þessu fram í bók
sem kom út í London í gær
undir nafninu „The redundant
rnale" (Hinn óþarfi karl). Þeir
segja að athuganir sínar á frjóvg-
un í tilraunaglösum hafi leitt í
Ijós þeim til mikillar undrunar
að egg úr konu geti skipt sér án
þess að sæði úr karlmanni komi.
þar nokkuð nærri. Því sé ekkert
auðveldara fyrir konur í náinni
framtíð en að losa sig við karl-
menn fyrir fullt og allt, þeir séu
óþarfir.
Til allrar hamingju fyrir karl-
peninginn eru ekki allir vísinda-
menn sammála þessum niður-
stöðum. Þeir halda því fram að
frumuskipting eggs án tilkomu
sæðis geti aldrei fætt af sér börn.
Umsjon: Oddur
Olafsson og Ragnar Baldursson
Uppboð á dagbókum Che Guevara
London-Reuter.
■ Dagbækur, sem sagðar eru
skrifaðar af byltingarleiðtog-
anum Che Guevara, verða
boðnar upp á uppboði í
London síðar á þessu ári.
Það er sagt að Che Guevara
hafi haldið þessar dagbækur
árin 1966 og 1967 þegar hann
leiddi hópa skæruliða í Bólivíu
í tilraun til að gera byltingu
.þar. Sú tilraun mistókst og
kostaði hann sjálfan lífið.
Dagbækurnar voru í fórum
Che Guevara þegar hann var
tekinn af lífi af hersveitum
stjórnvalda í Bólivíu. Þá voru
sýndar myndir af dagbókunum
en það er ekki fyrr en nú að
þær eru gerðar opinberar.
Auk dagbókanna á að selja
á uppboðinu stílabók þar sem
Che Guevara skrifaði m.a.
athugasemdir um menn sína.
Þar mun vera að finna athuga-
semdir hans um franska marx-
istann Regis Debray sem nú
tekur þátt í frönsku stjórninni.
Skjalasérfræðingar hjá Sot-
heby, þar sem dagbækurnar
verða boðnar upp, segja að
ekki leiki neinn vafi á því að
þær séu raunverulega skrifað-
ar af Che Guevara.
Með kjorseðil í
annarri hendi
og riffil í hinni
Belfast-Rcuter.
■ Kjörseðill og byssu-
kúla er meðal slagorða
Sinn Fein á Norður-ír-
landi, en það er hinn póli-
tíski armur IRA, í kosn-
ingabaráttunni sern nú er
að hefjast vegna kjörs til
Evrópuþingsins.
Frambjóðandi Sinn
Fein á Norður-írlandi er
Danny Morrison, sem er
einn aðaláróðursfulltrúi
samtakanna. Hann gengur
til kosninga undir kjörorð-
inu „með kjörseðil í ann-
arri hendi og riffil í hinni“
IRA er á móti Evrópu-
þinginu, en mun freista
þess að fella frambjóð-
enda sósíaldemókrata og
Verkamannaflokksins.
í írska lýðveldinu mun
Sinn Fein bjóða fram átta
frambjóðendur til
Evrópuþingsins. Flokkur-
inn er starfræktur um allt
landið en í Norður-írlandi
verður að skipta um nafn
á honum, því þar er hann
ekki viðurkenndur.
HÚSI VERSLUNARINNAR SÍMI 687305
w
SALON VEH
ALFHEIMUM 74 SIMI (6)85305