NT - 24.05.1984, Side 26
Fimmtudagur 24. maí 1984 26
Iþróttir
Tækifærin norðanmanna
mörkin Skagamanna
■ Arnór Guðjohnsen lék ekki með Anderlecht í gær, en hann
tók þátt í vítaspyrnukeppninni og var svo óheppinn að markvörður
Tottenham varði vítaspyrnu hans.
Frá Gylfa Krisljánssyni íþróttafréltamanni
NT á Akureyri
■ Annað ári í röð hreinlega
stela Skagamenn sigri gegn
Þórsurum á Akureyri á útivelli.
Það gerðist í fyrra er Akranes
sigraði þar 1-0 og í gær unnu
þeir 3-0. Mörgum kann að
fínnast það furðulegt að hægt
sé að tala um það lið sem sigrar
3-0, steli sigri. Staðreyndin er
hins vegar sú, að Þórsarar áttu
ijögur dauðafæri til að skora úr
á fyrstu 23 mínútum leiksins,
en misnotuðu öll. Þeir áttu 8
hornspyrnur í fyrri hálfleik, á
Tony Parks varði
vítaspyrnu Arnórs
■ Það var snerpa markvarð-
arins Tony Parks sem varð
Tottenham til bjargar í síðari
úrslitaleik UEFA-keppninnar
í knattspyrnu í Lundúnum í
gærkvöld. Parks varði síðustu
vítaspyrnu Anderlecht í víta-
spyrnukeppni sem grípa þurfti
til eftir að jafnt var 1-1 að
loknum venjulegum leiktíma
og framlengingu. Arnór Guð-
johnsen tók síðustu vítaspyrnu
Anderlecht, en skaut nánast
beint á Parks, og Tottenham
vann 4-3 í vítaspyrnukeppn-
inni.
Alex Czerniatinsky skoraði
fyrir Anderlecht á 60. mínútu
leiksins eftir frábæra sendingu
Morten Olsen, en Graham
Roberts, jafnaði sex mínútum
fyrir leikslok. Fleiri mörk voru
ekki skoruð í framlengingunni
og því varð að vera vítaspyrnu-
keppni.
Tottenham komst yfir í víta-
spyrnukeppninni, þegar Tony
Parks varði hjá Dananum
Morten Olsen, en síðan varði
Jacques Munaron síðustu
spyrnu Tottenham frá Danny
Thomas, Arnór hafði mögu-
leika áaðjafna. Það tókstekki.
Tottenham vann þar með
UEFA-bikarinn í annað sinn.
Liðið hefur aldrei tapað leik í
Evrópukeppni á White Hart
Lane, en nú stóð það tæpt.
Bikarkeppni KSI
Stórsigur FH
■ Fyrstu leikirnir í 1. umferð
bikarkeppni KSI voru leiknir í
gærkvöldi. Úrslit urður sem
liér segir.
Reynir S.-Njarðvík ........ Völsungur-Leiftur
Ármann-Grindavík .... 0-1 Vorboðinn-Vaskur
Víðir-Hafnir.............1-0
Stokkseyri-Fylkir........1-4
FH-ÍR....................6-2
Selfoss-Haukar..........4-1
ÍBÍ-Víkverji............4-0
ÍBV-HV ...................5-1
Magni-Tindastóll........0-1
. . 2-1
frestað
Hrafnkell-Austri........1-3
Þróttur N.-Leiknir F ... 1-2
Huginn-Sindri...........2-0
Jafntefli
hjá N-írum og Wales-
búum
■ N-Irar og Walesbúar
gerðu jafntefli í landsleik
í fyrrakvöld 1-1. Leikið
var í Wales og var leikur-
inn liður í bresku meist-
arakeppninni sem nú er
haldin í síðasta sinn.
N-írur eiga nú mögu-
leika á að sigra í keppn-
inni ef Englendingar og
Skotar gera jafntefli í
Skotlandi um næstu
helgi.
móti engri hjá Skagamönnum
og í síðari hálfleik fengu þeir 5
hornspyrnur, en Skagamenn
eina.
En lið sem skorar ekki vinnur
ekki leik.í fyrri hálfleik átti
Þórsarinn Kristján Kristjáns-
son þrumuskot rétt fram hjá úr
þröngu færi og í tvígang bæði á
8. og 15. mín. varmikilldarrað-
ardans í vítateig Akraness og
bjargað á línu í annað skiptið.
Stuttu síðar missti Bjarni Sig-
urðsson markvörður Akraness
boltann yfir sig á markteig, Oli
Þór skaut en hitti illa og varn-
armaður hreinsaði frá á mark-
línunni.
Fyrsta mark Skagamanna úr
þeirra fyrsta marktækifæri á
37. mínútu kom því eins og
köld vatnsgusa framan í fjöl-
marga áhorfendur, en vel var
að undirbúningi þess staðið.
Sókn upp hægri kantinn þar
sem boltinn gekk frá manni til
manns og endaði með stungu-
sendingu á Guðbjörn Tryggva-
son, sem var hægra megin í
teignum. Aðþrengdur reyndi
hann skot og löturhægt skopp-
aði boltinn í fjærhornið.
Óli Þór Magnússon fékk
dauðafæri til að jafna metin á
41. mín. Eftir aukaspyrnu og
skot Guðjóns Guðmundssonar
hrökk boltinn til Óla Þórs, sem
var innan markteigs við aðra
stöngina, en hann brenndi af
hinum megin við markið!
Það var ljóst í síðari hálfleik
að Skagamenn ætluðu ekki að
láta forskot sitt af hendi. Þeir
léku mjög fast, öftustu varnar-
menn þeirra, og komust upp
með það hjá afarslökum dóm-
ara Ola Ólsen, sem gerði ekk-
ert annað við háskaleiksbrotum
annað en að benda höndunum
út í loftið. Þannig keyrði til
dæmis Guðjón Þórðarson Ósk-
ar Gunnarsson niður í víta-
teignum á 50. mínútu. Hinn
eini dómur sem þarna hefði
verið réttur var vítaspyrna.
Bakhrinding aftanfrá að mikl-
um krafti, en Skagamenn fengu
útspark.
Þráinn
feráOL
■ Þráinn Hafstcinsson,
tugþrautarmaðurinn
sterki, sem vegna meiðsla
varð að gefast upp á að
komast á Olympíuleik-
ana í Los Angeles í tug-
þrautarkeppni, fer samt
sem áður á Olympíuleik-
ana. Hann verður aðstoð-
armaður frjálsíþrótta-
mannanna á leikunum,
hvað þjálfunarleg atriði
snertir.
Þráinn, sem er nýráð-
inn aðstoðarþjálfari há-
skólaliðs Álabamahá-
skóla í frjálsum íþróttum,
er mjög vel til þessa hlut-
verks fallinn, að því er
Örn Eiðsson formaður
Frjálsíþróttasambands
íslands sagði NT í gær.
Konur á NM í blaki
karlar líka - landsliðsþjálfarar ráðnir og hópar valdir
■ Blaksamband íslands hefur
ákveðið að senda kvennalið á
Norðurlandamót í blaki, sem
haldið verður á Álandseyjum
í 5.-7. október í haust. Á sama
tíma er Norðurlandamót í karla-
flokki í Randeberg í Noregi, en
þangað fer karlalið frá íslandi,
eins og venja hefur verið
undanfarinn áratug. Blaksam-
bandið hefur ráðið landsliðs-
þjálfara fyrir báða flokka, og
eru þeir Guðmundur E Pálsson
í karlaflokki, og Björgúlfur Jó-
hannsson í kvennaflokki. Báðir
munu þeir síðan ráða sér að-
stoðarþjálfara, sem jafnframt
verða fararstjórar í ferðunum.
Kemur það sér sérstaklega vel
fyrir Guðmund sem af lands-
liðsnefnd hefur verið valinn í
sinn eigin landsliðshóp.
Þjálfararnir og landsliðs-
nefnd hafa valið hópa til æfinga
15 karla, og 18 konur, en að
líkindum munu fara 12 leik-
menn á NM. Hóparnir eru
þannig skipaðir:
Karlalið:
Þórður Svanbergsson, ÍS
Þorvarður Sigfússon, ÍS
Friðjón Bjamason, IS
Arngrímur Þorgrimsson, Víkingi
Hreinn Þorkelsson, HK
Samúel Örn Erlingsson, HK
Haraldur G. Hlöðversson, HK
■ Guðmundur E. Pálsson,
þjálfari karlalandsliðsins í
blaki.
l.cifur Harðarson, Þrólti
Sveinn Hreinsson, Þrótti
Guðmundur Kja:rncsted, Þrótti
Lárentsínus H. Agústsson, Þrótti
Jón Árnason, Þrótti
Guðmundur E. Pálsson, Þrótti
Kristján M. Unnarsson, Fram
Marteinn Guðgeirsson, Þrótti Nes.
Tómas Jónsson, KFUM Oslo
Kvcnnalið:
Jóhanna Guðjónsdóttir, Völsungi
Ásdís Jónsdóttir, Völsungi
Kristjana Skúladóttir, Völsungi
Hcrnúna Gunnarsdóttir, Völsungi
l.aufcy Skúladóttir, Völsungi
Þorbjörg Rögnvaldsdóttir, UBK
Oddný Erlcndsdóttir, UBK
Sigurlín Sæmundsdóttir, UBK
Sigurborg Gunnarsdóttir, UBK
Þóra Andrésdóttir, ÍS
Auður Aðalsteinsdóttir, ÍS
Málfríður Pálsdóttir, ÍS
Gyða Steinsdóttir, ÍS
Guðrún Hrcinsdóttir, ÍS
Margrét Aðalstcinsdóttir, ÍS
Snjóíaug E. Bjarnadóttir, Þrótti
Hulda Laxdal Hauksdóttir, Þrótti
Steina Ólafsdóttir, Þrótti.
Á sex mínútna kafla skömmu
síðar greiddu íslandsmeistarar
Akraness, Þórsurum rothögg-
ið. Fyrsta hornspyrna þeirra í
leiknum á 53. mín. kom fyrir
markið, boltinn small þar í
jörðina og þaðan uppí höfuð
Sigurðar Halldórssonar, sem
stangaði hann í netið. Þriðja
EINKUHNAGJOF NT:
ÞÓR
Páll Guðlaugsson..........4
Sigurbjörn Viðarsson.....5
Jónas Róbertsson .........3
Árni Stefánsson ..........4
Óskar Gunnarsson..........3
Nói Björnsson..... .......5
Kristján Kristjánsson....4
Guðjón Guðmundsson .......5
Óli Þór Magnússon.........5
Halldór Áskelsson ........4
Bjarni Sveinbjörnsson....4
Júlíus Tryggvason.........4
IA
Bjarni Sigurðsson .........4
Guðjón Þórðarson ..........5
Sigurður Halldórsson......3
Sigurður Lárusson..........3
Jón Áskelsson .............4
Heimir Guðmundsson ........5
Sveinbjörn Hákonarson.....3
Júlíus Ingólfsson..........4
Sigþór Ómarsson............4
Guðbjörn Tryggvason .......4
Árni Sveinsson.............4
markið skoraði Sveinbjörn
Hákonarson og var það gullfall-
egt mark. Hann komst inn fyrir
vörnina hægra megin á 59.
mín. og sendi þrumufleyg af 25
metra færi efst í markið.
Þórsarar reyndu allt hvað
þeir gátu til að minnka þennan
mun, en án árangurs, enda var
sókn þeirra bitlaus.
Bestu menn Skagamanna
voru Sigurðarnir Halldórsson
og Lárusson, ásamt Sveinbirni
Hákonarsyni, en hjá Þór Ósk-
ari Gunnarssyni, sem kemur
vel út í sinni nýju miðvarðar-
stöðu, og Jónas Róbertsson.
I
HNOT-
SKURN
■ Leiklð við þokkaleg skil-
yrði, en nokkra golu. Nokkrir
Oóðir kaflar, en að öðru leyti
ekki vel leikið, bæði lið geta
betur. Hamingjudísirnar með
Skagamönnum. Mörkin:
Guðbjörn Tryggvason á 37.
mín. Sigurður Halldórsson á
53. mín. og Sveinbjörn Há-
konarson á 59. min.
Leikur í meðallagi. Áhorf-
endur 1370.
Knattspyrnan í kvöld:
Fram-Þróttur
■ Einn leikur fer fram í 1.
deildarkeppninni í kvöld en þá
leika Fram og Þróttur á Laugar-
dalsvelli kl. 20.00.
í fyrstu umferð léku Framar-
ar gegn Skagamörínum á Akra-
nesi og biðu lægri hlut í leik þar
sem þeir voru síst slakari aðil-
inn. Þróttarar léku við UBK í
fyrstu umferð og gerðu marka-
laust jafntefli á Laugardals-
velli.
Það verður örugglega hart
barist í kvöld enda mega bæði
liðin illa við að tapa og haft skal
í huga að sigur veitir 3 stig.
Þá eru tveir leikir í Bikar-
keppninni í kvöld, Árvakur og
Víkingur Ól. leika á Háskóla-
velli og Léttir spiiar við Augna-
blik á Melavelli. Báðir leikirnir
hefjast kl. 20.00.
V-Þjóðverjar
unnu ítali
■ Vestur-Þjóðverjar, undir
stjórn miðherjans snjalla Karl-
Heinz Rummenigge, sigruðu
ítali á þriðjudaginn með einu
marki gegn engu. Leikurinn
var haldinn í tilefni af 80 ára
afmæli FIFA og var spilaður í
Zurich í Sviss.
Það var Peter Briegel sem
skoraði mark Þjóðverja á 61.
mínútu eftir aukaspyrnu Rum-
menigge. Þjóðverjar voru betri
Webster íslenskur ríkisborgari
■ Körfuknattleikmaðurinn
Decarsta Webster, sem lék
með Haukum í fyrra, er nú
orðinn gjaldgengur í íslenskum
körfuknattleik.
í vikunni voru samþykkt á
Alþingi lög um veitingu ríkis-
borgararéttar. Webster, sem
sótti um ríkisborgararétt fyrir
nokkru og er giftur íslenskri
konu, er rneðal þeirra sem
fengu ríkisborgararétt.
Webster kom hingað til lands
1979 og lék þá með KR, síðan
Skallagrími, og loks Haukum
frá 1980-1983. Á síðastliðnu
keppnistímabili mátti hann
ekki leika með úrvalsdeildarliði
Hauka, því bann var sett við
erlendum leikmönnum.
Þótt Webster sé nú orðinn
íslenskur ríkisborgari er hann
ekki gjaldgengur með íslenska
landsliðinu fyrr en eftir þrjú ár.
Þetta á við um keppnir á borð
við Evrópukeppnina, en í vin-
-áttulandsleikjum, mætti hann
leika.
aðilinn í leiknum en gekk frek-
ar illa að brjóta aftur ítölsku
vörnina sem að sjálfsögðu var
aðalsmerki ítalana.
Leikurinn var góð æfing fyrir
bæði liðin. V-Þjóðverjar eiga
að leika í úrslitakeppni Evrópu-
keppninnar í Frakklandi í
næsta mánuði og þar sem þeir
verða án Schusters prufuðu
þeir Rummenigge á miðjunni
og stóð hann sig mjög vel.
„Miðjan var í góðu lagi" sagði
Jupp Derwall þjálfari V-Þjóð-
verja og var greinilega ánægður
með sína menn. Liðin voru
þannig skipuð: V-Þýskaland:
Schumacher (Burdenski), B.
Förster, Stielike, K-H. Förster
(Matthaeus), Briegel, Buch-
wald (Bommer), Rummen-
igge, Brehme, Rolff, Völler,
Allofs. Ítalía: Bordon, Berg-
omi, Scirea, Vierchowod, Nela
(Gentile), Baresi, Tardelli
(Fanna), Dossena, Bagni, Alt-
obelli (Giordano), Conti.