NT

Ulloq

NT - 24.05.1984, Qupperneq 26

NT - 24.05.1984, Qupperneq 26
Fimmtudagur 24. maí 1984 26 Iþróttir Tækifærin norðanmanna mörkin Skagamanna ■ Arnór Guðjohnsen lék ekki með Anderlecht í gær, en hann tók þátt í vítaspyrnukeppninni og var svo óheppinn að markvörður Tottenham varði vítaspyrnu hans. Frá Gylfa Krisljánssyni íþróttafréltamanni NT á Akureyri ■ Annað ári í röð hreinlega stela Skagamenn sigri gegn Þórsurum á Akureyri á útivelli. Það gerðist í fyrra er Akranes sigraði þar 1-0 og í gær unnu þeir 3-0. Mörgum kann að fínnast það furðulegt að hægt sé að tala um það lið sem sigrar 3-0, steli sigri. Staðreyndin er hins vegar sú, að Þórsarar áttu ijögur dauðafæri til að skora úr á fyrstu 23 mínútum leiksins, en misnotuðu öll. Þeir áttu 8 hornspyrnur í fyrri hálfleik, á Tony Parks varði vítaspyrnu Arnórs ■ Það var snerpa markvarð- arins Tony Parks sem varð Tottenham til bjargar í síðari úrslitaleik UEFA-keppninnar í knattspyrnu í Lundúnum í gærkvöld. Parks varði síðustu vítaspyrnu Anderlecht í víta- spyrnukeppni sem grípa þurfti til eftir að jafnt var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. Arnór Guð- johnsen tók síðustu vítaspyrnu Anderlecht, en skaut nánast beint á Parks, og Tottenham vann 4-3 í vítaspyrnukeppn- inni. Alex Czerniatinsky skoraði fyrir Anderlecht á 60. mínútu leiksins eftir frábæra sendingu Morten Olsen, en Graham Roberts, jafnaði sex mínútum fyrir leikslok. Fleiri mörk voru ekki skoruð í framlengingunni og því varð að vera vítaspyrnu- keppni. Tottenham komst yfir í víta- spyrnukeppninni, þegar Tony Parks varði hjá Dananum Morten Olsen, en síðan varði Jacques Munaron síðustu spyrnu Tottenham frá Danny Thomas, Arnór hafði mögu- leika áaðjafna. Það tókstekki. Tottenham vann þar með UEFA-bikarinn í annað sinn. Liðið hefur aldrei tapað leik í Evrópukeppni á White Hart Lane, en nú stóð það tæpt. Bikarkeppni KSI Stórsigur FH ■ Fyrstu leikirnir í 1. umferð bikarkeppni KSI voru leiknir í gærkvöldi. Úrslit urður sem liér segir. Reynir S.-Njarðvík ........ Völsungur-Leiftur Ármann-Grindavík .... 0-1 Vorboðinn-Vaskur Víðir-Hafnir.............1-0 Stokkseyri-Fylkir........1-4 FH-ÍR....................6-2 Selfoss-Haukar..........4-1 ÍBÍ-Víkverji............4-0 ÍBV-HV ...................5-1 Magni-Tindastóll........0-1 . . 2-1 frestað Hrafnkell-Austri........1-3 Þróttur N.-Leiknir F ... 1-2 Huginn-Sindri...........2-0 Jafntefli hjá N-írum og Wales- búum ■ N-Irar og Walesbúar gerðu jafntefli í landsleik í fyrrakvöld 1-1. Leikið var í Wales og var leikur- inn liður í bresku meist- arakeppninni sem nú er haldin í síðasta sinn. N-írur eiga nú mögu- leika á að sigra í keppn- inni ef Englendingar og Skotar gera jafntefli í Skotlandi um næstu helgi. móti engri hjá Skagamönnum og í síðari hálfleik fengu þeir 5 hornspyrnur, en Skagamenn eina. En lið sem skorar ekki vinnur ekki leik.í fyrri hálfleik átti Þórsarinn Kristján Kristjáns- son þrumuskot rétt fram hjá úr þröngu færi og í tvígang bæði á 8. og 15. mín. varmikilldarrað- ardans í vítateig Akraness og bjargað á línu í annað skiptið. Stuttu síðar missti Bjarni Sig- urðsson markvörður Akraness boltann yfir sig á markteig, Oli Þór skaut en hitti illa og varn- armaður hreinsaði frá á mark- línunni. Fyrsta mark Skagamanna úr þeirra fyrsta marktækifæri á 37. mínútu kom því eins og köld vatnsgusa framan í fjöl- marga áhorfendur, en vel var að undirbúningi þess staðið. Sókn upp hægri kantinn þar sem boltinn gekk frá manni til manns og endaði með stungu- sendingu á Guðbjörn Tryggva- son, sem var hægra megin í teignum. Aðþrengdur reyndi hann skot og löturhægt skopp- aði boltinn í fjærhornið. Óli Þór Magnússon fékk dauðafæri til að jafna metin á 41. mín. Eftir aukaspyrnu og skot Guðjóns Guðmundssonar hrökk boltinn til Óla Þórs, sem var innan markteigs við aðra stöngina, en hann brenndi af hinum megin við markið! Það var ljóst í síðari hálfleik að Skagamenn ætluðu ekki að láta forskot sitt af hendi. Þeir léku mjög fast, öftustu varnar- menn þeirra, og komust upp með það hjá afarslökum dóm- ara Ola Ólsen, sem gerði ekk- ert annað við háskaleiksbrotum annað en að benda höndunum út í loftið. Þannig keyrði til dæmis Guðjón Þórðarson Ósk- ar Gunnarsson niður í víta- teignum á 50. mínútu. Hinn eini dómur sem þarna hefði verið réttur var vítaspyrna. Bakhrinding aftanfrá að mikl- um krafti, en Skagamenn fengu útspark. Þráinn feráOL ■ Þráinn Hafstcinsson, tugþrautarmaðurinn sterki, sem vegna meiðsla varð að gefast upp á að komast á Olympíuleik- ana í Los Angeles í tug- þrautarkeppni, fer samt sem áður á Olympíuleik- ana. Hann verður aðstoð- armaður frjálsíþrótta- mannanna á leikunum, hvað þjálfunarleg atriði snertir. Þráinn, sem er nýráð- inn aðstoðarþjálfari há- skólaliðs Álabamahá- skóla í frjálsum íþróttum, er mjög vel til þessa hlut- verks fallinn, að því er Örn Eiðsson formaður Frjálsíþróttasambands íslands sagði NT í gær. Konur á NM í blaki karlar líka - landsliðsþjálfarar ráðnir og hópar valdir ■ Blaksamband íslands hefur ákveðið að senda kvennalið á Norðurlandamót í blaki, sem haldið verður á Álandseyjum í 5.-7. október í haust. Á sama tíma er Norðurlandamót í karla- flokki í Randeberg í Noregi, en þangað fer karlalið frá íslandi, eins og venja hefur verið undanfarinn áratug. Blaksam- bandið hefur ráðið landsliðs- þjálfara fyrir báða flokka, og eru þeir Guðmundur E Pálsson í karlaflokki, og Björgúlfur Jó- hannsson í kvennaflokki. Báðir munu þeir síðan ráða sér að- stoðarþjálfara, sem jafnframt verða fararstjórar í ferðunum. Kemur það sér sérstaklega vel fyrir Guðmund sem af lands- liðsnefnd hefur verið valinn í sinn eigin landsliðshóp. Þjálfararnir og landsliðs- nefnd hafa valið hópa til æfinga 15 karla, og 18 konur, en að líkindum munu fara 12 leik- menn á NM. Hóparnir eru þannig skipaðir: Karlalið: Þórður Svanbergsson, ÍS Þorvarður Sigfússon, ÍS Friðjón Bjamason, IS Arngrímur Þorgrimsson, Víkingi Hreinn Þorkelsson, HK Samúel Örn Erlingsson, HK Haraldur G. Hlöðversson, HK ■ Guðmundur E. Pálsson, þjálfari karlalandsliðsins í blaki. l.cifur Harðarson, Þrólti Sveinn Hreinsson, Þrótti Guðmundur Kja:rncsted, Þrótti Lárentsínus H. Agústsson, Þrótti Jón Árnason, Þrótti Guðmundur E. Pálsson, Þrótti Kristján M. Unnarsson, Fram Marteinn Guðgeirsson, Þrótti Nes. Tómas Jónsson, KFUM Oslo Kvcnnalið: Jóhanna Guðjónsdóttir, Völsungi Ásdís Jónsdóttir, Völsungi Kristjana Skúladóttir, Völsungi Hcrnúna Gunnarsdóttir, Völsungi l.aufcy Skúladóttir, Völsungi Þorbjörg Rögnvaldsdóttir, UBK Oddný Erlcndsdóttir, UBK Sigurlín Sæmundsdóttir, UBK Sigurborg Gunnarsdóttir, UBK Þóra Andrésdóttir, ÍS Auður Aðalsteinsdóttir, ÍS Málfríður Pálsdóttir, ÍS Gyða Steinsdóttir, ÍS Guðrún Hrcinsdóttir, ÍS Margrét Aðalstcinsdóttir, ÍS Snjóíaug E. Bjarnadóttir, Þrótti Hulda Laxdal Hauksdóttir, Þrótti Steina Ólafsdóttir, Þrótti. Á sex mínútna kafla skömmu síðar greiddu íslandsmeistarar Akraness, Þórsurum rothögg- ið. Fyrsta hornspyrna þeirra í leiknum á 53. mín. kom fyrir markið, boltinn small þar í jörðina og þaðan uppí höfuð Sigurðar Halldórssonar, sem stangaði hann í netið. Þriðja EINKUHNAGJOF NT: ÞÓR Páll Guðlaugsson..........4 Sigurbjörn Viðarsson.....5 Jónas Róbertsson .........3 Árni Stefánsson ..........4 Óskar Gunnarsson..........3 Nói Björnsson..... .......5 Kristján Kristjánsson....4 Guðjón Guðmundsson .......5 Óli Þór Magnússon.........5 Halldór Áskelsson ........4 Bjarni Sveinbjörnsson....4 Júlíus Tryggvason.........4 IA Bjarni Sigurðsson .........4 Guðjón Þórðarson ..........5 Sigurður Halldórsson......3 Sigurður Lárusson..........3 Jón Áskelsson .............4 Heimir Guðmundsson ........5 Sveinbjörn Hákonarson.....3 Júlíus Ingólfsson..........4 Sigþór Ómarsson............4 Guðbjörn Tryggvason .......4 Árni Sveinsson.............4 markið skoraði Sveinbjörn Hákonarson og var það gullfall- egt mark. Hann komst inn fyrir vörnina hægra megin á 59. mín. og sendi þrumufleyg af 25 metra færi efst í markið. Þórsarar reyndu allt hvað þeir gátu til að minnka þennan mun, en án árangurs, enda var sókn þeirra bitlaus. Bestu menn Skagamanna voru Sigurðarnir Halldórsson og Lárusson, ásamt Sveinbirni Hákonarsyni, en hjá Þór Ósk- ari Gunnarssyni, sem kemur vel út í sinni nýju miðvarðar- stöðu, og Jónas Róbertsson. I HNOT- SKURN ■ Leiklð við þokkaleg skil- yrði, en nokkra golu. Nokkrir Oóðir kaflar, en að öðru leyti ekki vel leikið, bæði lið geta betur. Hamingjudísirnar með Skagamönnum. Mörkin: Guðbjörn Tryggvason á 37. mín. Sigurður Halldórsson á 53. mín. og Sveinbjörn Há- konarson á 59. min. Leikur í meðallagi. Áhorf- endur 1370. Knattspyrnan í kvöld: Fram-Þróttur ■ Einn leikur fer fram í 1. deildarkeppninni í kvöld en þá leika Fram og Þróttur á Laugar- dalsvelli kl. 20.00. í fyrstu umferð léku Framar- ar gegn Skagamörínum á Akra- nesi og biðu lægri hlut í leik þar sem þeir voru síst slakari aðil- inn. Þróttarar léku við UBK í fyrstu umferð og gerðu marka- laust jafntefli á Laugardals- velli. Það verður örugglega hart barist í kvöld enda mega bæði liðin illa við að tapa og haft skal í huga að sigur veitir 3 stig. Þá eru tveir leikir í Bikar- keppninni í kvöld, Árvakur og Víkingur Ól. leika á Háskóla- velli og Léttir spiiar við Augna- blik á Melavelli. Báðir leikirnir hefjast kl. 20.00. V-Þjóðverjar unnu ítali ■ Vestur-Þjóðverjar, undir stjórn miðherjans snjalla Karl- Heinz Rummenigge, sigruðu ítali á þriðjudaginn með einu marki gegn engu. Leikurinn var haldinn í tilefni af 80 ára afmæli FIFA og var spilaður í Zurich í Sviss. Það var Peter Briegel sem skoraði mark Þjóðverja á 61. mínútu eftir aukaspyrnu Rum- menigge. Þjóðverjar voru betri Webster íslenskur ríkisborgari ■ Körfuknattleikmaðurinn Decarsta Webster, sem lék með Haukum í fyrra, er nú orðinn gjaldgengur í íslenskum körfuknattleik. í vikunni voru samþykkt á Alþingi lög um veitingu ríkis- borgararéttar. Webster, sem sótti um ríkisborgararétt fyrir nokkru og er giftur íslenskri konu, er rneðal þeirra sem fengu ríkisborgararétt. Webster kom hingað til lands 1979 og lék þá með KR, síðan Skallagrími, og loks Haukum frá 1980-1983. Á síðastliðnu keppnistímabili mátti hann ekki leika með úrvalsdeildarliði Hauka, því bann var sett við erlendum leikmönnum. Þótt Webster sé nú orðinn íslenskur ríkisborgari er hann ekki gjaldgengur með íslenska landsliðinu fyrr en eftir þrjú ár. Þetta á við um keppnir á borð við Evrópukeppnina, en í vin- -áttulandsleikjum, mætti hann leika. aðilinn í leiknum en gekk frek- ar illa að brjóta aftur ítölsku vörnina sem að sjálfsögðu var aðalsmerki ítalana. Leikurinn var góð æfing fyrir bæði liðin. V-Þjóðverjar eiga að leika í úrslitakeppni Evrópu- keppninnar í Frakklandi í næsta mánuði og þar sem þeir verða án Schusters prufuðu þeir Rummenigge á miðjunni og stóð hann sig mjög vel. „Miðjan var í góðu lagi" sagði Jupp Derwall þjálfari V-Þjóð- verja og var greinilega ánægður með sína menn. Liðin voru þannig skipuð: V-Þýskaland: Schumacher (Burdenski), B. Förster, Stielike, K-H. Förster (Matthaeus), Briegel, Buch- wald (Bommer), Rummen- igge, Brehme, Rolff, Völler, Allofs. Ítalía: Bordon, Berg- omi, Scirea, Vierchowod, Nela (Gentile), Baresi, Tardelli (Fanna), Dossena, Bagni, Alt- obelli (Giordano), Conti.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.