NT - 24.05.1984, Síða 28
■ Sigvaldi Þórðarson, bóndi:
„Óf mikið um bráðabirgða-
lausnir á þinginu."
NT-mynd: Ari
■ Jón Meyvantsson, hafnar-
verkamaður: „Þeir mættu
karpa minna og framkvæma
meira.“ NT-mynd: Ari
■ Ari ísberg, hdl: „Fólk verð-
ur að lifa af einhverju.“
NT-mynd: Ari
Sjaldan lýgur almannarómur:
„Karpið minna og
framkvæmið meira“
Almenningur dæmir störf þingsins
■ Nú hefur þingið lokið störfum og þingmenn hafa margir hverjir tjáð sig ítarlega um
störf þess, og þann árangur sem náðst hefur. Minna hefur heyrst í hinum almenna
borgara, fólkinu sem á lífsviðurværi sitt og hagsmuni undir starfsháttum og stefnu-
mótun stjórnvalda.
í þeim tilgangi að kynnast nánar viðhorfum almennings tók NT nokkra iaunþega tali
og innti þá eftir áliti á störfum þingsins og hversu þeim þætti hafa áunnist.
Þingið hefði mátt sitja
lengur
Sigvaldi Þórðarson, bóndi að
Bakka í Melasveit:
Ég held að það sé allt í góðu
lagi með störf þingsins. Eg er
ánægður með ýmislegt sem
þingið hefur gert, sérstaklega
það að þeir hafa náð einhverri
stjórn á efnahagsmálunum. En
mér finnst að þingið hefði mátt
sitja lengur og afgreiða ýmis
mál af meiri alvöru. Það er of
mikið um bráðabirgðalausnir
hjá þessu þingi. Ég get nefnt
húsnæðismálin sem dæmi og
Grænmetisverslun ríkisins. Nú
sumt er enn óafgreitt eins og
t.d. kjördæmamálið. Það er
ekkert framtíðarskipulag á hlut-
unum.
Ég held þó að ríkisstjórnin sé
í sjálfu sér góð, það vantar bara
meiri festu.“
Þeir hafa komið illa fram
við vinnandi fólk
Jón Meyvantsson, afgreiðslu-
maður, Keykjavíkurhöfn:
„Það er margt gott hægt að
segja um þessa ríkisstjórn og
líka margt slæmt. Þeir hafa
náttúrlega komið helv... illa
fram við okkur, vinnandi menn.
En maður vissi það nú fyrir, og
eitthvað varð að gera.
Ég er ekki nógu hress með að
þeir skyldu ekki standa við
skattalækkunina. Þeir mættu
karpa minna og framkvæma
meira í þinginu."
Mistök að nota
ekki skattalögin
Ari ísberg, hdl. Iðnaðarhank-
anum:
„Þeir hafa staðið sig að sumu
leyti vel, og að sumu leyti illa.
Það sem hefur mistekist hjá þeim
er að nota skattalögin til að bæta
kjör þeirra lægst launuðu. Fólk
verður að lifa af einhverju.
En þeim tókst að draga úr
verðbólgunni, efnahagsráðstaf-
anirnar hafa þannig tvímæla-
laust borgað sig.“
Það þarf að bæta fólki
kjaraskerðinguna
Olafur B. Guðmundsson, lyfja-
fræðingur, Reykjavíkur Apóteki:
„Mér finnst þingið hafa unnið
nokkuð vel, þ.e.a.s. ef þeirgeta
náð þeim árangri sem stefnt er
að, þ.e. að ná niður verðbólg-
unni. Hins vegar er nauðsynlegt
að það verði gerðar ráðstafanir
til þess að bæta úr þeirri kjara-
kkerðingu sem-almenningur hef-
ur orðið fyrir, við það að ná
verðbólgunni niður. Það er ekki
endilega nauðsynlegt að keyra
verðbólguna niður í núll á einu
ári. Það þarf að hafa lífsviður-
væri fólks í huga. Annars held
ég að við séum á réttri leið. En
ég er óánægður með það að þær
byrðar sem almenningur hefur
tekið á sig bitnar svo til ein-
göngu á launafólki. Það hefði
mátt spara á öðrum sviðum
samtímis."
Elín Guðmundsdóttir, afgr.
stúlka, Reykjavíkur Apóteki:
„Störf þingsins hafa verið
svona upp og ofan. Sumt ágætt,
annað lakara. Ég er mjög ó-
anægð með kjaraskerðinguna
og það hvernig farið er með
lánamál námsmanna."
Ókostur að bjórinn
komst ekki í gegn
Gunnar Gunnarsson, múrari:
„Maður er kannski aldrei
ánægður. Þingið hefur að vissu
leyti staðið sig vel, og að vissu
leyti illa. Það er gott að verð-
bólgan skyldi nást niður, út af
fyrir sig. En launin eru allt of
lág, ég hef ekki einu sinni efni á
að kaupa nýjar buxur eins og
kannski sést á myndinni. Það er
líka ókostur að bjórfrumvarpið
skyldi ekki komast í gegn fyrir
þinglausnir.
Annars stendur enginn þing-
maður við gefin loforð, kosn-
ingaloforðin eru alltaf svikin jafn-
óðum. Aimenningur er orðinn
þreyttur á vissum stjórnmála-
mönnum.“
Hiaðið undir
bossana á stórbusunum
Oskar Sigurðsson, strætisv,- og
leigubifr.stjóri:
„Það hefur verið gengið svo á
launþega landsins að þeir eiga
vart til hnífs og skeiðar. Þessir
menn virðast halda það að eina
ráðið til að lækka verðbólguna
sé að lækka kaupið. Slíkar að-
gerðir eru bara allt of einhliða.
Það virðist líka vera markmið í
sjálfu sér að skerða lífskjör
almennings og hlaða undir boss-
ana á stórbusunum sem náttúr-
lega ný dæmi sanna með stór-
gjöfum opinberra fyrirtækja til
seðlabankastjóra..
Ég er í tveim störfum til að
lifa. Það lifir enginn á 13.880
króna grunnlaunum. Mig langar
til að beina þeirri spurningu til
þingmanna hvort þeir treysta
sér til að lifa af því kaupi?“
■ Gunnar Gunnarsson, múr-
ari: „Almenningur er orðinn
þreyttur á vissum stjórnmála-
mönnum.“ NT-mynd: Ari
■ Elín Guðmundsdóttir,
afgr.stúlka. NT-mynd: Ari
■ Ólafur B. Guðmundsson, lyfjafræðingur: „Ekki nauðsyn-
legt að keyra niður verðbólguna á einu ári.“ NT-mynd: Ari
■ Óskar Sigurðsson, bílstjóri: „Eg er i tveim störfum til að
lifa.“ NT-mynd: Ari