NT


NT - 31.05.1984, Síða 14

NT - 31.05.1984, Síða 14
■ Leikarinn John Ireland leít hýru auga til ungrar stúlku. Hann vissiekki þá hverra manna hún var. U Antoinette Giancana var falleg og saklaus ung stúlka, en smám saman skildist henni að ekki væri allt með felldu með iíf fjölskyldunnar. U Meðal ástkvenna Sams Giancana var Judith Exner. Hann vissi ekki, að á sama tima var hún í tygjum við... U ...sjálfan forseta Bandaríkjanna, John F. Kennedy. DOTTIR „GUDFOQUR" LEYSIR FRÁ SKJOÐUNNI mörgum til skelfingar U Þegar hinn glæsilegi bandaríski leikari John Ireland kom auga á fallega stúlku á dýrum veitingastað í Hollywood, hafði hann engar vöflur á, heldur gekk til hennar og byrjaði að gera hosur sínar grænar. Stúlkan var í fylgd með foreldrum sínum og brátt sáu viðstaddir, að faðir hennar var orðinn reiður og innan tíðar bálreiður. En leikarinn, sem aldrei hafði vanist öðru en að fólk þóttist hafa himin höndum tekið efhann veittiþví athygli, lét það ekki á sig fá. Hann hclt áfram aö reyna að telja stúlkuna á aö setjast við borö hans og þiggja drykk. En þá stóð upp annar gcstur og hvíslaði einhverju í eyra hans. Meira þurfti ekki. John Ire- land náfölnaði, snéri snarlega í átt að borði sínu og yfirgaf veitingastaðinn skömmu síðar. f>að, sem hann hafði komist að fyrir skemmstu, var að hann hafði ýft skap Sams „Momo“ Giancana, eins æðsta manns bandarísku Mafíunnar,eins af guðfeðrunum, sem einskis svífast og tengst hafa fjöldan- um öllum af morðum, pynting- um og alls kyns spillingu. Stúlkan, sem hafði vakið áhuga leikarans, var Antoin- ette dóttir Giancana, og hún segir frá þessum atburði í nýút- kominni bók um ævi sína, sem vakið hefur mikla athygli. í þessari bók fá lesendur að skyggnast inn í heim, sem yfirleitt er þeim lokaður. Petta er í fyrsta sinn, sem meðlimur Mafíufjölskyldu hefur brotið þann þagnareið, sem sjálfsagt þykir að halda í heiðri í þeim herbúðum. Hún upplýsir hin og þessi atvik, sem til þessa hafa legið í láginni, og nefnir margt þekkt fólk, sem við sögu kcmur. Bókin hefur því valdið óróa vtða og jafnvel ótta. Hún segir t.d. frá því, þegar hún var við útför eins af „heim- ilisvinunum", sem hún komst síðar að að faðir hennar hafði látið ráða af dögum. Hún segir frá húsinu, sem fjölskyldan bjó í í Chicago og var eins og argasti kofi utan frá að sjá til að blekkja skattayfirvöld. Inni fyrir var líkast því að komið væri í helli Aladdíns, svo mikið samsafn af fjársjóðum var þar að finna. Þá segir hún frá föður sjnum, sem hún dýrkaði og dáði til að byrja með. Hann, sem nánast daglega fyrirskip- aði morð og pyntingar, heimt- aði að farið yrði með borðbæn áður en sest yrði að borðum og óskaði þess helst að dóttir hans yrði nunna! Hann féll sjálfur fyrir moröingja hendi fyrir 9 árum, rétt eftir að sá orðróm- ur komst á kreik að hann hefði tekjið höndum saman við CIA um að myrða Fidel Castro. Antoinettc er nú orðin 47 ára gömul og ævi hennar hefur ekki verið neinn dans á rósum. Hún hcfur verið gift, en hjóna- bandið endaði með skilnaði. Hún hefur átt ótal elskhuga. Og hún er áfengissjúklingur. Sjálf álítur hún orsakanna að hinu misheppnaða lífi sínu að leita í uppeldinu, þversögn- unum og hræsninni, sem henni finnst faðir sinn hafa verið fulltrúi fyrir. TILSOGN í KOSSUM! kofSS ■ Hvort heldur um er að ræða léttan koss á kinn eða djúp faðmlög með löngum og inni- legum kossi, þarfnast afhöfnin nokkurrar kunnáttu, sem lítill vandi er að tileinka sér með smáleiðsögn, segir Teresa Valenti í bæklingi, sem nýlega er kominn út í Bandaríkj- unum og ber nafnið Hvernig á að fá sjálfs- traust til að kyssa. Bæklingshöfundur segir margt fólk, einkum og sér í lagi unglinga, en fullorðið fólk líka, ekki hafa lært undirstöðu- atriði í kossafræðum og sé svo sannarlega kominn tími til að bæta þar um. Hún segir t.d. frá einni fertugri vinkonu sinni, sem varð að orði, þegar hún var búin að lesa bækling- inn: - Hamingjan sannasta. I öll þessi ár hef ég verið að bíta karlmenn og það er fyrst núna, sem ég kemst að því að það má alls ekki! Samkvæmt kokkabókum Teresu má skipta einfölduni reglum um hvernig eigi að kyssa í tvo flokka, annars veg- ar um það, sem á að gera, og hins vegar það sem ber að forðast. Meðal þess, sem á að gera eribrosa, halda vörunum rökum og mjúkum, bursta tennurnar, baða sig, halla höfðinu örlítið aftur og strjúka mjúklega og notalega með höndunum. - Verið varkár, þegar þið nartið, segir Teresa. - Og munið umfram allt, að þið gerið þetta ykkur til skemmtunar! Unglingum bendir hún á, að það er alveg óþarft að hafa áhyggjur af því að spengur á tönnum geti krækst saman! Meðal þess, sem ber að forðast, er að eta hvítlauk, lauk eða baunir rétt áður en búast má við að lenda í kossaflensi. Auk þess er ekki gott að flissa mikið, bíta, þrýsta of fast, halda niðri í sér andanum. slefa eða hafa galopinn Pá má ekki gleyma mikil- vægi þess að halda ró sinni, ef fólk verður taugaóstyrkt má búast við að ýmislegt fari úr- skeiðis, eins og t.d. komi fram þörf til að fara á klósettið í miðjum kossi ropa óvænt og skyndilega eða frá maganum heyrist óviðurkvæmileg hljóð! Sumir unglingar eru svo hræddir um að kossar leiði óhjákvæmilega til kynmaka, að þeir voga sér alls ekki út í neitt kossaflens. Þetta segir Teresa hina mestu vitleysu og misskilning og til þess sé ein- mitt bæklingur hennar ætlaður að kveða niður slíkar bábiljur. Hún teiur því upp ýmis var- úðarmerki, sem fylgjast skuli með, þegar fólk tekur þátt í kossum, en óskar ekki eftir að þeir Iciði til neins alvarlegra. - Það er svo mikilvægt að kyssast og faðmast, að læknir einn sagði mér, að smábörn myndu deyja ef þau fengju ekki þessa líkamlegu snertingu. Ég hef þá trú að unglingar og fullorðnir hafi þessa somu þörf, segir Teresa Valenti.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.