NT - 04.06.1984, Blaðsíða 6

NT - 04.06.1984, Blaðsíða 6
Hí Mánudagur 4. júní 1984 6 Má taka mark á farskönnuninni? Pál Sigurðsson, ráðuneytisstjóra í Heilbrigðis- ráðuneytinu. ■ Niðurstöður könnunar Neytendafélagsins á gerla- innihaldi í kjötfarsi og fiskfarsi sem NT birti fyrir skemmstu, hafa að vonum vakið mikla athygli, Neysla á þessum vöru- tegundum minnkaði verulega í kjölfar rannsóknarinnar og sumir kaupmenn -segja að það þýði ekki aö hafa þessa vöru á boðstólum fyrstu dagana eftir að niðurstöðurslíkrarkönnunar eru birtar. NT haföi samband við Magnús Finnsson hjá kaup- mannasamtökunum og spurði liann hvaða kröfur kaupmenn teldu rétt að gera til rannsóknar af þessu tagi til að unnt væri að taka verulegt mark á niður- stöðum hennar. Magnús brást vel við þessari spurningu og gaf okkur upp spurningalista sem við síðan lögðum fyrir Jóhannes, Gunnarsson hjá Neytenda- félaginu. Fara spurningarnar og svörin hér á eftir: 1. Hvenær var könnunin gerð? Könnunin var gerð í tvennu lagi. Friðjudaginn 8. maí voru tekin sýndi úr 6 verslunum og viku síðar, 15. maí voru tekin sýni úr 6 verslunum til viðbótar. Þetta stafar af því að Matvæla- rannsóknir ríkisins anna ekki meiru í einu. 2. Hver gerði könnunina? Neytendafélagið stóð að sýnakaupunum en sýnin voru síðan rannsökuð hjá Matvæla- rannsóknum ríkisins. 3. Var fulltrúi vcrslunarinnar viðstaddur sýnatökuna, eða ein- hver frá opinberum aðilum, til þess að fylgjast ineð að rétt væri að málum staðið? Við sýnatökuna var það versl- unin sjálf sem afgreiddi okkur og viö létum að sjálfsögðu alls staðar vita í hvaða tilgangi við keyptum svona ógurlega lítinn skammt. Við höfum þaó sem meginreglu að láta vita þegar við gerum svona kannanir. 4. Var sýnið sett í umbúðir frá versluninni eða aðrar um- búðir? Við fórum með þetta í þeim umbúðum sem verslunin hafði pakkað í og hreyfðum aldrei við þeim. Sýnin voru auðkennd með tölustöfum, þannig að Mat- vælarannsóknir vissu aldrei frá hvaða verslun hvert sýni kom. 5. Var sýnið flutt í kælitösku á rannsóknarstað? Nei. Við erum að dæma vöru eins og hún kemur á borð neyt- andans. Hins vegar var farið með sýnin beina leið á rann- sóknarstað og það tók ekki lengri tíma en venjulegt er að það taki fólk að komast heim. 6. Hve langur tími leið, frá því sýnið var tekið þangað til rannsókn þess fór fram? Það líður í mesta lagi klukku- tími frá því sýnið er tekið í versluninni, þar til það er komið inn á Matvælarannsóknir. Að öðru leyti verða Matvælarann- sóknir að segja til um þetta. 7. Var tekin kvittun fyrir sýninu í viðkomandi verslun til staðfestingar á því hvar það væri fengið? Að sjálfsögðu. Er afsakanlegt að leyfa framleiðslu á matvöru sem að sögn forstöðumanns Heilbrigðiseftirlitsins er „skítavara sem aldrei er hægt að treysta“? „Hg tel, að ef varan er eins og liann lýsir henni og ég heyrði liann lýsa henni í sjónvarpinu, þá cigi hvorki að heimila fram- leiðslu né sölu á henni. Það er mín persónulega skoðun." Eru þá kannski uppi áform í ráðuneytinu um að banna fram- leiðslu og sölu á farsi? „Við höfum ekki með ákvörðun um þessi mál að gera. Það eru heilbrigðisnefndir sveit- arfélaga og Hollustuvernd ríkis- ins, sem hafa með þetta að gera samkvæmt sérstökum lögum, þannig að þessi mál koma ekki til okkar kasta." Líf og fjör í farsinu! •Rannsokn Neytendalélags Reykjavíkur """— |Líflegur gerlagróður í rjöt* og fiskverslunum' - sailrkóligerlar finnast í kjót- og fisklarsi 4* ? Kjötfarsið í Melabúðinni „Ekki framleitt hér“ ■ „Það vill nú svo undarlega til að þetta var í fyrsta sinn í 20 ára sögu verslunar- innar sem ég hef keypt fiskhakk og ég geri það áreiðanlega ekki aftur", sagði Guðmundur Júlíusson, kaupmaður í Melabúðinni, þegar NT sló á þráðinn til hans, til að spyrja um viðbrögð hans við niðurstöðum gerlakönnunarinnar. „Eg vil reyndar taka það fram til að fyrirbyggja allan misskilning að kjötfarsið er ekki framleitt hér í búðinni og í því eru engin hráefni héðan. Kjötfarsið er keypt hjá Búrfelli. Það kemur hingað á morgn- ana og fer beint í kæliborðið þar sem það er geymt yfir daginn í 3 gráðu hita." Guðmundur bætti því við að það heyrði nánast til undantekninga að selt væri fars frá deginum áður. Við spurðum Guðmund um viðbrögð hans við niðurstöðunum og sagðist hann þegar hafa kvartað við Búrfell sem fram- leiðir farsið og hefðu menn þar lofað að reyna að bæta enn meðferðina á þessari viðkvæmu vöru. Guðmundur kvaðst einnig fylgjandi því að eftirlit með þessu yrði hert. Guðmundur sagðist á hinn bóginn sjálfur framleiða fiskfars og væri það unnið úr bestu fáanlegum hráefnum, nýjum fiski, ferskum og eggjum og nýrri mjólk. Kjötfars: STETT mÞSTÉ UR HELLUM OG BROTSTEINUM SEM VID SELJUM. HJA OKKUR FAIÐ ÞID MARGS KONAR HELLUR OG BROTSTEINA í STÉTTAR OG GARDSKREYTINGAR. STÍGA OG ÞREP. MUNIÐ OKKAR OTRULEGA HAGSTÆÐU GREIDSLUSKILMALA - 20% ÚT OG AFGANGINN Á 6 MÁNUÐUM. „Bölvuð skítavara ii SIMINNER 28600 JL IBYGGING AVORUR HRINGBRAUT 120: SÖLUSTJÓRI. 28-693 MÁLNING OG VERKFÆRI . 28-605 GÓLFTEPPADEILD. 28-603 SKRIFSTOFA. 28-620 BYGGINGAVÖRUR 28-600 TIMBURDEILD . 28-604 HARÐVIÐARSALA. 28-604 FLlSAR. HREINLÆTISTÆKI. 28430 ■ „Þetta er bölvuð skítavara, hreint út sagt. og það er aldrei hægt að treysta henni", sagði Oddur R. Hjartarson, for- stöðumaður Heilbrigðiseftirlitsins. Oddur kvað niðurstöðurnar úr þessari könnunNeytendafélagsins ekki sérstakar á neinn hátt. „Kjötfars hefur alltaf verið svona og ef eitthvað er, þá er það heldur skárra en það hefur verið. Þetta eru vandræðamatvæli. Það er úrgangskjöt sem notað er í þetta og blandað í það alls konar hráefnum, svo er þetta pískað saman og verður náttúrlega eins gott gerlaæti og hugsast getur." Við spurðum Odd þvínæst hvernig eftirliti með svona viðkvæmri vöru væri liáttað. Hann sagði að reglulega væru teknar stikkprufur bæði hjá seljendum og framleiðendum og ef eitthvað væri veru- lega athugavert, þá væri fylgst nieð þeim aðila og hann varaður við. Ef ástandið batnaði ekki væri unnt að svipta menn framleiðsluleyfi. Oddur sagði þó að eftirlitið þyrfti að vera betra, þcir aðilar sem stikkprufurnar væru teknar hjá væru valdir af handahófi í hvert sinn og segja mætti að einn og einn framleiðandi gæti framleitt ósöluhæft kjötfars í alllangan tíma án þess að upp kæmist.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.