NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 13.07.1984, Qupperneq 5

NT - 13.07.1984, Qupperneq 5
Föstudagur 13. júlí 1984 5 Feðgin hætt komin á þangskurðarpramma: Prammanum hvolfdi í fjórða sinn Siglingamálastjóri undrast að sjópróf skyldu ekki haldin ■ Sá atburður átti sér stað í vor, að feðgin voru hætt komin er þangskurðarpramma hvolfdi yfir þau við þangslátt. Var þetta í fjórða sinn sem pramma þessum hvolfdi og að sögn Jóhannesar Þórðarsonar, sem fvrir óhappinu varð þá má kenna aösgæsluleysi Þörungavinnsl- unnar um hvernig fór. „í fyrsta lagi þá lætur Þör- ungavinnslan mig hafa þang- skurðarpramma. vitandi að hann er valtur og að honum hefur hvolft þrisvar sinnum áður, án þess að aðvara mig á nokkurn hátt. Ég hefði að sjálf- sögðu aldrei farið með stelpuna út á prammann hefði ég vitað hveru ótraustur hann var. Ástæðan fyrir því að ég gerði mér ekki grein fyrir hættunni var sú að ég var með svona pramma í fyrra og sá hallaði á bakborða eins og þessi, þannig að ég áleit að þetta væri ekkert óeðlilegP' sagði Jóhannes Þórð- arson í Stykkishólmi er NT bar mál þetta undir hann. „Þessi prammi virtist þó lesta minna á bandið, og eftir að hafa verið í vélarbilun smástund, ætlaði ég að byrja að slá í hægjandi veðri. Ég var rétt búinn að fá tvö tonn á bandið og ætlaði að fara að losa, þá skipti það engum togurn að pramminn fór að hallast og hélt því áfram þó ég stoppaði ferðina. Við hlupum yfir á stjór og reyndum að komast upp á kantinn en pramminn reis svo hratt að við urðum of sein til. svo honum hvolfdi yfir okkur" Nú dóttir mín festi höndina í tómum þangnetum svo þarna hefði getað fari illa, ekki síst vegna þess að hún fékk höfuð- högg þegar praniminn fór yfir okkur. Hreinasta mildi að hún skyldi ekki vankast eða rotast," sagði Jóhannes ennfremur. Svo vel vildi til að bróðir Jóhannesar og dóttir, voru stödd á eyju skammt frá svo þau urðu þeirra fljótlega vör og gátu komið þeim til hjálpar. Siglingamálastjóri krefst sjóprófa Aðspurður kvaðst Jóhannes þegar hafa tilkynnt um slysið og sent skýrslu til Siglingamála- stofnunar, og daginn eftir var pramminn reistur við og dreginn að Reykhólum. „Síðan hef ég ekkert frétt af málalyktum, en ég talaði við forstióra pörunga- vinnslunnar og sagði honum að stelpan mín hefði nú orðið fyrir harla óskemmtilegri lifsreynslu þarna, og hvort Þörungavinnsi- an vildi ekki bæta henni úrið hennar, þó ekki væri meira. Það hlaut lítinn hljómgrunn”, sagði Jóhannes. I kjölfar þessara upplýsinga var haft samband við siglinga- málastjóra, Magnús Pálsson. Var honum ekki kunnungt um óhapp þetta en kannaðist við að skoðunarmenn frá Siglinga- málastofnun hcfðu nýlega verið á ferðinni á þessum slóðum. „Það heföu að sjálfsögðu átt að fara fram sjópróf vegna þessa máls, annað er gjörsamlega ólöglegt," sagði Magnús. „En ég hef fullan hug á að kanna þetta mál nánar," sagði hann loks. Flotbúnaður reyndist gallaður „Slys þetta var nú reyndar samspil margra hluta," sagði Kristján Þór Kristjánsson, for- stjóri Þörungavinnslunnar, er NT bar óhappið undir hann. „Þar kom til ofhleðsla á pram- manum, vindur og sjógangur og síðast en ekki síst. þá var flot- efnið í hotninum orðið lélegt þannig að það tók á sig sjó. í kjölfar þessa slyss komu hér menn frá Siglingamálastofnun og fóru yfir þrjá pramnia. Reyndar kom í Ijós að flotbún- aður þessara pramma hefur brugðist. En óhapp á horð við það sem átti sér stað við Hergils- ey mun ekki koma fyrir aftur." Kristján var spurður í hverju ofhleðsla prammans hefði falist og sagði hann að fjörtíu net hefðu vcrið ofan á honum í stað tuttugu og fimm eins og Þör- ungavinnslan gefur fyrirmæli um. „En þaö afsakar náttúru- lega ekki það að flotbúnaðurinn var lélegur enda höfum við látið skipta urn botn á prammanum. Við leggjum áherslu á að menn kynni sér vel öryggismál áður en þeir taka að vinna við prammana, því þessar aðstæður gefa vel tilefni til slysa", sagði Kristján að lokum. Víðtæk leit að trillu frá Fáskrúðsfirði í fyrrinótt: Fannst villtur í Austfjarðaþokunni Frá fréttaritara M á Fáskrúdsfírði: ■ Níu bátar og varðskip ásamt tugum manna í fjórum björgunarsveitum í landi leituðu að 1,5 tonna trillu frá Fáskrúðs- firði á sjöunda klukkutíma í fyrrakvöld og þar til hún fannst um kl. hálf þrjú um nóttina. Eigandinn, aldraður sjómaður, var einn á bátnum og var hann heill á húfi. Kompásinn í bátnum hafði bilað og þar sem maðurinn sá ekki handaskil vegna niðdimmrar þoku - Austfjarðarþoku cins og hún getur dekkst orðið - hafði hann ákveðið að halda kyrru fyrir við svo- nefndar Brökur, sem eru sker utan við Skrúðinn. Það voru skipverjar á vélbátn- um Tý frá Fáskrúðsfirði sem fundu trill- una, en skipstjóri á Tý er Sigurður Úlfarsson. Trillan ltpfði farið á sjó snemma um morgunin. Þegar hún k im ekki frarn um kvöldið var farið að óttast um hana og slysavarnarsveitirnar á Eskifirði, Fá- skrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík þá kallaðar út til leitar á landi allt frá Breiðdalsvík og norður í Gerpi. Á sjó leituðu 9 bátar og varðskip sem fyrr segir. Þokan gerði alla leit mjög erfiða, en að öðru leyti var milt veður og sléttur sjór. Ef bifreiðastöðin Steindór verður lögð niður: Bílstjórar þyrftu að greiða gjöld til baka ■ Ef bifreiðastöðin Steindór verður lögð niður á næstunni í kjölfar Hæstarétt- ardóms þess, sem NT greindi frá í gær, getur það orðið dýrt fyrir suma bifreiða- stjórana að kaupa bíla sína af stöðinni. Þeir myndu nefnilega þurfa að greiða til baka gjöld þau sem felld eru niður af leigubílum, þegar þeir eru fluttir inn til landsins. Þetta á þó aðeins við um þá bíla sem eru yngri en þriggja ára. Á leigubíla er lagður 40% tollur, en 80% tollur á einkabíla. Þessi tollamis- munur kemur neytendum síðan til góða. því fyrir bragðið er taxti leigubíla heldur lægri. Eftir 36 mánuði getur leigubílstjór- inn síðan selt bíl sinn og þarf þá ekki að greiða neitt til baka af þeim gjöldum sem felld voru niður. Ef bíllinn er hins vegar seldur innan þess tíma verður bílstjórinn að borga hluta gjaldsins til baka, hversu mikið fer eftir því hversu langt er síðan bíllinn var fluttur inn. Að sögn Sigurðar Sigurjónssonar, stöðvarstjóra hjá Steindóri, myndu um 20 bílstjórar þurfa að borga hluta af tollinum til baka, ef svo færi að stöðin yrði lögð niður í haust. Fyrir marga myndi þetta vera umtalsverð upphæð því bílstjórar kappkosta yfirleitt að hafa bíla sína sem nýjasta og vegna niðurfellingar- innar kaupa þeir oft dýra bíla. Enn hefur þó ekkert verið ákveðiét hvort og hvenær stöðin hættir rekstri. í gær áttu forráðamenn Steindórs fund með Matthíasi Bjarnasyni, samgöngu- málaráðherra, en engin ákvörðun um framtíð bílastöðvarinnar var tekin á fundinum. JIS Jon Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 10 600 VERSLUNARMIÐSTÖÐ VESTURBÆJARIN Innkaupin eru þægileg hjá okkur Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni OPIÐ: Mánud. -fimmtud. 9-19. Föstud. 9-20. LOKAÐ LAUGARDAGA í SUMAR MUNIÐ OKKAR HAGSTÆÐU GREIÐSLUSKILMÁLA JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn RAFTÆKJADEILD II. HÆÐ Raftæki - Rafljós og rafbúnaður

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.