NT - 12.11.1984, Blaðsíða 5

NT - 12.11.1984, Blaðsíða 5
Mánudagur 12. nóvember 1984 5 Sparnaðarhugmyndir í menntamálaráðuneytinu: Vistunargjöld fyrir fötluð börn skert? ■ Samkvæmt heimildum NT hafa komið upp hug- myndir í menntamálaráðu- neytinu, um að skerða greiðslur til vistunarforeldra fatlaðra barna í kjölfar BSRB verkfallsins. NT hafði samband við Hafdísi Hannesdóttur, fél- agsráðgjafa í Öskjuhlíðar- skóla, og staðfesti hún að fyrirspurn hefði borist frá menntamálaráðuneytinu um það hversu mörg börn hefðu farið frá vistunarforeldrum til foreldra eða aðstandenda á meðan á verkfallinu stóð. Mun hugmyndin hafa verið sú, að skerða vistunargjöld þeirra barna sem ekki hafa dvalið í umsjá vistunarfor- eldra einhvern ótiltekinn tíma, á meðan verkfallið stóð yfir. Hafdís sagði að könnun hefði leitt í ljós að afar fá börn hefðu verið send til heimahúsanna í verkfallinu. Frá hennar sjónarhóli væri illt ef menntamálaráðuneyt- ið hygðist rifta þeim skriflega samningi sem í gildi er milli Öskjuhlíðarskóla fyrir hönd menntamálaráðuneytisins og vistunarforeldra, enda væru í honum uppsagnará: kvæði sem yrði að fylgja. í samningnum er gert ráð fyrir að börn geti farið heim án þess að það skerði vistunar- greiðslurnar auk þess sem börn fara heim í jóla- og páskaleyfum. Þá sagði Haf- dís að örðugt gæti reynst að meta þann frádrátt sem til greina kemur, þar sem reikn- ingar eru ekki sundurliðaðir og börn hafa dvalið mislengi hjá foreldrum. „Það liggur engin endan- leg niðurstaða fyrir í rnáli þessu," sagði Magnús Magn- ússon, sérkennslufulltrúi í menntamálaráðuneytinu, er NT bar þetta undir hann. „Þeir samningar sem í gildi eru verða áreiðanlega ekki brotnir af menntamálaráðu- neytisins hálfu. Hinsvegar gæti verið um að ræða brot af hálfu vistunarforeldra, ef þeir hafa sent barnið heim án vilja foreldra eða vitn- eskju." Aðspurður hvort á- stæða væri til að ætla slíkt sagði Magnús að ráðuneytið hefði alltaf ástæðu til að athuga slíka hluti, því það yrði að fylgjast með því hvort samningar væru haldnir. Fyrirlestur: Kapalkerfi í Ameríku ■ f kvöld klukkan 18:00 heldur William Evans frá Manitoba fyrirlestur um breið- bandsnet, öðru nafni kapalkerfi heimaborg- ar sinnar og nýjungar á sviði slíkra kerfa í dreifbýli. William er framkvæmdastjóri og verkfræðingur hjá Manitoba símafélaginu og heldur fyrirlesturinn í boði Verkfræði- stofnunar Háskólans. Sjósókn: Tvöstjómar- frumvörp ■ Tvö stjórnarfrumvörp voru lögð fram í efri deild alþingis á föstudag. Undirbúningur að öðru, frumvarpi til siglingalaga. hefur staðið síðan 1981. Til- gangur nefndar, sem skipuð var 1981 ,var að endurskoða gildandi siglingalög, einkum hvað varðaði réttindi og skyldur sjómanna og útgerðarmanna í vcikinda- og slysatilfell- um svo og hvað varðar tryggingarmál sjó- manna. Nefndin skilaði frumvarpinu til ráðhcrra 31. janúar 1983 og var það flutt á síðasta þingi en fékk ekki afgreiðsiu. Þá var lagt fram frumvarp tii sjómanna- laga. Aðdragandi þess frumvarps var svip- aður og hins fyrra. Póstur og sími: Ný frímerki ■ í tilefni 50 ára afmælis Vinnuveitenda- sambands íslands hefur Póst- og símamála- stjórnin gefið út nýtt frímerki að verðgildi 3000 aurar. Einnig hafa- komið út tvö frímerki í verðgildinu 1200 aurar og 4000 aurar. Tilefni þeirrar útgáfu er aldarafmæli Listasafns íslands og er mynd af stofnanda þess, Birni Bjarnasyni, á öðru frímerkinu en hitt sýnir framhlið væntanlegs húsnæðis Listasafnsins að Fríkirkjuvegi 7. Útgáfa þessara frímerkja var fyrirhuguð 12. október sl. en vegna verkfallsins varð að fresta henni. Kvenréttindafélag Íslands: Landsfundi frestað - þar til á næsta ári ■ Kvenréttindafélag íslands hefur ákveðið að fresta 16. landsfundi sínum, sem halda átti 16.-17. nóvember, til 15.-16. mars á næsta ári. Ástæðan ersú, aðþrírstjórnmála- flokkar verða með stjórnmálafundi í Reykjavík þessa daga í nóvember. Viðfangsefni landsfundarins verður eftir sem áður áhrif örtölvutækninnar á stöðu kvenna og karla. Pá hefur verið ákveðið að halda aðalfund í tengslum við landsfundinn, og gefa félagsmönnum utan af landi, sem sækja landsfund, kost á að sækja aðalfund líka. VIÐ FJÖLGUM VIÐKOMUHOFNUM ÚR FJÓRUM í ÁTTA! Enn aukum við þjónustu við landsbyggðina og einföldum vörustreymi milli dreifbýlis og þéttbýlis. Tíðari ferðir, stærri skip og fjórar nýjar viðkomuhafnir greiða til muna fyrir flutningum milli byggðarlaga og ekki síður milli landa, því beinn flutningur inn- og útflytjenda á landsbyggðinni verður nú mun auðveldari. Við hefjum nú fastar siglingar á REYÐARFJÖRÐ, SAUÐÁRKRÓK og PATREKSFJÖRÐ auk þess sem við önnumst afgreiðslu Herjólfs til VESTMANNAEYJA og tengjum strandflutningaþjónustuna alþjóðlegu flutningakerfi okkar þar sem fullkomin aðstaða í Sundahöfn er miðpunkturinn. Þú getur treyst þjónustu Eimskips. ' TÍÐARI SIGLINGAR- STÆRRI SKIP BEIN TENGSL VIÐ ALÞJÓÐLEGAR SIGLINGALEIÐIR EIMSKIP

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.