NT - 12.11.1984, Blaðsíða 16

NT - 12.11.1984, Blaðsíða 16
— Sjónva rp Mánudagur 12. nóvember 1984 16 Útvarp kl. 19.40: w Nótt sem aldrei gleymist! ■ Þátturinn „í fullu fjöri“er á dagskrá sjón- varpsins kl. 20.40, og nefn- ist þessi þáttur - Nótt sem aldrei gleymist. Þetta er 2. af sex þáttum, sem Sjón- varpið hefur fengið til sýn- ingar frá Thames Televis- ion Entertainment úr þátt- unum „Fresh Fields“ um þau hjónin Hester og Wil- liam. í þetta sinn gengur sag- an út á það, að William ætlar að gleðja konuna sína á brúðkaupsafmæli þeirra og fara með hana á hótelið, þar sem hann bað hennar og síðan halda þar hátíðlegt brúðkaupsaf- mælið. Þetta var falleg ráðagerð hjá William, -en margt fer öðru vísi en ætlað er, eins og við fáum nú að sjá. Þýðandi er Ragna Ragnars. ■ Anton Rodgers sem William - önnum kafínn í eldhúsinu. ■ James Fox í myndinni í kvöld í hlutverki Georges Orwell ríthöfundar, þar sem hann tekur þátt í borgarastyrjöldinni á Spáni meö vinstri mönnum þar í landi. Sjónvarp kl. 20.40 framtíð BSRB ■ Grunnskólanemendur aö störfum. Spáðí ■ „Alls staðar er maður á ferðinni,“ sagði Jón Gröndal, þegar blaðamað- ur NT spurði hann, hvort ekki væri rétt að hann væri á báðum rásum útvarpsins í dag að flytja hlustendum tal og tóna. Jú, þetta var rétt. Jón Gröndal verður með Krossgátuna um tónlist og tónlistarmenn á Rás 2 kl. 15-16 og svo í útvarpinu gamla og góða kl. 19.40 og þá talar hann Um daginn og veginn. Við vildum for- vitnast um hvað honum lægi á hjarta að tala um við hlustendur, og Jón svaraði okkur á þessa leið: „Það er ekkert leyndar- mál hvað mér er efst í huga að tala um. Eins og gefur að skilja, þá er opinberum starfsmanni, sem nýkom- inn er úr löngu verkfalli, ofarlega í huga ýmislegt sem þá dreif á dagana. Eg mun ræða svolítið þennan verkfallstíma, ekki endi- lega niðurstöður eða ár- angur þess, heldur fremur framgang mála og hörkuna sem var alls ráðandi, og ég kem dálítið inn á leiðinleg- ar hliðar málsins. Ég mun velta þessu fyrir mér og spá svolítið í fram- tíðBSRB. í sambandi við BSRB, þá viðra ég þarna hug- myndir, sem hafa að vísu áður heyrst, um nýjar að- ferðir við gerð kjara- samninga kennara með til- liti til vinnutíma og annars. Nú, svo fer ég yfir í skólamálin, eins og kennara er siður, því að ■ Jón Gröndal, kennarí í Grindavík, verðijr á báðum rásum útvarpsins í dag. þeir vilja oftast detta inn í þau mál ef þeir á annað borð fara að ræða um dag og veg. Ég mun ræða um hvar við stöndum í dag miðað við anda grunn- skólalaganna, sem nú eru reyndar meira en 10 ára gömul. Sjónvarp kl. 21.40: Kveikjan að 1984 Bresk sjónvarpsmynd um rithöfundinn George Orweil ■ Þeir fjölmörgu sem lesiö hafa bækur eftir breska rithöf- undinn George Orwell, eins og „Félaga Napóleon" og „1984“, hafa áreiðanlega áhuga á að sjá breska sjón- varpsmynd um Orwell, sem er á dagskrá sjónvarpsins kl. 21.40 í kvöld. I kynningu segir, - að sjónvarpsmyndin sé eftir Willis Hall, leikstjóri David Wheatley og í aðahlutverkum eru James Fox ásamt Janet Dale og Julia Goodman. í myndinni er einkum staldr- að við þá atburði sem mótuðu skoðanir Orwells og urðu kveikjan að sögunni "1984“. George Orwell skrifaði bók- ina „1984“ árið 1948, og í áratugi stóð hún mönnum fyrir sjónum sem ógnvekjandi spá- dómur um framflðina. En Orwell sjálfur tók alltaf fram, að þetta verk hans ætti ekki að taka sem spádóm - heldur viðvörun. Viðvörun til þjóð- anna um hættuna sem fylgir öfgastefnum, hvort heldur er til vinstri eða hægri. í myndinni Kveikjan að 1984 (The Road to 1984) leikur James Fox Orwell sjálfan, og Fox leikur einnig hina hrjáðu söguhetju bokarinnar 1984, Winston Smith. Tónlistarkross- gátan no. 10 ■ Hlustendum er gefinn kostur á að svara spurningum um tónlist og tónlistarmenn og ráða krossgátu um leið. Stjórnandi þáttarins er Jón Gröndal. Lausnir sendist til Ríkisútvarpsins Rás 2, Hvassaleiti 60, 108 Reykjavík - merkt Tónlistarkrossgátan. Mánudagur 12. nóvember 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Séra Vigfús Ingvar Ingvarsson frá Egilsstöðum flytur (a.v.d.v.). Á virkum degi - Stefán Jökulsson og María Mariusdóttir. 7.25 Leikfimi. Jónína Benediktsdótt- ir (a.v.d.v.). 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð - Karl Bene- diktsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Breiðholtsstrákur fer i sveit“ eftir Dóru Stefánsdóttur Jóna Þ. Vernharðsdóttir les (9). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 Austfjarðarútan með viðkomu á Eskifirði Endurtekinn þáttur Hildu Torfadóttur frá laugardegi. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Gunn- vör Braga. 13.30 Harry Belafonte, Miriam Mak- eba, Keith Jarrett og fl. syngja og leika, 14.00 „Á Islandsmiðum" eftir Pi- erre Loti Séra Páll Pálsson á Bergþórshvoli les þýðingu Páls Sveinssonar (13). 14.30 Miðdegistónleikar Nelson Freire leikur á pianó „Brúðusvítu" eftir Heitor Villa-Lobos. 14.45 Popphólfið - Sigurður Krist- insson. (RÚVAK). 15.30Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar 17.10 Síðdegisútvarp - Sigrún Björnsdóttir, Sverrir Gauti Diego og Einar Kristjánsson. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.40 Um daginn og veginn Jón Gröndal kennari talar. 20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn J. Vilhjálmsson kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Spjall um Þjóð- fræði. Dr. Jón Hnefill Aðalsteins- son tekur saman og flytur. b. Bóndinn á Reynistað og hutdu- maðurinn. Ævar Kvaran les is- lenska þjóösögu. c. Félagsleg á- hrif árflóðanna i Flóanum. Þor- björn Sigurðsson les þriðja og siðasta erindi Jóns Gíslasonar, um náttúruhamfarir af völdum flóða. Umsjón: HelgaÁgústsdóttir. 21.30 Útvarpssagan: „Hel“ eftir Sigurð Nordal Árni Blandon les (3). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Barnleysi hjóna - leysa glasabörn vendann? - Þáttur í umsjón Önundar Björnssonar. 23.00 Islensk tónllst Sinfóniuhljóm- sveit Islands leikur. Páll P. Pálsson stjórnar. a. íslensk lög í hljómsveit- arbúningi Karl O. Runólfssonar. b. „Bjarkamál" eftir Jón Nordal. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Mánudagur 12. nóvember 10.00-12.00 Morgunþáttur. Mánu- dagsdrunginn kveðinn burt með hressilegri músik. Stjórnandi: Jón Ólafsson. 14.00-15.00 Dægurflugur. Stjórn- andi: Leópold Sveinsson. 15.00-16.00 Krossgátan. Hlustend- um er gefinn kostur á að svara spurningum um tónlist og tónlistar- menn og ráða krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón Gröndal. 16.00-17.00 Á svörtum nótunum. Stjórnandi: Pétur Steinn Guð- mundsson. 17.00 -18.00 Asatími. Július Einars- son. Mánudagur 12. nóvember 19.25 Aftanstund Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni: Tommi og Jenni, Sögurnar hennar' Siggu, Brósi, Sigga og skessan. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 í fullu fjöri 2. Nótt sem aldrei gleymist Breskur gamanmynda- flokkur í sex þáttum. Þýðandi Ragna Ragnars. 21.05 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 21.40 Kveikjan að 1984 (The Road to 1984) Bresksjónvarpsmynd eftir Willis Hall. Leikstjóri David Whe- atley. Aðalhlutverk: James Fox ásamt Janet Dale og Julia Good- man. Myndin er um breska rit- höfundinn George Orwell sem rit- aði m.a. „Félaga Napóleon" og „1984“. Einkum er staldrað við þá atburði sem mótuöu skoðanir Ór- wells og urðu kveikjan að sögunni „1984". Gengið er út frá því að „1984“ sé ekki beinlínis framtíðar- spá heldur viðvörun gegn kúgun og einræðisöflum sem Orwell kynntist sjálfur í samtið sinni. Þýö- andi Rannveig Tryggvadóttir. 23.05 Fréttlr í dagskrárlok.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.