NT - 20.11.1984, Síða 23
—- ~J
ia,-
Ómar Rafns
til liðs við
Vöisunga
■ Það er nú næsta víst
að Ómar Rafnsson
fyrrum landsliðsbakvörð-
ur úr Breiðablik mun
ganga til liðs við Völsung
frá Húsavík. NT hefur
eftir áreiðanlegum heim-
ildum að Ómar hafi gefið
Sigurði Halldórssyni,
sem mun þjálfa Völs-
unga, ákveðið svar í síð-
ustu viku.
Ef af verður er Ijóst að
Völsungar verða með
hörkulið í 2. deild næsta
sumar. Fyrir utan Ómar
og Sigurð eru fyrir á
staðnum sterkur hópur
heimamanna með Krist-
ján Olgeirsson og Helga
Helgason í fararbroddi og
þá mun Jón Leó Rík-
harðsson frá Skaganum
að öllum líkindum verða
á Húsavík næsta sumar.
Þriðjudagur 20. nóvember 1984 23
■ Steve Archibald, Skotinn marksækni, sem nú leikur með
Barcelona á Spáni. Honum hefur gengið illa að finnanetmöskv-
r ana til þessa, er nú vonandi að hann sé kominn á markabragðið.
Knattspyrnan á Spáni:
Útlendingarnir
tryggðu sigur
■ Erlendu leikmennirnir hjá
Barcelona á Spáni tryggðu lið
inu sigur á Malaga í 1. deildar
keppninni nú um helgina. V
Þjóðverjinn Bernd Schustei
skoraði fyrst í leiknum og Steve
Archibald, skoski framherjinn,
skoraði síðara mark Barcelona.
Barcelona hefur ekki tapað
leik í deildarkeppninni og getur
Terry Venables, framkvæmda-
stjóri, brosað sínu breiðasta
enda er hann nú nánast sem
dýrlingur í Barcelona. Það er
þó stutt á milli heims og helju í
Barcelona og á því hafa margir
þjálfarar farið flatt.
Skömmu fyrir leikinn sprakk
poki fullur af flugeldum og
særðist nokkuð af áhorfendum,
einn alvarlega.
Valencia, sem er í öðru sæti
í deildinni, gat aðeins náð jafn-
tefli á móti Real Valladolid,
0-0. Vörn Valladolid var mjög
sterk allan tímann og þrátt fyrir
látlausa sókn Valencia komust
þeir ekkert áfram.
Óvæntustu úrslitin urðu þó í
leik Real Madrid og Real Betis.
Betis sigraði í leiknum 4-1.
Þetta var fyrsti sigur Betis á
heimavelli og þeir sem skoruðu
voru Parra, Rincon, sem gerði
2, og Romo. Eina mark Madrid
gerði Argentínumaðurinn
Valdano úr mjög vafasamri
vítaspyrnu.
Eins og áður sagði þá er
Barcelona efst á Spáni og Va-
lencia er í öðru sæti. Síðan
koma Sporting Gijon og Atleti-
co Madrid.
Annars urðu úrslit þessi á
Spáni um helgina:
Malaga-Barcelona ......1-2
Hercules-Sporting......1-1
Atl. Madrid-Sevilla ...1-1
Valencia-Vallad..........0-0
Real Murcia-Athl. Bilbao . 0-0
R. Sociedad-Racing......0-0
Real Betis-R. Madrid .... 4-1
Osasuna-R. Zaragoza ... 0-1
Espanol-Elche............1-0
Staða efstu lifla:
Barcelona ...........11 18
Valencia ............11 14
Sporting ............11 13
Atl. Madrid..........11 13
R. Madrid ...........11 13
Sevilia..............11 13
Ólympíuleikarnir í Seoul 1988:
Verða Austur-
Þjóðverjar með?
Ólympíunefnd A-Þýskalands hvetur til undirbúnings
■ Ólympíunefnd Austur-
Þýskalands hvatti í gær íþrótta-
menn landsins að hefja þegar
undirbúning fyrir keppni á Öl-
ympíuleikunum í Seoul í S-
Kóreu árið 1988. Þetta er fyrsta
jákvæða merkið sem kemur
frá Austantjaldslöndunum
gagnvart leikunum í Seoul.
Fréttastofan ADN, opinber
fréttastofa Austur-Þjóðverja,
sagði frá í gær að nefndin hefði
komið saman til fundar og
sameinast um að vinna nteð
ólympíuhugsjóninni og gera
leikana að „hátíð vináttu og
alþjóðlegs skilnings”.
I tilkynningufundarnefndar-
innar sagði að nefndin „hvetti
íþróttamenn landsins til að
helga sig ólympíuhugsjóninni
með undirbúningi fyrir leikana
Undankeppni HM í knattspyrnu:
Ungverjar á
sigurbraut
og heiðra hana og heimaland
sitt meðfyrirmyndarframkomu
og frammistöðu".
Ekki er langt síðan að hátt-
settir íþróttaforingjar í Sovét-
ríkjunum fundu leikunum í
Seoul allt til foráttu. Síðan
hefur það gerst að Suður-
Kóreumenn hafa átt mjög frið-
samlegar viðræður við Norður-
Kóreumenn um samhjálp í
leikjahaldinu, og er líklegt að
það hafi breytt afstöðu austur-
blokkarinnar allnokkuð.
■ Tveir leikir fóru fram í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu á
Iaugardag.
A Kýpur unnu Ungverjar
heimamenn með tveimur
mörkum gegn einu. Kýpurbúar
náðu forystunni og voru
óheppnir að bæta ekki við
mörkum áður en Ungverjar
jöfnuðu í seinni hálfleik.
Ungverjar skoruðu svo sigur-
markið tveim mínútum fyrir
leikslok.
Ungverjar eru þar með einir
efstir í 5. riðli, hafa unnið alla
sína leiki.
Staðan í 5. riðli: (leikir-stig)
Ungverjar ...............3-6
Austurríki ..............3-4
Kýpur....................2-0
Holland..................2-0
I 4. riðli léku Lúxemborgarar
gegn A-Þjóðverjum og stein-
lágu á heimavelli 0-5. Eftir
óörugga byrjun hjá Þjóðverj-
um opnuðust loks allar flóð-
gáttir og Reiner Ernst (3) og
Minge (2) skoruðu mörkin!
Staðan í 4. riðli (leikir-stig)
Júgóslavía ..............2-3
A-Þýskaland..............2-2
Frakkland ...............1-2
Búlgaría ................1-1
Lúxemborg ...............2-0
Kólombía:
Engir leikir
■ Kólombíska knatt-
spyrnusambandið hefur
ákveðið að fresta öllum
knattspyrnuleikjum í land-
inu fram á miðvikudag
(bannið tók gildi um helg-
ina) til að mótmæla fyrir-
huguðu framsali á Hernan
Botero, fyrrum forseta 1.
deildar liðsins Atletico
National til Bandaríkj-
anna. Botero er eftirlýstur
, í Bandaríkjunum vegna
kókaíndreifingar. Yfirvöld
í Kólombíu ákváðu að
framselja Botero fyrir
nokkrum dögum og mun
það vera gert innan tveggja
mánaða nema þessi
ákvörðun knattspyrnusam-
bandsins breyti því.
Boca Juniors á hausnum
■ Argentínskir knattspyrnu-
menn hófu á föstudaginn verk-
fall til stuðnings leikmönnum
Boca Juniors sem hafa ekki
fengið laun sín greidd að
undanförnu. Það verður því
ekkert leikið í Argentínu fyrr
en þetta mál leysist og forráða-
menn Boca standa frammi fyrir
miklu vandamáli því leikvang-
ur félagsins er veðsettur fyrir
skuldum þess, sem eru miklar.
Ef þeir greiða ekki leik-
mönnum laun verður ekkert
leikið og ef þeir greiða ekki
lánadrottnurum sínum þá miss-
ir félagið leikvanginn og er þar
með úr sögunni.
ÚRSLIT
1 ÍTALÍA:
Ascoli-Napoli . 1-1
Atalanta-Lazio . 1-0
Avellino-Milan . 0-0
Como-Cremonese . 1-0
Inter-Udinese . 1-0
Juventus-Torino . 1-2
Roma-Fiorentina . 2-1
Verona-Sampdoria . 0-0
SVISS:
Aarau-Zurich . 1-1
Basel- Lucerne . 4-1
La Chaux-De F.-Lausa. . . 0-0
Grasshopper-Wettingen . 1-1
Vevey-Neuchatel . 0-0
Winterherthur-Sion .... . 1-2
V. Boys Berne-Servette . . 1-1
Zug-St. Gallen . 0-4
| SOVÉTRÍKIN:
Lening. Senit-Shakhtyor . 1-0
Spar. Mosc.-Dyn.Tbilisi. . 3-0
Pakthakor-Neftchiki . .. . 0-0
Army-Cent. Army . 3-3
Shalgiris-Dnieper . 2-3
Dyn. Minsk-Metallist .. 3-1
Dyn. Kiev-Kairat . 0-0
Chernom.-Torpedo . 1-0
I PORTÚGAL:
Farense-Benfica . 1-0
Penafiel-Porto . 0-1
Academica-Setubal . 0-0
Guimaraes-Portimon. ... . 0-1
Salgueiros-Boavista .... . 0-2
Varzim-Rio Ave . 1-1
I UNGVERJALAND:
Sarajevo-Voj. Novi Sad . 1-0
V. Mostar-Radni Nis ... 2-0
Bugojno-Osijek 2-0
Red Star-Bud Titograd . 6-0
Rijeka-Hajd. Split 1-1
Din. Vink.-Din. Zagreb . 0-1
Slob. Tuzla-Zeljez Saraj. 1-1
Varp. Skopje-Pristina .. 5-0
Sut. Niksic-Part. Belgr. . 2-1
GRIKKLAND:
Olympiakos-Panathi .... 0-0
Ethnikos-Athens 2-1
Aek-Pianionios 1-1
Paok-Larisa 4-1
Doxa-Aris 1-1
Panachaiki-Iraklis 1-2
Pierikos-Egaleo 3-1
Kalamarias-Ofi 1-0
I PÓLLAND:
Ruch Ch.-Balt. Gdynia .. , 1-1
Katowice-Legia Warsaw 0-0
Widz. Lodz-Motor Lubl . 2-0
Lechia Gdansk-Zabrze . , 2-1
Radom.-Slask Wroclaw . 0-0
Wisla Krakow-Gornik .. 2-1
Lech Poznan-Lodz 1-2
Pogon Szcz.-Sosnowiecd 3-3
Jón til Blika
■ Breiðablik, sem leikur í 2.
deild næsta sumar, hefur ráðið
Jón Hermannsson sem þjálfara
liðsins næsta sumar. Jón var
þjálfari hjá Njarðvíkingum síð-
astliðið sumar en hann hefur
líka verið þjálfari hjá Blikunum
áður og kom þeim í 1. deild á
sínum tíma.
Rapid fær ekkert
■ Þeirri kröfu sem austurríska
knattspyrnuliðið Rapid Vín gerði til
UEFA um að leikur þeirra við Celtic
í Evrópukeppni bikarhafa yrði dæmd-
ur ólöglegur var hafnað.
Bæði liðin voru þó dæmd í sektir og
nokkrir leikmenn Rapid fengu leik-
bönn svo og þjálfari liðsins. Celtic
fékk sekt fyrir ólæti á áhorfenda-
pöllum og þá sérstaklega fyrir að
flöskum var hent inná leikvöllinn.
Ritari Rapid kallaði þessa ákvörð-
un hreint hneyksli. „Við höfum verið
stimplaðir sem ruddalið," sagði hann.