NT - 08.12.1984, Page 21
Laugardagur 8. desember 1984 21
Útldnd
Kennedy-börn
handtekin við
sendiráð Suð*
ur-Afríku
TRYGGVAGÖTU 26 BORÐAPANTANIR í SÍMA 26906
■ Margt frægra manna hefur tekið þátt í víðtækum mótmælaaðgerðum í
fjölmörgum bandarískum borgum gegn stefnu Reagan-stjórnarinnar í
málefnum Suður-Afríku, sem verður nú æ óvinsælli. Meðal þeirra sem stóðu
fyrir utan sendiráð Afríku á tunmtudaginn voru Rory og Douglas, börn
Roberts Kennedy heitins. Þau voru síðar hendtckin. Ásamt þeim á myndinni
eru Garv Hart, einn þeirra sem sóttist eftir forsetaframboði demókrata í ár,
og Randall Robinson, formaður bandrískra samtaka sem berjast gegn
aðskilnaðarstefnunni. NT-mynd: Poifmo.
Washinglon-Rcuter
■ Tvö börn Roberts Kennedys, hins
myrta öldungadeildarþingmanns,
voru handtekin í mótmælaaðgerðum
fyrir utan sendiráð Suður-Afríku í
fyrradag. Þau eru með vngstu börnum
Roberts og heita Douglas og Rory.
Mótmælaaðgerðir hafa nú staðið
yfir í nokkrar vikur fyrir utan sendi-
ráðið í fleiri borgum Bandaríkjanna
og er þar hvort tveggja mótmælt
stefnu Bandaríkjanna í málefnum
Suður-Afríku og aðskilnaðarstefnu
Pretoríustjórnarinnar.
í fyrstu voru það mestanpart
blökkumenn, þar á meðal þingmenn
sem stóðu í aðgerðunum, en nú hafa
bæst í hópinn háskólanemar og hvítt
fólk.
Margir hafa verið handteknir og
lluttir á brott í handjárnum, cn engar
ákærur hafa verið lagöar fram.
■ Desmond Tutu Nóbelsverðlaunahafi og Reagan forseti áttu með sér fund í Hvíta húsinu í gær. Þeir skiptust á
skoðunum, en urðu sammála um fátt annað en að aðskilnaðarstefnan væri forkastanleg. simamynd-poi.Koro
DesmondTutuog
Reagan eiga fund
- en eru sammála um fátt
Washington-Reuler
■ Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti átti í dag fund með Desmond
Tutu, biskup, blökkumannaleiðtoga
og Nóbelsverðlaunahafa frá Suður-
Afríku. Eftir fundinn sagði Reagan
að hann hugleiddi nú nýjar hugmyndir
um að beita Suður-Afríkustjórn
þrýstingi.
Tutu hefur haldið uppi gagnrýni á
stefnu Bandaríkjanna í Suður-Afríku
og kallað hana ósiðlega og ókristilega.
Reagan sagði þó eftir fundinn að í
grundvallaratriðum myndi stjórn hans
standa við stefnu sína, sem gengur
þvert á stefnu flestra ríkja um að
sniðganga stjórnina í Pretóríu. Reag-
an stjórnin kýs frekar að halda sam-
skiptum við Suður-Afríku og þrýsta á
breytingar eftir diplómatískum leið-
um.
Upp á síðkastið hafa verið miklar
mótmælaaðgerðir gegn aðskilnaðar-
stefnunni og stefnu Reaganstjórnar-
innar í Bandaríkjunum. Reagan hefur
verið sakaður um tvískinnung þegar
hann fordæmir mannréttindaþrot í
Póllandi og Sovétríkjunum, en vinnur
um leið með stjórninni í Pretóríu.
Reagan og Tutu voru að sögn
sammála um að kynþáttaaðskilnaðinn
þyrfti að leggja niður hið bráðasta, en
þá greindi hins vegar á um ástandið
eins og það er um þessar mundir.
Tutu telur það hafa versnað til
muna, en Reagan telur hins vegar að
hin nýja stjórnarskrá, sem gefur
blökkumönnum enga hlutdeild í
stjórn landsins, sé til marks um breyt-
ingar til bóta.
Tutu sagði eftir fundinn að hann
væri enn vantrúaður á stefnu Reag-
ans, sem má í lauslegri þýðingu nefna
„uppbyggilega þátttöku", og sagði að
hún leiddi til þess að hlutskipti svartra
í Suður-Afríku versnaði enn.
AFSLÁTTUR ^
GEGN FRAMVÍSUN ÞESSA MIÐA
FÆST 10% AFSLÁTTUR Á MAT.
GILDIR ÚT DESEMBERMÁNUÐ
Grikkland:
Lögregla
handtekur
120 stjórn-
leysingja
Aþena-Reuter
■ Gríska lögreglan hefur undan-
farna daga átt erfitt með að hemja
hóp ungra stjórnleysingja sem mót-
mæla fundi hægrisinnaðra þing-
manna Evrópuþingsins sem nú
stendur yfir í Aþenu. Að minnsta
kosti níu lögregluþjónar hafa hlotið
áverka í átökunum en ekki fer
sögurn af því hvað margir stjórn-
leysingjar hafa slasast.
Mótmælaaðgerðirnar hófust á
þriðjudagskvöld þegar um 500 ung-
menni komu saman rétt hjá hótel-
inu, þar sern þingmennirnir hægri-
sinnuðu dveljast. Stjórnleysingj-
arnir voru vopnaðir trékylfum og
sumir köstuðu bensínsprengjum og
grjóti, rúður í búðargluggum voru
bortnar og bílar skemmdir. Öll
umferð í miðborg Aþenu stöðvað-
ist í nokkrar klukkustundir vegna
mótmælanna.
Fyrsta kvöld mótmælaaðgerð-
anna handtók lögreglan aðeins
fjóra unglinga. En þegar mótmæla-
aðgerðirnar voru endurteknar á mið-
vikudagskvöld fjölmennti lögregl-
an og handtók eina 120 stjórnleys-
ingja og aðra vinstrisinna.
Evrópuþingmennirnir, sem eru
sextán að tölu, tilheyra hópi hægri-
sinnaðra öfgamanna á Evrópuþing-
inu. Leiðtogi þeirra Jean-Marie Le
Pen var í fyrstu meinuð vegabréfsá-
ritun til Grikklands þar sem hann
hafði sagst ætla að heimsækja fyrr-
verandi leiðtoga grísku herstjórn-
arinnar, Papadopoulos, í fangelsið.
Hann fékk síðan að koma eftir að
hafa gefið út yfirlýsingu um að
hann myndi ekki blanda sér í grísk
innanríkismál.
í fyrrakvöld ávarpaði Le Pen
fjöldafund gríska hægriflokksins
Epen í íþróttamiðstöð í Aþenu.
Nokkrir tugir hægrisinnaðaðra
ungmenna stóðu vörð fyrir utan
vopnaðir kylfum og hrópuðu
„kveikjum í rauðu hundunum".
Ítalía:
19 rauðlidar
fá lífstíð
Milano-Reuter:
■ Réttur í Mílanó hefur dæmt 19 félaga
í Rauðu herdeildunum í lífstíðarfangelsi
fyrir morð og 30 aðra í allt að 30 ára
fangelsi fyrir ýmsa aðra glæpi.
Rauðu herdeildirnar héldu uppi öflugri
hryðjuverkastarfsemi í lok síðasta áratug-
ar fram til ársins 1983. Borgarskærulið-
arnir 19. sem fengu lífstíðarfangelsi, voru
fundnir sekir um aðild að átta morðum
semvoruframináárabilinu 1978 til 1983.
Staöur
mjöös
o?
matar
TRYGGVAGÖTU 26
SÍMI26906
Sanyo er með á nótunum.
GXT-200
Ótrúleg tóngæði og fallegt útlit fyrir breakara
á öllum aldri.
Magnari 2X10 sin. wött.
Útvaip með FM sterió (rás 2) MW-LW.
Plötuspilari, hálfejálfvirkur með moving
magnet, pick-up og demantsnál.
Segulband með DOLBY Nr og METAL
stillingu.
50 watta hátalarar og stórglæsilegur viðar-
skápur með reyklitðum glerhurðum og loki.
VERÐ AÐEINS
KR. 22.123.- stgr.