NT - 08.12.1984, Síða 22

NT - 08.12.1984, Síða 22
Laugardagur 8. desember 1984 22 TOLEDO* Brettavoa Sýnum næstu daga þessa framúr- stefnuvog frá Toledo. - vegur bretti á snjallan hátt - þjónar einnig sem venjuleg gólfvog - vogarþol allt aö 2.500 kg. - lökkuö útgáfa fyrir notkun í þurru umhverfi. - ryðfrí, vatnsheld útgáfa fyrir rakt um- hverfi, s.s. fiskverkanir og sláturhús. Einkaumboð á íslandi ll.1sl.0s lll* Bíldshöföa 10 S S 26 55 Masters-karlar 16 tegundir ^ Ljón - Vegdrekar - Tungldrekar Eldflaugar 2 tegundir Arnarhreiður m/hljómplötu Hestar - Höll (Kastali) Jólasending komin Mjög takmarkað magn Póstsendum LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustíg 10 S. 14806 LEIKFANGAHÚSIÐ JL Húsinu v/Hringbr. S. 621040. *0 S £ <0 O) V<TJ ■ Greinin í „Kicker“ þar sem fjallaö er mn knattspyrnumennina frá eldtjallaeyjunni fslandi. Úr „Kicker": „Pólstjörnurnar“ - grein um íslendingana í Bundeslígunni - eldf jallaeyjan sem spúir knattspyrnuhæfileikum ■ „Die FYdarsterne" eða „Pól- stjörnurnar" heitir heilmikil grein í þýska íþróttablaðinu „Kicker" og fjallar um íslcnsku leikmennina í þýsku knattspyrnunni. Greinin Fiyggir á viðtali við Ásgeir Sigurvinsson en fléttar inní það ýms- um vangaveltum um veru Islending- anna í „Bundeslígunni" og stöðu ís- lenskrar knattspyrnu. „Atli Eðvaldsson var brautryðjand- inn þegar hann fór frá Val í Rcykjavík til Borussia Dortmund: Fyrsti íslend- ingurinn í Bundeslígunni. Síðan þá hefur eldfjallaeyjan spúð æ meiri knattspyrnuhæfileikum yfir okkur og komið þeim fyrir í hæsta gæðaflokki okkar. „íslendingarnir eru komnir“ Pessi dramatísku orð eru upphafið aðgreininni sem helduráframeitthvað á þessa leið: „Fjórir leikmenn frá þessu smáa ey- ríki á köldum norðurslóðum spreyta sig nú í besta hluta þýskrar knatt- spyrnu. Par að auki leikur Janus Guðlaugs- son með Fortuna Köln í 2. deildinni og hann var reyndar fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í þýsku knattspyrn- unni af öllum, var byrjaður að leik,a með Fortuna Köln þegar árið 1979." ..Ásgeir Sigurvinsson hefur verið fyrirliði íslenska landsliðsins síðan á síðasta keppnistímabili og þessi stjarna á þýsku knattspyrnuvöllunum leiddi VfB Stuttgurt cftir 32 ára bið tii þýska meistaratitilsins á ný. Hann er sannkölluð „Pólstjarna"." Haft er eftir Ásgeiri í greininni að það sé mjög erfitt að stunda knatt- spyrnu á islandi. Síðan segir: „Þrátt fyrir hin mildu áhrif golf- straumsins ríkir vetur í sjö endalausa mánuði. Jafn lengi liggur fótboltinn óhreyföur úti í horni en rúllar hinsveg- ar á íslenskum knattspyrnuvöllum frá maí til septemher. Yfir vetrartímann dútla íslenskar knattspyrnuhetjur gjarnan í handbolta eða öðrum inniíþróttum. Þetta dútl getur lcitt til annars og meira eins og sannast á Janusi Guð- laugssyni sem var kominn í íslenska landsliðið í handknattleik áður en hann vissi af. Þrátt fyrir slæm skilyrði er knatt- spyrna vinsælasta íþróttin á íslandi og hefur öðlast gífurlegar vinsældir á síðasta áratug." Síðan segir í greininni að íslending- ar hafi náð betri og betri árangri, m.a. með því að fá hingað erlenda þjálfara. Vitnað er í Þjóðverjann Klaus Hilbert sem var hjá IA 1979. „íslensk knattspyrna er á líku reki og í þýsku áhugamannadeildinni (Amate- ur-Oberligen) en hún er í mikilli framför, maður heyrir æ oftar minnst á Islendinga,“sagði Hilbert. „Ekki að furða því íslenska landslið- ið er mikið til skipað leikmönnum sem þéna kaupið sitt í hinum ýmsu löndum Evrópu." segir greinarhöfundur. „Og ef þcir vilja hafa atvinnu af knatt- spyrnu eru þeir neyddir til að flytjast burt frá heimalandi sínu því á Islandi er eingöngu áhugamennska." „Við fáum engar greiðslur fyrir að leika með landsliðinu, ekki einu sinni fyrir sigur. Samt erum við tilbúnir til að leika með því hvenær sem við erum valdir til þess," segir Ásgeir með stolti í röddinni", heldur höfundur greinar- innar áfram. „Ásgeir Sigurvinsson hjá Stuttgart, Atli Eðvaldsson hjá Fortuna Dussel- dorf, Magnús Bergs hjá Eintracht Braunsweig, Lárus Guðmundsson hjá Bayern Uerdingen og Janus Guð- laugsson hjá Fortuna Köln eru allir fastamenn í íslenska landsliðinu og þó þeir séu u ýmsum stöðum í Þýskalandi halda þeir sambandi sín á milli. „Ég nef mest samskipti við þá Atla og Janus, við þrír erum góðir vinir og höfum símasamband reglulega," segir . Ásgeir. Tvisvar til þrisvar halda þeir líka mikla Íslendingahátíð. Þá segir enn fremui í greininni að Ásgeir, sem kallaður er „Ishafs-Zico“ í Stuttgart, og hinir leikmennirnir í Þýskalandi séu ein ástæðan fyrir því að sjónvarpið og íslensk blöð fjalli 1 nokkuð mikið um áhugaverðustu leik- ina í þýsku knattspyrnunni. Þetta verði síðan þess valdandi að knattspyrnan verður vinsælli og ungir knattspyrnumenn eiga fyrirmynd og þá dreymir um að feta í fótspor hennar. Því cltir íslenskur ungdómur þessa leðurtuðru af innlifun við hvaða að- stæður sem er. „íslenskir unglingar eyða ekki tíma sínum fyrir framan heimilistölvur eða við vídeógláp og á íslandi eru engur knæpur og enginn hjór sem þeir hafa aðgang að. Frítíminn fer því í eitthvað upp- byggilegt og heilbrigt, til að mynda knattspyrnu." Hver var svo að tala um unglinga- vandamál! Helgarsportid...Helgarsportið HANDKNAITLEIKUR; ■ Að sjálfsögðu eru það leikirnir við Svía sem ber mest á en auk þeirra verða nokkrir leikir í 2. deild. í dag leika Grótta og Þór AK á Seltjarnar- nesi kl. 14.00 og á sama tíma mætast Ármann og KA í Seljaskóla. KÖRFUBOLH: í dag mætast ÍR og ÍS í úrvalsdcild- inni og veröur leikurinn í Seljaskóla kl. 14.00. Á sunnudagskvöldið mætast Valur og Haukar í Seljaskóla kl. 20.00. í I. deild kvenna keppa ÍR og ÍS í Seljaskóla kl. 15.30 í dag. í 1. deild karla mætast í dag Grindavík og Fram í Njarðvíkum kl. 13.00 og Laugdælir taka á móti Reyni Sand- gerði á Selfossi kl. 14.00. BLAK: Boltanum verður mikið blakað í dg og á morgun. í Hagaskóla spila í dag kf. 14.00 Víkingur og KA í 1. deijd kvenna og í sömu deild strax á eftir ÍS og Þróttur. Svo hittast Víkingar og Þróttarar í 1. deild karla á sama stað kl. 16.30. I Hveragerði mætast HSK og KA í 2. deild karla kl. 17.00 í dag. Á morgun verður svo leikur Þróttar og Fram í 1. deild karla í Hagaskóla kl. 13.30. Fjórir leikir verða í Digra- nesi. HK og IS í 1. deild karla kl. 14.00, Breiöablik og KA i I. deild kvenna kl. 15.30,HK-KA í 2. deild karla kl. 17.00 og Breiðablik-Þróttur í 2. deild karla kl. 18.30. ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA! Reykjavíkurmeistaramót fatlaðra hófst á miðvikudagskvöld og í dag er keppt í boccia (hófst kl. 10). Keppt verður síðan áfram í boccia á morgun og hefst keppnin á sama tíma. Keppt er í Álftarmýrarskóla. Verðlaunaaf- hending verður svo á Hótel Loftleiö- um á sunnudagskvöldið kl. 20.00. KARATE: Innanfélagsmót Karatefélags Reykjavíkur verður í dag kl. 14.00 í Hvassaleitisskóla.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.