NT - 08.12.1984, Blaðsíða 22
Laugardagur 8. desember 1984 22
TOLEDO*
Brettavoa
Sýnum næstu daga þessa framúr-
stefnuvog frá Toledo.
- vegur bretti á snjallan hátt
- þjónar einnig sem venjuleg gólfvog
- vogarþol allt aö 2.500 kg.
- lökkuö útgáfa fyrir notkun í þurru
umhverfi.
- ryðfrí, vatnsheld útgáfa fyrir rakt um-
hverfi, s.s. fiskverkanir og sláturhús.
Einkaumboð
á íslandi
ll.1sl.0s lll*
Bíldshöföa 10
S S 26 55
Masters-karlar 16 tegundir ^
Ljón - Vegdrekar - Tungldrekar
Eldflaugar 2 tegundir
Arnarhreiður m/hljómplötu
Hestar - Höll (Kastali)
Jólasending komin
Mjög takmarkað magn
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10 S. 14806
LEIKFANGAHÚSIÐ
JL Húsinu v/Hringbr. S. 621040.
*0
S
£
<0
O)
V<TJ
■ Greinin í „Kicker“ þar sem fjallaö er mn knattspyrnumennina frá eldtjallaeyjunni fslandi.
Úr „Kicker":
„Pólstjörnurnar“
- grein um íslendingana í Bundeslígunni
- eldf jallaeyjan sem spúir knattspyrnuhæfileikum
■ „Die FYdarsterne" eða „Pól-
stjörnurnar" heitir heilmikil grein í
þýska íþróttablaðinu „Kicker" og
fjallar um íslcnsku leikmennina í
þýsku knattspyrnunni.
Greinin Fiyggir á viðtali við Ásgeir
Sigurvinsson en fléttar inní það ýms-
um vangaveltum um veru Islending-
anna í „Bundeslígunni" og stöðu ís-
lenskrar knattspyrnu.
„Atli Eðvaldsson var brautryðjand-
inn þegar hann fór frá Val í Rcykjavík
til Borussia Dortmund: Fyrsti íslend-
ingurinn í Bundeslígunni. Síðan þá
hefur eldfjallaeyjan spúð æ meiri
knattspyrnuhæfileikum yfir okkur og
komið þeim fyrir í hæsta gæðaflokki
okkar.
„íslendingarnir eru komnir“
Pessi dramatísku orð eru upphafið
aðgreininni sem helduráframeitthvað
á þessa leið:
„Fjórir leikmenn frá þessu smáa ey-
ríki á köldum norðurslóðum spreyta
sig nú í besta hluta þýskrar knatt-
spyrnu.
Par að auki leikur Janus Guðlaugs-
son með Fortuna Köln í 2. deildinni
og hann var reyndar fyrsti íslenski
atvinnumaðurinn í þýsku knattspyrn-
unni af öllum, var byrjaður að leik,a
með Fortuna Köln þegar árið 1979."
..Ásgeir Sigurvinsson hefur verið
fyrirliði íslenska landsliðsins síðan á
síðasta keppnistímabili og þessi
stjarna á þýsku knattspyrnuvöllunum
leiddi VfB Stuttgurt cftir 32 ára bið tii
þýska meistaratitilsins á ný. Hann er
sannkölluð „Pólstjarna"."
Haft er eftir Ásgeiri í greininni að
það sé mjög erfitt að stunda knatt-
spyrnu á islandi. Síðan segir:
„Þrátt fyrir hin mildu áhrif golf-
straumsins ríkir vetur í sjö endalausa
mánuði. Jafn lengi liggur fótboltinn
óhreyföur úti í horni en rúllar hinsveg-
ar á íslenskum knattspyrnuvöllum frá
maí til septemher.
Yfir vetrartímann dútla íslenskar
knattspyrnuhetjur gjarnan í handbolta
eða öðrum inniíþróttum.
Þetta dútl getur lcitt til annars og
meira eins og sannast á Janusi Guð-
laugssyni sem var kominn í íslenska
landsliðið í handknattleik áður en
hann vissi af.
Þrátt fyrir slæm skilyrði er knatt-
spyrna vinsælasta íþróttin á íslandi og
hefur öðlast gífurlegar vinsældir á
síðasta áratug."
Síðan segir í greininni að íslending-
ar hafi náð betri og betri árangri, m.a.
með því að fá hingað erlenda þjálfara.
Vitnað er í Þjóðverjann Klaus Hilbert
sem var hjá IA 1979.
„íslensk knattspyrna er á líku reki og
í þýsku áhugamannadeildinni (Amate-
ur-Oberligen) en hún er í mikilli
framför, maður heyrir æ oftar minnst
á Islendinga,“sagði Hilbert.
„Ekki að furða því íslenska landslið-
ið er mikið til skipað leikmönnum sem
þéna kaupið sitt í hinum ýmsu löndum
Evrópu." segir greinarhöfundur. „Og
ef þcir vilja hafa atvinnu af knatt-
spyrnu eru þeir neyddir til að flytjast
burt frá heimalandi sínu því á Islandi
er eingöngu áhugamennska."
„Við fáum engar greiðslur fyrir að
leika með landsliðinu, ekki einu sinni
fyrir sigur. Samt erum við tilbúnir til
að leika með því hvenær sem við erum
valdir til þess," segir Ásgeir með stolti
í röddinni", heldur höfundur greinar-
innar áfram.
„Ásgeir Sigurvinsson hjá Stuttgart,
Atli Eðvaldsson hjá Fortuna Dussel-
dorf, Magnús Bergs hjá Eintracht
Braunsweig, Lárus Guðmundsson hjá
Bayern Uerdingen og Janus Guð-
laugsson hjá Fortuna Köln eru allir
fastamenn í íslenska landsliðinu og þó
þeir séu u ýmsum stöðum í Þýskalandi
halda þeir sambandi sín á milli.
„Ég nef mest samskipti við þá Atla
og Janus, við þrír erum góðir vinir og
höfum símasamband reglulega," segir
. Ásgeir.
Tvisvar til þrisvar halda þeir líka
mikla Íslendingahátíð.
Þá segir enn fremui í greininni að
Ásgeir, sem kallaður er „Ishafs-Zico“
í Stuttgart, og hinir leikmennirnir í
Þýskalandi séu ein ástæðan fyrir því
að sjónvarpið og íslensk blöð fjalli
1 nokkuð mikið um áhugaverðustu leik-
ina í þýsku knattspyrnunni.
Þetta verði síðan þess valdandi að
knattspyrnan verður vinsælli og ungir
knattspyrnumenn eiga fyrirmynd og
þá dreymir um að feta í fótspor
hennar.
Því cltir íslenskur ungdómur þessa
leðurtuðru af innlifun við hvaða að-
stæður sem er.
„íslenskir unglingar eyða ekki tíma
sínum fyrir framan heimilistölvur eða
við vídeógláp og á íslandi eru engur
knæpur og enginn hjór sem þeir hafa
aðgang að.
Frítíminn fer því í eitthvað upp-
byggilegt og heilbrigt, til að mynda
knattspyrnu."
Hver var svo að tala um unglinga-
vandamál!
Helgarsportid...Helgarsportið
HANDKNAITLEIKUR;
■ Að sjálfsögðu eru það leikirnir við
Svía sem ber mest á en auk þeirra
verða nokkrir leikir í 2. deild. í dag
leika Grótta og Þór AK á Seltjarnar-
nesi kl. 14.00 og á sama tíma mætast
Ármann og KA í Seljaskóla.
KÖRFUBOLH:
í dag mætast ÍR og ÍS í úrvalsdcild-
inni og veröur leikurinn í Seljaskóla
kl. 14.00. Á sunnudagskvöldið mætast
Valur og Haukar í Seljaskóla kl.
20.00. í I. deild kvenna keppa ÍR og
ÍS í Seljaskóla kl. 15.30 í dag. í 1.
deild karla mætast í dag Grindavík og
Fram í Njarðvíkum kl. 13.00 og
Laugdælir taka á móti Reyni Sand-
gerði á Selfossi kl. 14.00.
BLAK:
Boltanum verður mikið blakað í dg
og á morgun. í Hagaskóla spila í dag
kf. 14.00 Víkingur og KA í 1. deijd
kvenna og í sömu deild strax á eftir ÍS
og Þróttur. Svo hittast Víkingar og
Þróttarar í 1. deild karla á sama stað
kl. 16.30. I Hveragerði mætast HSK
og KA í 2. deild karla kl. 17.00 í dag.
Á morgun verður svo leikur Þróttar
og Fram í 1. deild karla í Hagaskóla
kl. 13.30. Fjórir leikir verða í Digra-
nesi. HK og IS í 1. deild karla kl.
14.00, Breiöablik og KA i I. deild
kvenna kl. 15.30,HK-KA í 2. deild
karla kl. 17.00 og Breiðablik-Þróttur í
2. deild karla kl. 18.30.
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA!
Reykjavíkurmeistaramót fatlaðra
hófst á miðvikudagskvöld og í dag er
keppt í boccia (hófst kl. 10). Keppt
verður síðan áfram í boccia á morgun
og hefst keppnin á sama tíma. Keppt
er í Álftarmýrarskóla. Verðlaunaaf-
hending verður svo á Hótel Loftleiö-
um á sunnudagskvöldið kl. 20.00.
KARATE:
Innanfélagsmót Karatefélags
Reykjavíkur verður í dag kl. 14.00 í
Hvassaleitisskóla.