NT - 08.12.1984, Qupperneq 23
m Laugardagur 8. desember 1984 23
LlL íþróttir
ísland—Svíþjóð:
Ekkert veser
aðrú illai ipp
sænska liðin u
- öruggur sigur á Svíum í fyrsta leiknum
■ Hver nian ekki eftir máls-
hxttinum góðkunna „Ekkert
mál fyrir Jón Pál“. Allirauðvit-
að! Og nú er kominn upp annar
svipaöur „Ekkert mál fyrir
Kristján". Kristján Arason fór
á kostum í seinni hálfleik í
fyrsta landsleik íslendinga gegn
Svíum í Laugardalshöll í gær-
kvöldi. Hann skoraði þá 5 mörk
öll með glæsilegum þrumuskot-
um frá hæstu hæðum og átti
að auki sendingar í allar áttir
sem gáfu mörk og annað.
Leiknum lauk með íslenskum
sigri og það býsna öruggum
25-21. Allt liðið á skiliö hrós
fyrir leikinn í gær þrátt fyrir að
minnst sé á hlut Kristjáns. Síð-
ast en ekki síst skal benda á þá
nienn sem standa utan við völl-
inn og stjórna af festu, Bogdan
,og Guðjón liðstjóra.
Skal nú hætt öllu ánægjuhjali
og snúið sér að leiknum
sjálfum. Hann hófst meðlúðra-
þyt og söng og lauk á háu
nótunum líka. Það var að vísu
nokkuð greinileg taugaveiklun
í leikmönnum beggja liða í
upphafi. Hjá Islendingum
vegna þess að þeir voru að spila
fyrir framan sitt fólk eftir vel-
gengni að undanförnu og hjá
Svíunum vegna þess að þeir
vissu að þeir áttu í baráttu við
lið í „klassa1- og íslenska áhorf-
endur.
Svíar náðu forystunni í sinni
fyrstu sókn eftir að Þorgils
hafði látið verja frá sér á lín-
unni. Þorgils bætti síðan fyrir
þau mistökin með því að skora
næstu tvö mörk og íslendingar
komnir yfir. Síðan skiptust lið-
in á að skora og var jafnt á
öllum tölum uppí 9-9. Þá skora
íslendingar tvö mörk úr hraða-
upphlaupum og komast í 11-9.
■ Guðmundur Guðmundsson brýst hér skenrmtilega innúr horninu og skorar af öryggi. Hann gerði þrjú mörk í fyrri hálfleik í
leiknum og stóð sig vel eins og aðrir. NT-mynd Svcrrir.
Per Carlén minnkar svo mun-
inn í 11-10 fyrir hlé.
Venjulega í „gamla daga'' þá
voru íslendingar vanir að
klúðra niður öllum leikjum í
byrjun síðari hálfleiks. Svo var
þó ekki í gær. Að vísu jafna
Svíar 12-12 enda íslendingar
einum færri. Þá var komið að
Kristjáni Arasyni sem lyfti sér
upp hvað eftir annaðogskoraði
glæsilega. (slendingar gera út
um leikinn á fyrstu 15 mín.
hálfleiks, konrast í 17-14 og
síðan 20-16 er 13 mín.
voru eftir. A þessum kafla lék
liðið eins og best verður á
kosið. Lokatölur verða svo 2
5-21 og sanngjarn sigur í höfn.
Islenska liðið er orðið stöð-
ugt og þrælagað. Ekkert fát
þótt sókn klúðrist bara haldið
áfranr. Leikkerfi ganga upp og
allir hafa gaman af því senr er
að gerast. Liðið leikur sém
hcild og mörk Kristjáns-eru
mörg hver hluti af leikfléttum
sem liðið hefur góð tök á. til
hanringju strákar þið eigið hrós
skilið.
Mörkin:
Kristján 6, Sigurður Gunnarsson 6 (2),
Þorbergur og Guðmundur 3, Þorgils,
Steinar og Páll 2 og Þorbjöm Jensson 1.
Hjá Svíum skoraði Björn Jilsen mest 5
(3) og Carlen og Hajas gerðu 4.
Sagt eftir ieikinn...
Þorgils Óttar:
„Þetta var ekkert erfiðara en við
bjuggumst við. Við fundum strax eftir
10 mínútur að við áttum góða möguleika
á að sigra og það tókst", sagði Þorgils
Öttar eftir leikinn en hann gaf íslending-
um tóninn með tveimur fyrstu mörkun-
um.
„Leikurinn á morgun (í dag) leggst
bara vel í mig. Að vísu verður Sigurður
Gunnarsson ekki með og það gæti
komið niður á ieikkerfunum en við
erum hvergi bangnir", bætti Þorgils við.
Guðmundur Guðmundsson:
„Ég er ánægður með þennan leik. Við
spiluðum af skynsemi og skoruðum
nokkuð jafnt og þétt allan leikinn sem
ég tel vera árangur af því hve agað liðið
er orðið", sagði Guðmundur Guð-
mundsson eftir leikinn. „Það er orðið
nokkuð tryggt að við fáum ekki á okkur
meir en þetta um 20 mörk í leik og
vörnin er alltaf að verða betri og betri.
Þá má ekki gleyma áhorfendum sem
styðja vel við bakið á okkur. Ég er
KA sigraði
■ KA sigraði Gróttu í 2. deild
karla í íslandsmótinu í handknatt-
leik í gærkvöldi með 23 mörkum
gegn 21. Sigurinn var sanngjarn þeir
voru sterkari. Mörkin gerðu Jó-
hannes 7 og Ottó 6 fyrir Gróttu,
aðrir minna. Hjá KA var Friðjón
mairkahæstur með 6 stykki og 4
mörk gerðu Þorleifur, Logi, Erling-
ur og Jón.
bjartsýnn á leikina framundan", sagði
Guðmundur að lokum.
Guðjón liðsstjóri:
Guðjón Guðmundsson liðsstjóri
sagði eftir leikinn: „Þetta var nokkuð
svipað Og við bjuggumst við. Svíar
spiluðu sinn bolta en okkur tókst að
stoppa þá. Þetta er sigur liðsheildarinn-
ar.____________________________________
Njarðvík vann
Frá Ólafi Þór fr(it(arilara NT á Suðurnesj-
um:
■ Njarðvíkingar unnu naum-
an sigur á baráttuglöðum KK-
ingum í Njarðvíkum í gær-
kvöldi. Leikurinn sem var í
úrvalsdeildinni í körfu fór 78-
72 heimamönnum í vil.
Njarðvíkingar skora fyrstu
tvær körfurnar en KK-ingar
jafna, síðan er þetta barátta
mikil og staðan í hléi 36-28
fyrir heimamenn.
í síðari hálfleik hyrjuðu
Njarðvíkingar vel og komust í
51-32 en KR-ingar rétta úr
kútnuin og var mikil barátta í
liði þcirra. Lokatölur verða
svo 78-72.
ísak og Valur skoruðu mest
fyrir Njarðvíkinga eða 17 stig
hvor og Jónas og Ellert gerðu
12. Birgir var bestur á vellinum
og skoraði mest fyrir KR 24.
Guðni og Matthías gerðu 13.
Njarðvíkingar eru því enn
efstir í úrvalsdcildinni.
Punktar...Punktar...
CRUYFF RÁÐINN
■ Hollenska 1. dcildarliðið Roda hefur
ráðið knattspyrnustjörnuna Johan Cru-
yff sem tæknilegan ráðunaut hjá liðinu
út þetta keppnistímabil.
Roda rak þjálfara sinn í síðasta mán-
uði og er nú í 10. sæti í hollensku 1.
deildinni. Cruyff hætti að leika atvinnu-
knattspyrnu eftir að hafa hjáipað Feyen-
oord að vinna bæði hollensku meistara-
tignina og bikarinn á síðasta keppnis-
tímabili.
UNGIFRAZIER Á UPPLEIÐ
■ Marvis Frazier, sonur gamla heims-
meistarans í hnefaleikum, Joe Frazier
sem eftirminnilega vann Muhammed
Ali einu sinni, er nú hröðum skrefum að
byggja upp feril sinn sem hnefaleikari
að nýju eftir að heimsmeistarinn Larry
Holmes barði hann í köku í hringnum í
fyrra. Frazier hinn ungi vann um helgina
breska boxarann Funso Banjo í hnefa-
leik. Frazier hafði vfírburöi allan
tímann, en Banjo tapaði þarna í fyrsta
sinn viöureign sem atvinnumaður í
þungavigt hnefaleika.