NT - 04.01.1985, Blaðsíða 4

NT - 04.01.1985, Blaðsíða 4
Föstudagur 4. janúar 1985 4 Álftártungukirkja - úr rofum Reykjavíkurkirkju 1795: Endurbótum að utan lokið á þrem vikum Margra ára áhugamál að veruleika Frá fréttaritara NT í Borgarnesi J.A.E.: ■ Hið aldna guðshús, Álftár- tungukirkja á Mýrum, var gert upp að utanverðu í september- mánuði s.l. og tók verkið 3 vikur. Kirkjan hefur ekki verið notuð um nokkurt árabil, en nú Þrettándinn: Ganga friðar á Akranesi ■ Sunnudaginn 6. janú- ar, á þrettándanum, efnir friðarnefndin á Akranesi til friðargöngu. Gangan hefst kl. 19.15 við dyr Akraneskirkju með ávarpi og söng. Síðan verður gengið að sjúkra- húsinu þar sem lokaat- höfnin verður. Kyndlar verða seldir við upphaf göngunnar, á vægu verði. Friðarnefndina myndar fólk úr öllum stjórnmála- flokkum, og hvetur nefnd- in til almennrar þátttöku. stendur það til bóta, þar sem fyrirhugað er að halda endur- bótum kirkjunnar að innan áfram næsta vor. Orgel, sem keypt var 1905, hefur verið gert upp. Álftártungukirkja í Alftanes- hreppi er hið merkasta hús. Hún var byggð úr rofum Reykjavíkurkirkju árið 1795 og hluti af viðum kirkjunnar í dag mun vera frá þeim tíma. Kirkj- an var endurbyggð árið 1874 og járnklædd eftir aldamótin 1900. Á kirkjuklukkunum stendur ár- talið 1722, svo þær eru a.m.k. orðnar yfir 260 ára gamlar. Viðgerð Alftártungukirkju hefur um árabil verið áhugamál margra velunnara kirkjunnar. Reynt hefur verið að afla fjár til framkvæmdanna á ýmsan hátt, með frjálsum framlögum, köku- basar og jólakortasölu. Mest hefur þó munað um 60.000 kr. styrk sem Húsfriðunarnefnd hefur nú þegar veitt til viðgerða á kirkjunni. í bréfi nefndarinn- ar segir m.a. að nefndin fagni góðu framtaki og leggi áherslu á mikilvægi viðhalds hinna gömlu kirkna á Mýrum. ■ Áfltártungukirkja eins og hún leit út áður en viðgerð hófst s.l. haust... Frjálst fram- tak yfirtekur Fiskifréttir ■ Frjálst framtak yfirtekur út- gáfu Fiskifrétta nú um áramót en blaðið var áður gefið út af hlutafélagi samnefndu blaðinu. Fiskifréttir er vikublað sem fjallar alhliða um málefni sjáv- arútvegsins og greina sem tengj- ast honum. Er reiknað með að útgáfa blaðsins verði óbreytt frá því sem verið hefur og ritstjór- inn Þórleifur Ölafsson gegni því starfi áfram a.m.k. fyrst um sinn. Fiskifréttir eru tólfta ritið sem Frjálst framtak gefur út en af hinum má nefna, Nýtt líf, Áfanga, Sjávarfréttir og íþrótta- blaðið. Stætóarnir: Lekinn óverulegur - skýrsla Iðntæknistofnunar ■ Stjórn SVR hefur nú til umfjöllunar skýrslu Iðntækni- stofnunar um leka í 27 strætis- vögnum, er nýja Bílasmiðjan smíðaði yfirbyggingar á. Sigurjón Fjeldsted, stjórnar- formaður SVR, sagði í gær að lekinn hefði verið óverulegur og skemmdir á vögnunum litlar. Hann sagði ennfremur að vagn- arnir væru allir í umferð. Þar sem skýrslan hefur enn ekki verið rædd í borgarstjórn vildi Sigurjón ekki tjá sigfrekar um innihald hennar. ■ ... og eins og hún lítur nú út eftir að endurbótum utanhúss var lokið. Munurinn er mikill, sem sjá má. Stjórnmálamannaraketturnar seldust vel: Geymið ekki flugelda undir koddanum á milli áramóta! Flugeldasýning við JL-húsið í dag ■ Þráttfyrirvonskuveðurvíða um land á gamlárskvöld seldust flugeldar betur en nokkru sinni fyrr og var mesta salan í fjöl- skyldupökkum af ýmsu tagi og stjórnmálamannarakettunum. Eitthvað minni ljósadýrð var yfir höfuðborginni um þessi ára- mót en oft áður og setti veðrið strik í reikninginn. Má því ætla að margir lúri enn á rakettum og öðru sprengigóssi undir koddanum hjá sér og ættu þeir að nota tækifærið á þrettándan- um, til að koma því í lóg, því varasamt getur verið að geyma flugelda milli ára sökum eld- hættu. Sala á rakettum og flugeldum hefur farið vaxandi með hverju árinu sem líður og byggja mörg líknar-, íþrótta- og björgunarfé- lög afkomu sína að verulegu leyti á flugeldasölu. Landssamband hjálparsveita skáta hefur verið í fararbroddi flugeldasölunnar um áraraðir og hjá Ólafi Magnússyni fengust þær upplýsingar að sala af flug- eldum stæði undir 50-90% af rekstrarkostnaði sveitanna. Væri ógerlegt fyrir sveitirnar að standa undir því hjálparstarfi sem þær sinna, ef ekki kæmu til þessir fjármunir. KR-ingar voru drjúgir við flugeldasöluna í Reykjavík og að sögn Stefáns Haraldssonar var salan meiri en þeir höfðu átt von á, eftir allan kreppusöng- inn. KR-ingar voru með flug- eldasýningu daginn fyrir gaml- árskvöld og ætla að endurtaka leikinn í dag kl. 17.30-18.00 við JL húsið. Gæti það orðið smá- sárabót fyrir þá sem fóru á mis við rakettuskytterí um árarnót. Einnig geta þeir sem æstastir eru keypt flugelda til að skjóta upp á þrettándanum, nk. sunnu- dag.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.