NT - 09.01.1985, Síða 19

NT - 09.01.1985, Síða 19
 Miðvikudagur 9. janúar 1985 19 lil 'v'^_ Útlönd ■ Bretar vilja gjarnan fá Karl Bretaprins sem konung. Bretum líst vel á Karl sem kóng en hann þekkir ekki hlutverk sitt London-Keutcr ■ Samkvæmt nýlegri skoðana- könnun vill meirihluti Breta að Elísabet drottning víki fyrir Karli Bretaprinsi. Sams konar könnun var 1980 en þá voru 2/3 spurðra andvígir afsögn Elísabetar. Niðurstöður könnunarinnar sem tímaritið Woman lét gera. voru þær að 52% spurðra voru hlynntir afsögninni. Prinsinn er ntjög vonsvikinn yfir því að þurfa að bíða ef til vill árum saman eftir stöðu- hækkun eða svo segja greina- höfundar breskra blaða. Haft er eftir Karli:„Mitt mesta vandanrál er að ég veit í raun og veru ekki hvert hlutverk mitt er í lífinu." En starfsframi embættis- manna er iðulega hægfara. Tímaritið sagði að í sarnan- burði við Díönu væri Elísabet drottning og hennar fólk orðið gamaldags og til að auka vi'n- sældir sínar ætti Elísabet að leggja áherslu á unglegra yfir- bragð. Bretland: Prinsessu sagt að hætta reykingum London-Reuter ■ Læknar hafa ráðlagt Margréti prinsessu í Bretlandi að hætta reykingum eftir að þeir neyddust til að taka annað lunga hennar með skurðaðgerð fyrir nokkrum dögum. Margrét, sem er 54 ára gömul, hefur að jafnaði reykt frá 40 og upp í 60 sígarettur á dag. Fyrrverandi eiginmaður hennar, Snowdon lávarður, mun hafa reynt árangurslaust að fá hana til að hætta að reykja þau átján ár sem þau voru gift. Breska dagblaðið The Sun hefur eftir góðum vini prinsess- unnar, Norman Lonsdale, að hún hafi ekki farið dult með ást sína á reykingum en nú gæti kannski verið að hún skipti um skoðun. ■ Margrét prinsessa. íkveikju- og sprengjutilræði Nijmejien-Holland-Reuler ■ Skæruliðasamtök sem berjast gegn kynþáttaað- skilnaðarstefnunni í Suð- ur-Afríku segjast bera ábyrgð á árás á einbýlishús olíukaupmanns í Hol- landi. Samtökin kveiktu í liúsi kaupmannsiris, I bréfi sem samtökin sendu hollcnskri frétta- stofu kemur fram ;ið kaup- maðurinn. John Deuss eigandi Transworld Oil, sclji olíu til Suður-Afríku þrátt fyrir viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna. Samtökin scm kalla sig „Brennuvargar gegn kyn- þáttaaðskilnaði" hafa ekki áður komið fram á sjónar- sviðið. í árásinni á ein- býlishúsið var bensín- sprengjum varpað og urðu miklar skemmdir á luis- inu. Talsmaður lögrcglunn- ar skýrði frá því að cld- sprengjur hefðu jafnframt fundist í nágrenni skrif- stofu Transworld Oil cn kuldarnir í Evrópu hefðu komið í veg fyrir að þær virkuðu. Fjölskylduharmleikur í Brasilíu: Myrti foreldra og ' BLAÐBERA VANTAR þrju systkmi sin , Mátti ekki spila á plötuspilarann | | ÆGISÍÐA EINNIG VANTAR BLAÐBERA Á KVISTHAGI FORNHAGI BIÐLISTA í ÖLL HVERFI HOFSVALLAGATA Sao Paulo-Keuler ■ 18 ára ungmenni banaði móður sinni, föður. tveim bræðrum og systur eftir mikið rifrildi um hávaðann í plötuspil- aranum hans. Atburðurinn gerðist í fyrrinótt að sögn lög- reglunnar. Talsmaður lögreglunnar sagði Roberto Agostinho Peuk- Frakkar fánýtt dagblað París-Reuler ■ Nýtt franskt dagblað, Paris Ce Soir, hóf göngu sína í þessari viku. í fyrsta leiðara blaðsins segir m.a. að almenningur sé þreytt- ur á tilbúnum dagblaða- stríóum milli hægri og vinstri. Aðalskríbent blaðsins er Francois Jobert sem bæði hefur setið í hægri- og vinstrisinnuðum ríkis- stjórnum. Blaðið er í eigu iðnjöfursins Pierri Planc- her og blaðamenn þess eru flestir mjög ungir. ný- útskrifaðir úr háskólum eða blaðamannaskólum. ert Valente hafa viðurkennt ver- knaðinn og sagt ástæðuna að móðir hans hefði slökkt á plötu- spilaranum og öskrað á hann „slæpingsdruslan þín“. Drengurinn sagðist hafa ætl- að að kenna móður sinni að svona langt gæti hún ekki gengið, hann ákvæði það sjálfur hvenær hann færi að sofa. Hann hlóð byssu föður síns. Mario, og skaut til bana alla meðlimi fjölskyldunnar. Hann stakk líkin hnífi, skar þau síðan á hol til að fullvissa sig um að þau væru ekki með nokkru lífsmarki. Líkin losaði drengur- inn sig við í nærliggjandi götu. Júgóslavar handteknir: Smygluðu heróíni til Vesturlanda Bclgrad-Reuter ■ 15 Júgóslavar eru ákærðir fyrir heróínsmygl til Vestur- landa. Júgóslavarnir voru ákærðir í gær í Belgrad fyrir framleiðslu og smygl á eiturlyfj- unr, aðallega heróíni. Júgóslavarnir sem flestir eru á fertugsaldri, voru handteknir í júlí s.l. í Skopje, höfuðborg Makedóníska lýðveldisins í Suður-Júgóslavíu. Þeir eru ákærðir fyrir fram- leiðslu, dreifingu og smygl á að minnsta kosti 25 kílóum af her- óíni, 11 kílóunr af ópíum og sjö kílóum af kókaíni. Höfuðpaur hópsins, Arijan Kaliu, sat í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir eiturlyfj- asmygl en tókst að flýja aftur til Júgóslavíu og endurreisti starf- semi sína. Síðumúli 15. Sími 686300

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.