NT - 17.01.1985, Page 3
Fimmtudagur 17. janúar 1985 3
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur til fyrri umræðu í borgarstjórn:
Borgin með hundruð milljóna
króna hagnað á síðasta ári
- stóraukin fjárveiting til Borgarleikhússins
■ Fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar verður tekin til fyrri
umræðu í borgarstjórn í dag og
er gert ráð fyrir í henni að
framkvæmdir á vegum borgar-
innar aukist verulega á þessu
ári.
Hæst ber stóraukna fjárveit-
ingu til Borgarleikhússins uppá
60 milljónir en í fyrra var veitt
til framkvæmda þar 15 milljón-
um. Áætiað er að Borgar-
leikhúsið verði tilbúið árið 1986
á 200 ára afmæli borgarinnar.
Þá liggur fyrir tillaga um að
lækka útsvarsprósentuna úr 11 í
10,8 en áætlaðar útsvarstekjur
Reykjavíkurborgar fyrir næsta
ár eru 1375 milljónir. Hefur
þessi 0,2% útsvarslækkun í för
með sér 25 milljóna króna tekju-
missi fyrir borgarsjóð.
Fjárhagsstaða Reykjavíkur
sl. ár var mun betri en undanfar-
in ár og kemur borgin hundruð-
um milljóna betur út úr síðasta
fjárhagsári en gert var ráð fyrir
í upphafi árs.
Að sögn Sigurjóns Pétursson-
ar borgarfulltrúa Abl. er
skýringin sú að tekjur borgar-
innar hafa fylgt almennri verð-
lagsþróun meðan laun hafa ver-
ið stöðvuð að mestu eða öllu
leyti, en mikill hluti af útgjöld-
um borgarinnar tengist beinum
launagreiðslum.
Því telur Sigurjón Pétursson
að gjöldin hafi hækkað í raun og
veru fyrir borgarana, því sá tími
sem það tekur þá að vinna fyrir
gjöldum sínum til borgarinnar
hefur verulega lengst, þótt
tekjur borgarinnar í prósentum
■ Ætla mætti af þessari mynd frá forsetatíð Markúsar Arnar
Antonssonar að áhugi borgarstjórnarfulltrúa væri mismikill á
einstökum málefnum. Líklega verða þó fleiri í sætum sínum er
fjárhagsáætlun borgarinnar verður til fyrri umræðu í dag.
NT-mynd: Árni Bjarna
miðað við fyrri álagningarstofna
hafi lækkað. Þetta telur hann
einustu skýringuna á miklu betri
fjárhag Reykjavíkurborgar
núna miðað við fyrri ár. Einnig
benti Sigurjón á að tekjur borg-
arinnar af eigin fyrirtækjum
hefðu aukist verulega. Nefndi
hann sem dæmi Hitaveitu
Reyjavíkur og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, sem hefðu hækk-
að þjónustugjöld sín um tugi
prósenta á sl. ári og aftur núna
um áramótin og væru tekju-
stofnar borgarinnar af þessum
tveim þjónustufyrirtækjum nú
umtalsverðir.
Ekki tókst að ná í Davíð
Oddsson borgarstjóra til að
bera þetta undir hann, þar sem
hann var upptekinn við undir-
búning fyrir borgarstjórnar-
fundinn sem hefst kl. 17.00 í
dag.
Rannsóknar-
lögreglan
í mál skip-
stjóranna
■ „Við munum gera allt
sem við getum til þess að lög
verði látin ná fram að ganga
í þessu máli. Tilkynna þetta
til viðkomandi yflrvalda og
fara fram á að Rannsóknar-
lögregla ríkisins rannsaki
þessi mál,“ sagði Helgi
Laxdal hjá Farmannasam-
bandinu aðspurður um kæru
á hendur þeim skipstjórum
sem vísvitandi lögskráðu
vitlaust áhafnir skipa sinna
nú í janúarmánuði.
Mál þetta kom til umræðu
á fundi hjá Farmanna- og
fiskimannasambandinu í
gær en eins og sagt var frá í
NT á þriðjudag er hér um að
ræða mál nokkurra skip-
stjóra á Stykkishólmi og
Patreksfirði. Pegar undan-
þágur Siglingarmálastofn-
unar vegna réttindalausra
yfirmanna skipanna voru
ekki komnar strax eftir ára-
mótin þegar skipstjórarnir
ætluðu út skráðu þeir menn
sem alla jafna vinna í landi
en hafa full réttindi á skip
sín. Eftir það héldu þeir út
með sína gömlu áhöfn og
skráðir farmennn voru eftir
í landi.
Að sögn Helga ákvað
sambandið að vara skip-
stjóra um landið við ólög-
legri lögskráningu með aug-
lýsingu og leita eftir aðstoð
frá Samgönguráðuneytinu í
eftirliti með þessum málum.
Veiðibann í
Breiðafirði
■ Sjávarútvegsráðuneytið
hefur nú bannað línu- og tog-
veiðar á tilteknu svæði á Breiða-
firði vegna þeirrar niðurstöðu
Hafrannsóknarstofnunar að
þarna sé um þekkta smá-
fiskaslóð að ræða. Svæði þetta
var lokað fyrir veiðum frá 11.
janúar í eina viku en það bann
hefur nú verið framlengt um
óákveðinn tíma. Verður bann-
inu aflétt þegar aðstæður leyfa
og þarna haft uppi reglubundið
eftirlit.
Svæðið afmarkast af eftirtöld-
um punktum: a.65° 04 ‘N-24°
27‘V b. 65° 07‘N-24° 42‘V c. 65°
19‘N - 24°36*V d. 65° 08‘N - 24°
03‘V. ■ Og þarna er þá bannað að veiða enda tóman smáþorsk að hafa.
Fasteignamarkaðurinn á
höfuðborgarsvæðinu
Um 20% íbúða keyptar
af utanbæjarmönnum
■ í Ijós hefur komið að um 1
af hverjum 5 íbúðum sem seldar
hafa verið á höfuðborgarsvæð-
inu á undanförnum árum hefur
verið keypt af fólki sem á lög-
heimili sitt utan þess svæðis,
samkvæmt upplýsingum frá
Fasteignamati ríkisins. Stór
hluti þessara kaupenda er fólk
sem er að flytja utan af lands-
byggðinni. En um 7% (1 af
hverjum 14 íbúðum) af öllum
seldum eignum eru keyptar af
mönnum sem áfram hafa heim-
ilisfang sitt skráð á landsbyggð-
inni ellegar erlendis. Nærri læt-
ur að þar sé um að ræða kaup á
um 200 íbúðum á ári. Alls er
talið að um 1.500-2.000 íbúðir í
Reykjavík séu í eigu utanbæjar-
manna.
Kaup þessara eins af hverjum
14 fasteignakaupendum á höfuð-
borgarsvæðinu eru annað
tveggja hugsuð sem bein fjár-
festing á því landssvæði þar sem
verðgildi fasteigna cr tryggast,
ellegar af ýmsum öðrum ástæð-
um. T.d. er vitað að þó nokkuð
er um að foreldrar úti á landi
kaupi íbúðir fyrir börn sín sem
stunda nám í skólum Reykja-
víkur, til að losna við baráttuna
á erfiðum leigumarkaði. Einnig
er alltaf nokkuð um að fólk -
sérstaklega einhleypingar -
halda áfram að eiga lögheimili
úti á landi þótt komið sé í fasta
vinnu á höfuðborgarsvæðinu.
Fullbúin hús
— á föstu verði
að kaupa HOSBY hús hefur
ótvíræða kosti sem eru m.a.:
• Fullbúin og uppsett hús á föstu verði.
• Eingöngu eru notuð fyrsta flokks hrá-
efni — og hvergi til sparað.
• Góð einangrun og þrefalt gler halda
reksturskostnaði í lágmarki.
• Byggingartíminn finnst hvergi styttri.
Þafl eru möguleikar á að skoða Hosby hús í
Reykjavík, Akureyri og á ísafirði. Hafið
samband við okkur og fáið allar nánari upp-
lýsingar eða biðjið um ókeypis litmynda-
bækling.
Bakkasíðu 1,600 Akureyri.
Sími 96-22251.
Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi. Sími 91-79277.