NT - 17.01.1985, Síða 19
IhH Fimmtudagur 17. janúar 1985 19
ii.li. Radaugi lýsingar Útlönd
flokksstarf
Vesturland
Alexander Stefánsson félagsmálaráöherra, og Davíð Aöal-
steinsson alþigismaöur veröa til viðtals og ræöa þjóðmálin á
eftirtöldum stöðum:
Grundarfjörður:
Kaffistofa frystihússins, sunnudaginn 20. janúar kl. 16.00.
Ólafsvík:
i Mettubúö sunnudaginn 20. janúar kl. 21.00
Hellissandur:
[ Röst mánudagínn 21. janúar kl. 21.00
þjónusta
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hannes Friðriksson,
Arnkötlustöðum,
Holtum, Rang.
veröur jarðsunginn frá Árbæjarkirkju, Holtum, laugardaginn
19. janúar kl. 2.
HuldaHannesdóttir,
Margrét Hannesdóttir,
BjarniHannesson,
SalvörHannesdóttir,
Ketill A. Hannesson,
Áslaug Hannesdóttir,
Sólveig Halblaub,
Helga Halblaub
Hannes Hannesson,
Auöur Ásta Jónasdóttir,
HörðurÞorgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför fósturmóöur okkar
Vigdísar Jónsdóttur,
sem andaðist aö Hrafnistu 3. janúar s.l. fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 18. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á
líknarstofnanir.
F.h. vina og vandamanna.
Viggó Guðmundsson, Hjalti Þorsteinsson.
Eiginmaöur minn, faöir okkar og sonur
Aðalsteinn Pétursson
læknir
KlettavíkH Borgarnesi
veröur jarösunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn 19.
janúar kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hans, vinsamlegast
látiö Sjúkrahús Akraness njóta þess. Ferö verður frá Umferð-
armiöstöðinni sama dag kl. 10.30.
Halldóra Karlsdóttir
Þórdís Brynja Aðalsteinsdóttir Oddur H. Knútsson
Guðríður HIÍFAðalsteinsdóttir ÓlafurJannason
Áslaug Helga Aðalsteinsdóttir Halldóra Aðalsteinsdóttir
Guðríður Kristjánsdóttir Pétur Sigurðsson
flokksstarf
UPPELDI OG NAM I
BREYTTU ÞJÓÐFÉLAGI
í tilefni af ári æskunnar 1985 heldur Landssamband fram-
sóknarkvenna ráöstefnu um uppeldis- og fræðslumál, laugar-
daginn 19.janúar 1985 aö Hótel Hofi, Rauöarárstíg 18.
Dagskrá ráöstefnunnar er sem hér segir:
10.00-10.10 Setning og skipun starfsmanna, Sigrún
SturludóttirformaðurLandssambands
framsóknarkvenna.
10.10-12.00 Framsöguerindi:
a) frumbernska, forskólaaldur: Heiödís
Gunnarsdóttir, fulltrúi.
b) Grunnskóli: Stella Guðmundsdóttir,
skólastjóri.
c) Framhaldsskóli: Gerður Steinþórsdóttir,
kennari.
d) Tengsl heimila og skóla: Sigrún Magnús-
dóttir, kaupmaður.
e) Tækninýjungar í námi: Áslaug Brynj-
ólfsdóttir, fræöslustjóri.
12,00-13.00 Hádegisverðarhlé.
13.00-15.00 Hópstarf.
15.00-15.30 Síödegiskaffi.
15.30-16.00 Niöurstööurhópvinnu.
16.00-17.00 Almennarumræöur.
17.00 Fundarslit.
-Ráöstefnan er öllum opin og vill landssamband framsóknar-
kvenna hvetja alla þá sem áhuga hafa á þessum málum aö
sitja ráðstefnuna.
Þórshöfn - nærsveitir
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og
Guömundur Bjarnason halda almennan stjórnmálafund í
félagsheimilinu Þórshöfn, fimmtudaginn 17. janúar kl. 21.00.
Raufarhöfn - nærsveitir
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og
Guömundur Bjarnason halda almennan stjórnmálafund í
félagsheimilinu Raufarhöfn, föstudaginn 18. janúar kl. 21.00.
Húsavík og nágrenni
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og
Guðmundur Bjarnason halda almennan stjórnmálafund í
félagsheimilinu Húsavík, laugardaginn 19. janúar kl. 16.00.
GERIST
ÁSKRIFENDUR
HJÁ NÆSTÁ
UMBOÐSMANNI
Norðmenn óttast
skæruliðastríð
Osló-Rcutcr
■ Ríkisstjórn Noregs hefur
neitað samtökum Palestínu-
manna PLO um leyfi til að
opna upplýsingaskrifstofu í
Noregi vegna ótta um að slíkt
gæti leitt til hryðjuverkafarald-
urs í Noregi.
Embættismenn í dómsmála-
ráðuneytinu segja að fái PLO
að hafa skrifstofu í Noregi gæti
það orðið til þess að stuðnings-
mönnum og andstæðingum
samtakanna lendi saman par.
Þcir segja að deilur innan PLO
hafi einnig átt sinn þátt í því að
samtökin fá ekki að opna skrif-
stofu í Noregi. Norðmenn vilji
ekki eiga á hættu að vopnuð
átök ntilli róttækra og hóf-
samra afla í PLO nái til
Noregs.
Þingmenn sósíaldemokrata,
sem eru í stjórnarandstöðu,
hafa fordæmt þessa ákvörðun.
Guttorm Hansen, talsmaður
sósíaldemokrata á sviði utan-
ríkisstjórnmála, ségir að ríkis-
stjórnin hafi viðurkennt í fyrra
að ekki væri hægt að syngja
PLO um leyfi fyrir skrifstofu í
Noregi af öryggisástæðum ein-
■ Yasser Arafat leiðtogi
PLO. Norska stjórnin óttast
ofbeldisaðgeröir andstæðinga
Arafats svo nijög að hún hefur
synjað PLO uni levtí til að
opna skrifstofu í Noregi.
Símumvnd POLFOTÖ.
urn samair, þvi hlytu að liggja
aðrar ástæður fyrir synjun
stjórnarinnar.
Ákvörðun norsku stjórnar-
innar að leyfa ekki opnun upp-
lýsingaskrifstofu PLO í Noregi
er hins vegar talin mikill sigur
fyrir sendiráö ísraelsmanna
þar.
Óeirðir á Jamaica
Ringston-Rcutcr
■ Aö minnsta kosti tveir menn
voru skotnir til bana og niargir
særðust í miklum óeirðum á
Jamaica í fyrradag vegna verð-
hækkana.
Fréttir af óeirðunum eru ó-
Ijósar en tvær útvarpsstöðvar í
Kingston sögðu að tveir menn
hefðu látist úr skotsárum.
Kvöldið áður hafði ríkisstjórnin
skýrt frá 21 prósent verðhækk-
unum á bensíni og svipuðum
hækkunum á ýmsum öðrum
olíuvörum.
Lögregla og her \oru kölluð
til að bæla óeirðimar niður og
fjarlægja götuvígi.
Bretland:
íhaldsmenn gagnrýna
frjálshyggju Thatcher
- krefjast aukinna umsvifa
hins cpinbera
■ Edvvard Heath fyrrverandi
forsætisráðherra íhaldsflokks-
ins gagnrýndi harðlega peninga-
magnsstefnu Thatcher og krafð-
ist aukinna umsvifa hins opin-
bera á breska þinginu í gær.
London-Rcutcr
■ Ríkisstjórn Breta segist
ekki ætla að kvika frá peninga-
magnsstefnu frjálshyggjunnar
og lækka skatta þótt hún mæti
aukinni gagnrýni fyrirefnahags-
ástandið á Bretlandi oggífurlegt
fall pundsins að undanförnu.
Stjórn Thatchers mætti harðri
gagnrýni á breska þinginu í gær
og var sökuð um að hafa ekki
ráðið viö kreppu sterlingpunds-
ins.
Á þinginu var krafist afsagnar
Nigel Lawsons, fjármálaráð-
hcrra. Hann fyrirskipaði hækk-
un vaxta í 12% s.l. mánudageftir
að metfall hafði orðið á pund-
inu. Dollarinn kostaði þá 1.1020
pund.
Thatchcr varði Lawson og
vaxtahækkunina og sagði að
þrátt fyrir veika stöðu pundsins
væri efnahagsbatinn öruggur og
framleiðni ykist.
Fyrrverandi forsætisráðherra
íhaldsflokksins, Edward Heath,
sagði að peningamagnsstefna
stjórnarinnar hefði leitt til ógn-
vekjandi atvinnuleysis og krafð-
ist þess að umsvif hins opinbera
yrðu stórlega aukin til að blása
Íífi í efnahagslífið.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar sögðu að of litlar fjárfest-
ingar hefðu leitt til fjármagns-
flótta úr landinu og veikt stöðu
pundsins.
Staða pundsins var nokkru
betri á evrópskum gjaldeyris-
mörkuðum í gær en óvissa um
þróun olíuverðs og sterk staða
dollarans benda til þess að efna-
hagsbatinn á Bretlandi sé langt
frá því að vera tryggður.