NT - 17.01.1985, Side 21
lít
Fimmtudagur 17. janúar 1985 21
Spænskur nemandi:
Skaut á tvo
prófdómara
- og framdi síðan sjálfsmorð
Madrid-Reuter:
■ Spánverji nokkur skaut og
særði tvo- prófdómara þegar
hann átti að gangast undirmun-
legt próf í meðferð opinberra
skjala.
Prófdómararnir segja að
maðurinn, sem hét F.C. Fern-
andes, hafi greinilega verið í
uppnámi. Hann hafi stamað og
honum hafi gengið illa að svara
þeim spurningum sem lagðar
voru fyrir hann. Þegar hann
virtist alveg hafa siglt í strand
greip hann skyndilega til
skammbyssu og skaut á próf-
dómarana og særði þá alvarlega.
Síðan beindi Fernandes, sem
var 29 ára gamall, byssunni að
sjálfum sér og framdi
sjálfsmorð. Nokkrum dögum
áður hafði hann fallið á skriflegu
prófi og kann það að hafa átt
þátt í því að hann greið til
byssunnar.
Liverpool-Reuter
■ í gær var opnuð sýning í
Liverpool með djörfum teikn-
ingum eftir bítilinn sáluga, John
Lennon. Teikningarnar hafa
ekki verið sýndar en lögreglan
gerði þær upptækar fyrir 15
árum.
Teikningarnar sem eru 14 að
tölu sýna ástríðufulla ástarleiki
hjónanna Lennon og Ono og
eru frá hveitibrauðsdögum
þeirra hjóna 1969. Þegar þær
voru fyrst sýndar í London 1970
lokadi lögreglan sýningunni
enda þóttu teikningarnar ósið-
Iegar.
En mikið vatn hefur runnið
til sjávar síðan þá og sýningin í
Liverpool nú er ekki eins um-
deild og sýningin í London fyrir
15 árum.
Minnsta barn heims laust afsjúkrahúsi
■ Spænska barnið Irene Perez, sem var aðeins 465 grömm við á myndinni eru foreldrarnir hamingjusamir yfir að fá loksins að taka
fæðingu fékk í gær að fara heim til foreldra sinna eftir að hafa legið litla barnið sitt heim.
á sjúkrahúsi frá fæðingu þann 27. ágúst á síðasta ári. Eins og sjá má símamynd: - polfoto.
Norrænir sósíaldemókratar:
Kjarnorkuvopn verði
bönnuð á Atlantshafi
■ John Lennon og Yoko Ono nokkrum dögum eftir giftingu
þeirra í mars 1969. Lennon teiknaði ástarlífsmyndirnar um þetta
leyti. Þær eru nú á sýningu í Liverpool.
Liverpool:
Ástarleikir Lennon
og Ono á sýningu
Oslo-Reuter
■ Norrænir sósíaldemó-
kratar, þ.á.m. forsætisráð-
herrar Svíþjóðar og
Finnlands, hvetja risaveidin
til að banna kjarnorkueld-
flaugar á Norður-Atlants-
hafi.
í samþykkt á ráðstefnu
norrænna sósíaldemókrata
eru Sovétríkin og Bandartk-
in hvött til að taka þetta mál
upp í vopnaviðræðunum sem
munu fara fram í þessum
mánuði er Gromyko og
Shultz hittast.
Samþykktin var gerð á
tveggja daga ráðstefnu sós-
íaldemókrata frá öllum
Norðurlöndunum.
Finnski forsætisráðherr-
ann, Kalevi Sorsa og Olof
Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, lögðu fram tillögu
um að norrænar ríkisstjórnir
lýsi Norðuriönd kjarnorku-
vopnalaust svæði.
Haft var eftir heimildar-
mönnum á ráðstefnunni,
sern lýkur í dag, að einnig
hafi verið samþykkt að skora
á risaveldin að „ræða alvar-
lega“ fækkun meðaldrægra
og langdrægra kjarnorku-
eldflauga og tafarlausa
stöðvun hervæðingar í
geimnum.
Bandarísk mannréttindasamtök:
Gagnrýna Reagan fyrir
að styðja einræðisherra
New-Reuter
■ Samtök mannréttinda-
manna í Bandaríkjunum hafa
gagnrýnt stjórn Reagans fyrir
lítinn árangur í mannréttinda-
málum á síðasta ári vegna
stuðnings hennar við einræðis-
stiórnir.
í ársskýrslu mannréttinda-
samtakanna Americas Watch,
Helsinki Watch og Lögfræð-
inganefndar fyrir alþjóðlegum
mannréttindum eru bandarísk
stjórnvöld lofuð fyrir að hafa
fordæmt mannréttindabrot í So-
vétríkjunum og fylgiríkjum
þeirra. En í skýrslunni eru
bandarísk stjórnvöld einnig
átalin fyrir að hafa ekki gagn-
rýnt mannréttindabrot annars
staðar að sama skapi. Slíkt hafi
dregið mjög úr siðferðilegum
þunga af gagnrýni Bandaríkja-
manna á mannréttindabrotum í
austantjaldslöndunum.
Mannréttindasamtökin fagna
því að Bandaríkjastjórn sé nú
ef til vill að uppgötva hvað
stefna hennar í málefnum Suður
Afríku hingað til hefur þjónað
illa baráttunni fyrir auknum
mannréttindum og bandarísk-
um hagsmunum. En jafnframt
er bent á að í mörgum tilvikum
hafi stjórnin haft uppi . „hávaða-
samar afsakanir" fyrir mann-
réttindabrotum.
Sérfræðingur á vegum Sameinuðu þjóðanna:
Hættan á iðnaðarslysum I Fljúgandi
mest í þróunarlöndunum I „tómatur“
ilairobi-Rcuter
■ Ríki í þriðja heiminum eru
ilbúin til að taka meiri áhættu
/arðandi iðnaðarslys en iðnrík-
n á Vesturlöndum, segir efna-
'ramleiðslusérfræðingur starf-
mdi hjá Sameinuðu þjóðunum.
Jan Huisman, forstöðumaður
Alþjóða eiturefnastofnunarinn-
ar í Genf, skýrði frá því í
fyrradag, að takmörkuð verk-
menntun og ábyrgðartilfinning
valdi meiri áhættu í vinnslu
hættulegra efna í þróunarlönd-
um.
Athugasemdir hans koma í
kjölfar gaslekans í fyrirtæki
auðhringsins Union Carbide í
Bhopal í desember s.l. sem
leiddi til dauða 2500 manna.
Ófullnægjandi eftirlit opin-
berra stofnana með verksmiðj-
um ykju enn áhættuna og líkur
á slysum sagði hann í skýrslu
sem lögð var fram á vegum
umhverfismálastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, en rannsókn-
arstofnun á hennar vegum er í
Nairobi.
Sem skammtímalausn gagn-
vart fyrirtækjum alþjóðlegra
'auðhringja, lagði Huisman til
að hættulegustu þrepin í fram-
leiðsluferli efnaframleiðslu yrðu
unnin á Vesturlöndum.
■ Sovéskur bílstjóri,
Nikolai Vytnil að nafni,
segist hafa orðið fyrir árás
fljúgandi „tómats" heima
hjá sér fyrir skömmu.
Vytnil segir að „tó-
maturinn" hafi flogið inn
um útidyrnar hjá sér og
sprungið. Þegar þetta
gerðist var mikið óveður
og telja vísindamenn að
„tómaturinn fljúgandi"
hafi í rauninni verið eld-
kúla án þess þó að þeir
geti skýrt hvernig hún varð
til.