NT - 17.01.1985, Qupperneq 23
■ Verið er að leggja keilubrautirnar í nýja salnum í Öskjuhlíð.
Enskir íþróttafréttamenn velja:
Sebastian Coe
- sem íþróttamann ársins
■ Enskir íþróttafréttamenn
hafa nú útnefnt íþróttamann
ársins fyrir árið 1984. í Eng-
landi, eins og flestum löndum,
öðrum en Islandi, cru karlar
valdir sér og konur sér.
Þetta árið varð frjálsíþrótta-
fólk fyrir valinu og bæði unnu
til gullverðlauna á Olympíu-
leikunum í Los Angeles í
sumar.
„íþróttakarlmaður" ársins
var kjörinn Sebastian Coe, sem
sigraði í 1500 metra hlaupinu
og varð annar í 800 metrum á
„íþróttakona“ ársins var
kjörin Tessa Sanderson sem
sigraði í spjótkasti í Los Ange-
les ogsetti um leiðÓlympíumet
í greininni.
Karfa í kvöld
■ í kvöld leika ÍS og
Njarðvík í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik og fer
leikurinn fram í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans.
Viðureignin hefst
klukkan 20:15.
Ekki er að búast við
spennandi viðureign á
milli íslandsmeistaranna
og botnliðsins, en allt get-
ur gerst í íþróttum og
einhverntíma hlýtur að
koma að því að Njarðvík-
ingarnir tapi leik, eða
hvað?
LUKKUDAGAR
Ósóttir vinningar frá janúar til desember 1984.
Janúar. Maí. 20. 2001 Október.
3. 33504 9. 21182 23. 5826 2. 48617
12. 12112 12. 21000 30. 12013 6. 5781
14. 49950 8. 53877
17. 48378 9. 984
Febrúar. 3 ifinm 23. 22540 Ágúst. 17. 46305
O. 1 uuuo 11 Q/11 fín 29. 54371 3. 2374 23. 6
II.o4IDU 14. 58611 17. 23190 30. 18212
17. 34657 Júní. 18. 917 21. 36735 Nóvember.
2. 41708 1. 832
Mars. 8. 35724 4. 43443
8. 11236 12. 10004 September. 7. 18273
10. 16657 17. 42559 3. 4010 10. 51655
11. 59395 22. 59668 7. 47352 18. 24366
12. 5735 23. 18646 9. 40255 21. 632
14. 7364 30. 38226 11. 3039 25. 12122
21.49304 13. 37904 26. 20152
22. 3882 15. 33439
27. 12084 Júlí. 16. 3835 Desember.
1.14704 19. 216 2. 41981
9. 48448 25. 25894 12. 44689
Apríl. 11. 4603 26. 36118 13. 55742
1. 57343 14. 54465 28. 3279 15. 21943
21. 4730 16. 24879 30. 59528 22. 41879
Vinningshafar hringi í sima 20068 (símsvari) og skiljf vinsamlega eftir nafn og símnúmer en
hefjið ekki máls fyrr en eftir hljóðmerkið.
Blakdeild Víkings og íþróttafélög um land allt þakka landsmönnum stuðninginn á liðnu ári.
Fimmtudagur 17. janúar 1985 22
____________ . íþróttir________________________
Ný íþróttagrein á islandi:
Keila heitir hún
opnar bráðlega í Öskjuhlíð
■ Á næstu dögum verður
opnuð í Reykjavík aðstaða til
að spila keilu sem á ensku
nefnist „bowling“. Þessi íþrótt
byggist í stórum dráttum á því
að leikmaður reynir að fella
keilur sem eru við enda brautar
með því að rúlla í þær stórri
kúlu. Þessi íþrótt nýtur mikilla
vinsælda víða erlendis og má
nefna sem dæmi að í Bandaríkj-
unum eru miklir peningar í
boði í keilu-keppnum.
í viðtali sem NT átti við
Ásgeir Pálsson, framkvæmda-
stjóra keilusalarins sem stað-
settur er í Öskjuhlíð, kom fram
að ætlunin er að opna aðstöð-
una um mánaðamótin jan.-feb.
Boðið veröur uppá tólf brautir
til iðkunar keilu og verður um
tvennskonar keilu að ræða.
Opin-keila, þar sem allir geta
komið inn í salinn og spilað
einn eða fleiri leiki eftir hentug-
leika og liða-keilu þar sem
keppt verður í 4 eða 5 manna
liðum, sem hittast einu sinni í
viku. Síðar er ætlunin að koma
á keppni á milli þessara liða.
Opin-keila verður á daginn og
um helgar en liða-keila verður
að mestu á kvöldin á virkum
dögum.
„Þetta er íþrótt fyrir alla
aldurshópa. Þetta er líka
keppnisíþrótt og við reynum
að koma til móts við þarfir eins
margra og mögulegt er," sagði
Ásgeir í viðtalinu. Hann bætti
einnig við að síðar væri ætlunin
að opna aðstöðu til að leika
veggbolta (Squash og racket-
ball) og biljard í sama húsi.
„Vonandi tekst okkur í fram-
tíðinni að koma upp eins konar
íþróttamiðstöð þarna í Öskju-
hlíðinni“, bætti Ásgeir við.
í sambandi við keiluna þá
verður gefinn út bæklingur þar
sem reglur í keilu verða kynnt-
ar og einnig verða á staðnum
leiðbeinendur sem munu
hjálpa fólki að „rúlla“ fyrstu
sporin.
„Tækin sem sett verða upp í
sambandi við keiluíþróttina
hafa verið til hér á landi í 7 ár
en þá kom þessi hugmynd fyrst
upp. Síðan þá hefur ekki fund-
ist heppilegt húsnæði til að
koma tækjunum fyrir í og því er
það loks nú að möguleiki til að
stunda þessa íþrótt kemur
upp“, sagði Ásgeir Pálsson í
samtalinu.
Þá kom einnig fram hjá Ás-
geiri að það mun kosta 100 kr.
að spila einn leik en til að gefa
fólki hugmynd um það hvað
einn leikur er þá eru það um 20
skot. Þannig er t.d. áætlað að í
5 manna liða-keilu taki það
fimm menn 2 'A tíma að spila 3
leiki hver.
„Við vonum að við getum
fengið heilu fjölskyldurnar til
að spila keilu en þetta er ein-
mitt þannig íþrótt að ungir sem
gamlir geta stundað hana
saman. Það þarf engan sérstak-
an útbúnað til að stunda keilu
fyrir utan skó og þeir verða á
staðnum1', sagði Ásgeir
Pálsson, framkvæmdastjóri
keilusalarins í Öskjuhlíð, í
samtali við NT.
Sundmenn erlendis:
Þrír á Golden-Cup
■ í gær héldu til Strassbourg
í Frakklandi þrír keppendur
og einn fararstjóri á vegum SSÍ
til að taka þátt í hinu árlega
Golden Cup móti sem nú fer
fram í þriðja sinn. Aqua-sport,
umboðsaðili Golden Cup á ís-
landi og Golden Cup buðu SSÍ
að senda þrjá keppendur og
fararstjóra SSÍ algjörlega að
kostnaðarlausu. Og hefur SSI í
framhaldi af boði þessu ákveð-
ið að eftirtaldir sundmenn færu
á mótið, en það eru Eðvarð Þ.
Eðvarðsson, Ragnheiður Run-
ólfsdóttir og Ragnar Guð-
ntundsson sem keppendur en
fararstjóri og þjálfari verður
Hafþór B. Guðmundsson.
■ Enska knattspyrnutíma-
ritið World Soccer hefur nú
valið „heimsliðið" svokall-
aða. í heimsliðinu eru meðal
annarra tveir Danir, þeir
Allan Simonsen og Morten
Olsen.
Þann síðarnefnda tilnefnir
blaðið einnig leikmann árs-
ins 1984.
Heimsliðið er sett upp eft-
ir taktíkinni 3-5-2 og lí'tur
svona út:
Markvörður: Renat Da-
Golden Cup mótið fer fram
dagana 18.-20. janúar í Strass-
bourg og er þetta mjög sterkt
alþjóðlegt mót sem í taka þátt
keppendur frá flestum Evrópu-
þjóðunum, Bandaríkjunum.
Kína og víðar. Golden Cup
treður nokkuð nýjar leiðir í
mótshaldi til að gera mótin enn
skemmtilegri fyrir áhorfendur
t.d. með skemmtidýfingum
(trúða-dýfingar), listsundi og
skemmtiatriðum og einnig hafa i
þeir lúðrasveit og hvatnmgar-
kóra til að stjórna hvatningar-
öskrum áhorfenda. Og þess má
geta að uppselt var í höllina
síðastliðin ár á úrslitasúndin en
höllin tekur um 2000 áhorfend-
yev, Sovétríkjunum. Bak-
verðir: Alain Giresse og
Maxime Bossis, báðir frá
Frakklandi. „Sweeper":
Morten Olsen, Danmörku.
Miðvallarleikmenn: (frá
vinstri) Allan Simonsen,
Danmörku, Socrates, Brasi-
líu, Jean Tigana og Michel
Platini, báðir frá Frakklandi,
Diego Maradona, Argent-
ínu. Framherjar: Karl-Heinz
Rummenigge, Vestur-Þýska-
landiogBrunoConti. Ítalíu.
ur í sæti.
Einnig má geta þess að Gold-
en Cup hefur tekið upp keppni
í 1000 m skriðsundi „Hinn
gullni kílómetri" sem ekki hef-
ur verið keppt í til fjölda ára.
Punktar
... Zola Budd mun keppa
í 10.000 metra götuhlaupi
í Phoenix í Bandaríkjun-
uin þann 2. mars næst-
komandi.
Þetta verður fyrsta
keppni hennar þar í landi
eftir Ólympíuieikana í
Los Angeles í sumar.
Mary Decker mun ekki
keppa á móti henni í
Arizona-borginni. Hún
dró þátttöku sína til baka
nokkrum vikum áður en
Budd tilkynnti sig til
keppni...
... Eins og skýrt var frá í
NT fyrir skömmu flúði
einn landsliðsmaður
Austur-Þjóðverja í sundi
til Vestur-Þýskalands er
félagslið hans var í
keppnisferð þar.
Nú hefur annar lands-
liðsmaður Austur-Þjóð-
verja Jens-Peter Brendt
flúið yfir múrinn. Hann
varð eftir í Oklahoma-
borg fyrir 10 dögum er
landsliðið var þar í
keppnisferð og fannst
ekla þegar út á flugvöllinn
var komið.
Brendt þessi beið eftir
svari frá 'háskólanum í
Alabama um skólavistar-
leyfi þegar síðast spurðist
til hans...
... Nokkrir leikir fóru
fram í gær í 8 liða úrslitum
Evrópukeppni bikarhafa
í körfuknattleik. í B-riðli
vann Asvel Villenrbanne
frá Frakklandi Hapoel
Tel Aviv með 95 sigum
gegn 82 eftir að hafa vcrið
yfir 47-34 í hálfleik.
í sama riðli léku FC
Barcelona frá Spáni og
ítalska liðið Juventus
Indesit Caserta og sigraði
Barcelona 92-73 eftir 50-
38 í leikhléi...
■ Morten Olsen og Allan Simonsen.
Fjórir Frakkar
og tveir Danir
- í heimsliðinu
■ Aðalsteinn Bliki svífur hér inn en Páll og Ólafur horfa skelkaðir á eftir honum
NT-mynd Sverrir
Handknattleikur 1. deild:
KR'ingar ögn betri
■ KR-ingar voru ögn skárri
en Blikarnir er liðin mættust í
Digranesi í gærkvöldi. KR-ing-
ar enduðu sem sigurvegarar,
gerðu 22 mörk gegn 18 mörkum
Blika. Leikurinn var nær allan
tímann nokkuð jafn og staðan í
hléi 10-9 KR í vil. Síðari hálf-
leikur var meira eign KR og
sigurinn þeirra.
í fyrri hálfleik skoruðu KR-
ingar fyrsta markið og var Ólaf-
ur Lárusson þar að verki með
lúmsku undirhandarskoti.
Hann átti eftir að gera ein tvö
slík í viöbót áður en yfir lauk.
Blikarnir voru fádæma óheppn-
ir í fyrri hálfleik með skot sín
og áttu urmul sláar- og stangar-
skota.
í síðari hálfleik breikkaði
bilið heldur og náðu KR-ingar
mest fimm marka forskoti.
Þeirra sigur var því ekki í
verulegri hættu en Blikar héldu
áfram að vera óheppnir með
skot sín.
„Við erum að verða jafnari í
vörn og sókn," sagði Ólafur
Lárusson KR-ingur eftir leik-
inn. Og rétt er það KR var
jafnara liðið. Þeir áttu !íka
betri markvörðinn í leiknum,
Jens, sem þó varði ekkert frá-
bærlega. En hann varði þó jafn-
vel allan tímann.
Mörk KR gerðu Jakob 8,
Ólafur, Páll og Haukur 4 hver
og Jóhannes gerði 2. Hjá Blik-
um var Kristján Halldórsson
markahæstur með 6, Björn
gerði 5, Aðalsteinn 3, Brynjar
2 og þeir Jón Þór og Andrés
Bridde (fyrrum Framari) gerðu
sitt markið hvor.
-,kti-----------------
Handknattleikur 1. deild:
Fimmtudagur 17. janúar 1985 23
óttir
Frábær markvarsla
- hjá Einari og Brynjari er Valur vann Stjörnuna
■ Það var 12 mínútna kafli í
síðari hálfleik Stjörnunnar og
Vals sem gerði útslagið í leikn-
um. Á þessum kafla þá gerðu
Valsmenn 7 mörk í röð og
breyttu stöðunni úr l2-ll fyrir
Stjörnuna í 18-12 sér í hag.
Þessi kafli var fyrst og fremst
byggður á góðum varnarleik -
sannkallaðri „mulningsvél" svo
og stórgóðri markvörslu Einars
Þorvarðarsonar. Þegar svo
leiknunt lauk voru Valsmenn
hinir öruggu sigurvegarar,
skoruðu 24 mörk gegn 19.
Það virtist sem liðununt væri
fyrirmunað að koma boltanum
í netið í upphafi leiksins, skotið
var af krafti í slár og stengur,
hraðaupphlaup fóru forgöröum
og Einar varði víti frá Guð-
mundi Þórðar á fyrstu mínútu.
Það voru svo Valsmenn sem
brutu ísinn með tveimur
mörkum. Fyrst gerði Valdimar
mark úr víti og Geir bætti við
einu til að gera stöðuna 2-0.
Valsmenn höfðu síðan yfir-
höndina allan fyrri hálfleik en
aldrei komust þeir meir en
þetta eitt til tvö niörk yfir.
Staðan í leikhlé var síðan 8-6
fyrir Val - ekki hátt skor og
áttu markverðir liðanna mikinn
þáít í því.
Staðan:
FH 9 8 1 0 238-200 17
Valur .. . 7421 171-138 10
KR 7412 150-134 9
Vikingur 8 3 2 3 192-187 8
Þróttur .. 9 3 2 4 213-219 8
Stjarnan 9 2 2 5 190-205 6
Þór V ... 8 3 0 5 162-188 6
U.B.K. ... 9 1 0 8 176-221 2
Stjörnumenn byrjuðu af
krafti í síðari hálfleik og náðu
að jafna metin fljótlega 10-10.
Vaídimar kom Val yfir 11-10
en þá komu tvö mörk frá
Stjörnunniogstaðan 12-11 fyrir
þá. Nú var kornið að kaflanum
slæma sem skipti sköpum í
leiknum. Ekkert gekk hjá
Stjörnunni og Valsmenn gengu
svo sannarlega á lagið.
Valsmenn unnu þennan
leik á góðri vörn og frábærri
■ Það var aldrei spurning
hvort liðið myndi sigra er
Þróttur og Þór áttust við í
Laugardalshöll í gærkvöldi.
Þróttur hafði mcst 13 marka
forskot í seinni hálfleik 24-11
en leiknum lauk mcð 12 marka
sigri 27-15.
Þróttur komst í 4-0 og sókn
Þórs var mjög ráðvillt og vörn-
in vægast sagt léleg. Þessi muil-
ur hélst svo næstu mínúturnar,
þangað til staðan var 10-6 fyrir
Þrótt.
Þá byrjuðu Þórarar að
minnka niuninn, mest vegna
kæruleysis Þróttara, og komust
í 10-11 fyrir hlé, eitt mark
Þrótti í hag.
í seinni hálfleik tóku Þrótt-
arar strax öll völd og brunuðu
fram úr. Léleg vörn Þórs hafði
markvörslu. Stjörnumenn voru
nokkuð góðir framan af og
Brynjar varði allan leikinn frá-
bærlega. Alls vörðu þeir Einar
og Brynjar urn 17 skot hver.
Mörk Vals í leiknum gerðu:
Júlíus 6, Valdimar 6 (1), Þor-
björn Jenss. og Geir 4 hvor,
Jón Pétur og Jakob 2 hvor.
Fyrir Stjörnuna skoraði Hann-
es mest eða 6, Guðmundur
gerði 5, öll úr vítum, Eyjólfur
og Sigurjón 3 hvor og Magnús
Teitsson 2 mörk.
ekkert svar við sókn Þróttar.
Páll var tekinn úr umfcrð en
það breytti engu því allir Þrótt-
ararnir gátu labbað í gegn
þegar þeir vildu.
Ef ekki Itefði komið til stór-
brotin markvarsla Sigmars
Þrastar í marki Þórs hefði
munurinn örugglega orðið
meiri. Guðmundur í Þróttar-
markinu varði einnig mjög vcl
a!!s 20 skoí í ieikttm, stundum
mörg skot í hverri sókn Þórara.
Páll var markahæstur Þrótt-
ara ásamt Sverri, báðir skor-
uðu 8 mörk. Lárus gerði 4,
Birgir S. 3, Gísli 2, Helgi og
Birgir gerðu 1 hvor.
Hjá Þór skoraði Herbert
Þorleifsson mest eða 4 mörk,
Páll, Sigbjörn, Sigurður og
Stefán gerðu 2 og Böövar,
Elías og Steinar gerðu 1 hver.
Mjög lélegt
- er Þróttur vann Þór 27-15
VEREfTRYGGÐUR
3JAM^SIAÐA
REIKNINGUR
Arsvextir cmk verdtiyggingar
Stuttur
Unditími
25
Góð
ávöxtun
Landsbankinn sér um innlausn Spariskírteina Ríkissjóðs.
LANDSBANKINN
Græddur er geýmdur eyrir