NT - 01.03.1985, Síða 20
Föstudagur 1. mars 1985 20
Áttræður
stelur
ástarleið-
beiningum
Höfðaborg-Reuter
■ Áttræður öldungur
var í gær dæmdur sekur
um að hafa stolið bók
með ástarleiðbeiningum
úr bókabúð í Höfðaborg
í Suður-Afríku.
Öryggisvöröur í búð-
inni bar að hann hefði
séð gamla manninn
stinga undir buxna-
strenginn bókinni
„Learning to Love“
(Lærið að elska). Öld-
ungurinn þrætti fyrir
verknaðinn en var samt
dæmdur til að greiða sem
svarar um tvö þúsund ísl.
krónum eða fara í 45
daga fangelsi ella.
Þýskur kaupsýslumaður:
Vill kaupa nýru
lifandi fólks í
þriðja heiminum
Aachen-Keuter.
■ Sú ætlun vestur-þýsks kaup-
sýslumanns að kaupa nýru úr
lifandi fólki í þriðja heiminum
til að græða í landa sína hefur
vakið mikil mótmæli í heima-
landi hans.
Sjálfum finnst kaupsýslu-
manninum, Hajo Harrns, ekk-
ert ósiðlegt við ætlun sína og
segist ætla að greiða nýrnagjöf-
unum 100.000 mörk (um 12.5
millj. ísl. kr.) fyrir hvert nýra.
Þar með segist hann tryggja
þeim lífeyri ævina á enda ásamt
ævilangri læknisþjónustu.
Harms, sem segist vera lærður
læknir en hafa yfirgefið læknisr
fræðina fyrir kaupsýsluna, vildi
hvorki upplýsa hvernig liann
hygðist finna nýrnagjafa né með
hvaða hætti hann myndi flytja
nýrun til Vestur-Þýskalands.
Á síðasta ári fengu um 1300
Vestur-Þjóðverjar nýru úr látnu
fólki, en menn munu þó geta
fórnað öðru af tveimur nýrum
sínum og lifað af. Á hverju ári
fara 1000 vestur-þýskir nýrua-
sjúklingar á mis við nýrna-
ígræðslu vegna þess að ekki
tekst að útvega nógu mörg líf-
færi.
Eckehard Rentner sérfræð-
ingur í nýrnaígræðslum hefur
látið hafa eftir sér að fyrirætlanir
Harms séu bæði glæpsamlegar
og ósiðlegar og formaður vest-
ur-þýsku læknasamtakanna
sagði að Harms hefði í hyggju
að gera fólk í þriðja heiminum
að lifandi líffærabanka.
Því er jafnframt haldið fram
að fái Harms vilja sínum fram-
gengt muni opnast fyrir flóð-
gáttir misnotkunar á mannslíf-
um.
■ Shi Qinfu rekur fjölskvldufvrirtæki sem framleiðir dekk í lítilli
smáborg í Suður-Kína. Fyrirtæki hans er eitt af þeim 740.000
fyrirtækjum í eigu einstaklinga og sameignarfélaga sem að undan-
förnu hafa sprottið upp í kínverskum smábæjum og til sveita.
Leiðtogar flestra þessara fyrirtækja hafa litla þekkingu á mengun
og mengunarvörnum.
Ör efnahagsuppbygging
Kínverja eykur mengun
Feking-Keuter
■ Kínversk yfirvöld eru nú að
vakna til meðvitundar um þá
miklu mengunarhættu sem ör
iðnaðaruppbygging undanfar-
inna ára hefur haft í för með
sér. Kínverjar áætla að tjón
Háttsettur bandarískur embættismaður:
Barði eiginkonu
sína í sextán ár
VVashin^ton-Keuter
■ John Feddcrs, yfirmaður
eftirlitsnefndar bandaríska
verðbréfamarkaðarins, iét af
opinberu starfi sínu í dag
vegna reiði almennings í garð
hans eftir að það komst í
hámæli að hann hefur gengið í
skrokk á konu sinni síðastliðin
16 ár.
Afsögn Fedders fylgir í
kjölfar forsíðufréttar í Wall
Street Journal þar sem ofbeld-
issögu hans í hjónabandinu er
lýst í smáatriðum.
í réttarhöldum sem standa
nú yfir vegna skilnaðar þeirra
hjóna, sagði eiginkonan,
Charlotte, að hinn tveggja
metra hái eiginmaður hennar
hafi byrjað á því að berja hana
árið 1968 og haldið því áfram
þar til þau skildu að borði og
sæng árið 1983.
Fedders viðurkennir mis-
gjörðir sínar og segir að rifrildi
þeirra hjóna hafi sjö sinnum
endað með ofbeldi. Hannsegir
ennfremur að hann iðrist.
Charlotte hefur borið það
fyrir réttinum að maður henn-
ar hafi sprengt í henni hljóð-
himnurnar, tekið kyrkingar-
taki um háls hennar og hvað
eftir annað gefið henni glóðar-
augu meðan hjónabandið
varði.
Fedders, sem hefur verið
nokkuð umdeildur í starfi sínu
síðan hann tók við því árið
1981, lýsti því fyrir réttinum
að hann vonaðist til þess að ná
sáttum við konu sína.
Dómarinn í skilnaðarmál-
inu hefur nú frestað réttar-
höldunum í 90 daga til þess að
gefa hjónunum tækifæri til
þess að leita sátta.
■ Þrívíddarsjónvarpið 3DTV sem verður kynnt á sex mánaða tæknisýningu í japanska vísindabænum
Tsukuba sem hefst 17. mars næstkomandi.
Þrívíddarsjónvarp
■ Japanska stórfyrirtækið Það þarf ekki að nota sérstök
Matsushita hefur búið til sjón- þrívíddargleraugu til að horfa á
varpstæki fyrir þrívíddarmyndir sjónvarpið en slíkt hefur verið
sem fyrirtækið kallar 3DTV. nauðsynlegt við þrívíddarkvik-
Á mannaveiðum í
Vestur-Þýskalandi
IHúnchen-Reuter.
■ Yfirvöld bjóða nú
hverjum þeim sem veitt
getur upplýsingar er leitt
gætu til handtöku borgar-
skæruliða í vestur-þýska
ríkinu Bæjaralandi allt að
einni milljón marka í verð-
laun.
Þessi verðlaun eru þau
hæstu sem vestur-þýsk
yfirvöld hafa nokkru sinni
boðið fyrir mannaveiðar,
ásamt jjeim verðlaunum
sem boðin voru í síðasta
mánuði fyrir vísbendingar
sem leitt gætu til handtöku
nasistalæknisins Jósefs
Mengele.
Innanríkisráðherra
Bæjaralands, Karl Hill-
ermeier sagði verðlaunin
sett til höfuðs meðlimum
Rauðu herdeildanna sem
myrtu vopnaframleiðanda
nokkurn í nágrenni Mún-
chen í síðast liðnum mán-
uði og komu fyrir sprengju
í herskóla NÁTO í Ober-
ammergau í desember.
„Það er hugsanlegt að
upphæð verðlaunanna
muni losa um tungur
þeirra sem eru hliöhollir
skæruliðunum," sagði ráð-
herrann.
Lögreglan lýsti því yfir í
síðustu viku að hún hefði
fundið bílinn sem hún
héldi að skæruliðarnir
hefðu komist undan á en
hefði að öðru leyti engar
vísbendingar um viðkom-
andi skæruliða.
Umsjón: Ragnar Baldursson o« Sonja B. Jónsdóttir
Japan:
myndir og þrívíddarsjónvarp
hingað til. Talsmenn Matsus-
hita-fyrirtækisins segja að best
myndgæði náist ef áhorfandinn
sitji í um eins metra fjarlægð frá
skerminum sem er 24 tommur.
Þrívíddarmyndin helst þótt
áhorfandinn hreyfi sig í 24 senti-
metra til hvorrar áttar.
Þrívíddarmyndirnar eru
teknar með fimm samstilltum
sjónvarpstökuvélum sem tengd-
ar eru við myndbandstæki. Sér-
stakar linsur eru líka notaðar til
að fá sem best myndgæði og
skörpust þrívíddaráhrif.
Þrívíddarsjónvarpið verður
kynnt á vísindasýningu í jap-
anska háskóla- og tæknibænum
Tsukuba sem hefst 17. mars og
stendur í hálft ár.
vegna vatnsmengunar, súrs
regns, landfoks og ýmiss konar
mengunar og umhverfis-
skemmda nemi áriega um 350
milljörðum júönum (um 5000
milljörðum ísl. kr.).
Samkvæmt opinberri skýrslu
sem Kínverjar birtu árið 1982
dæla kínversk íðnfyrirtæki ár-
lega um 31 milljarði tonna af
menguðu affallsvatni í ár og höf
og 41 milljón tonnum af eitur-
gasi í andrúmsloftið auk þess
sem árlega hlaðast upp um 400
milljón tonn af alls konar föst-
um úrgangsefnum.
Þrátt fyrir þessa miklu meng-
un var það ekki fyrr en á sein-
asta ári að kínversk yfirvöld
settu ótvíræð lög um mengunar-
varnir með tilheyrandi refsing-
um fyrir þá sem valda mengun
eða öðrum umhverfisspjöllum.
Kolabrennsla er einn helsti
mengunarvaldurinn í Kína. Kol
eru um 70 prósent af öllu
brennsluefni sem Kínverjar
nota. Kolamengun er sérstak-
lega mikii í borgunum þar sem
hún hefur leitt til loftmengunar
og súrs regns. í grein í kínverska
hagfræðitímaritinu „Efnahagur
heimsins“, er því haldið fram að
samtals hafi 1,2 milljón ferkíló-
metra af landi orðið örfoka
vegna ofnýtingar og skógar-
höggs.
Aukinn hraði í efnahagsupp-
byggingunni að undanförnu og
aukið sjálfræði fyrirtækja hefur
leitt til jafnvel enn meiri meng-
unar. Nú þegar eru 740.000
fyrirtæki í smábæjum víðs vegar
í Kína sem starfa án beins
eftirlits ríkisins. Stjórnendur óg
starfsfólk þessara fyrirtækja
hafa yfirleitt litla hugmynd um
mengun og mengunarvarnir.
Þrátt fyrir mengunarvandann
munu stjórnvöld ekki hafa uppi
neinar áætlanir um að draga úr
hraðanum á efnahagsuppbygg-
ingunni. Þeir stefna ennþá að
því að fjórfalda þjóðarfram-
leiðsluna í Kína á seinustu
tveimur áratugum þessarar
aldar. Xue Baoding, yfirmaður
Þróunarstofnunar kínverskra
borga og sveita segir að Kínverj-
ar ráði nú þegar yfir þeirri
tækniþekkingu sem sé nauðsyn-
leg til að vinna bug á vistfræði-
legu ójafnvægi í landbúnaði og
mengun í iðnaði.
Sælgætiseitrarar hættir að eitra
Tokyo-Reuter
■ Hópur japanskra glæpa-
manna, sern hefur gert sælgætis-
framleiðendum í Japan lífið leitt
á undanförnum mánuðum með
því að eitra sælgæti í verslunum,
hefur tilynnt að sælgætisfram-
leiðendunum hafi nú verið gefin
grið.
Glæpamennirnir hafa kallað
sig „Manninn með andlitin 21”
eftir vinsælli japanskri glæpa-
málasögu. Þeir kröfðust pen-
inga frá ýmsum sælgætisfram-
leiðendum og hótuðu að eitra
sælgæti frá þeint ef þeirgreiddu
ekki.
Eftir því sem best er vitað lét
ekkert fyrirtæki undan fjárkúg-
uninni svo að glæpamennirnir
komu fyrir eitri í nokkrunt sæl-
gætispokum í verslunum. Eng-
inn varð samt fyrir eitrun þar
sem pokarnir voru allir merktir
með aðvörun um að það væri
eitur í þeim en sælgætissala
viðkomandi fyrirtækja dróst
ntikið saman vegna ótta al-
mennings við eitrið.
í síðustu viku samþykkti
Frjálslyndi flokkurinn, sem fer
nteð stjórn í Japan, drög að
lögum sent leggja allt að tíu ára
fangelsi við því að eitra matvör-
ur sem séu til sölu í verslunum.