NT - 01.03.1985, Side 21
Föstudagur 1. mars 1985 21
Tanaka á sjúkrahúsi:
Arne Treholt:
Skuggaforingi japönsku KGB-maðurinn
stjómmálanna ter slag I
■ Ókrýndur konungur jap-
anskra stjórnmála, Kakuei Tan-
aka, liggur nú á sjúkrahúsi í
Tokyo eftir aö hafa fengið vægt
heilablóðfall fyrr í þessari viku
að sögn lækna. Læknar segja
Tanaka ekki í lífshættu og spá
að hann muni jafna sig að mestu
á þrem til fjórum vikum.
Tanaka, sem nú er 66 ára, er
af mörgum talinn valdamesti
stjórnmálamaðurinn í Japan
þótt hann hafi neyðst til að
segja af sér sem forsætisráð-
herra árið 1974 eftir að upp
komst að hann hafði þegið mút-
ur frá bandarísku fyrirtæki.
Tanaka gekk þá úr Frjálslynda
flokknum sem hefur farið með
völd í Japan frá strfðslokum en
hélt samt áfram að stjórna öfl-
ugum hópi stuðingsmanna sinna
innan flokksins.
Frá því að Tanaka sagði af sér
sem forsætisráðherra hefur
hann samt haft úrslitaáhrif á
það hverjir nái kjöri sem
leiðtogar Frjálslynda flokksins
og verða þar . af leiðandi
forsætisráðherrar. Stuðnings-
mannahópur Tanaka í flokkn-
um er svo sterkur að í rúman
áratug hefur engum stjórnmála-
leiðtoga tekist að ná forystu í
flokknum án stuðnings Tan-
aka-hópsins.
Að undanförnu hafa sumir
samt talið sig greina merki þess
að Tanaka sé að missa
„konungs"valdið. Nokkriraffé-
lögunum í þingmannahópi Tan-
aka-klíkunnar hafa stofnað sér-
stakan klúbb sem þeir kalla
„Skapandi stjórnmálaklúbb".
Að nafninu til á klúbburinn að
vera náms- og umræðuhópur en
margir líta á stofnun hans sem
merki um óánægju meðlima
Tanaka-klíkunnar með einræði
Tanaka.
Ekki er ljóst hvaða áhrif veik-
indi Tanaka hafa á völd hans í
japönskum stjórnmálum. Að
sögn lækna er hann að hluta til
lamaður eftir slagið. En nái
hann sér aftur á fáeinum vikum.
eins og læknarnir spá, tekst
honurn sjálfsagt að halda völd-
um sínum að mestu lítt skertum
enn um sinn.
(Byggt á Reuter, Far Fastern Economic
Review og fleiri heimildum, rb)
Sovétríkin:
Kennari
springur
við sýni-
kennslu
-notaðióvartvirka
handsprengju
Morskva-Reuter:
■ Flandsprengja.semtalinvar
óvirk, sprakk inni í skólastofu,
með þeim afleiðingum að kenn-
arinn lét lífið, að því er dagblað
ungra kommúnista, Komsomol-
skaya Pravda skýrði frá í gær.
Kennarinn var að kenna
notkun handsprengja en sýni-
kennsla sem þessi er liður í
hernaðarlegri fræðslu eldri
skólabarna í Sovétríkjunum.
Þar sem börn voru að leik á
leiksvæði skólans, svo og á
ganginum, hljópkennarinnmeð
sprengjuna á afvikinn stað er
hann gerði sér Ijóst að hún var
virk. Síðan kæfði hann spreng-
inguna með líkama sínum.
Dollarinn aftur upp
Frankfurt-Reuter:
■ Bandaríski dollarinn hækk-
aði lítillega í gær eftir að hafa
lækkað skyndilega í fyrradag
þegar evrópskir bankar gripu
inn í og seldu mikið af dollurum
til að knýja fram lækkun hans.
Þrátt fyrir hækkunina í gær
hefur dollarinn ekki náð aftur
jafnháu gengi og í byrjun vik-
unnar.
Bandarísk stjórnvöld
hafna friðarumleitunum
forsetans í Nicaragua
\\ ashinglon-Reuter:
■ Hvíta húsið hafnaði í gær til-
lögum Daníels Ortega, forseta
Nicaragua um leiðir ti) þess að
draga úr spennu í Mið-Ameríku.
Ortega hefur boðist til að hætta
vopnakaupum og tilkynnti enn-
fremur að stjórn Nicaragua myndi
senda yfir 100 kúbanska hernaðar-
ráðgjafa heim til sín.
Tilboð stjórnarinar í Nicaragua
er í anda friðartillagna Contadora-
landanna - Mexico, Panama, Col-
ombíu og Venezuela - sem hljóða
uppá það að öllum erlendum hern-
aðarráðgjöfum verði vísað frá
Mið-Ameríku.
Bandaríkjastjórn er ákaflega
tortryggin á tillögur Ortega og
Reagan reynir enn að fá banda-
ríska þingið til þess að samþykkja
14 milljón dollara hernaðaraðstoð
við vopnaðar sveitir andstæðinga
stjórnarinnar í Nicaragua.
Eiturlyfjaforingi
handtekinnn
■ Lögreglan í Brasilíu handtók í
fyrradag foringja kólombísks glæpa-
hrings sem hefur búið um sig að
undanförnu í Brasilíu þar sem eitur-
lyfjaverslun vex nú dag frá degi. Með
handtöku hins illræmda glæpafor-
ingja, Gonzalez Ruiz, vonar lögreglan
í Brasilíu að nokkurt lát verði á vexti
eiturlyfjahringa þar í landi. Þessi
mynd var tekin af eiturlyfja kónginum
í gær þar sem hann var í vörslu
lögreglunnar. Lögreglan gætir greini-
lega fyllstu varúðar við gæslu þessa
hættuíega bófa. Simamynd: -POLFOTO.
Frá Arnþrúði Rarlsdóttur, frcttaritara
NT í Noregi
■ Arne Treholt sagði við
réttarhöldin í Osló í gær að
hann hefði umgengist KGB-
manninn Gennadij Titov
mjög mikið og látið hann fá
Ieyniskjöl meðal annars
vegna þess að honurn hefði
fundist spennandi að Titov
skyldi starfa fyrir sovésku
leyniþjónustuna KGB.
Treholt viðurkenndi að
hafa m.a. afhent KGB skjöl
árin 1981 og 1982 sem hefðu
verið merkt „trúnaðarskjöl"
en þá starfaði hann hjá Sam-
einuðu þjóðunum í New
York. En hann sagði að í
rauninni hefðu þessi skjöl
varla verið leyniskjöl þarsem
þau hefðu t.d. birst á síðum
New York Tirnes. Hann
sagðist því hafa álitið engu
máli skipta þótt hann léti
KGB-njósnara fá skjölin þar
sem þau hefðu hvort eð er
verið opinber.
Treholt hefur einnig viður-
kennt að hafa í maí árið 1983
látið Titov fá afrit af erindi
sem sendiherra Noregs í So-
vétríkjunum hélt í Varnar-
málaháskóla Noregs um „So-
vétríkin eftir Brezhnef".
Hann fullyrðir að erindið
hafi ekki skaðað öryggis-
hagsmuni Norðmanna frekar
en önnur skjöl sem hann hafi
látið KGB fá.
Treholt taldi fram fjórar
ástæður fyrir því að hann
' hefði látið Titov fá „léttvæg-
ar upplýsingar". í fyrsta lagi
hefði hann haft gaman af að
hitta Titov sem hefði haft
mjög svipaðar stjórnmála-
skoðanir og hann sjálfur. í
öðru lagi hafi verið spenn-
andi að hafa samband við
KGB-mann sem væri heims-
maður auk þess sem kynnin
af Titov hefðu boðið upp á
mörg skemmtileg ferðalög. í
þriðja lagi sagðist Treholt
hafa talið að gott samband
við Titov gæti leitt til betri
. samvinnu milli Noregs og
Sovétríkjanna. Að síðustu
sagði Treholt að sambandið
við Titov hefði gefið sér betri
yfirsýn yfir ástandið milli
Austur- og Vesturveldanna.
Treholt segist hafa hitt Tit-
ov seinast í ágúst 1983. Pá
hafi Titov beðið hann unr að
taka myndir af skjölum á
örfilmur fyrir sig. Treholt
segist ekki hafa viljað gera
það og því ákveðið að hætta
öllum samskiptum við Titov
og aðra KGB-menn. Hann
hafi verið á leið til að segja
Titov frá þessari ákvörðun
sinni þegar hann var liand-
tekinn í fyrra.
í réttarhöldunum í gær bar
Treholt einnig að hann hefði
velt því fyrir sér hvort hann
ætti ekki að hætta í utanríkis-
þjónustunni árin 1980 og
1981 þar sem hann hafði þá
talið sig vera kominn í hættu-
lega og erfiða aðstöðu.
Fékk greiðslur frá
írökum fyrir vopna-
skýrslu og kindakjöt
■ Treholt gerði í gær grein
fyrir tengslum sínum við
leyniþjónustu íraks sem
hann sagði m.a. til komin
vegna þrýstings frá grískum
vinum á meðan hann starfaði
í New York.
Hann sagði að írakar
hefðu beðið sig um að kanna
hvort þeir gætu fengið keypt
vopn og skotfæri í Skandi-
navíu. Hann hefði sent þeim
síðar skýrslu um álit annarra
ríkja á stríðinu milli íraka og
írana og ástandinu í Mið-
Austurlöndum. Skýrsluna
sagðist Treholt hafa byggt á
upplýsingum sern hann hefði
fengið í utanríksiráðuneyt-
inu og hefðu verið merktar
sem trúnaðarmál.
Treholt hélt því fram í gær
að hann hefði álitið að með
þessu hefði hann aðeins verið
að veita írökum góð ráð.
Fyrir vikið hefði hann svo
fengið 40.000 dollara þóknun
auk þess sem honum hefðu
verið boðnir 10.000 dollarar
fyrir kjötsölusamning sem
hann hefði reyndar ekkert
komið nálægt. Treholt segist
í fyrstu hafa hafnað „kjöt-
samningsþóknuninni" en
síðar hefði hann látið undan
þrýstingi frá grískum vinum
sínum og tekið við fénu.
Treholt sagði að írakar
hefðu boðið sér stöðu í leyni-
þjónustu sinni en hann hefði
að sjálfsögðu hafnað því.
Festið minningarnar á myndband
Yfirfærum allar tegundir kvikmynda og „slides,, á
myndbönd. Texti og tónlist sett meö ef óskaö er,
tökum einnig aö okkur aö yfirfæra myndbönd úr
N.T.S.C./SECAM kerfum í PAL. Nánari upplýsingar
veittar í síma: 46349.