NT - 01.03.1985, Page 22
Afríkumeistaraleiknum frestað:
Stelpurnar voru
of girnilegar
- fyrir leikmenn Highlanders
■ Highlanders heitir meist-
araliðið í knattspyrnu í Afríku-
ríkinu Swazi. Highlanders áttu
að keppa við Lesotho á sunnu-
daginn í Afríkukeppni mcist-
araliða og voru komnir til Mas-
heru þar sem leikurinn átti að
fara fram. Swazimeistararnir
voru hinsvegar ekki ánægðir
með hótelið sem þeir áttu að
dvelja á og heimtuðu að fá að
flytja á annað.
Astæðan var sú, að sögn
forráðamanna liðsins, að það
voru of margar girnilegar stelp-
ur á hótelinu sem þeim var
úthlutað. „Okkur var úthlutað
hóteli sem er ekkcrt annað en
drykkjubúlla og hórubæli í
þeirri von að leikmenn okkar
færu á kvennafar og misstu því
niður einbeitingu fyrir leikinn,"
sagði Moi Masilela fram-
kvæmdastjóri Highlanders.
Þeir fluttu á nýtt hótel en
gestgjafarnir segja að þeir vcrði
að borga kostnaöinn af því
sjálfir þar sem nýja hótelið er
mikið dýrara. Swazimeistar-
arnir samþykktu það en sögðu
um leið að þeir myndu kæra
þetta til afríska knattspyrnu-
sambandsins.
Innanríkisráðherra Swazi
sagði við Highlandersleik-
mennina áður en þeir fóru að
heiman: „Varið 'ykkur, það
verður örugglega reynt að tæla
ykkur..."
—
Knattspyrna:
■ liordeaux sigraði
Bnstia í I. dciid frönsku
knattspyrnunnar í fyrra-
kviild meö fjórum mörk-
uin gegn engu. Dietcr
Múller, himi þýski, skor-
aði þrjú al' mörkum Bor-
deux sem heldur forystu i
í Frakklandi.
B-lið Mexíkana í knatt-
spyrnu sigraöi Finna í vin-
áttulcik í Acapulco með
tveimur niörkum gegn
einu í fyrrakvöld.
Lhhv
■ Larry Bird verður á ferðinni i leiknum a morgun.
í sjónvarpi á morgun:
„All-Star“
■ Á morgun mun Bjarni
Felixson sýna í íþróttaþxtti
„All Star“-leikinn svo-
nefnda í körfuknattleik en
þessi leikur er viðureign liða
frá Austur- og Vesturdeild
bandaríska körluknattleiks-
ins.
Leikur þessi er venjulega
hið mesta „augnakonfekt"
enda mætast þarna allir
bestu körfuknattleiksmenn
Bandaríkjanna og þar með
einhverjir þeir bestu í heim-
inum. I lciknum, sem að
þessu sinni fór fram í „The
Hoosier Dome" í Indianap-
olis í lndiana-fylki, er að öllu
jöfnu mikið að gerast á gólf-
inu allan tímann og stjörnu-
leikmennirnir keppast um að
sýna sem bestan leik og vera
þar með útnefndir „Besti
leikmaður leiksins" (The
Most Valuable Player). Það
þykir alla jafnan mikill heið-
ur að hljóta þcnnan titil
enda valið oft mjög erfitt.
Að þessu sinni varð fyrir
leikurinn
valinu Ralph Sampson sem
spilar með Houston
Rockets. Hann er á þriðja
metra á hæð og skoraöi
grimmt fyrir Vesturströnd-
ina sem vann leikinn að
þessu sinni. Austurstrandar-
liðið hefur annars oftast unn-
ið þennan leik.
Af þeim leikmönnum sem
hvað mest ber á í leiknum
má nefna Sampson, Kareen
Abdul-Jabbar og nýja risann
í NBA-deildinni Akeem
„The Drearn" Olajuwan
sem spilar með llouston eins
og Sampson. Þessir leik-
menn spila allir með liði
Vesturstrandarinnar. Hjá
Austurströndinni má nefna
Larry Bird, Julius Erving og
Moses Malone. Að ó-
gleymdum Isiah Thomas
sem kosinn var „Besti leik-
maðurinn" í leiknum í fyrra.
Þá er bara að stilla tækin
rétt, fá sér kók og popkorn
ög njóta leiksins.
■ Guðni Halldórsson formaður FRÍ og Ólafur B. Schram framkvæmdastjóri Adidas á íslandi
takast í hendur eftir að samningurinn var undirritaður. NT-mynd: Sverrir.
1. mars 1985 22
Evrópubikarkeppnin:
Gert verður við
Laugardalsvöllinn
■ „Við höfum fengið
loforð fyrir því að það
verði gert við hlaupa-
brautirnar á frjálsíþrótta-
vellinum í Laugardal fyrir
Evrópubikarkeppnina í
frjálsum hér í sumar. Við
treystum því að það verði
gert, en okkar aðalvanda-
mál hefur verið að skrif-
stofumenn, sem aldrei
hafa séð völlinn og
mundu detta á hausinn ef
þeir hlypu á brautinni í
Laugardal, hafa verið að
skera niður í þetta sntá-
peninga sem duga ekki til
neins" sagði Guðni Hall-
dórsson formaður FRÍ á
blaðamannafundi í gær.
E vrópubikarkeppnin,
C-flokkur, verður mjög
sterkt mót þar sem keppa
allir sterkustu frjáls-
íþróttamenn íslands, og
annarra Norðurlanda.
Þar má nefna Patrik
Sjöberg, sem átti heims-
metið í hástökki innan-
húss í tvo sólarhringa um
síðustu helgi...
Stórsamningur FRÍ og Adidas:
ÍÞRÓTTABÚNADUR
FYRIR 2,8 MILU.
■ í gær var á blaðamanna-
fundi á Gauki á Stöng undirrit-
aöur einn stærsti samningur
sem sérsainband innan ÍSI hef-
ur gert við fyrirtæki, þegar
Frjálsíþróttasamband íslands
og Adidas gengu frá auglýs-
ingasamningi sín á milli. Adi-
das skuldbindur sig í samningn-
um til að láta FRÍ í té æfinga og
keppnisbúnað að verðmæti kr.
Hörkubardagi:
írak:
Deildinni
■ Keppni í 1. deild knatt-
spyrnunnar í írak hefur verið
frestað nú þegar hún er tæplega
hálfnuð og refsingum létt af
leikmönnum sem leika með
landsliðinu.
Þetta er gert til að landsliðið
geti undirbúið sig af fullum
krafti fyrir undankeppni HM
sem liefst í mars.
Öllum refsingum sem leik-
menn landsliðsins voru dæmdir
700 þúsund árlega til ársloka
árið 1988, en þá framlengist
samningurinn um eitt ár í einu,
nema annar hvor aðilinn segi
honum upp með þriggja mán-
aða fyrirvara.
Björgvin Schram, forstjóri
Adidasumboðsins á íslandi,
heildverslunar Björgvins
Schram hf, sagði um leið og
frestað
í vegna lélegrar frammistöðu á
Ólympíuleikunum í Los Ange-
les hefur verið aflétt og fangels-
isdómum einnig, en þeir leik-
menn sem ónáða dómarann í
leikjum í írak er umsvifalaust
varpað í steininn.
IFA, knattspyrnusamband
íraks, rak landsliðsþjálfarann
Ammu Baba eftir Olympíu-
leikana og nýr verður ráðinn í
hans stað.
hann kynnti hvað til stæði að
sér væri óblandin ánægja að
taka þátt í slíku samstarfi sem
þessu við FRÍ, sem fælist í að
gera frjálsíþróttamönnum lífið
ánægjulegra með því að þeir
kepptu í svo fallegum búning-
um og góðum búnaði. Guðni
Halldórsson formaður FRÍ,
sagði að samningurinn tryggði
íslensku landsliðs-og úrvals-
flokka frjálsíþróttafólki allan
nauðsynlegasta búnað svo sem
keppnisgalla yst sem innst, æf-
ingagalla, sokka, töskur,
keppnisskó fyrir hinar ýmsu
greinar svo og æfingaskó og
búninga. „Þeir í höfuðstöðvum
Adidas ytra vita að árangur
íslensks frjálsíþróttafólks hefur
verið með ólíkindum góður á
undanförnum árum, og þar af
leiðandi er þessi samningur til
kominn. Ef ekki hefði verið til
að dreifa afreksmönnum sem
hafa verið á heimsmælikvarða
undanfarin ár hefði þessi samn-
ingur aldrei komið til, þá hefði
ekki verið neitt til þess að
semja um,“ sagði Guðni.
Guðni sagði að samningur-
inn væri einnig að þakka þeim
manni sem allra manna mestan
áhuga hefði á frjálsíþróttum og
uppgangi þeirra, fyrrum for-
manni og nú heiðursformanni
FRÍ, Erni Eiðssyni. Hann hefði
rætt slíkan samning í mörg ár
við háttsetta menn innan stór-
fyrirtækisins Adidas í mörg ár,
og Örn, sem ætti íslandsmet í
þrjósku og þrákelkni í vinnu að
framgangi frjálsíþrótta hefði
sett persónulegt met er hann
kom þessum samningi fram.
Guðni þakkaði Adidasfyrir-
tækinu mjög og sagði að samn-
ingur sem þessi væri ómetan-
legur fyrir samband sem sífellt
ætti við fjárhagsvandræði að
stríða, og ómetanlegur íþrótta-
mönnunum sjálfum sem ein-
göngu fengju styrki í „útflutn-
ingsbótum" í formi skóla-
styrkja.
Samningurinn
Ólafur B Schram, fram-
kvæmdastjóri Heildverslunar
Björgvins Schram sagði að
Heildverslunin hefði oft styrkt
íþróttamenn á þennan hátt,
„en við höfum aldrei haft bol-
magn til að gera svona samning
einir. þó okkur hafi langað til.
V'ið skrifum untíir þennan
samning fyrir hönd ADIDAS-
fyrirtækisins, og ef þessi varn-
ingur væri keyptur út úr búð,
sem FRÍ fær árlega, mundi
hann kosta hvorki meira né
minna en 700 þúsund krónur."
Þessi upphæð er á núgildandi
gengi krónur 2,8 milljónir, sé
reiknað fyrir árin fjögur sem
samningurinn gildir.
í samningunum er kveðið á um
að árlega láti Adidas FRÍ í té
50 stk. æfingagalla, 50 stk.
trimmgalla, 100 stk. T-boli, 50
stk. töskur, 100 stk. vesti, 100
stk. stuttbuxur, 100 pör sokka,
50 pör keppnisskó, 50 pör æf-
ingaskó, fyrir þau keppnismót
sem sambandið tekur þátt í á
sammningstímabilinu. í stað-
inn skuldbindur FRÍ sig til þess
að allir sem keppa á vegum
sambandsins klæðist eingöngu
ADIDAS í öllum keppnum
innanlands og erlendis, á öllum
æfingum sem opnar eru blaða-
mönnum og almenningi, í við-
tölum við fréttamenn og við
önnur tækifæri á vegum FRÍ.
FRÍ heimilar Adidas að kalla
sig „Official Supplier to the
Track and Field Federation of
Iceland“ (Opinberan framleið-
anda Frjálsíþróttasambands
íslands). Sömuleiðissamþykkir
FRÍ að gera ekki auglýsinga-
samninga við samkeppnisaðila
ADIDAS.
Sekt sem FRÍ verður að
greiða, ef samningurinn er
brotinn er 20 þúsund þýsk
mörk, (240 þús. ísl. kr.). „Það
er ósköp einfalt, við getum
ekki valið keppnismenn sem
vilja ekki nota ADIDAS, eða
eru samningsbundnir við aðra,
því við höfum ekki efni á að-
greiða sektir. Þetta hefur kom-
ið upp í fjölmörgum löndum,
og samböndin bregðast þannig
við, það er eina raunhæfa leið-
in,“ sagði Guðni Halldórsson
um þetta mál.
„Pressukarate“
■ Fyrsta „pressukeppni" í
karate verður háð í Digranesi í
Kópavogi á morgun kl. 16.30.
Þar eigast við landsliðið í kar-
ate sem valið er af Ólafi Wall-
evik, landsliðsþjálfara og
„pressuliðið" sem stjórnað er
af Ævari Þorsteinssyni. Lands-
liðið er skipað eftirtöldum
mönnum: Atli Erlendsson,
Árni Einarsson, Karl Sigur-
jónsson, Stefán Alfreðsson,
Ómar ívarsson og Sigþór
Markússon. í „Pressunni“ eru
eftirtaldir kappar: Gísli Klem-
ensson, Hannes Hilmarsson,
Sigurjón Kristjánsson, Ágúst
Österby, Sveinbjörn Imsland,
Svanur Eyþórsson, Einar
Karlsson, Erlendur Arnarson
og Ævar Þorsteinsson.
í hléi í leiknum þá verða
sýnd bardagaatriði sem mörg
hver eru spennandi. Eru allir
hvattir til að mæta í Digranesið
og horfa á spennandi karate-
keppni.
I sambandi við þessa keppni
má nefna að í dag verður
formlega stofnað Karatesam-
band Islands (KAÍ). Karate
hefur verið til hér á landi í 10
ár en nú fyrst munu þau félög
sem starfandi eru á landinu
sameina krafta sína í nýju
sambandi. Stofnfélög KAÍ eru:
Karatefélag Reykjavíkur, Kar-
atefélagið Þórshamar Rvk.
Karatedeild Stjörnunnar Gb,
Karatedeild Breiðabliks
Kópav., Karatedeild Gerplu
Kópav., karatedeild UMF
Selfoss, Karatedeildin Höfn í
Hornafirði, Kratedeild FH
Hafnarfj., Karatedeildin Nes-
kaupstað, Karatedeildin
Hvolsvelli og Karatedeildin
Álftanesi.