NT - 01.03.1985, Page 23
1 ll íþróttir
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Y Ireinastari igl
0 ig vitleysa er
rr- 1 S sigraði íl
- með tveimur stigum í gærkvöldi
■ Einn leikur fór fram í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik í
gær. Tvö neðstu liðin ÍS og ÍR
kepptu í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans og var viðureign þess-
ara liða hugsanlega smá for-
smekkur að því sem koma skal er
þessi lið keppa um hvorir haldi
sæti sínu í úrvalsdeildinni. í
Knattspyrna:
■ Enska félagið Totten-
ham Hotspur sigraði
norska landsliðið í knatt-
spyrnu í æfingaleik á
White Hart Lane í
Lundúnum í gærkvöldi.
Leiknum lauk 3-2 eftir að
Spurs var yfir í hléi 2-0.
Cooke, Crooks og Lew-
arth skoruðu fyrir Spurs
en Daidsen og Ahlsen
fyrir Norðmenn.
Uberroth heiðraður
■ Peter Uberroth, sem
var fyrir forsvari ólym-
píunefndar Bandaríkj-
anna fyrir ÓL-leikana
síðasta sumar í Los Ange-
les, var útnefndur maður
ársins af bandaríska
íþróttaritinu „Sporting
News“. Aðalástæðan fyr-
ir útnefningunni var sú
að leikarnir þóttu takast
með afbrigðum vel og
skiluðu líka mjög miklum
hagnaði, réyndar 400
milljónum dollara (1.6
milljarði ísl. kr.). Banda-
ríkjamönnum er auðvitað
óskaplega vel við Uberr-
oht fyrir að stuðla að
öllum þessum gróða og
svo segja þeir hjá „Sport-
ing News“ að leikarnir
hafi verið Bandaríkja-
mönnum til mikils sóma
og góð auglýsing fyrir
land og þjóð.
stuttu máli þá sigruðu Stúdent-
ar í algjörum delluleik þar sem
ekki aðeins leikmenn fóru á
„kostum“ heldur og dómarar
leiksins. Voru þeir víðáttu
skrautlegir, báðir. Lokatölur
voru 79-77 eftir að Stúdentar
höfðu einnig leitt í hléi 38-31.
Eins og fyrr sagði þá var
leikurinn ein alsherjar della
sem spannst út frá hræðilegri
dómgæslu og barnalegum mis-
tökum leikmanna beggja liða.
Það sem réð sennilega úrslitum
í þessum leik var að Stúdent-
ar voru miklu frískari í frá-
köstunum og á tímabili í fyrri
hálfleik þá áttu ÍR-ingar ekkert
frákast, hvorki við sína körfu
né Stúdenta.
Stigin í þessum leik sem
engu skipti ÍS: Valdimar 18,
Ragnar 17, Árni 15, Helgi 11,
Guðmundur 12, Ágúst 4 og
Þórir 2. ÍR: Björn 17, Kristinn
13, Hjörtur 12, Gylfi 8, Karl 7,
Bragi og Hreinn 6 og Ragnar 4.
Dómarar voru Bergur og
Kristján og fá þeir hauskúpu í
einkunn.
■ ísak átti nokkuð góðan leik í gær fyrir Njarðvíkinga. Hann brást þó á mikilvægu augnabliki í
lokin. . NT-mynd: Sverrir.
Bikarkeppni KKÍ-8 liða úrslit:
Isak „klikkaði“ í lokin
og Haukar rúlla áfram
- í bikarkeppninni - Æsispennandi leikur í Njarðvíkum
FráÓlafí Þórfrctlarilara NT áSuóurncsjum:
■ „Þá er ísinn brotinn. Ég
sagði það síðast að það væri í
lagi að tapa þeim leik sem
skipti engu máli. Það sem skóp
þennan sigur okkar fyrst og
fremst var að við breyttum um
vörn úr 1-3-1 en fórum að
klippa út kantana en létum
bakverðina leika lausa og We-
bster fara meira út á móti þeim.
Við þetta náðum við líka að
halda Val í skefjum,“ sagði
Einar Bollason þjálfari Hauka
eftir fyrsta alvöruleik vetrarins
sem fram fór í Njarðvík í gær
og endaði með 76-75 sigri
Hauka. Leikurinn var í 8 liða
B-keppnin í Noregi:
Naumt hjá Sovét
- rétt mörðu Tékka 22-21 og mæta A-Þjóðverjum í úrslitum
munu spila um 1. og 2. sætið á og Spánn og Ungverjaland um
HM-B á sunnudaginn kemur
Frá Amþrúði Karlsdóttur fréttaritara NT í
Noregi:
■ Sovétríkin og A-Þjóðverjar
■ Það fer ekki á milli mála
að Rinat Dassajev er einn af
bestu markvörðum heims í
knattspyrnu. Þessi 27 ára
gamli kappi setti um daginn
nýtt met með liðið sínu Spar-
tak Moskva. Hann spilaði
sinn 215. leik og hélt mark-
inu hreinu í 100. skipti.
þar sem báðar þjóðirnar unpu
sína leiki í gærkvöldi. Úrslitin í
gærkvöldi urðu annars: Sovét-
ríkin-Tékkóslóvakía 22-21,
Finnland-Noregur 24-29,
Spánn-Frakkland 30-22, Pól-
land-A-Þýskaland 21-25, Búl-
garía-Bandaríkin 18-16 ogHol-
land-Ungverjaland 19-25.
Staðan í riðlunum eftir leiki
kvöldsins er þannig að í A-riðli
eru Sovétmenn efstir með 10
stig, Tékkar 8, Spánn 6, Noreg-
ur 3, Finnland 2 og Frakkland
1. í B-riðli fengu A-Þjóðverjar,
Pólverjar og Ungverjar 8 stig,
Búlgaría 3, Bandaríkin 2 og
Holland 1. A-Þjóðverjar vinna
á markatölu.
Á laugardag leika Pólland og
Tékkóslóvakía um 3.-4. s^etið
5.-6. sætið. Á sunnudaginn
leika auk Sovétmanna og A-
Þjóðverja, Norðmenn við Búl-
gara um 7.-8. sætið og Banda-
ríkjamenn við Finna um 9.-10.
sætið.
Norðmenn eru að vonum
ánægðir með sín úrslit enda
hafa þeir nú tryggt sér sæti sem
B-þjóð. Þeir höfðu alltaf yfir-
höndina gegn Finnum og leiddu
minnst með fjórum mörkum.
Staðan í hálfleik var 15.-9.
Sovétmenn áttu í erfiðleik-
um með Tékka sem höfðu yfir
í hléi 9-8. A-Þjóðverjar spiluðu
góðan varnarleik og Pólverjum
tókst ekki að skora mark fyrstu
11 mínútur leiksins.
Markahæsti leikmaður móts-
ins er Kowacs frá Ungverja-
landi sem gert hefur 52 mörk.
úrslitum bikarkeppni KKÍ og
eru Njarðvíkingar þar með úr
leik. Staðan í hléi í gærkvöldi
var 31-30 fyrir Njarðvík.
„Þetta var fyrst og fremst
óheppni," sagði Gunnar Þor-
varðarson þjálfari Njarðvík-
inga eftir leikinn, „menn mínir
runnu tvívegis til á blautu gólf-
inu í hraðaupphlaupum í lok
leiksins, það kostaði 4 stig sem
skipta sköpum í svo jöfnum
leik sem þessurn," bætti Gunn-
ar við.
Já það var hart barist og
bleytan á gólfinu stafaði af því
að svitinn lak af mönnum en
ekki af því að neinn hafi dottið.
Fyrri hálfleikur var jafn og
skiptust liðin á að hafa forystu.
í síðari hálfleik, sem var mjög
skemmtilegur, þá skoruðu liðin
mikið af stigum í einskonar
skorpum. Er 46 sek. voru eftir
var staðan 76-71 fyrir Hauka.
Allt ætlaði um koll að keyra í
„Ljónagryfjunni" er Njarðvík-
ingar skora 73-76. Haukar fara
í sókn en mistekst og heima-
menn ná boltanum, fsak reynir
þriggja stiga skot er 8 sekúndur
eru eftir en Henning brýtur
klaufalega á honum og ísak fær
þrjú vítaskot og getur jafnað.
Hann klikkaði í fyrsta skotinu
en hitti úr hinum og Haukarnir
héldu boltanum það sem eftir
var.
Stigin, Njarðvík: Valur 18, Hreidar 15,
lsak 12, Ellert 10, Jón Viöar 8, Helgi 6 og
Árni 4. Haukar: Hólfdán 17, ólafur 15,
Webster 13, Pálmar 11, Henning 8,
Kristinn og ívar Ásgrimsson 6 hvor.
Asvel í úrslitum
- ásamt Barcelona í EM bikarhafa í körfu
■ FC Barcelona frá Spáni og
Asvel Villeurbanne frá Frakk-
landi mætast í úrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa í körfuknatt-
leik í vor.
FC Barcelona, núverandi
Evrópumeistarar, sigraði
spönsku bikarmeistarana, Cai
Zaragoza 86-79 í Barcelona í
fyrrkvöld, en Zaragoza vann
fyrri leikinn 84-79. Barcelona
vann því samanlagt 165-163.
Stigahæstur í liði Barcelona í
leiknum í fyrrakvöld var Sibilio
með 30 stig, og Epi skoraði 21.
Riley og Garris voru stigahæstir
Zaragozamanna, með 17 stig
hvor.
í hinum undanúrslitunum
sigraði Asvel Villeurbanne so-
véska liðið Zalgiris Kánas 93-88
í Lyon. Sovéska liðið vann fyrri
leikinn 83-79, og Villeurbanne-
liðið vann því samanlagt 172-
171. Stigahæstur leikmanna
franska liðsins var Bell með 25
stig, og Larrouquis skoraði 17.
Sabonis skoraði mest Sovét-
mannanna, 25 stig, en Kurti-
nætis 24.
1.mars1985 23
Knattspyrna:
Asía og Afríka
■ Þrír leikir fóru fram í
undanriðlum HM í knatt-
spyrnu í Afríku og Asíu.
Japanir og Singapore
áttust við í Singapore og
eftir jafnan fyrri hálfleik,
staðan var 1-1 í leikhléi,
settu Japanir allt á fullt
og náðu að skora tvö
mörk og sigra 3-1.
Mörkin skoruðu Kaz-
ushi Kimura á 10. mínútu
fyrir Japan beint úr horn-
spyrnu en Yahya Madon
jafnaði á 39. mínútu.
Strax á fyrstu mínútu
seinni hálfleiks skoraði
Koichi Hashiradani og á
57. mínútu skoraði Hara
Hiromi með skalla af
stuttu færi eftir auka-
spyrnu. Þriðja liðið í riðl-
inum er Norður-Kórea og
mæta þeir Japönum 21.
marsíJapan.
í 4. Asíuriðlinum vann
Hong Kong stórsigur á
Barner, 8-0. Mak Kin-
Fun skoraði 4 mörk, Lau
Wing-Yip tvö og þeir
kumpánar Lai Wing-
Cheung og Sze Wai-San
eitt hvor...
...í Afríku var einn
leikur Súdan og Líbýa
gerðu markalaust jafn-
tefli í fyrri leik liðanna.
Seinni leikurinn fer fram
í Trípólí í Líbýu 8. mars.
Þá sigraði Túnis Gíneu
2-0, og fer áfram í þriðju
umferð, tapaði fyrri
leiknum aðeins 0-1.
Knattspyrna:
Kínverjar til
Mexíkó?
■ Vonir Kínverja um
aö komast í úrslitakeppni
HM í knattspyrnu í Mex-
íkó eftir rúmt ár glæddust
til muna er þeir sigruöu
Burnei 8-0 um daginn.
Kínverjar hafa nú 5 stig
úr 3 leikjum í sínum riðli
og eru næsta öruggir að
komast í seinni umferð
undankeppninnar í Asíu.
í síðustu heimsmeist-
arakeppni töpuðu Kín-
verjar fyrir Ný-Sjálend-
ingum í úrslitaleikjum um
það hvort liðið kæmist til
Spánar svo þeir munu
gera allt til að komast til
Mexíkó og taka þátt í
úrslitakeppninni í fyrsta
skipti
Badminton:
■ Unglingameistaramót
íslands í badminton verð-
ur haldið í Laugardalshöll
dagana 16. og 17. mars
n.k. Keppt verður í öllum
greinum eftirtalinna
flokka ef næg þátttaka
fæst.
Hnokkar/tátur f.'73 og siðar
Sveinar/meyjar f. '71-72
Drengir/telpur f. '69Í70
Piltar/stúlkur f. '67-’68
ÞátttökutilkynningaT
þurfa að berast til B.S.Í.
fyrir 9. mars næstkom-
andi.
Tennis
■ Tékkneska stúlkan
Hanna Mandlikova sigr-
aði stöllu sína frá Banda-
ríkjunum, Chris Evert
Lloyd, í úrslitaleik á
tennismóti í Oakland í
Bandaríkjunum um helg-
ina. Hrinurnar fóru 6-2
og 6-4 og kom sigur
Mandlikovu nokkuð á
óvart.
Hún varð líka rúmum
milljón krónum íslensk-
um ríkari fyrir vikið.