NT - 07.03.1985, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 7. mars 1985 - 64. tbl. 69. árg.
Á laf ossi slepp t en
vitaí 5 um smyi jlið!
„Smygl“hólfin voru tóm - Leitað í gámum í nótt
■ Þrátt fyrir að leit um
borð í Álafossi hafi verið
hætt síðdegis í gær töldu
tollyfírvöld sig enn fullviss
um að tollskyldum smygl-
varningi hafi verið skipað
um borð í Áiafoss í erlendri
höfn. Þá staðfesti Kristinn
Ólafsson tollgæslustjóri í
samtali við NT að leit í öllum
hugsanlegum hólfum skips-
ins tæki langan tíma og langt
því frá að tekist hafí að Ijúka
henni.
Seint í gærdag fundu toll-
verðir hólf í vélarrúmi skips-
ins sem ekki voru í skipinu
síðast þegar leitað var í því
og telur tollgæslustjóri
möguleika á að í þessu hólfi
hafi varningurinn verið
falinn. Má þá ætla að honum
hafi annað tveggja verið
komið í land með öðru skipi
eða að skipverjar hafi laurn-
að varningnum í sjóinn með-
an leitað var.
Um 150 gámum var skipað
frá borði í gærkvöldi undir
ströngu eftirliti tollvarða sem
væntanlega ætla ekki að láta
það henda aftur sem gerðist
fyrir fáeinum árum við svip-
aðar kringumstæður að einn
gámurinn úr Álafossi hvarf
eftir að i land var komið.
Álafoss hefur oft áður leg-
ið undir grun vegna smygls
og í mörgum þeim tilvikum
hefur tollgæslan fundið það
sem að var leitað. Þó minnast
menn þess atviks þegar þyrla
var send út í Álafoss þar sent
hann var á leið í land og höfð
uppi mikil en árangurslaus
leit í skipinu að varningi sem
tollgæslan taldi að væri um
horð.
Geir býður sig
fram næst Ifka
- hafnaði í sjöunda sæti
síðast. Tímaritið Mannlíf
■ Geir Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra, hyggst gefa kost á
Jóhann vann
de Firmian
■ Jóhann Hjartarson
vann de Firmian í 4. um-
ferð skákmótsins í Kaup-
mannahöfn í gær. Helgi
Ólafsson á jafnteflislega
biðskák gegn Bent
Larsen.
Smyslov vann Svíann
Karlsson og efsti maður
mótsins Pinter gerði jafn-
tefli við Curt Hansen.
Helgi Ólafsson vann í gær
biðskák sína við Hansen
úr 3. umferð. Helgi hefur
því 2 vinninga og biðskák
og Jóhann 2!/5 vinning að
loknum fjórunt umferð-
um.
sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir næstu kosningar, en
álitið var að hann ntundi draga
sig í hlé.
Petta kemur m.a. fram í við-
tali við Geir í tímaritinu Mann-
líf sem kemur út í dag. í viðtal-
inu segir Geir að hann vonist til
þess að „hann hafi traust kjós-
enda“, en í síðasta prófkjöri
varð Geir í sjöunda sæti, og
náði ekki á þing, en situr sem
utanríkisráðherra og svokallað-
ur „oddviti ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins".
í viðtali Mannlífs minnist
Geir á ríkisstjórnina og segir að
hún geti nagað sig í handabökin
fyrir að hafa ekki dregið úr
spennu og þenslu á vinnu-
markaðnum - það hafi valdið
yfirborgunum og almennum
kaupkröfum sem útflutnings-
atvinnuvegirnir hafi ekki staðið
undir.
■ „Það er verið að snyrta og fegra hérna í kring,“ voru einu upplýsingarnar sem fengust
um skurðgröft Flugmálastjórnar.
NT-mynd: Arni Bjama.
Jón Baldvin:
Danir og Norðmem lættu
að segja sig úr NATO
- ef þeir vilja kaupa f rið við Rússa og biður jafnframt Finna afsökunar!
■ Jón Baldvin Hannibalsson
var án efa maður dagsins á þingi
Norðurlandaráðs í gær þótt
hann eigi ekki sæti í íslensku
þingnefndinni. Hann hefur
vakið mikinn úlfaþyt meðal
jafnaðarmanna á Norður-
löndunum með ummælum sín-
um um stöðu þessara landa í
afvopnunarmálum í grein sem
ekki hefur enn birst opinberlega
en skandinavískir fréttamenn
hafa fengið að vita innihaldið í.
í greininni ásakar Jón sænska
utanríkisráðherrann um að
þykjast hvorki heyra né sjá þótt
Eystrasaltið sé fullt af kafbátum
og hann segir að Finnar séu í
sömu aðstöðu og Afganir. Þeir
séu hlutlaust smáríki á landa-
mærum Gulagsins og allir viti
hvernig hafi farið fyrir Afgön-
um. Undirstrikar hann að eina
leiðin til þess að fjarlægja kjarn-.
orkuvopn sé gagnkvæmir samn-
ingar og segir hann að einhliða
yfirlýsingar um að hætta frekari
hervæðingu séu til þess eins
fallnar að slá vopnin úr höndum
.okkar áður en sest sé að samn-
ingahorði og þar með að eyði-
leggja samningsstöðu lýðsræðis-
ríkjanna.
Skandinavískir blaðamenn
gerðu harða hríð að Jóni Bald-
vin er hann leit inn í Þjóð-
leikhúsið í gær og þar lýsti hann
því yfir að hann hefði aldrei
notað orðin Finnlandisering um
viðskipti Finna og Sovétmanna
og því gæti hann ekki beðið
Sorsa, forsætisráðherra Finna,
afsökunar á því orðalagi en
honum þætti leitt að þessi mis-
skilningur hefði komið upp.
Þessi ummæli á Jón Baldvin að
hafa viðhaft í sjónvarpsþætti í
desember s.l. og munu þau hafa
verið ástæðan fyrir því að for-
sætisráðherra Finnlands af-
þakkaði að koma í boð íslenskra
jafnaðarmanna á mánudags-
kvöldið sem leið.
í gærkvöldi skoðaði Jón hins
vegar áðurnefndan sjónvarpsþátt
og í kjölfar hans hefur Jón
ákveðið að biðja Sorsa afsökun-
ar á ummælum sínum, sem
munu hafa verið rétt eftir höfð
eftir allt saman.
Gagnrýndi Jón Baldvin jafn-
aðarmenn fyrir að hafa dregið í
land í öryggismálapólitík sinni
en íslenskir jafnaðarmenn
standi fast við þá pólitík sem
þeir mörkuðu í þessum málurn
1979. Sendir hann Anker Jörg-
ensen og Gro Harlem Brundt-
land tóninn í fyrrnefndri grein
þar sem segir að „ef einstaka
þjóðir vilja taka sig út úr og
kaupa sér firð við Rússa á kostn-
að frelsis og mannréttinda lýð-
ræðisríkjanna, þá ber þeim ein-
faldlega skylda til að segja sig úr
NATO.“
Sjá nánar um viðbrögð fjöl-
miðla á Norðurlöndum á bls. 3.
Tjöminni
breyttí
forarpytt?
■ „Það er verið að eyði-
leggja perlu Reykjavikur,"
sagði Þórleifur Kinarsson
jarðfræðingur i gær. Þar átti
hann við tjörnina, því ef
ekki verður gripið til skjótra
aðgerða cr hætta á að fugla-
lífi í miðbæ Reykjavíkur
verði útrýint og tjörnin, sem
er heimsfrægt einkcnnis-
merki Reykjavíkurborgar,
breytist í forarpytt.
Það er skurðgröftur í
Vatnsmýrinni, sem ógnar
fuglalífinu. Skurðir voru
grafnir að tilstuðlan Flug-
málastjórnar, en tiigangur-
inn er ekki ljós. „Það er
bara verið að snyrta og fegra
hérna í kring,“ sagði einn
starfsmaður Flugmálastjórn-
ar í gær, en vísaði að öðru
leyti til flugmálastjóra. Ekki
tókst að ná tali af honum í
gær.
Sérfræðingar segja að
skurðirnir þurrki upp Vatns-
mýrina og eyðileggja varp-
stað fuglanna, sem setja nú
svip sinn á miðbæinn og
tjörnina.
Skurðgröftur í Vatnsmýrinni: