NT - 19.05.1985, Síða 7
iæ
■ Loftræstiturninn
hæöir. Á „topp" hæðinni koma
bankastjórarnir til með að hafa
skrifstofur sínar með útsýni
yfir höfnina og til Esjunnar, en
2.-5. hæð aðalbyggingarinnar
verða notaðar undir skrifstofur
hinna ýsmu deilda bankans og
fyrirþjóðhagsstofnun. Samtals
er þetta skrifstofuhúsnæði ann-
arrar til fimmtu hæðar aðal-
byggingarinnar um 3000 nr.
Á fyrstu hæð bankans sem
er um 2.150 nr verða fundar-
herbergi, skrifstofur og kerfis-
deild Reiknistofu bankanna,
mötuneyti og aðalinngangur-
inn í húsið, afgreiðsla og það
sem hennir tilheyrir. Gengið
verður inn í húsið frá Arnar-
lióli.
Peningapokarnir beint
íhús
Jarðhæðin er 3,270 nr en
þar verður inngangurinn fyrir
starfsfólk. Einnig verða á jarð-
hæð vinnslusalir fyrir seðla og
mynttalningu, afgreiðsia fyrir
peningastofnanir og ýmis þjón-
ustustarfsemi. Á þessari hæð
kemur Reiknistofa bankanna
einnig til með að hafa vinnslu-
sal sinn og þar verða ramm-
gerðar peningageymslur, enda
er það hér sem öryggisdyrnar
á byggingunni verða. Aðstaða
mun skapast fyrir peninga-
flutningabíla til að keyra inn í
húsið og þurfa þeir að fara í
gegnum tvennar traustar dyr,
sem ekki verður hægt að opna
samtímis. Þannig komabílarn-
ir til með að keyra inn í húsið
og lokast ytri hurðin þá á eftir
þeim og innri hurðin opnast.
öryggisaðstaða á þessari hæð á
að koma í veg fyrir að pokar
fullir af seðlum og öðrum verð-
mætum séu bornir yfir fjölförn-
ustu götur miðbæjarins þegar
þeim er komið úrog í geymslu.
Reiknistofan nýtur vitanlega
góðs af þessu öryggiskerfi líka
enda meðhöndlar hún ekki
síður verðmikla hluti -ávísanir
landsmanna.
Undir allri byggingunni er
síðan athyglisverður kjallari,
sem er 4.280 nr að flatarmáli.
í honum er bílageymslan, vél-
arsalur, peningageymsla og
aðrar geymslur, aðstaða fyrir
lækni, saunabað fyrir starfsfólk
og leikfimiaðstaða, vinnuaö-
staða fyrir húsvörð o.fl. Véla-
salurinn er fyrir loftræstibún-
aðinn í húsinu, en hann er
sérstaklega mikilvægur því
ekki eru á húsinu opnanlegir
gluggar. Kerfi þetta er hvort
tveggja í senn loftræsti og raka-
stillingarkerfi og leiðir straum-
urinn cftir miklum turni sem
stendur upp með aðalbygging-
unni. Turn þessi gegnir þre-
földu hlutverki. í honum miðj-
um er rör fyrir reykinn sem
kcmur frá peningabrennslunni
í kjallaranum. Utan um reyk-
háf þennan verður svo neyðar-
stigi. og í þriðja lagi er í
turninum loftinntak.
Þessa dagana er verið að
vinna að innréttingu á húsinu,
ganga frá loftræstikerfinu. raf-
leiðslum og fleiru. Innrétting-
arnar í húsinu, milliveggir og
þessháttar, rnunu verða úr
endurnýjanlegu efni þannig að
rúm skapist fyrir sveigjanlcika
og breytingar síðar meir ef
þurt'a þykir. enda er húsinu
ætlað að standa um langan
aldur. Þannig taka t.d. raflagn-
ir mið af þessu sjónarmiði og
eru að mestu lagðar í gólf og
loft í stað veggja.
Birtir yfir
efnahagsmálunum?
Ymis önnur athyglisverð
atriði má finna í bygginguni og
má til dæmis benda á fjárhirsl-
urnar í kjallara hússins, þar
senr veggirnir eru tvöfaldir og
er um fets bil ámilli þcirra. Á
milli veggjanna verður síðan
komið fyrir sjónvarpsvélum,
en allar eru þessar hirslur
byggðar samkvæmt nútímaleg-
ustu öryggistækni og marka
því byltingu frá þvfsem nú er.
Á fyrstu hæð hússins vcröur
eins konar innigarður undir
glerkúpli. Mötuneytið verður
að hluta til í þcssum garði
þannig að birtan og Ijósið kem-
ur til með að eiga greiðan
aðgang að starfsfólkinu þegar
það borðargrautinn sinn. Von-
andi boðar það jafnframt,
bjártari tíð í efnahagsmálum
þjóðarinnar, að sérfræðingarn-
ir borði í birtunni.
Svo sem áður segir kcmur
Seðlabankinn ekki til með að
vera einn í húsinu. Reiknistofa
bankanna, sem nú er í ófull-
nægjandi húsnæði í Kópavog-
inum og þar sern vinna urn 75
manns mun fá unr 2260 nr til
umráða.
Einnig nrun Þjóðhagsstofn-
un fá eina hæð, sennilega
þriðju hæðina í aðalbygging-
Sunnudagur 19. maí 1985 7
■ Þetta eru dyrnar að öruggustu fjárhirslu landsins. Gullið
verður geymt bak við þessar dyr (þó ekki þessa hurð).
unni. Starfslið þjóðhagstofnun-
ar mun vera um 25 manns, en
Seölabankinn hefur um 132
manna starfslið. Samanlagður
fjöldi starfsmanna þessara
þriggja stofnana er því 232 og
þegar við bætast vélstjóri.ræst-
ingafólk, húsvarsla og þess
háttar, nrá reikna 250-260
manns korni til mcð að vinna í
þessari nýju byggingu.
Samkvæmt ársskýrslu Seðla-
bankans nam heildarfjárfest-
ing hans vegna nýbyggingar-
innar 193,7 milljónum króna í
árslok 1984 og þar af var
framkvæmdakostnaður 108,7
milljónir. Á þessu ári cr áætlað
að verja svipaðri upphæð til
byggingaframkvæmdanna og
verða megin verkefnin að
ganga frá hvers konar lögnum
í húsinu og búnaði svo seni
lyftum. Einnig megum við eiga
von á að gengið verði frá hús-
inu að utan þannig að hcildar-
mynd af því og umhveríi þess
ætti að fást. Þó verður þessi
heildarmynd ekki fullkomin
fyrr en niðurstöðurnar úr hug-
myndasamkeppni bankans og
borgarinnar um hlutverk og
mótun Arnarhóls liggja fyrir
og þær verið útfærðar. B.G.
■ Innigarðurinn. Ofan á portið kemur glerkúpull og undir
honum verður garður og mötuneyti starfsmanna.
■ Öryggisinnkeyrslan í húsið.