NT - 19.05.1985, Síða 12
m? Sunnudagur 19. maí 1985 12
ulí Leiklist
Birgitta Heide, sem Helvítiskittý.
Leikmyndahönnuðirnir Robin Don og Guðrún Sigríður Haraldsdóttir.
Fagrar konur og fjö
LIFAPÍDITKE
FJOLGAR LEINGI GREINUM
Hinn 20. febrúar 1902 stofnuðu kaupfélögin í
landinu með sér samband til að sinna ýmsum
sameiginlegum verkefnum.
Það hlaut nafnið Samband íslenskra samvinnufélaga
— og er fyrirtækið í eigu kaupfélaganna.
Sambandið hefur með höndum fjölþættan atvinnu-
rekstur — innanlands og utan — og annast
margvísleg verkefni fyrir samvinnufélögin um land
allt.
VINNUM SAMAN
$ SAMBAND (SLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
■ Leikstjórarnir tveir, Kenn OldfTeld og Benedikt Árnason.
■ Það er ekki að spyrja að því að
fallegar konur geta valdið miklu
fjaðrafoki, eins og best mun sannast
á sviði Þjóðleikhússins á föstudaginn
kemur. Tvær töfrandi stúlkur eru
ásakaðar um að myrða elskhuga sína
og hafa verið settar í fangelsi Chicago
borgar. Þetta er árið 1924. Þá, ekki
síður en nú, spiluðu fjölmiðlarnir
stóra rullu í mótun almenningsálitsins
og af kænsku og klókindum tekst
þessum stúlkum að leika jafnt á
fjölmiðlana sem kerfið allt, þannig að
hinir syndum spilltu íbúar annars ára-
tugarins í Chicagóborg, sem svölluðu,
dönsuðu og jössuðu í trássi við yfirlýst
velsæmi, stóðu á öndinni á meðan á
réttarhöldunum stóð.
Smáatriði sögunnar munu koma
fram þegar söngleikurinn Chicago
verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu
24. maí.
Höfundar leiksins eru þeir Bob
Fosse, Fred Ebb og John Kander, en
verkið er byggt á samnefndu leikriti
Maurine Dallas Watkins. Höfundarn-
ir eru allir vel þekktir í „bransanum"
vestan hafs og má til dæmis nefna
það, að Fosse var fyrsti leikstjórinn
sem sama árið fékk allar helstu viður-
kenningar sem veittar eru í Banda-
ríkjunum fyrir leikstjórn. Það var
árið 1973 þegar hann fékk Óskarinn
fyrir að leikstýra og semja dansana í
kvikmyndinni Kabarett; tvenn Tony-
verðlaun fyrir dansana og leikstjórn í
söngleiknum Pippin; og Emmy verð-
laun fyrir dansana og leikstjórn á
sjónvarpsþættinum „Liza with a Z“,
sem var sérstaklega saminn fyrir Lizu
Minelli. Annars hefur Fosse komið
víða við í söngleikjum og kvikmynd-
um og samdi meðal annars dansana
og leikstýrði myndunum Lenny
(Dustin Hoffman í aðalhlutverki) og
Áll that Jazz, sem hlaut fern Óskars-
verðlaun og Gullpálmann á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
Hinir höfundarnir, tónskáldið John
Kander og textahöfundurinn Fred
Ebb eru líka vel þekktir ekki hvað
síst fyrir tónlistina og texthna í Zorba,
Kabarett og svo síðast en ekki síst
Chicago. Þeir félagar hafa starfað
saman í fjöldamörg ár og sarnið
ógrynni frægra laga fyrir einstaka
skemmtikrafta svo sem Frank Sin-
atra, Barböru Streisand og Lizu Min-
elli, og hlotið fjölda viðurkenninga.
Það er því greinilegt að Þjóðleikhúsið
er hér ekki að setja upp neitt meðal
stykki, og að stefnt er að því að
fylgja vel eftir vinsældum leiksins
Gæjar og píur sem hefur verið sýnt
við mikla aðsókn í rúmt ár.
Það var Flosi Ólafsson sem þýddi
leikinn, en leikstjórn annast þeir
Benedikt Árnason og Kenn Oldffeld.
Leikmyndin og búningarnir eru eftir
þau Robin Don og Guðrúnu Sigríði'
Haraldsdóttur. Um músíkina mun 14
manna hljómsveit sjá, en yfirumsjón
verður í höndum Terry Davies og
Agnesar Löve. Ljósameistari verður