NT - 19.05.1985, Side 18
Sunnudagur 19. maí 1985 18
LlL Ljósbrot
. ■ Það var hræðileg sjón að sjá svissnesku
stúlkuna Gabríelu Andersen Schiess, koma eins
og dauðadrukkin inanneskja inná
Olympíuleikvanginn í Los Angeles.
Maraþonhlaupið hafði gengið svo nærri henni
að hún var farin að tapa öllu valdi yfir
hreyfingum sínum. Samt sem áður hélt hún
áfram og undirstrikaði þann óhemju viljastyrk
og kraft sem nauðsynlegur er þeim sem ætlar sér
að ná langt í íþróttum. Ken Regan, Newsweek
Magazine.
■ Það er engu líkara en lyftingamaðurinn svífí í loftinu með
lóðin, stöngina og allt hcila draslið. Alain Ernoult, Sipa Press.
■ Banda-
ríski sund-
meistarinn
Steve
Lundquist
klýfur vatns-
flötinn í verð-
launasundi
sínu á
Ólympíu -
leikunum
Iþróttamyndir
eni sérarein
■ Það að taka ljósmyndir af
íþróttaatburðum er löngu
orðið sérgrein innan
ljósmyndunar. Oft og tíðum
kostar það mikla vinnu að ná
góðum skotum þar scm
ljósmyndarinn þarf ef til vill að
bíða hálfu og heilu dagana eftir
því að augnablikið komi, sem
hann er á höttunum eftir. Hér
eru það líka oft tilviljanirnar
sem gera gæfumuninn.
Atburðirnir gerast snögglega
og þá er það spurningin hvort
að einmitt á þessu augnabliki
hafi Ijósmyndarinn verið með
puttana á réttum stað.
Myndirnar í ljósbroti að
þessu sinni eru ættaðar frá
keppninni um bestu
fréttaljósmynd ársins, World
Press Photo ’85 og sýningu
þeirri sem sett var upp í
Listasafni alþýðu að því tileíni.
I einu tilviki er um
svokallaða myndröð að ræða
en það er þegar fleiri en ein
mynd er tekin af sama
atburðinum eða af sama
fyrirbærinu. Slíkar myndraðir
gefa oft betri mynd af því efni,
sem um er fjallað og möguleika
á að sýna fleiri hliðar.
Myndröðin, sem hér er um
aö ræða, er tekin á því
augnabliki þegar suður-afríska
hlaupakonan, Zola Budd,
hljóp fram úr Mary Decker frá
Bandaríkjunum í þrjú þúsund
metra hlaupi á
Ólympíuleikunum í Los
Angeles. Decker, scm hér
hleypur á heimavelli, var undir
miklum þrýstingi að vinna
hlaupið og þaö urðu henni
óskapleg vonbrigði þegar hún
féll út úr brautinni eftir að þær
stöllurnar rákust á hvor aðra.
Brautardómararnir dæmdu
Zolu til að byrja með úr leik en
eftir að hafa skoðað myndbönd
og ljósmyndir af atburðinum
■ ÞegarhinhvítklæddaZola
Budd frá Suöur-Afríku skaust
fram úi Mary Decker USA féll
sú síðarnefnda út úr brautinni
og var þar með úr leik í þrjú
þúsund metra hlaupinu á OL í
Los Angeles. Myndröð þessi
fékk verðlaun í World Press
Photo keppninni en hún sýnir
í stórum dráttum hvað gerðist
og hefur því mikið fréttagildi.
Bruce Chamhers Long Beach
Press Telegram.