NT - 19.05.1985, Side 19
■ Þórir Guðmundsson DV
náði þessari skemmtilegu
inynd af glímu Bjarna
Friðrikssonar og Douglas
Vieira skömmu áður en Vieira
lagði Bjarna á „yuko“. Það
þarf slunginn Ijósmyndara til
að ná góðum myndum í júdó
því hlutirnir gerast með
leifturhraða.
var sá úrskurður dreginn til
baka.
íslenska myndin af
glímumönnunum er tekin af
Þóri Guðmundssyni,
Dagblaðinu-Vísi, af viðureign
Bjarna Friðrikssonar og
Brasilíumannsins Douglas
Vieira. Hér var í rauninni um
silfurverðlaunaglímu að ræða
og tapaði Bjarni henni. „Ég
var að fylgjast með honum og
fann að þegar Bjarni lagði
Danann, Carsten Jensen, fóru
menn að átta sig á því að
íslendingurinn gæti verið til
alls líklegursagði Þórir þegar
við báðum hann að segja okkur
ofurlítið frá aðdraganda og
tilurð myndarinnar. „Eg var
á stöðugum hlaupum milli
ljósmyndastúkunnar og þess
svæðis, sem íslensku
þjálfararnir voru á. Auk þess
að vera á hlaupum og reyna að
vinna bæði verk Ijósmyndara
og blaðamanns er erfitt að eiga
við glímumenn sem myndefni.
Atburðirnir gerast með
leifturhraða og það er helst að
vera með mótordrifna
myndavél sem getur skotið
viðstöðulaust. Ég var svo
heppinn að hafa slíka vél í
þetta skiptið og það hjálpaði
mikiðtil." J.Á.Þ.
Sunnudagur 19. maí 1985 19
■ „Ællarðu að brjóta á mér
handlegginn fanturinn þinn,“
gæti glímumaðurinn verið að
segja. Ljósmyndaranum,
Alain Ernoult frá Sipa Press,
tókst að fanga þcnnan einstaka
andlitssvip einmitt á réttu
augnabliki.
► Tvímenningssleði. Eamonn McCabe, The Observer.