NT - 19.05.1985, Qupperneq 21
Kaupfélögin og
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
Fyrirliggjandi til afgreiðslu strax
Lausn á síðustu krossgátu
WILD heyblásarar
mikil afköst - hey og vothey
með eða án söxunar!
Wild súg
þurrkunarblásarar
margar stærðir!
verði forgangsmál, því að hér
er um grundváHarmenningar-
stofnun að ræða, sem við mun-
um geta sótt alls konar afþrey-
ingu, fróðleik og hagnýtar upp-
lýsingar til.Auk þess að hjálpa ,
okkur til að skilja listaverk
íslenskrar náttúru og vernda
þau, verður þetta okkar sterk-
asta landkynning í orðsins
fyllstu merkingu.
Tökum höndum saman og
leysum þetta mál.
Ámeðan við bíðum...
kynnum við þessi mál á ýmsan
hátt síðasta sunnudag hvers
mánaðar, nema þá ástórhátíð.
í slíkum tilfellum verður kynn-
ingin næsta sunnudag á undan.
Þá munum við fá í lið með
okkur ýmsa aðila til þess að
kynna eins og kostur er, hluta
af fyrirhuguðu náttúrufræði-
safni,
Einnig verður náttúrufræði-
dagur árlegur Viðburður.
Fyrsti náttúrufræðidagurinn
verður haldinn sunnudaginn
19. maí og er dagskráin birt
sérstaklega. Með þessu von-
umst við til að glæða áhuga og
skilning á þessu brýna þjóö-
þrifamáli okkar íslendinga,
sem' eigum alla tilveru okkar
undir náttúru landsins.
(Frá áhugahóp um byggingu
náttúrufræðisafns).
■ Fullkomið, alhliða nátt-
úrufræðisafn er ein helsta
menningarmiðstöð hverrar
þjóðar. Safn sem sýnir, fræðir
og kemur okkur í snertingu við
lifið sjálft og umhverfi þess,
jörðina. En til þess að slíkt
safn sé starfi sínu vaxið þarf
það, eins og aðrar menningar-
stofnanir, aðstöðu, útbúnað og
nægilegt starfslið.
Sýningarsalur Náttúrufræði-
stofnunar íslands eins og hann
heitir nú, er á 90 m gólffleti á
3. hæð á óaðgengilegum stað
og vita fæstir af tilveru hans.
Aðstaða starfsmanna til að
sinna þörfum safnsins hefur
alltaf verið afarslæm. Þessu til
samanburðar má hugsa sér að
Þjóðminjasafnið, Þjóðarbók-
hlaðan, Listasafn íslands eða
Þjóðleikhúsið hefðu 90 m
gólfflöt til þess að sýna allt sem
þessar stofnanir hafa fram að
færa og að hljómleikasalur Sin-
fóníuhljómsveitarinnar væri
ekki stærri. Húsakostur þess-
ara stofnana er þó síst of mikill.
Þetta aðstöðuleysi veldur
því, að þjóðin fer á mis við
mikilvæga fræðslu urn náttúru
landsins og náttúruvernd. og
kemur það" ekki síst niður á
skólaæsku landsins. Auk þess
ber að minnast þess, að erlend-
ir ferðamenn heimsækja ísland
vegna hinnar sérstæðu náttúru
landsins, en hafa nú nijög tak-
markaða möguleika til að nýta
sér þa' uppiifun til fulls.
Frá áramótum hefur starfað
hópur áhugamanna um bygg-
ingu Náttúrufræðisafns sem
væri samboðið íslensku þjóð-
inni. Hann hefur skoðað sögu
þessa máls, rætt þarfirnar frá
ýmsum sjónarhornum og sam-
ið greinargerð um hvernig
fyrirhugað safn ætti að vera og
starfa. Þessi greinargerð er
hópurinn að kynna ýmsum að-
ilum um þessar mundir.
Hvað er nú til ráða?
Að við öll, einstaklingar,
fjölskyldur, fjölmiðlar, fyrir-
tæki, stofnanir, sveitarfélög,
náttúrugripasöfn urn landið
allt, Reykjavíkurborg, Alþingi
og ríkisstjórn, sameinumst nú
sem einn maður og hrindum
þessu mikilvæga máli i fram-
kvæmd og það sem fyrst. Þetta
Náttúrufræðidagur 19. maí
■ Áhugahópurumbyggingunáttúru-
fræðisafns gengst fyrir náttúru-
fræðidegi sunnudaginn 19. maí í sam-
vinnu við ýmsar stofnanir. Markmiðið
er að kvnna almenningi nokkur brot af
því sem væntanlega verður hægt að sjá
á náttúrufræðisafni þjóðarinnar í fram-
tíðinni. Þar sem safnið er enn ekki
risið, verður sýningin á víð og drcif, en
stendur þann tíma sem Náttúrugripa-
safnið við Hlemmtorg er opið, eða kl.
13.30-16.00.
Dagskrá:
Náttúrufræðistofnun íslands (Náttúr-
ugripasafnið) við Hlemmtorg:
Rannsóknaaðstaða og bókasafn er
Hlemmtorgsmegin. Bókasafnið, á 5.
hæð, er eitt hið stærsta sinnar tegundar
hérlendis. Það verður opið og verða
valdar bækur og rit til sýnis, þ.á.m.
nokkrar afar fágætar bækur.
Sýningarsalurinn, inngangur frá
Hverfisgötu, verður opinn og verða
náttúrufræðingar á staðnum til að
leiðbeina og svara fyrirspurnum. Inn-
lend og erlend dýr, sjávardýr, plöntur
og bergtegundir.
Hafrannsóknastofnun, Skúlagötu 4,3.
hæð sýnir sitthvað forvitnilegt úr djúpi
hafsins.
Landvernd, Skólavörðustíg 25, 2. hæö
sýnir nýjar gervitunglamyndir og ný
gróðurkort frá Rannsóknastofnun
Landbúnaðarins.
Kl. 13.30 verður rætt um gróður og
gróðureyðingu á íslandi með skyggnu-
sýningu.
Námsgagnastofnun, kennslumiðstöð,
Laugavegi 166, sýnir fræðslumyndir,
námsefni og hjálpargögn fyrir náttúru-
fræðikennslu.
Náttúrufræðistofa Kópavogs,
(NFSK), Digranesvegi 12, kjallara:
Sýning á hvölum og skeldýrum. Líkön
í hlutfalli 1:15 af öllum þeim tegundum
hvala sem sést hafa við ísland. Út-
skýrður er þróunarferill hvalanna.
Nær allar tegundir íslenskra samloka
og sæsnigla er að finna á sýningunni.
þ.á.m. nokkrar sem aldrei hafa fundist
áður hér við land og eru jafnvel nýjar
fyrir vísindin.
Óvenjulega falleg og vönduð sýning.
Náttúrugripasafniö á Akureyri, Hafn-
arstræti 81 er elsta og jafnframt stærsta
náttúrugripasafnið utan höfuðborgar-
svæðisins. Safnið stundar ýmsa rann-
sóknastarfsemi og á mjög gott safn
bóka og tímarita. Auk almennrar sýn-
ingar er það áhugaverð sýning á ís-
lenskum sveppum. Opið kl. 13.00-
15.00.
Náttúruverndarráð, Hverfisgötu 26,2.
hæð: Sýnd verða Iíkön af þjóðgörðun-
um í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum.
Kynnt verður þátttaka íslands í her-
ferð Evrópuráðsins til verndar fjörum
og vatnsbökkum. Kl. 14.00: Starfsemi
Náttúruverndarráðs kynnt, m.a. með
skyggnusýningu um störf landvarða á
friðlýstum svæðum. Kl. 15.00:
Skyggnusýning um umhverfisfræðslu.
Norræna eldfjallastöðin, jarðfræðihúsi
Háskóla íslands við Hringbraut sýnir
ýmis tæki sem eru notuð við eldfjalla-
rannsóknir og skýrir notkun þeirra.
Á flestum þessara staða verður til
synis nýútkomin veggmynd (plakat)
með 63 litmyndum af íslenskum
plöntutegundum. Myndin er gefin út
af Hinu íslenska Náttúrufræðifélagi í
samvinnu við Ferðamálaráð.
Þess má einnig geta, að auk þeirra
safna sem talin eru upp í dagskránni,
eru náttúrugripasöfn á eftirtöldum
stöðum:
Seltjarnarnesi, Borgarnesi,
Hellissandi, Varmahlíð, Húsavík,
Neskaupstað, Höfn, Vestmannaeyjum
og Selfossi.
Lifandi dýr:
Fuglaskoðarar verða með sjúnauka
við Tjörnina í Reykjavík og leiðbeina
varðandi fuglalífið og annað sem teng-
ist þessum stað. Ýmsir fuglanna skarta
nú sínu fegursta.
Hvfir laxar (albínóar) frá Laxalóni
verða til sýnis í Austurveri, Háaleitis-
braut 68.
Hryssur með folöld verða til sýnis á
Víðivölium við Vatnsendaveg (milli
Elliðaáa og Seláshverfis).
Ær með lömb er því miður ekki hægt
að sýna núna, en um hvíta-
sunnuhelgina má sjá þau við Fjárborg
í Hólmsheiði (nálægt Rauðavatni).
Að sjálfsögðu er aðgangur ókeypis
að allri dagskrá náttúrufræðidagsins
WILD heydreifikerfi í hlöður.
Kynnið ykkur umsögn notenda!
N ? VV 7
Ui
Sunnudagur 19. maí 1985 21
ing n