NT - 19.05.1985, Blaðsíða 22
JUg ftft'í'Wn*'?
v f,
ffS' Sunnudagur 19. maí 1985 22 .
LlU
■ Þctta er eins og trúarleg
athöfn. Alvarlegur á svip brýt-
ur maðurinn hrosshársábreið-
una sína og lakið saman. Horn
í horn. Þaö verður að vera röð
og regla á hlutunum, þó líf
manns sé komið í ógöngur.
Þessi maður, Monsieur
becocq, stcndur við dýnuna
sína í heimilisleysingjaskýli Pi-
erre ábóta í París, cn það
hefur verið heimiii hans í
margar nætur nú. Það er af því
að Monsieur Lecocq hcfur
ekki ráð á að búa í eigin íbúð
lengur. Fyrir tveimur árum
missti hann vinnu sína sem
starfsmaður heilbrigðiskerfis-
ins. Það var vegna sparnaðar-
ráðstafana ríkisstjórnarinnar.
Leit að nýju starfi hefurengan
árangur borið. Nú heyrir
Monsieur Lecocq til milljóna-
her nýsnauðra (noveux pauvr-
es) í Frakklandi og telst nú
hver níundi maður búa viö
aðstæður sem teljast fátækt, -
eöa svo reiknast þeim til hjá
Efnahagsbandalagi Evrópu í
Brússel. Heimili Lecocq er
heimilisleysingjaskýlið. Mat
fær hann frá Hjálpræöishern-
um. Vonir hans um betri tíma
dvína með dcgi hverjum.
En hann hefur ekki gefið
upp vonina, -og það er munur-
inn á þcim eldri í skýlinu og
hinum yngri. Hann gefst ekki
upp. Skyrtan hans er hrein og
bindið vandlcga hnýtt. Vera
má að nýjum atvinnuveitanda
skjóti upp.
Tölurnar um nvja öreiga í
Frakklandi hafi vaxið óhugn-
anlega í tíð jafnaðarmanna-
stjórnar Francois Mitterrand.
Þann 10. maí I0SI fögnuðu
verkamenn og menntamenn í
sameiningu sigri sósíalistanna.
Þcir vonuðu að hann væri fyrir-
boði ötlugrar framþróunar
markmiða byltingarinnar, -
frelsis, jafnréttis og bræðra-
lags. En aðgerðir sósíalista-
stjórnarinnar hafi haft þver-
öfug áhrif sl. ár. Frökkum
gengur verr en nokkru sinni.
Aö þcssu kentur rithöfundur-
inn Miehel Poniatowski í ný-
útkominni bók sinni „Social-
isme á la francaise," -franskur
sósíalismi. Hann birtir þar
uggvænlegt talnasafn.
Þannig líta hækkanir á
stjórnartíma jafnaðarmanna
út:
1) Tala atvinnulausra steig um
69%.
2) Halli á heimilishaldi steig
um 625%.
3) Útgjöld vegna atvinnu-
leysisins um 300%.
4) Skattar. sem verst konta
niður á þcim snauðu, um
66%.
5) Tala gjaldþrota fyrirtækja
um 44%.
Það er því ekki að undra að
fólk er nú tckið að líta málin
öðrum augum. Rósrauður
vonarbjarminn frá maídögun-
um 1981 er fyrir löngu orðinn
að ógnandi óveðursskýjum.
„Mér þykir nóg komið af af-
skræmingunni á sósíalisman-
um. hugmyndum hans. venj-
um og aðferðunt," segir Louis
Pauwels, forstjóri helgartíma-
ritsins „Figaro Magazine," sem
gefið er út í París. í einum
leiðaranna, þar sem Pauwels
bendir á ýmsa vankanta sósía-
lismans í Fimmta lýðveldinu
þrumar hann: „Ekki eru öll ár
eins. Eftir þrjátíu ára1
■ Kotchild barón stjórnar skrifstofuhaldi sínu úr rúminu.
■ Atvinnulevsingi hefur lagst til svefns í neðanjarðarjárnbrautinni.
■ Fullorðin hjón virða fyrir sér krásirnar í einni af fínustu
matvöruverslunum Parísar. Hlutskipti þeirra er hins vegar að
róta eftir afgöngum sem grænmetissalar borgarinnar hafa fleygt,
sbr. innfelldu myndina.
Efnahagsmálin hafa lent í ógöngum
undir stjórn Mitterrand, - á næsta
ári er hægri öflunum spáð sigri
Volæði eykst
meðal Frakka