NT - 19.05.1985, Síða 23
Sunnudagur 19. maí 1985 23
■ Monsicur Lecocq í heimilisleysingjaskýli Piérre ábóta. Hann hefur verið atvinnulaus í tvö ár,
en vonar stööugt hið besta.
uppgangstímabil höfum við nú
lifað fjögur ár í drafinu."
í drafinu. - já, einnig finnst
mörgum menntamanninum að
hann hafi veriö illa svikinn.
eftir að hafa stutt vinstri stjórn-
ina til valda.
Einn talsmanna þeirra er
leikarinn, söngvarinn og
trúðurinn Yves Montand, sem
nýtur svo mikillar hylli í ýms-
um hópum, að menn hafa
ítrekað skorað á hann að bjóða
sig fram til forseta lýðveldisins.
Eftir að hafa steinþagað um
pólitísk málefni í eitt ár, átti
Montand viðtal við „Paris
Match, þar sem hann skoðar
sigur sósíalista út frá ýmsum
sjónarhornum:
„Petta var sigur sem vinstri-
menn unnumeð 1.2milljónum
manna setn komu úr herbúð-
um íhaldsmanna og frjáls-
lyndra. Án þeirraatkvæða væri
Francouis Mitterrand ekki
forseti." Montand telur að
vinstri mönnum ha.'i alls ekki
tekist að ná tökum á efna-
hagslífinu. „Efnahagsleg upp-
svcifla, eins og á árunum fyrir
1970 er varia möguleg," segir
hann. „En ef það tækist að
stöðva aukningu á tölu at-
vinnulausra fyrr en seinna og
koma efnahagslífinu á hreyf-
■ Fiðluleikur á strætum úti í von um nokkrar sentímur.
ingu, þá held ég að þessa
stjórn ætti að endurkjósa."
En hinn frægi leikari telur
litlar horfur á að þetta gerist.
Þær tölur sem birst hafa um
óheillavænlega þróun efna-
hagsmála styðja þaö sjónarmið
hans. Lokaályktun hans talar
sínu rrjáli: „Pað verður að gefa
frjálslyndum og íhaldsmönn-
urn færi á að fást við efnahags-
vandann að nýju."
Nýju öreigarnir ala með sér
söniu vonir og þeim mun gefast
færi á að láta þær rætast. Á
næsta ári eru þingkosningar.
Margir eru ekki myrkir í máli
um hugmyndir sínar: Með
hægri mönnum verður sigrast
á fátæktinni.
Monsieur Lecock í heimilis-
leysingjaskýli Pierre ábóta
mun það þó lítt hjálpa. Ekki
heldur ýmsum afkáralega
sminkuðum útigangs-Chaplin-
um, sem betla sér fáeinar
sentímur fyrir framan hið
fræga Café de Flore í St.
Germaine ineð fíflalátum
ýmsum. Ekki hcldur betlurum
með blóni í krumpuðum liatt-
inum, sem teygja fram lúkuna
í ferðamannaþrönginni á
Champs Elysée. Þótt vor rynni
upp vorið 198S. mega þeir
lengi bíða eftir vorkomunni í
einkalífi sínu.
Tveggja
ára ábyrgð
Vegna góðrar reynslu bjóðuni við óhræddir 2ja ára ábyrgð
á CASE dráttarvélum.
Þeir sem haía keypt CASE dráttarvél nú þegar niunu
einnig njóta tveggja ára ábyrgöar.
Dráttarvélar íýmsum
stærðum með eða án framdrífs.
liendum sérstnklef’n ú hinn tjölþættn búnnö, svo sem:
Frúbivru uöstööu fyrir stjörnundu. — Hljööeinungruö
hiis meö sléttu gólti, lituöu gleri og frúlnvru útsýni. Auk
þess er öllum stjórnbúnuöi komiö fyrir ú þægilegustu
mútu fyrir stjórnundunn.
M jög gott verð á öllum stærðum
t.d. 129462 ha. með drifi á öllum hjólum og
fullkomnasta búnaði á aðeins kr. 540.000.-
Kynnið ykkur verð og greiðslukjör
PXO
Járnháls 2
Pósthólf 10180
110 Reykjavik
Sími83266
ÞÉR TEKST ÞAÐ MEÐ KII2