NT - 22.05.1985, Side 20
n
Miðvikudagur 22. maí 1985 20
Eþíópískir flóttamenn í
Sudan halda heim á leið
Nairobi-Rcuter
4 Tugir þúsunda eþíópískra
flóttamanna hafa lagt af stað
fótgangandi heim til sín úr
flóttamannabúðum í Sudan eftir
að þeir fréttu að það hefði rignt
í heimasveitum þeirra í Eþíóp-
íu. Peir segjast verða að fara og
sá korni á ökrum sínum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna höfðu allt að 35 þús-
und flóttamenn snúið heim á
leið í gær. Óttast er að sjúkling-
ar, konur og börn þoli ekki hina
löngu ferð aftur til heimahag-
anna og muni deyja á leiðinni.
Malta:
Kommúnistar í
kosningaslaginn
Vallctta-Kcutcr
■ Kommúnistar á Möltu hafa
nú í hyggju að hætta áralöngum
stuðningi sínum við Verka-
mannaflokkinn sem nú heldur
um stjórnartaumana og taka
sjálfir þátt í kosningaslagnum í
næstu þingkosningum eyjarinn-
ar.
Pakistan:
Hýðingu
frest-
að vegna
annríkis
Karachi-Rcuter.
■ Fangelsisyfirvöld í Karachi
frestuðu hýðingu tveggja manna
fyrr í þesari viku fyrirvaralaust
vegna annríkis. Áhorfendur
sem höfðu safnast saman til að
fylgjast nteö hýðingunum urðu
fyrir svo miklum vonbrigðum
að það varð að kalla á lögregl-
una til að róa mannskapinn.
Annar maðurinn, sem átti að
hýða, hafði gert sig sekan um
„kynvillu“ en hinn hafði nauðg-
að 13 ára gamalli stúlku sem
hann hafði numið á brott. Fyrir
það var hann dæmdur í ævilangt
fangelsi og til 60 vandarhögga.
Nú verður ekki hægt að hýða
mennina fyrr en eftir mánuð því
að í gær hófst föstumánuður
múhameðstrúarmanna og þann
mánuð má ekki hýða afbrota-
menn.
Anthony Vassallo, aðalritari
Kommúnistaflokksins, skýrði
frá þessari stefnubrcytingu á
fundi fyrr í þessum mánuði með
blaðamannanemum í háskólan-
um á Möltu.
Kommúnistar hafa ckki tekið
þátt í neinum þeirra þriggja
þingkosninga sem haldnar hafa
verið síðan þeir stofnuðu flokk
sinn árið 1969. Þeir hafa haldið
sig frá framboði af ótta við að
atkvæði verkalýðsins dreifðust
um of.
En Verkamannaflokkurinn
hefur orðið fyrir aukinni gagn-
rýni kommúnista, bæði heima
og erlendis, síöan síöustu kosn-
ingar fóru fram árið 1981.
Það sem einkunt hvetur
kommúnista til dáða um þessar
ntundir er aukinn stuðningur
hafnarverkamanna og vaxandi
viðskipti við Sovétríkin.
Vassallö heldur því fram í
grein í alþjóðlegu tímariti
kommúnista að undir stjórn
Verkamannaflokksins hafi spill-
ing farið vaxandi. Hannsegirað
langur valdatími hafi gert
flokksmeðlimi hrokafulla og
heldur því ennfremur frant að
atvinnuleysi sé kontið upp í
20.()()() manns - eða 15% af
vinnuaflinu - en ekki 10.000
eins og ríkisstjórnin segir.
Vassallo vill ekki gcfa upp
neinar tölur um meðlimafjölda
Kommúnistaflokksins og er því
erfitt aö meta hvaða áhrif fram-
boð þeirra mun hafa á næstu
þingkosningar sem fara frant
árið 1987.
r
BLAÐBERA
VANTAR
IEFTIRTAUN HVERFI:
BIRKIHVAMM, REYNIHVAMM, HLÍÐARVEG,
HEIÐARHVAMM, LAUGAVEG, GRANDA, SKERJA-
FJÖRÐ, SELTJARNARNES:
En flóttamennirnir segjast
verða að fara heim núna þar
sem annars sé hætta á því að
þeir festist í Sudan og komist
aldrei aftur heim. Starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna hafa reynt
að telja þá sem hafa ungbörn
eða eru sjúkir ofan af því að
fara alla þessa leið fótgangandi,
en með litlum árangri. Flótta-
mennirnir eru staðráðnir í því
að fara heim þótt sumir þeirra
viðurkenni að þeir viti reyndar
lítið um það hvernig ástandið
þar sé.
Flóttamennirnir, sem nú eru
á leiðinni heim til sín, koma frá
Tigray en starfsmenn Samein-
uðu þjóðanna í Eþíópíu segja
að þar sé ennþá mikill fæðu-
skortur. Eþíópíumenn segjast
niunu setja upp búðir við landa-
mærin þar sem flóttamennirnir
komi til baka. Þar geti þeir
fengið mat og aðhlynningu.
Hjálpar- og endurreisnar-
nefndin í Eþíópíu hefur beðið
alþjóðlegar hjálparstofnanir um
að senda sáðkorn og verkfæri til
að aðstoða flóttamennina til að
koma aftur undir sig fótunum
og rækta sinn eigin mat.
Unt þrjú hundruð þúsund eþí-
ópískir flóttamenn eru í
flóttamannabúðum í Sudan en
þar eru einnig um 700.000
flóttamenn frá öðrum ná-
grannaríkjum.
Eþíópísk flóttakona með tvö börn sín í flóttamannabúðum í Sudan.
Pakistan:
Pyntinga-réttarhöldum flýtt
1 Sídumúli 15. Sími 686300
Islamubad-Rcutcr:
■ Réttarhöldum yfir yfir-
mönnum í pakistanska hernum
sem sagðir eru hafa skipulagt
samsæri um að ræna Moham-
mad Zia-ul-Haq forseta og ræna
yöldum er nú hraðað eftir mætti
svo unnt verði að ljúka þeim
áður en herlögum veröur opin-
berlega aflétt.
Réttarhöldin í Attock virkinu
eru einna viðkvæmust fimm
leynilegra réttarhalda hersins
síðast liðið ár og það eina sem
sakar starfandi yfirmenn í hern-
um um samsæri gegn Zia herfor-
ingja. Þrjú önnur réttarhöld
enduðu á þann veg að einn
maður var hengdur og 62 hlutu
lífstíðardóm. Fimmtu réttar-
höldin sem haldin eru gegn
tugum óbreyttra borgara standa
enn yfir.
Líbýa:
Matur og lyf
til svangra
Sudana
Rhartoum-Reutcr.
■ Líbýski flugherinn hefur
hafið flutninga á mat og tækja-
búnaði með flugvélum sínum
til þurrkasvæðanna í Suður-
Sudan, - en ríkisstjórnin í
Sudan segir að þar deyi 80
manns úr hungri á hverjum
degi.
Um helgina flugu átta flug-
vélar frá Tripoli til Sudan með
m.a. 20 tonn af matvælum,
800 tjöld og 35 tonn af lyfjum,
að sögn opinberu fréttastof-
unnar SUNA í Súdan.
Zia, sem rændi völdum árið
1977, hefur heitið því að aflétta
herlöguut á þessu ári. Verði
réttarhöldunum ekki lokið áður
verður að vísa þeim til opinna
borgaralegra dómstóla.
Heimildarmenn Reuters-
fréttastofunnar, sem vildu ekki
láta nafna sinna getið, sögðu að
sækjendur málsins gegn 14 yfir-
mönnum í hernum, tveimurlög-
reglumönnum og einum vinstri
sinnuðum lögfræðingi myndu
aldrei vinna málið fyrir borgara-
legum dómstólum vegna þess
að þeir byggðu málssóknina á
játningum, sem kreistar hafi
verið upp með pyntingum.
Samkvæmt yfirlýsingum sem
smyglað var út úr Attock virk-
inu, um miðja vegu milli Raw-
alpindi og Peshawar, voru sak-
borningarnir neyddir til að
liggja naktir á íshellum, pyntað-
ir með rafmagni og einnig var
piparavöxtum stungið upp í
endaþarm þeirra þangað til þeir
játuðu.
Samkvæmt játningum áttu
ýmsir nafnkenndir herforingjar
að vita um samsærið en þeir
hafa ekki verið ákærðir að sögn
heimildarmanna Reuters. Flestir
þeirra eru sestir í helgan stein.
Ríkisstjórnin víkur sér undan
því að ræða þessi leynilegu
réttarhöld og Zia hefur neitað
því að um samsæri hafi verið að
ræða. Hann sagði fréttamönn-
um að umræddir yfirmenn hers-
ins hafi verið handteknir fyrir
smygl.
I ákæruskjalinu, sem Reut-
ers-fréttastofan hefur komið
höndum yfir, segir að þeir hafi
haft í hyggju að ræna Zia,
sprengja heimili herforingja og
ráðherra í loft upp, eyðileggja
brýr og og símalínur, hvetja til
fjöldauppreisnar og taka völdin.
■ Zia-ul-Haq forseti Pakistan keyrir nú ieynileg réttarhöld gegn óvinum sínum áfram harðri hendi
svo þeim verði lokið áður en herlögunum í landinu verður aflétt því játningarnar sem knúðar eru fram
með pyntingum yrðu ekki viðurkenndar af borgaralegum dómstóluin. Zia rændi völdum í Pakistan
árið 1977.