NT

Ulloq

NT - 17.08.1985, Qupperneq 23

NT - 17.08.1985, Qupperneq 23
KR fær stigin Laugardagur 17. ágúst 1985 23 „Jónsmálið“ í fyrsta leiknum gegn Þrótti - Dómurinn á einu máli ■ Lið Áburðarverksmiðjunn- ar sigraði í firmakeppni knatt- spyrnudeildar ÍR sem lauk fyrir skemmstu. Liðið hlaut níu stig 10 möguleikum. ATYR varð í öðru sæti með sjö stig og Eim- skip í hinu þriðja með sex stig. Þetta var níundi sigur Áburð- arverksmiðjunnar í firmakeppni á sl. tveimur árum. Alls tóku 15 lið þátt í keppn- inni að þessu sinni og var þeim skipt í þrjá riðla. Tvö efstu í hverjum' I riðli komust svo í úrslitin og léku þá allir við alla, einfalda umferð. ■ Dómstóll KSÍ tók fyrir í gær málið víðfræga sem kennt hefur verið við Jón G. Bjarnason KR-ing og kallað „Jónsmálið“. Málið snérist um það hvort Jón G. Bjarnason hefði verið í leik- banni í opnunarleik íslands- mótsins er KR sigraði Þrótt 4-3. Skeyti Aganefndar þar að lút- andi barst aldrei KR-ingum og vildu þeir því ekki una dórni undirréttar að Þróttur skyldi vinna leikinn þar eð Jón hefði átt að vera í banni en Jón kom inná í þessum leik. KR-ingar áfrýjuðu því dómnum. I dómsorðum segir: „Úrslit í leik KR og Þróttar í 1. deild 13. maí 1985, 4-3 KR í hag, skulu standa óhögguð.“ Þá höfum við það. Við þennan dóm þá er staðan í 1. deild loks orðin skýr. KR-ingar komast á ný í topp- slaginn en Þróttarar hrapa niður í næst neðsta sæti deildarinnar og er farið að hilla undir 2. deildarsæti hjá þeim ef þeir taka sig ekki á. Staðan í 1. deild er þá þannig: ÍA 8 2 3 28-13 26 Fram .... 13 8 2 3 26-19 26 Valur 7 4 2 19-10 25 Þór 8 1 4 22-16 25 KR 7 3 3 27-18 24 IBK 7 1 5 22-14 22 FH .... 13 4 1 8 15-24 13 Viðir 3 3 7 15-28 12 Þróttur .... 13 3 1 9 14-26 10 Vikingur .... .... 13 1 0 12 12-30 3 ...KÖRFUKNATTLEIKSDEILD HAUKA verður í ágúst með körfuboltaskóla fyrir drengi og stúlkur. YNGRIHÓPUR: (7,8 og9 ára) kl. 10:00-12:00 ELDRI HÓPUR: (10, 11 og 12 ára) kl. 13:00-15:00 Kennslan fer fram í íþróttahúsi Hauka. Farið verður yfir helstu undirstööuatriði körfuknattleiksins og leikið á „minni körfu“. Þá verður boðið upp á körfuknattleiksmyndir af myndböndum og jafnframt ntunu þekktir körfu- knattleiksmenn og þjálfarar koma í heimsókn. Námskeiðið verður sem hér segir: Mánudaginn 19. ágúst verður innritað og byrjað. Verð fyrir námskeiðið er kr. 300.- Stendur námskeiðið síðan út vikuna. Laugardaginn 24. ágúst endar námskeiðið nteð móti fyrir þátttakendur o.fl. Kennari verður Ingvar S. Jónsson, íþrótta- kennari og þjálfari... Nachi legur er japönsk gæðavara á sérsaklega hagstæöu verói. Allaralgengustu tegundir fáanlegará lager. Sérpantanir eftir þörfum. im i ixim f HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK SIA/II: 685656 og 84530 ■ Jón Þórir veður her i gegnum KA vörnina en fyrir aftan hann er Hinrik Þórhallsson, sem gerði mark KA. íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: Jafntef li á Akureyri NT-lið þrettándu umferðar - þegar KA tók á móti Blikunum í 2. deild - Góð úrslit fyrir Eyjamenn ■ KA og Breiðablik gerðu jafntefli í leik liöanna á Akur- eyri í gærkvöldi. Hvort lið skor- aði eitt mark. Leikurinn var einn af toppleikjum deildarinn- ar og ntá segja að hvorugt liðið hafi hagnast á úrslitum hans. Það lið sem hagnaðist hvað mest eru eflaust Eyjamenn sem með sigri á Fylki í Eyjum í dag geta skotist upp í efsta sæti 2. deildar. KA situr nú eftir í þriðja sætinu en er aðeins fjórum stigum á eftir Breiðablik og með leik til góða. Staðan: Breiðablik........ 14 8 4 2 26-13 28 ÍBV............... 13 7 5 1 34-11 26 KA ............... 13 7 3 3 24-12 24 KS................ 13 6 3 4 20-17 21 Völsungur......... 13 5 3 5 21-18 18 ÍBÍ .............. 13 3 5 5 12-19 14 UMFN ............. 12 3 4 5 7-16 13 Skallagrímur ..... 13 3 4 6 15-30 13 Fylkir............ 13 3 3 7 12-17 12 Leiftur........... 13 2 2 9 9-27 8 Opin drengjakeppni ■ Golfklúbburinn Keil- ir heldur í dag opna drengjakeppni á Hval- eyrarholtsvelli. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Ræst verður út frá kl. 11:00 til 13:00 Rétt til þátttöku á mótinu eiga þeir drengir sem verða 16 ára á árinu og að sjálf- sögðu allir enn yngri. Frétlatilkynning frá Keili. Leikurinn var jafn í gær. KA-menn voru reyndar heldur ágengari upp við markið en hvorugu liði tókst að skapa sér umtalsverð færi í leiknum. KA-menn áttu eitt þokkalegt færi í fyrri hálfleik en Blikarnir komust lítt áleiðis. í síðari hálfleik opnaðist leikurinn aðeins enda kominn þreyta í leikmenn. Það voru sem fyrr KA-menn sem voru ágengari en án færa. Það var því gegn gangi leiksins sem Blikarn- ir tóku forystu. Jóhann Grétars- son fékk boltann innfyrir vörn KA og hann afgreiddi hann snyrtilega og örugglega í netið, 0-1. Þegar þetta gerðist voru um 15 mínútur til leiksloka. Fimm mínútum fyrir leikslok jafnaði síðan Hinrik Þórhallsson, fyrr- um Bliki, metin með fallegu marki. Tekiðvarhorn ogHinrik Parisvannenn Paris St. Germain heldur áfram sigurgöngu sinni í Frakklandi. Liðið sigraði ígær Auxerre á útivelli 1-0. Annars urðu úrslit í Frakklandi í gær þessi: Auxerre-Paris S.0.......... 0-1 Nice-Lens ..............;... 1-1 Lille-Nantes .............. 0-1 Bordeaux-Rennes ........... 3-2 Toulouse-Toulon ........... 4-0 Bastia-Monaco.............. 0-0 Laval-Sochaux.............. 3-1 Marseilles-Nancy........... 2-3 Le Harve-Brest ............ 2-0 Metz-Strasbourg ........... 0-0 afgreiddi fyrirgjöfina viðstöðu- laust í marknetið. .1-1. Þar við sat. Baráttuleikur sem bar merki mikilvægi hans. KA-menn held- ur sterkari en ekki afgerandi. Ef Eyjamenn vinna \ dag þá fara þeir í toppsætið en Blikar verða í öðru og KA í því þriðja. KA á þó leik til góða. Guðmundur Erlingsson Þrótti (2) Guðjón Þórðarson Jon Kr. Magnússon ÍA (4) óskar Gunnarsson Sævar Jónsson Þór (3) Val (3) Amundi Sigmundsson Vikingi Halldór Askelsson Þór (3) Valur Valsson Val (2) Janus Guðlaugsson FH (2) Guðmundur Knutsson Víði Sigurjón Kristjánsson ÍBK (4) Molar-Molar ...GARY SHAW hjá Aston Villa verður tilbú- inn í slaginn í ensku knattspyrnunni í dag eftir að hafa verið meira og minna á sjúkrahúsum að undanförnu. Shaw hefur gengist undir fjórar skurðaðgerðir á 18 mánuðum en virðist nú loks vera í góðu formi. Tveir aðrir leikmenn eru að standa upp úr miklum meiðslum. Remi Moses hjá Manchester United verður sennilega í byrjunarliði í dag og Adrian Heath hjá meistur- um Everton vonast til að komast í liðið hjá Everton er þeir mæta Leicester í dag... ...EINN AÐDÁENDA JUVENTUS lést í gær á sjúkrahúsi. Hann hafði verið í dái síðan hann tróðst undir í ólátunum fyrir leik Liverpool og Juventus í Evrópukeppni meistaraliða á Heysel leikvanginum í Beigíu. Tala látinna úr þessum hörmungar atburðum er því orðin 39... ...BRASILÍSKU MEISÍARARNIR Flumin- ense og liðið í öðru sæti þar í landi, Vasco da Gama, gerðu 0-0 jafntefli í 1. riðli Libertadores keppninnar í S-Ameríku. Libertadores-keppnin er svipuð Evrópukeppni meistaraliða... ...EINS OG FRAMHEFUR KOMIÐ í blöðum er knattspyrnukappinn Socrates á leiðinni heim til Brasilíu. Félagið Ponte Preto í Sao Paulo hefur nú keypt kappann og er það staðfest bæði af hálfu Fiorentina sem hann lék með og hins nýja félags að sögn Reuters. Svo eitthvað nýtt komi fram í málinu er rétt að geta þess að fullt nafn kappans er Socrates Brasileiro de Sousa Vieira de Oliveira... Tákn nákvæmninnar NACHI KÚLULEGUR \

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.