Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.2004, Side 1
Laugardagur 9.10. | 2004 41. tölublað | 79. árgangur
[ ]Betra lýðræði? | Er Ísland gott lýðræðisríki eða þarfnast það endurnýjunar við? | 7–10Pedro Almodóvar | Fele Martínez er aðalleikari í mynd meistarans, La mala educacíon | 12Bílar | Eða konan, heimilið, börnin, foreldraorlofið, skipulagsævintýri á ábyrgð karlsins | 2
LesbókMorgunblaðsins
Robbie
Williams
Skemmtikraft-
urinn mikli
Robbie Williams er ýmist hataður eða elskaður, ekki
síst hér á landi. Ný bók um Williams er komin út, Feel,
ævisaga, og þó frekar frægðarsaga, saga um það
hvernig hann þráði frægð umfram allt og nú þegar
hann er á hátindinum er hann að brenna yfir af öllu
saman.
A
llt frá því breski söngvarinn Robb-
ie Williams hélt tónleika hér á
landi fyrir rúmum fimm árum hef-
ur verið alsiða að hnýta í hann,
hann sagður ókurteis frekjuhund-
ur. Kveikjan að því var víst að
hann vildi fá að vera í friði þegar
hann kom hingað til lands
skömmu fyrir tónleikana, brást illa við ágangi frétta-
manna, og sleit svo tónleikum þegar áheyrandi henti í
hann flösku í miðjum tónleikum. Hvað sem atvikunum
líður og hver átti upptök eða ábyrgð eru viðbrögð
hans nokkuð dæmigerð fyrir þennan skapmikla lista-
mann; hann er lítið gefinn fyrir að reyna að geðjast
fólki, en þráir þó fátt heitar en að því líki við hann.
Þegar litið er yfir feril Williams rekst maður hvað
eftir annað á þessar mótsetningar, ekki síst í nýút-
kominni ævisögu hans, Feel, en í henni er þetta
einmitt haft eftir honum: „Ég er 100% það sem 3
Eftir Árna Matthíasson | arnim@mbl.is