Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.2004, Blaðsíða 1
Laugardagur 4.12. | 2004
VALIN BESTA
GLÆPASAGAN
Týnd eftir Karin Alvtegen fékk
Glerlykilinn 2000 sem besta
norræna glæpasagan.
„Lausn gátunnar kemur eins og
skrattinn úr sauðarleggnum og jafnvel
kræfustu krimmasérfræðingar gætu ekki
séð hana fyrir, sem er mikill og óvenjulegur
kostur í því flóði af formúluspennusögum
sem í boði er.“
Soffía Auður Birgisdóttir
Morgunblaðinu 19. nóv sl.
Mögnuð verðlaunabók.
VALIN BESTA
UNGLINGASAGAN
Í loftinu lýsa stjörnur fékk
Augustverðlaunin 2003 sem
í Svíþjóð ganga næst hinum virtu
Nóbelsverðlaunum.
Öllum gagnrýnendum kemur
saman um að sjaldan eða aldrei
hafi verið skrifuð áhrifameiri
unglingabók en höfundurinn,
Johanna Thydell,
er aðeins 24 ára gömul.
Verðlaunabók sem lætur
engan ósnortinn BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Eftir Þröst Helgason | throstur@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Það er ljóðræn
fegurð í óhugnaðinum
Blaðamaður hefur komið í mörg sam-
kvæmi að undanförnu þar sem nýj-
asta skáldsaga Braga Ólafssonar,
Samkvæmisleikir, hefur verið til um-
ræðu en lítið hefur fengist upp úr les-
endum um það hvað gerist í henni.
Það má ekki segja hvað gerist, hafa
þeir sagt með samkvæmissvip, stór-
eygir og svolítið fölir af drykkju,
reykjarsvælu og kannski svefnleysi
því þeir hafa haldið því fram að eitt-
hvað gerist í bókinni sem þeir kunni
ekki að skýra, nái ekki alveg utan um
– stóreygir eins og þeir hafi séð eitt-
hvað sem þeir áttu ekki að sjá og
vildu ekki sjá. Í heitu pottunum full-
yrða menn að sagan gerist í íbúð Þór-
bergs á Hringbrautinni en þegja ann-
ars þunnu hljóði, tala um atburði:
Þessir atburðir verða í íbúð Þór-
bergs, í íbúð Þórbergs og Margrétar!
En þeir svara annars engu, síga djúpt
ofan í pottana svo einungis hvikandi
augun og blautir kollarnir standa
upp úr, en einstaka lesandi hvíslar
inn í gufuna sem stígur upp úr vatn-
inu og út í myrkrið: Hvað gerðist eig-
inlega í þessari sögu? Og þessi spurn-
ing endurómar í blaðadómum: Hvað
gerðist? 3
[ ]
LesbókMorgunblaðsins
Völuspá | Maddaman með kýrhausinn er athyglisverðasta rit sem til er um Völuspá | 4
Haukur Tómasson | Sameinar í tónlist náttúru okkar og menningu, eðlisávísun og rökhugsun | 6
The Stranglers | 72 tíma heimsókn til Íslands ’78 hafði meiri áhrif en margur hyggur | 8